Skessuhorn


Skessuhorn - 05.04.2006, Qupperneq 22

Skessuhorn - 05.04.2006, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2006 ..riiiiM... I sundi haust og vor Einar Hannesson vann Kórinn á tónleikum í Reykboltskirkju. Galakvöld óperuunnenda Galakvöld Óperukórs Hafnar- fjarðar verður haldið miðvikudag- inn 19. apríl, síðasta vetrardag í Gullhömrum Grafarholti. Húsið opnar með fordrykk kl. 19.00 en dagskrá hefst kl. 20.00 Þriggja rétta hátíðarkvöldverður verður á borð- um og heiðursgestur verður Arni M. Mathiesen fjármálaráðherra og frú. Veislustjóri er Öm Amason leikari, skemmtikraftur og söngv- ari. Kórstjóri, einsöngvarar em úr röðum kórfélaga og aðrir flytjend- ur em: Elín Ósk Óskarsdóttir, Jó- hann Friðgeir Valdimarsson, Peter Máté, Örn Arnason, Margrét Grét- arsdóttir, Svana Berglind Karls- dóttir og Höm Hrafnsdóttir. Óp- emkór Hafharfjarðar, dansarar úr Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar og Salonhljómsveit Sigurðar Snorra- sonar leikur undir söng og leiðir gesti áffam í ljúfan vínardansleik ffam til klukkan 1.30 eftir að form- legri dagskrá lýkur. Samkvæmis- klæðnaður er áskilinn. Forsala miða er í Bókasafni Hafnarfjarðar, Bókasafni Kópa- vogs, Tónastöðinni Skipholti og Listhár, Listhúsinu í Laugardal. Miðaverð er kr. 6. 000 - 5.500 fyrir 10 manns eða fleiri. Hægt er að panta miða hjá Björgu Karitas í Einarsnesi á: odin@simnet.is eða í síma 437-1667. (jréttatilkynning) Fundur um Palestmu og Israel í Borgamesldrkju Mánudaginn 10. apríl næstkom- andi klukkan 20 verður kynningar- fundur um málefni Palestínu og Israels í Safnaðarheimili Borgar- neskirkju . Tveir ungir menn, Geir Konráð Theódórsson og Guð- mundur Björn Þorbjömsson vora fulltrúar íslensku kirkjunnar á stjómarfundi Lútherska heimssam- bandsins sem fór ffam í Betlehem í september á síðasta ári. Þeir tóku einnig þátt í ráðstefnu ungs fólks víða að úr heiminum, í tengslum við stjórnarfundinn. Geir og Guð- mundur kynntust vel því ástandi sem ríkir nú fyrir botni Miðjarðar- hafs. Þeir munu skýra ffá ferð sinni í máli og myndum og svara fyrir- spurnum. (fréttatilk. frá Borgarfjarðarprófastsdæmi) Geir og Guðmundur í Kapemaum. Sundnámskeið hjá Grunnskólan- um í Grundarfirði hófust í síðustu viku þrátt fyrir norðan garra og kalsa, enda hraustmenni á ferð. Sundlaugin er hituð upp með olíu- kath og hefur þessvegna verið lok- að hvert ár effir stmdnámskeið að hausti en síðan opnað á ný þegar vorið nálgast á almanakinu. Grundfirðingar bíða þess með óþreyju að hægt sé að hafa sund- laug opna allt árið en væntanleg hitaveita á næsta ári mun gera slík- an draum að veruleika. Um þessar mundir vinnur VST að þarfagreiningu vegna byggingar nýrrar sundlaugar. Samkvæmt sam- þykkt bæjarstjórnar frá 9. febrúar sl. var verkffæðistofunni falið að skoða og gera greinargerð um ýmsa valkosti við nýja sundlaug. Þar á meðal átti stofan að skoða mögu- leika á úti- og innilaug sem og aðra aðstöðu í tengslum við sundlaugina svo sem heita potta, vaðlaugar og rennibrautir sem og fleiri atriði Vertu töfí: Vítnulaus! í sfðustu viku var forvamarvika í sveitarfélögunum Akranesi og Borgarbyggð þar sem boðið var upp á góða skemmtun og ffæðslu. Dagskráin var samvinnuverkefni margra aðila og má þar nefna Mími ungmennahús í Borgarnesi, NFFA, Hvíta húsið á Akranesi, Arnardal, Iþróttamiðstöðina að Jaðarsbökk- um og IA. I boði var dagskrá fyrir unglinga og ungmenni m.a. til að sýna fram á að það er leikur einn að skemmta sér án vímuefna. 10. bekkingum grannskólanna og verð- andi framhaldsskólanemum næsta haust var boðið að vera með í þess- ari vímuefnalausu dagskrá. Auk við- burða í dagskrá var fræðsla um hin og þessi mál sem ungmennum eru hugleikin. A sama tíma var Vina- og forvarnarvika haldin í Grannskól- anum Borgarnesi. Dagskráin hófs þriðjudaginn 28. mars með kaffihúsakvöldi og kyn- fræðslu. Gestir komu í heimsókn frá Astráði, félagi læknanema, og Ungmenni í Borgamesi sýndu Avaxtakörfuna m.a. í vinavihmni. fóra á kostum í kynfræðslumálum keppni ffam í Hvíta húsinu á Akra- fýrir ungmennin. Þá var Halli Reynis trúbador með tónleika í Mími. Sama kvöld fór trúbador- nesi. Á miðvikudeginum lögðu svo- kallaðar bílskúrshljómsveitir frá Akranesi og Borgarnesi undir sig Bíóhöllina á Akranesi. Þar var trú- bador 2006 kynntur en sigurvegar- inn varð Bergur Líndal Guðnason og fékk hann að spreyta sig. Þá mætti kvennahljómsveit frá Fljóts- dalshéraði og spilaði fyrir gesti. Á föstudeginum kynntust ung- mennin svokölluðum Boot Camp æfingum sem njóta vinsælda um Ljósm. IJ þessar mundir. Farið var í fjörugar heræfingar út um koppagrandir og slakað á í heita pottinum á eftir. Sama dag stóð Nemendafélag Fjöl- brautaskólans fyrir íþróttadegi í íþróttahúsinu Jaðarsbökkum. I framhaldi var svo sundlaugarpartý í sundlauginni að Jaðarsbökkum um kvöldið. Semsagt fjörug og góð dagskrá, - sannarlega gott ffamtak og þarft. MM Lacoste mótaröðina Þrátt fyrir að golfíþróttin sé „sumaríþrótt" eru margir kylfingar duglegir að stunda sportið og úti- veruna yfir vetrarmánuðina þegar jörð er meira og minna auð. Á- hugasamir kylfingar í Golfklúbbn- um Leyni hafa verið duglegir að mæta í Lacoste mótaröðina sem staðið hefur yfir frá 25. febrúar. Leiknar hafa verið 9 holur á laugar- dagsmorgnum og María Nolan, sem sér um veitingasölu í golfskál- anum hefur séð um að hafa heitt kaffi og kökur tilbúnar handa kylfingum eftir hringinn. Alls voru haldin fimm mót og töldu þrjú bestu skor til úrslita. Þrjátíu ein- staklingar tóku þátt í mótaröðinni en um fimmtán mættu á þrjú mót eða fleiri. Keppnin var jöfn og spennandi eins og sjá má á úrslit- um efstu keppendanna: Einar Hannesson, 93 högg Guðjón V. Guðjónsson, 105 högg Karl Svanhólm Þórðarson, 106högg Reynir Þorsteinsson, 107högg Alfreð Viktorsson, 107 högg Hægt er að sjá öll úrslit á heima- síðu Leynis www.golf.is/gl. Versl- unin Bjarg á Akranesi gaf verðlaun í mótið í vörumerkinu Lacoste. BS Asdís L Pétursdóttir íþróttakennari var vel dúðuð á bakkanum við að segja nem- endum 6. bekkjar til. sem tengjast gætu væntanlegri sundmiðstöð. Jaínframt skal stað- setning slíkrar miðstöðvar skoðuð. Að sögn Bjöms Steinars Pálmason- ar, skrifstofustjóra hjá Grundar- fjarðarbæ mun niðurstöðu og greinagerðar að vænta nú í apríl mánuði. GK Aftari röð frá vinstri: Reynir Þorsteinsson, Karl S. Þórðarson, Einar Hannesson, Alfreð Viktorsson. Jóhann Þór Sigurðsson fremstur. Guðjón V. Guðjónsson vant- ar á myndina. Finnbogi f HK Knattspyrnumaðurinn Finnbogi Ll- orens, sem leystur var fyrir skömmu undan samningi við ÍA, hefur gert samning við HK til næstu tveggja ára. Hafa HK og ÍA náð samkomuiagi um vistaskiptin. Finnbogi óskaði eftir að losna und- an samningi vegna búsetu sinnar og náms í Reykjavík því hann taldi sig ekki geta sinnt íþrótt sinni sem skyidi hjá ÍA. HJ Stefnt að vfgslu 19. maf Bygging fjölnota íþróttahússins á Jaðarsbökkum, sem í daglegu tali manna er nefnt knattspyrnuhúsið, hefur seinkað um nokkra daga vegna seinkunar á afhendingu efnis í gafla hússins. Að sögn Guðna Tryggvasonar, sem sæti á í framkvæmdanefnd íþróttamann- virkja, var stefnt að því að vígsla hússins færi fram 12. maí en nú þykir Ijóst að vígslan mun ekki fara fram fyrr en 19. maí. Byrjað er að slétta gólf hússins og er gerfigras- ið sem lagt verður á gólfið væntan- legt til tandsins um miðjan apríl. Einnig verða lagðar hlaupabrautir úr tartanefni í húsinu. HJ

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.