Skessuhorn


Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 32

Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 32
Nýtt og öflugt verkfæri til íbúðakaupa íbúðalán.is www.ibudaian.is FJÁRHAGSLEG GLITNIR, VELGENGNI ÞÍN ER 0KKAR VERKEFNI Tíu milljón bílar um göngin írá upphafi Um hádegisbil á sunnudag ók bíll númer 10 milljón í gegnum Hval- fjarðargöngin, eða frá því þau voru opnuð þann 11. júlí árið 1998. Stjórnendur Spalar tóku á móti öku- manni bílsins sem reyndist vera Anna Lilja Hauksdóttir frá Húsavík ásamt þremur börnum hennar. Færðu þeir Onnu gjafir í tilefrú þessa við gjaldskýbð. Gísli Gíslason, stjómarformaður Spalar, Gylfi Þórðarson, fram- kvæmdastjóri, og Marínó Tryggva- son, aðstoðarframkvæmdastjóri fé- lagsins vora mættir í hádeginu og fylgdust með teljara sem mælir um- ferðina. Sá tíu milljónasti reyndist Gt'sli Gíslason, stjómarformaður Spalar og Gylfi Þóróarson, framkvœmdastjóri fyrirtæk- isins. Fyrir framan er Anna Lilja Hauksdóttir. Umferð um Hvalfjarðargöng A þessu súluriti sést hvemig umferðin hefur verið að þróast um góngin i liðnum irum. Nú þegar hefur hún ndð þeim fjölda bíla semfyrstu spúr gerðu rdðfyrir aðyrði drið 2016. koma út úr göng- unum á norðurleið, Anna Lilja á leið frá Selfossi til Húsavík- ur þar sem hún býr ásamt börnin sín þremur, þeim Ar- oni Geir, Birgi Þór og Sunnu Björk. Þegar hún hugðist borga veggjaldið í skýlinu var bíllinn stöðvaður. I tíleíni þessa fékk Anna Lilja glæsilegan skrautgrip að gjöf, en gripinn hann- aði Dýrfinna Torfadóttur, gullsmið- ur á Akranesi. Með fylgdi kvöld- verðarboð á Hótel Holti, ávísun á ókeypis ferð um göngin í tíu skipti og veglegur blómvöndur. Umferð í Hvalfjarðargöngnm er margfalt meiri en ætlað var í rekstr- aráætlunum sem stuðst var við áður en þau voru opnuð. Ef miðað er við hámarksumferð samkvæmt þessum áætlunum hefði tíu milljónasti bíll- inn farið um göngin á árinu 2016 en það gerðist sem sagt heilum áratug fyrr, eða þann 23. apríl 2006. MM Bætt aðstaða smábáta í Akraneshöfii Þessa dagana stendur sem hæst í Akraneshöfn uppsetning tveggja flotbryggja sem rúma munu um 40 smábáta. Þess er vænst að verkinu ljúki um næstu mánaðamót að sögn starfsmanns hafnarinnar. Nú er að- eins ólokið minniháttar frágangi og einnig á eftir að koma fyrir land- göngum við bryggjurnar. Flot- bryggjurnar koma frá fyrirtækinu Króla ehf. í Garðabæ. Með þessari stækkun mun aðstaða smábátaeig- enda bama til muna á Akranesi. SO Laugafiskiir vill stækka við sig á Fiskvinnslufyrirtækið Laugafisk- ur hf. hefur óskað eftir því að Akra- neskaupstaður selji fyrirtækinu eða leigi því lóð þar sem hægt verður að byggja um 1.200 fermetra hús fyrir starfsemi þess á Akranesi. I þessu húsnæði hyggst fyrirtækið koma fyrir starfsmannaaðstöðu og eftirþurrkun. Fyrirtækið hefur nokkuð verið í ffétmrn að undan- förnu. Fyrir nokkru óskuðu íbúar í Akranesi nágrenni fyrirtækisins eftir því að vinnsluleyfi þess yrði ekki fram- lengt vegna meintrar lyktarmeng- unar. Þá hefur Heilbrigðisnefiid Vesturlands óskað eftir svörum frá fyrirtækinu um árangur af tilraun- um þess til að minnka fyktarmeng- un. Bæjarráð Akraness hefúr sam- þykkt að boða fulltrúa fyrirtækisins á sinn fund til viðræðna. HJ Hámarks farþegafjöldi: Sæti fyrir 300 manns Bílafjöldi: 45-50 fólksbílar -var áður 19-20 fólksbílar. Lengd skips: 63 m lengd gamla skipsins var 39 m Breidd: 12,6 m Rúmlestastærð: 1350 tonn Endurbyggð: Skipið er allt endurbyggt, tækjabúnaður eins og best gerist. Ganghraði: 13,5 sjómílur Vélarafi: 2500 hestöfl Kæru Vestlendingar ! Velkomin um borð í nýjan Baldur. Bókunarsími: 433-2254 Sjá einnig fjölbreytt ferðaúrval Sæferða á www.seatours.is l i • MHi ' Jh' " 4 • * * i <4 'H5HI

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.