Skessuhorn


Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 2006 Leiðrétting á launafrétt AKRANES: í frétt í síðasta tölu- blaði Skessuhorns um laun sveit- arstjórnarmanna urðu þau leiðu mistök að rangt var farið með laun forseta bæjarstjórnar Akra- ness. Vegna missldlnings milli blaðamanns og starfsmanns bæj- arins dró blaðamaður þá ályktun að forseti bæjarstjórnar þægi bæði laun sem bæjarfulltnii og forseti bæjarstjómar bkt og er með formann bæjarráðs. Svo er ekki. Laun forseta bæjarstjómar em því 89.571 króna á mánuði og við þau laun bætast 18.600 krónur fyrir akstur. Heildarlaun forseta era því 108.171 króna á mánuði en ekki 171.814 eins og sagði í fféttinni. Að öðra leyti stendur fféttin. Beðist er velvirð- ingar á þessum mistökum. -hj Ólögleg vopn haldlögð á Akranesi AKRANES: Ólöglegur hnífur, sem iðulega er kallaður Butterfly fannst í fórum manns fyrir nokkru og lagði lögreglan hald á hnífinn. Annar maður hafði skot- ið að fólki með svonefndri gormabyssu sem er efrirlíking af skammbyssu og hægt að skjóta úr þeim plastkúlum með þónokkru afli. Lögreglan hefur lagt hald á talsvert af byssum af þessu tagi ár hvert og virðist skýringin vera sú að fólk kaupir þær í ferðalögum erlendis, sérstaklega Spáni eða í löndum þar sem hverjum sem er er heimilt að kaupa þær og smyglar heim svo í farangri. Þessar byssur falla undir skil- greiningu vopnalaga því þær eru skotvopn og því ekki heimilt að flytja þær inn, nota eða eiga nema með sérstöku leyfi. Byssan var haldlögð og verður eytt. -hg Akranesbær styrkir kóramót AKRANES: Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að veita 130 þús- und króna styrk til Hljóms, kórs eldri borgara á Akranesi, til að standa straum afýmsum kosmaði vegna kóramóts eldri borgara sem haldið verður á Akranesi í vor. Slíkt kóramót er haldið ár- lega og skdptast kórar ffá Kefla- vík, Hafnarfirði, Selfossi, Mos- fellsbæ og Akranesi að halda þau. Er þetta í þriðja skipti sem mótið er haldið á Akranesi. -hj Nagladekkin undan LANDIÐ: Tíma nagladekkja lauk um páskana samkvæmt op- inberum tilkynningum. Eftír 15. apríl er óheimilt að aka um á negldum hjólbörðum. Því er rétt að minna ökumenn á að skipta um dekk undir bifreiðum sínum fljótlega enda má fastlega búast við að lítil hætta sé á hálku úr þessu. Að sögn lögreglu geta ökumenn búist við sektum fyrir akstur á nagladekkjum. -bg Breiðaf) arðameínd hélt fyrsta fimdinn I fyrsta skipti á starfstíma Breiða- fjarðarnefndar var boðað til og hald- inn fundur í nefridinni á Hell- issandi. Fundur- inn fór fram á Hótel Hellissandi sl. mánudag. Mættir voru allir nefndarfulltrúar auk ritara. Rætt var á fundinum um skráningu ör- nefna og um væntanlegan samning við Raunvísindasofriun Háskólans um það verkefrii. Einnig var rætt um væntanlegan kynningarbækling um fuglalíf á Breiðafirði og kom ffam að sá bæk- lingur væri nú kominn í prentun og ekki myndi líða á löngu þar tíl að honum yrði dreift tíl ferðaþjón- ustuaðila. Þá fjallaði nefridin um uppfærslu A myndinni er Breiðajjarðamefnd áfundi á Hellissandi. F.v: Róheit Stefánsson, Þórólfur Halldórsson, Eiríkur Snæbjömsson, GuÓríbur Þorvarðardóttir, Friíjón Þórdarson formaður, Sigrtður Elísdóttir starfsmaóur og rit- ari, Magnús Sigurðsson, Asgeir Jónsson og Sigurður Þórólfsson. á Verndaráætlun sem gilda á til árs- ins 2015. Vinna við áætlunina væri vel á veg komin og stefnt að því að ljúka þeirri vinnu á næstu mánuð- um. Svo var boðið í miðdagskaffi þeim bæjarfulltrúum Snæfellsbæjar sem höfðu aðstöðu til að mæta: Pétri Jóhannssyni, Ólafi Rögn- valdssyni, Ólínu Kristinsdóttur, Gunnari Erni Gunnarssyni og bæj- arstjóra Snæfellsbæjar, Kristni Jónassyni og svo þeim þjóðgarðs- vörðum Guðbjörgu Gunnarsdóttur og Skúla Alexanderssyni. Þessir gestir voru kallaðir til skrafs og ráðagerða um áhugamál nefridar- innar og almennt um náttúrufars- málefrii á svæðinu. Effir ávarp for- manns, Friðjóns Þórðarsonar fóru fram upplýsandi og fjörlegar um- ræður. MM/ Ljósm. SA Tilboð opnuð í „blokldna“ Sex kauptílboð bárust í húseign- ina Sæból 33-35 í Grundarfirði sem Grundarfjarðarbær auglýstí til sölu fyrir nokkru. Hæsta tilboðið, að fjárhæð 53 milljónir króna, barst ffá Óla Jóni Gunnarssyni fyrir hönd óstofriaðs hlutafélags. Landsmenn byggingaverktakar ehf. buðu rúmar 49 milljónir króna, Guðmundur Runólfsson hf. bauð 48 milljónir króna, Magnús Óskarsson og fleiri buðu rúmar 44 milljónir króna, Lárus Skúli Guðmundsson bauð rúmar 43 milljónir króna og Þórð- ur Magnússon bauð 42 milljónir króna. Húseignin var reist á árinu 1978 og í henni eru alls átta íbúðir og heildarflatarmál þeirra er um 689 fermetrar. Heildarbrunabótamat fasteignarinnar er um 104 milljónir króna en fasteignamatið er rúmar 43 milljónir króna. HJ Lionsfólk á Hellissandi færír Björgunarskólanum gjöf Formenn Lionklúbbanna, þau Kiistinn og Guðríin afhenda Þór hjartastuðt<ekið. I liðinni viku komu Lionsklúbb- arnir á Hellissandi; Þernan og Nes- þinga, saman tíl sameiginlegs fund- ar í Jarlinum á Gufriskálum. Tilefn- ið var að klúbbarnir höfðu ákveðið að færa Björgunarskóla Slysavarn- arfélgsins Landsbjargar á Gufuskál- um að gjöf hjartastuðtæki til notk- unar við hjartastopp. Formenn klúbbanna þau Guðrún Pálsdóttir og Kristinn Jónasson kölluðu Þór Magnússon, forstöðu- mann skólans að háborði fundarins og afhentu honum tækið. Þökkuðu fyrir góða starfsemi Björgunarskól- ans og óskuðu þeirri starfsemi góðs gengis. Gjöf klúbbanna væri færð til að efla þá starfsemi og sýna þakklætisvott. Þór Magnússon þakkaði gjöfina og þann hlýhug sem henni fylgdi frá félögum klúbbanna. Hann færði formönnunum skrautleg og inn- römmuð þakkarskjöl frá Slysa- varnafélaginu Landsbjörgu. Að þessu loknu var notið veit- inga. Undir borðum útskýrði Þór notkun tækisins. Það er mjög ein- falt í notkun og búið þeim kostum að það er greiningartæki og skýrir sjálft frá því hvernig það skuli not- að bæði með tali á spólu og rituðum skýringum. Sagði Þór að nú myndi kennsla á þetta tæki og meðferð þess verða meðal þess sem verður á námsskrá Björgunarskólans jafn- ffarnt því að það verður jafrian tíl reiðu til noktunar og aðstoðar ef á þarf að halda á staðnum og í ná- grenninu. MM/ Ljósm. SA Tólf vilja styrk úr Húsvemdunar- sjóði Akraneskaupstaðar Tólf umsóknir bárust byggingar- nefrid Akraness um styrkveitingar úr Húsverndunarsjóði Akranes- kaupstaðar en auglýst var eftir um- sóknum úr sjóðnum fyrir skömmu. í reglum sjóðsins segir að hlutverk hans sé að veita styrk til endurgerða eða viðgerða á húsnæði eða öðrum mannvirkjum á Akranesi sem sér- stakt varðveislugildi hafa af listræn- um eða menningasögulegum ástæðum, enda séu framkvæmdir í samræmi við upprunalegan bygg- ingarstíl húss og í samræmi við sjónarmið minjavörslu. Sex umsóknanna nú eru vegna húsa við Vesturgötu en hinar eru vegna húseigna við Bakkatún, Mánabraut, Melteig, Presthúsa- braut og Skagabraut. HJ Byggingu sparkvallar seinkar DALIR: Byggðaráð Dala- byggðar hefur skorað á verktaka við byggingu sparkvallar að hann ljúki verkinu eigi síðar en 30. apríl að því gefriu að frost verði farið úr jörðu á fram- kvæmdastað. Sparkvöllur þessi er hluti af sparkvallaátaki KSÍ sem staðið hefur yfir á undan- förnum árum. Verklok áttu í upphafi að vera 30. nóvember 2005. Áður hafði sveitarstjóri Dalabyggðar skriflega skorað á verktakann að ljúka verkinu eigi síðar en 31. mars. Fram kemur í fundargerð byggðaráðs að KSI hafi ítrekað þurft að ffesta form- legri vígsluathöfn vegna seink- unarinnar. -hj Skallagríms- menn til kvöld- verðar BORGARBYGGÐ: Bæjarráð Borgarbyggðar hefur samþykkt að bjóða meistaraflokki Skalla- gríms í körfuknattleik og að- standendun körfuknattleiks- deildarinnar tíl kvöldverðar í til- efrii af góðum árangri liðsins. Eins og kunnugt er varð liðið í öðru sæti á íslandsmótinu eftir mikla úrslitakeppni þar sem liðið lagði að velli lið Grindavíkur og Keflavíkur. Urslitarimman um hinn eftirsótta titil var síðan gegn liði Njarðvíkur. -hj Gistiheimilið Bjarg 10 ára BÚÐARDALUR: Þann 3. apríl sl. átti Gistiheimilið Bjarg í Búð- ardal 10 ára starfsaftnæli. í tilefni að því bauð eigandi staðarins, Vilhjálmur Astráðsson, til veislu og mættu um 100 manns til að fagna þessum áfanga með hon- um og þáðu veitingar. í aftnæl- inu stigu á svið hljómsveitin Skógarpúkarnir og söngvarinn Halli Reynis, sem kynnti gestum nýjan geisladisk sinn. A gistti- heimilinu Bjargi er boðið uppá uppábúin rúm og svefripoka- pláss. Auk þess er bar og veit- ingastaður á staðnum, þar sem bæði er í boði matur af grilli og Villapizzur. -so Vill endurskoð- un á lokun kjördeildar AKRANES: Stjórn Dvalar- heimilisins Höfða á Akranesi hefur mælst til þess við yfirkjör- stjórn Akraneskaupstaðar að endurskoðuð verði sú ákvörðun stjórnarinnar að leggja niður kjördeild þá sem verið hefur á kjördag á dvalarheimilinu. Bendir stjórnin á að nægilegt væri að kjördeildin væri opin í 3 klukkustundir til dæmis ffá kl. 11-14. Bæjarstjóm Akraness hef- ur þegar staðfest tillögu yfirkjör- stjórnar. -hj WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200 sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950. Verð í lausasölu er 400 kr. SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Fréttaritari: Bryndís Gylfadóttir 866 5809 bryndis@skessuhorn.is Augl. og dreifing: fris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.