Skessuhorn


Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 SS1SSUH©BK1 Eitt óvæntasta útspilið til þessa í aðdraganda kosninga í vor átti sér stað á Akranesi í liðinni viku: Gísli S Einarsson kynntur sem bæjarstjóraefini Sjálfstæðismanna Gísli S Einarsson, fv. þingmaður og bæjarstjóraefhi. Síðastliðinn miðvikudag var það tilkynnt að Gísli S Einarsson, fv. alþingismaður yrði bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna á Akranesi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 27. maí nk. Oddviti Sjálfstæðismanna á Akranesi tók hugmyndinni um að Gísli S. Einarsson yrði bæjar- stjóraefni flokksins fálega í fyrstu. Gísla kom hugmyndin mjög á óvart enda hafði hann í vetur feng- ið hvatningu til framboðs utan flokka. Báðir eru þeir nú sannfærð- ir um að saman geti þeir náð hreinum meirihluta. Aðrir eru ef- ins og telja þessa ákvörðun ranga og hún muni skaða framboð flokksins. En hvað varð þess vald- andi að Sjálfstæðismenn buðu fyrr- um bæjarfulltrúa og þingmanni Al- þýðuflokksins og síðar Samfylk- ingarinnar að verða bæjarstjóraefni sitt og hvað varð til þess að hann tók þessu boði? Hér á eftir verður reynt að varpa ljósi á þetta óvænta útspil. Stuttur aðdragandi Þegar frambjóðendur Sjálfstæð- isflokksins og fulltrúaráð flokksins höfðu á þriðjudagskvöldið sam- þykkt að Gísli S Einarsson yrði bæjarstjóraefni flokksins hafði ekki mikið vatn runnið til sjávar frá því að hugmyndin kom fyrst upp. Það mun hafa verið í spjalli tveggja áhrifamanna í Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokki í fermingarveislu á Akranesi sem hugmyndin fædd- ist. Henni var komið til Gunnars Sigurðssonar oddvita Sjálfstæðis- manna sem tók henni með ákveðn- um fyrirvara samkvæmt heimildum Skessuhorns. Nokkrum dögum síðar varð hugmyndin hins vegar að veruleika. Fyrir síðustu kosningar kom upp sú hugmynd meðal frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins að bjóða fram sérstakt bæjarstjóraefni. Þá lagðist Gunnar gegn þeirri hugmynd af þeirri einföldu ástæðu að þá hafi að hans mati setið mjög hæfur maður í stóli bæjarstjóra, Gísli Gíslason. Sjálfstæðismenn hafi meðal annars starfað með honum í meirihluta- samstarfi og það hafi gengið vel. „Nú er önnur staða uppi. Við völd er meirihluti sem leynt og Ijóst stefnir á áframhaldandi meiri- hlutasamstarf nái hann til þess fylgi. Til þess að koma í veg fyrir það hafa kjósendur að mínu mati aðeins eitt svar. Að Sjálfstæðis- flokkurinn nái hreinum meiri- hluta,“ segir Gunnar. Af hverju ekki flokksmaður? Ef marka má skoðanakönnun sem birtist á NFS fyrir skömmu var Sjálfstæðisflokkurinn í tölu- verðri sókn á Akranesi. Aðspurður hvort ekki hefði verið hægt að ná hreinum meirihluta með ffekara starfi og bæjarstjóraefni úr eigin röðum, segir Gunnar erfitt að svara því. Það hafi hins vegar verið sitt mat og annarra frambjóðenda að gera þyrfti enn betur. Þegar fyr- ir lá að enginn af efstu mönnum listans sóttust efdr að verða bæjar- stjóraefni hafi menn verið tilbúnir að ræða aðrar hugmyndir, þar á meðal þá hugmynd að Gísli S. yrði bæjarstjóraefni. I sínum huga væri Gísli afar hæfur til starfans vegna síns bakgrunns sem bæjarfulltrúi og þingmaður. „Eg veit ekki um nokkurn mann sem efast um vilja Gísla til góðra verka í bæjarfélag- inu og þegar ljóst varð að áherslur okkar lágu sarnan var ekkert í veg- inum að mínu mati.“ Hugmyndin fékk strax einróma stuðning í frambjóðendahópi Sjálfstæðis- manna og einnig í fulltrúaráðinu. Hugmyndasmiðirnir áttu allt eins von á því að mótstaða yrði í full- trúaráðinu sérstaklega í hópi eldri flokksmanna en svo reyndist ekki vera. Gísli neitar því ekki að boð Sjálfstæðismanna hafi komið hon- um mjög á óvart. Hann segir að undanfarið hafi hann fjarlægst Samfylkinguna þó það hafi ekki komið fram opinberlega af þeirri einföldu ástæðu að hann hafi ekki verið virkur í opinberri pólitískri umræðu undanfarið. Hann segir boð sjálfstæðismanna sýna mikla víðsýni og þá staðfestu flokks- manna að láta einskis ófreistað til þess að ná sem bestum árangri í vinnu sinni fyrir sveitarfélagið. Slíku samstarfi hafi hann sem Skagamaður einfaldlega ekki getað hafnað. Enginn kali Fyrir síðustu alþingiskosningar urðu átök innan Samfylkingarinn- ar með hvaða hætti yrði staðið að upptillingu á framboðslista flokks- ins í Norðvesturkjördæmi. Gísli og fylgismenn hans vildu að efht yrði til prófkjörs en urðu undir í at- kvæðagreiðslu. I kjölfarið var stillt upp lista og var Gísla boðið þriðja sætið á þeim lista á eftir Jóhanni Arsælssyni og Onnu Kristínu Gunnarsdóttur og þáði hann það. Hann segir það hafa verið erfiða ákvörun hvort hann skyldi taka því sæti. Hann hafi stefnt hærra. Hann neitar því hins vegar að hann beri kala til Samfylkingarfólks vegna þessarar niðurstöðu. „Fyrir um einu ári síðan lagði ég ákveðnar hugmyndir fyrir Samfylkingarfólk vegna framboðsmála og stefnu- mála í aðdraganda bæjarstjórnar- kosninganna í vor. Síðan hef ég ekkert heyrt frá því ágæta fólki og við því er ekkert að segja,“ segir Gísli. Framboð utan flokka I vetur voru uppi hugmyndir um að efna til framboðs utan flokka á Akranesi í vor. Gísli segir fjölda manns hafa haft samband við sig vegna þeirrar hugmyndar og hvatt sig til þátttöku í því framboði ef af yrði. Ekkert hafi hins vegar orðið úr því framboði og því hafi ekki komið til þess að hann hafi þurft að svara spurningum um mögulega þátttöku sína þar. I Fréttablaðinu á dögunum kom fram að fyrir skömmu hafi Gísli verið að kanna jarðveg innan Sam- fylkingarinnar fyrir hugsanlegt framboð sitt við næstu alþingis- kosningar. Hann segir þessa frá- sögn fjarri sanni. Ekkert slíkt hafi hvarflað að sér. Hins vegar hafi hann haft samband við nokkra af sínum dyggustu stuðningsmönn- um áður en hann ákvað að þekkjast boð sjálfstæðismanna. „Eg greindi þeim frá þeirri stöðu sem upp var komin en var ekki að leita eftir stuðningi." Einn af hans stuðn- ingsmönnum á Vestfjörðum, sem Skessuhorn hafði samband við, staðfestir að þannig hafi verið í pottinn búið og því sé sagan um hugsanlegt þingframboð fráleit. S j álfstæðisflokkurinn sækir á miðjuna Einnig hefur komið fram að ákvörðun Gísla lýsi ákveðnu á- standi innan Samfylkingarinnar, það er að gamlir Alþýðuflokks- menn finni sig ekki í flokknum eft- ir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tók við formennsku. Þetta vill Gísli ekki taka undir. Aðspurður hvort ekki sé eðlilegt að álykta sem svo úr því að hann sé nú genginn til liðs við sjálfstæðismenn segir hann svo ekki vera. „Eg náði ein- faldlega saman með þeim um þær áherslur sem ég hef í bæjarmálum, meðal annars ákveðnar félagslegar áherslur. Að undanförnu hefur Sjálfstæðisflokkurinn sótt inn á miðju stjórnmálanna og þar fara leiðir okkar saman.“ Gísli vildi þó ekki svara þeirri spurningu hvort Samfylkingin hefði færst of langt til vinstri á sama tíma. Hann lagði líka áherslu á að ekki væri rétt að blanda um of saman landsmálum og sveitarstjórnarmálum. Aðspurður segist Gísli muni taka þátt í kosningabaráttunni eftir mætti og hvetja kjósendur til þess að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Sú spurning hefur vaknað hvað verði ef Sjálfstæðisflokkurinn nær ekki hreinum meirihluta. Mun Gísli verða bæjarstjóraefni flokksins í meirihlutaviðræðum? Hann segir þau mál ekki hafa verið rædd en hann líti svo á að hann sé aðeins bæjarstjóraefni ef meirihluti vinnst. „Fari hlutir á annan veg lít ég svo á að menn hafi óbundnar hendur.“ T ækifærismennska Gísla Fyrrum samflokksmenn Gísla í Samfylkingunni þurftu margir að láta segja sér fréttirnar af vista- skiptum hans tvisvar, enda hefur Gísli sem stjórnmálamaður ekki vandað hinum nýju samherjum sínum kveðjurnar á stundum. Sumir af hans stuðningsmönnum sem Skessuhorn hafði samband við sögðust þó hafa skilning á ákvörð- un hans. Aðrir fyrrum samflokks- menn höfðu lítinn skilning á ákvörðun hans og töldu hana ein- falda tækifærismennsku manns sem ekki hefði fengið þann fram- gang í sínum flokki sem hann taldi sig eiga skilinn og við því væri ekk- ert að gera. Fráleitt væri þó að tala um klofning í flokknum vegna þessarar ákvörðunar Gísla. Eng- inn þessara manna vildi þó koma fram undir nafni. Skiptar skoðanir eru hins vegar á því hvaða áhrif þetta útspil Gísla og Sjálfstæðisflokksins muni hafa í kosningunum í vor. Margir benda á að Gísli sé mikill baráttujaxl sem auðvelt hafi átt með að laða til sín fylgi í prófkjörsbaráttu. Eðli máls- ins samkvæmt hafi hins vegar ekki verið ljóst hvort stuðningsmenn í prófkjöri hafi skilað sér á kjördag. Þá er bent á að Gísli hafi haldið góðum tengslum við sinn gamla vinnustað og gömlu vinnufélaga í Sementsverksmiðjunni og það geti skilað góðum árangri. Einnig sé hann nokkuð vinsæll meðal eldri kynslóðarinnar. Aðrir benda á að ekki sé líklegt til árangurs að fyrsti maður listans og bæjarstjóraefnið séu á svipuðum aldri eða um sex- tugt. Það höfði einfaldlega ekki til ungu kynslóðarinnar. Þá er einnig á það bent að um leið og flokkur tilnefni bæjarstjóraefni muni kosn- ingabaráttan snúast um persónu þess manns en ekki um málefni. Því verði það tæplega til fram- dráttar þegar bæjarstjóraefnið komi úr öðrum flokki eins og ger- ist í dæmi Gísla. Alþýðuflokksmenn á fleygiferð Nokkrir viðmælenda Skessu- horns töldu ákvörðun Gísla eiga eftir að hafa töluvert fylgi af Sam- fylkingunni. „Alþýðuflokksmenn í þeim flokki eru á fleygiferð þessa dagana og allt eins víst að þeir endi hjá Sjálfstæðisflokknum,“ sagði áhrifamaður í Samfylkingunni og benti á að ekki væru gróin þau sár sem urðu til við uppstillingu lista flokksins þegar Kristjáni Sveins- syni forseta bæjarstjórnar var hafn- að við uppstillingu framboðslista flokksins. Hver niðurstaðan verður kemur ekki í ljós fyrr en að kosningum loknum 27. maí. Hinu verður ekki á móti mælt að ákvörðun Sjálf- stæðisflokksins um að bjóða Gísla fram sem bæjarstjóraefni hefur hleypt miklu lífi í kosningabarátt- una. Baráttu sem fram að þessu þótti frekar litlaus. HJ Fullsldpaður F - listi á Akranesi Framboðslistd Bæjarmálafélags ffjálslyndra og óháðra á Akranesi til sveitarstjórnarkosninga 27. maí næstkomandi, er nú fullskipaður. Fyrstu 9 sæti listans voru kynnt fyrir skömmu, en nú hafa öll 18 sæti hans ver- ið kynnt. Listinn er sem hér segir: 1. Karen Jónsdóttir, viðskiptafrœðingur 2. Magnús Þór Hafsteinsson, ftskifrœðingur og alþingismaður 3. Rannveig Bjamadóttir, leiðbeinandi 4. Sœmundur Tryggvi Halldórsson, verkamaður 5. Kristinn Jens Kristinsson, öryrki 6. Guðbjörg R Asgeirsdóttir, skrifstofukona 7. Sigurjón Runólfsson, verktaki 8. Elías Olafsson, sjómaður 9. Asgeir Valdimar Hlinason, múrari 10. Barbara Davies, leikskólamatráður 11. Ingimundur Óskarsson, viðskiptalögfraðingur 12. Helga Jónsdóttir, vélsmiður 13. Stefán Þór Þórisson, vélvirki 14. Gunnar Freyr Hafsteinsson, atvinnurekandi 19. Pétur Gissurarson, skipstjóri 16. Einar Jónsson, vinnuvélastjóri 17. Steinar Hagalínsson, vélvirki 18. Ragnheiður Olafsdóttir, fyrrverandi bcejarfulltrúi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.