Skessuhorn


Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 2006 Sérhannað aksturs- kennslusvæði mun Vatnsveitumálum frestað í Borgaríj arðarsveit Hreppsnefnd Borgarfjarðarsveit- ar ákvað á fundi sínum á dögvmum að ffesta til næsta fundar ákvörðun um hugsanlega yfirfærslu vatns- veitna hreppsins til Orkuveitu Reykjavíkur. Verður tíminn milli funda notaður til að fara betur yfir málið og einnig verður leitað álits óháðs aðila eða endurskoðenda hreppsins á þeim samningsdrögum sem nú liggja fyrir. Eins og fram hefur komið í ffétt- um Skessuhorns hefur um nokkurt skeið farið ffam umræða um áður- nefnda yfirfærslu og liggja nú, eins og áður sagði, fyrir drög að samn- ingum við Orkuveituna. A fundin- um bókaði hreppsnefnd þann vilja sinn að semja við Orkuveituna „enda er hún veitufyrirtæki í eigu hreppsins," segir í bókuninni. Þá segir orðrétt í bókuninni: „Þá hefur hluti af fyrrum eigendum Bæjarveitu farið ffam á að kannað verði til hlýtar hvort þessi yfirfærsla brýtur munnlega samninga um framtíð þeirrar veitu, sem þeir telja að hafi verið forsendu þess að hreppurinn eignaðist veituna á sín- um tíma.“ HJ Bíllinn utan vegar og tönnin í kuðlifyrir aftan hann. Moksturstæki skemmdist mildð Betur fór en á horfðist í gærmorg- un þegar vörubiffeið ffá Vegagerð- inni í Borgarnesi lenti utan vegar í Hálsasveit í Borgarfirði. Vörubif- reiðin var við snjómokstur þegar tönn hennar rakst í jörð. Við högg- ið lenti tönnin að hluta til undir bif- reiðinni og við það kastaðist hún út fyrir veg. Ökumanninn sakaði ekki en töluverðar skemmdir urðu á bif- reiðinni og snómokstursbúnaði hennar. Þrátt fyrir að nú sé komið sumar, samkvæmt dagatalinu, var töluverðttr jafiifallinn snjór á vegum í uppsveitum Borgarfjarðar í gærmorgun. HJ rísa á Akranesi Viljayfirlýsing um stofhun og rekstur aksturskennslusvæðis á Akranesi var undirrituð í Reykjavík í gær. Það eru Ökukennarafélag Is- lands og Akraneskaupstaður sem nú hafa tekið upp formlegt samstarf um slíkt svæði og hefur samgönguráðu- neytið einnig komið að málinu. Það voru Guðbrandur Bogason formað- ur Ökukennarafélagsins og Guð- mundur Páll Jónsson bæjarstjóri sem undirrituðu viljayfirlýsinguna í dag og einnig staðfesti Sturla Böðv- arsson samgönguráðherra aðkomu ráðuneytisins að máhnu með undir- skrift sinni. Um er að ræða fyrirtæki sem byggir og rekur sérhannað aksturs- kermslusvæði og mun hönnun þess og starfsemi taka mið af væntanlegri reglugerð samgönguráðuneytisins um slík kennslusvæði. Fram kemur í viljayfirlýsingunni að markmið sam- starfs þessara aðila sé að auka um- ferðaröryggi á Islandi með upp- byggingu svæðisins og það verði sér- hannað fyrir íslenska ökumenn. Því sé einnig ætlað að standast alþjóð- legar kröfur sem gilda um starfsemi sem þessa. Þá segir að sömu aðilar muni leggja sig ff am við að reisa sér- stök ökugerði á nokkrum stöðum á landinu og efla þannig frekar grunnökunám á Islandi. Guðmundur Páll Jónsson, bæjar- stjóri á Akranesi segir að með vilja- yfirlýsingunni í dag sé lokið löngu undirbúningsferli og nú geti undir- búningur að byggingu svæðisins hafist af fullum kraftd. Áædað er að Akraneskaupstaður legggi til um 5-6 hektara lands tmdir starfsemina og mun það skýrast á næstu vikum að lokinni skipulagsvinnu hvar á Akra- nesi starfseminni verður komið fyr- ir. Guðmundur Páll segir undirbún- ing málsins hafa verið ánægjulegan en mest um vert sé að með byggingu slíks svæðis verði áratuga gömlum draumi ökukennara hrint í ffam- kvæmd og með því verði hægt að bæta umferðaröryggi til muna. Framkvæmdakostnaður hefur ekki verið metinn til fulls en skotið hefur verið á um 200 milljónir króna. Vonast er til þess að hluthaf- ar að hinu nýja félagi verði allir þeir aðilar sem láta sig bætt umferðarör- yggi varða, að sögn Guðmundar Páls, og vonast hann til þess að á næstu 12-14 mánuðum muni vænt- anlegt fyrirtæki og rekstur þess fá á sig endanlega mynd. Reiknað er með því að í ffamtíðinni muni allir þeir sem taka ökupróf á landinu reyna sig á þessu aksturkennslusvæði enda verður þar líkt eftir öllum þeim aðstæðum sem mætt geta ökumönn- um á leið þeirra á þjóðvegum lands- ins. Aðstæður sem ekki eru að öllu jöfnu fyrir hendi við ökukennslu í dag. Með undirskriftinni í dag má segja að miðpunktur umferðarmála sé kominn á Akranes því skemmst er að minnast þess er Umferðarvefur- inn var opnaður í Grundaskóla á Akranesi en sá vefur er samstarfs- verkefni Umferðarstofu, Gunda- skóla og Námsgagnastofhunar. HJ Tölvuteikning af Akranesi. Vió þjófveginn má sjá (ýkta) tillögu að hugsanlegri staðsetn- ingu aksturskennslusvœðisins, eða í áttina aðþví sem nú er iðnaðarsvœði. Frá undirritun samktrmulags um aksturskennslusvœði á Akranesi. Frá vinstri Guð- mundur Páll Jónsson, bœjarstjóri, Sturla Böðvarsson, samgónguráðherra og Guðbrandur Bogason, formaður Ökukennarafélags Islands. Ljósm. KÓO. PISTILL GISLA Otýndir Frá því er sagt í Biblíunni að morguninn eftir föstu- daginn langa hafi verið leitað að Jesú heitnum Kristi. A fyrrnefndum föstudegi var hann sem kunngut er festur á kross og látinn var hann síð- an látinn í helli og hellu slengt fyrir munnann. Þegar átti að tékka á líkinu þá var það hinsvegar horfið eins og allir þekkja. Ymsar heíðir hafa sprottið út ffá lífi og dauða Jesú Krists og kannski er þarna komið upphafið að einni þeirra þótt ég hafi ekki sett það í samhengi fyrr. I öllu falli þá er það hefð í íslensku samfélagi að leita að hinum og þessum á páskum. Yfir- leitt eru þetta vélsleðamenn sem bruna upp á fjöll, líkt og Jesú þegar hann fór til fjalla og flutti þar til gerða fjall- ræðu. Eg trúi því að með þessu sé verið að minnast leitarinnar að Jesú fyrir tæp- lega 2000 árum. Eg reyndi að rifja upp á ný- afstöðnum páskum hvort ég hefði einhverntíma týnst. Eg mundi meðal annars eftir að ég hafði týnst á egypsku múmíúsafni fyrir tæplega 20 árum. Síðar týndist ég í skuggalegu hverfi í Prag og svo mætti lengi telja. Eg hef meira að segja náð því að týnast á ekki stærri stað en Hofsósi og geri aðrir betur. Það rifjaðist líka upp fyrir mér að þrátt fyrir að ég geti tínt til ótal skipti þar sem ég hef týnst þá hefur hinsvegar aldrei verið leitað að mér, svo ég muni til. Kannski yrði leitað að mér ef ég æddi upp á fjöll á vélsleða í vonskuveðri. Eg er samt ekki viss og því hef ég fram til þessa ekki látið reyna á það. Málið er líka það að flestir björgunarsveitarmenn hér um slóðir þekkja mig það vel að ég er ekki viss um að þeir sæju ástæðu til að gera veður út af því þótt ég færi út í veður og vind. Samt hef ég ekki séð að björgunarsveitarmenn geri mannamun. Mér hefur reyndar sýnst að þeir leiti að nánast hvaða vitleysingi sem er. Vissulega eru björgunar- sveitarmenn sjálfviljugir í því hlugverki að leita að sjálf- skipuðum fjallkóngum í sjálfboðavinnu. Engu að síð- ur ætti að vera hægt að gera þá kröfu til fólks að það hafi heilbrigða skynsemi með í för þegar það æðir út í óviss- una. Hún tekur ekki svo mikið pláss. Það ætti reyndar líka að vera hægt að gera þá kröfu til þeirra sem villast um leið og þeir eru komnir út fyrir borgarmörkin (hér eftir nefndir villingar) að þeir sýni vott af þakklæti til þeirra sem verja hátíðunum í að leita að villingum. Oftar en ekki láta þeir sér fátt um finnast og viðurkenna jafnvel ekki að þeir séu týndir. Þeir halda því jafnvel ffam að þeir séu ótýndir og þar liggur kannski hundurinn grafinn, á fjöll- um. Gísli Einarsson, grafinn ífónn. T

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.