Skessuhorn


Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 2006 ÖKlSSIÍHeBK Margrét er eitt hundrað ára í dag Á þriðja hundrað hraðakstursbrot HVALFJARÐRGÖNG: Um páskana voru 224 hraðaksturs- brot í Hvalfjarðargöngum skráð hjá lögreglunni í Reykjavík, það er ffá fimmmdeginum 12. apríl til þriðjudagsins 18. apríl. Af þeim brotlegu voru 58 á suður- leið og var meðalhraði þeirra 88,6 km/klst og 166 voru á norð- urleið og var meðalhraði þeirra 88,5 km/klst. Alls fóru um 37 þúsund bílar um göngin um páskana eða um 1.200 fleiri bflar en í fyrra. Umferðin gekk vel að því er kemur ffam á heimasíðu Spalar hf. og engir hnútar mynd- uðust á álagstímum. -hj Innbrotsþjófar staðnir að verki AKRANES: Tvö innbrot voru tilkynnt lögregltuini á Akranesi í síðusm viku. Brotist var inn í íbúðarhúsnæði við Esjuvelli en innbrotsþjófarnir höfðu sig á brott er húsráðandi stóð þá að verki. Tveir menn voru hand- teknir vegna málsins og viður- kenndu sekt sína við yfirheyrslur lögreglu. Þá var brotist inn í ný- byggingu við Tindaflöt og þaðan stohð hersluvél og sh'pirokk en verkfærin eru bæði merkt fyrir- tækinu Raftogi. Málið er í rann- sókn. -kóó Réttur öryggisbunaður LANDIÐ: Með hækkandi sól eykst umferð reiðhjóla, línu- skauta og farartækja sem gjarnan lenda í geymslu yfir veturinn. Rétt er að minna fólk á að réttur öryggisbúnaður er nauðsynlegur þegar ferðast er um með þessum hætti. A það jafnt við um unga sem aldna. Þó einungis bömum sé skylt að nota hjálma ættu þeir fúllorðnu að vera þeim góð fyrir- mynd því augljóslega geta allir slasast á höfði án tillits til aldur -bg Styrkja tilraunaborun REYKHOLTSDALUR: Á fundi hreppsnefndar Borgar- fjarðarsveitar þann 10. aprfl síð- astliðinn var samþykkt að veita ábúendum á Grímsstöðum í Reykholtsdal styrk vegna borun- ar tilraunaholu efrir heitu vatni í landi þeirra, en þeir lögðu inn umsókn til hreppsnefridar um styrk vegna þessa verkefriis. Fjár- hæð styrksins er 100 þús. kr. og mun hann greiðast eftir ffam- kvæmdahraða og gegn ffamvísun reikninga. Undanfarna tvo ára- tugi hafa Grímsstaðir nýtt vatn ffá Reykholti ásamt fleiri bæjum í nágrenninu, en nú er meiningin að ffeista þess að finna vatn nær þessum bæjum. I sama áfanga verða einnig boraðar tilraunahol- ur í landi Birkihh'ðar í sömu sveit. -so Fékk glerbrot í augun AKRANES: Umferðaslys varð fyrr í vikunni á þjóðveginum við Akranes þegar götusópur og rúta rákust saman með þeim afleið- ingum að hliðarspegill rútunnar slóst inn í hhðarrúðu sem brotn- aði. Ökumaður rútunnar þurfti að leita læknishjálpar vegna gler- brota í auga. -kóó Hún Margrét Oddsdóttir, sem býr á dvalarheimilinu Silfurtúni í Búðardal, fagnar 100 ára afinæli sínu í dag, miðvikudaginn 26. aprfl. Síðastliðinn föstudag afhenti Krabbameinsfélag Akraness og ná- grennis lyflækningadeild Sjúkra- húss Akraness lyfjadælu að gjöf. Hún mun aðallega nýtast við verkjameðferð krabbameinssjúk- linga. Önnur slík er til á sjúkrahús- inu en hún mun vera komin til ára sinna. Á dælunni er komið fyrir Skagaleikflokkurinn ffumsýnir á laugardaginn nýtt leikverk eftir Kristján Kristjánsson á Akranesi. Verkið heitir Hlutskipti og er þriðja verkið sem Kristján semur fyrir Skagaleikflokkinn. Leikstjóri er Inga Bjamason. Höfrindur segir verkið gerast í nútímanum, nánar til tekið Margrét, sem ættuð er úr Haukadal mun bjóða til veislu nk. laugardag í Félagsheimilinu Árbliki. Skessu- horn steftiir að því að heimsækja af- sérstöku hylki með lyfjablöndu og gefur hún sjúklingnum ákveðinn skammt með vissu millibili. Með svona dælu getur sjúklingur jafnvel dvalið heima hjá sér og getur gefið sér aukaskammt t.d. við miklum verkjum. Starfsfólk sjúkrahúsins sem tók við gjöfinni sagði hana eiga eftir að laugardaginn 1. apríl 2006. Systkini koma saman til að skipta búi for- eldra sinna eftir að móðir þeirra er komin á stoftiun. Saga fjölskyldunn- ar er rakin í stómm dráttum en ým- islegt óvænt kemur upp úr kafinu þegar fortíðin er skoðuð og ekki síð- tu þegar nútíðin er krafin til mergj- mælisbarnið í tilefni dagsins og greina ffá heimsókninni í næstu viku. breyta miklu við aðhlynningu sjúklinga og þakkaði félaginu kær- lega fyrir gjöfina. Einnig vildi það koma á framfæri þakklæti til þeirra fjölmörgu félagasamtaka og ein- staklinga sem fært hafa sjúkrahús- inu gjafir í gegnum tíðina. ar. Kristján segir verkið óvenjulegt að því leyti að það sé samið eftir að leikendur vom valdir og taki hlut- verkin því mið af leikendum. Framsýningin verður eins og áðtu sagði á laugardaginn og hefst kl. 20. Sýningar verða í húsi félagsins; Bfla- verkstæði Daníels. HJ Selkórinn á Vesturlandi á laugardaginn Selkórinn í Reykjavík heldur tvenna tónleika á Vesturlandi laug- ardaginn 29. apríl nk. Kórinn syngur í Grundarfjarðarkirkju klukkan 17:00 og aðrir tónleikar verða í Reykholtskirkju sama dag klukkan 21:00. Dagskráin, sem er 50 - 60 mínútna löng, er án hlés. Hún hefur meðal annars að geyma lagasyrptu úr My Fair Lady og West Side Story og syrpu með þekktum lögum Irving Berlin. Þá er Vínartónlist einnig sungin, m.a. lagasyrpa úr Kátu ekkjunni ásamt nokkrum öðrum sígildum perlum. Með kómum leikur kvartett úrvals tónlistarmanna, þar á meðal Kjart- an Valdimarsson á píanó, Gunnar Hraftisson á kontrabassa og Hjör- leiftir S. Valsson á fiðlu. Selkórinn var upphaflega stofri- aður sem kvennakór á Seltjarnar- nesi árið 1968 og er því á síriu 37. starfsári. Árið 1974 var karlarödd- um bætt við og sem blandaður kór hefur hann starfað síðan. Starf kórsins er fjölbreytt, hann heldur árlega jóla- og vortónleika og kemur auk þess off ffam við önnur tækifæri í heimabæ sínum á Sel- tjarnarnesi og víðar. Raddþjálfari Selkórsins er Matthildur Matthí- asdóttur söngkennari. Jón Karl Einarsson hefur stjómað Selkórnum frá 1991 en hann útskrifaðist ffá tónmennta- deild Tónlistarskólans í Reykjavík árið 1976. Hann hefur m.a. kennt tónmennt við Barnaskólann á Akranesi frá 1976 til 1979, er hann var ráðinn skólastjóri Tón- listarskólans á Akranesi. Árið 1976 stofnaði hann Barnakór Akraness sem vann til verðlauna í alþjóðlegri kórakeppni á Spáni árið 1984. Jón Karl var ráðinn skólastjóri Tónlistarskólans á Sel- tjarnarnesi 1985 og stjórnaði þá kór Kennaraháskólans. Hann lét af störfum sem skólastjóri Tón- listarskólans árið 1996 og hefur síðan starfrækt Tónlistardeild Úrvals-Útsýnar. MM Vill að bær- innkaupi hluta Kirkju- brautar 8 Bæjarráð Akraness hefur fahð bæjarstjóra að ræða við Sveinbjöm Sigurðsson ehf. vegna óskar fyrir- tækisins tun að bærinn kaupi hluta fasteignarinnar að Kirkjubraut 8 á Akranesi. I bréfi sem fyrirtækið sendi bæjarfélaginu kemur ffam að „samkvæmt munnlegu samkomu- lagi og skdningi við fyrrverandi og núverandi bæjarstjóra Akranes- kaupstaðar var vilji til þess að bæj- arfélagið keypti þann hluta hússins er áður hýsti verslunina Ozone af fyrirtækinu á kosmaðarverði ef nýtt aðalskipulag mælti með því,“ eins og segir orðrétt í bréfinu. Þá kemur fram að samkvæmt nýju aðalskipulagi bæjarins sé gert ráð fyrir að þessi hluti hússins vflci. Þá kemur ffam að fyrirtækið hafi á sínum tíma keypt húsnæðið á 100 þúsund krónur á hvem fermeter eða rúmar 8,5 milljónir króna. Óskar fyrirtækið eftir því að geng- ið verði ffá kaupunum við fyrsta tækifæri. HJ KÓÓ/Ljósm. HÁ Frá vinstri: Droplaug Einarsdóttir, Anna Þóra Þorgilsdóttir, Þorkell Guðbrandsson yfirUeknir, Valdís Heiðarsdóttir hjúkrunardeildar- sljári, Rannveig Gylfadóttir fyrrv. formaóur krabbameinfélagsins, Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir núvemdi formaður krabbameinfé- lagsins, Sigurlina Guðmundsdóttir og Bjöm Gunnarsson yfirlteknir. Krabbameinsfélagið færir SHA gjöf so I „Hlutskipti“ koma systkini saman til að skipta búslóð foreldra sinna. Með hlutverk systkinanna fara Sigríður Birgisdóttir, Gísli Bald- vin Gunnsteinsson, Þórdís Ingibjartsdóttir og Vala Bergland. Skagaleikflokkurinn frumsýnir nýtt íslenskt verk

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.