Skessuhorn


Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 23
 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 23 Myndir frá Mats um borð í Baldri Átthagamyndirnar sem skreyta nýja Baldur vekja sannarlega eftir- tekt. Hér er um að ræða gjafir frá sveitarfélögum beggja megin Breiðafjarðar svo og á Vestfjörðum öllum. Einnig hafa nokkrir einstak- lingar, fyrirtæki og banki tekið þátt í þessum gjöfum. Myndirnar eru allar eftir Mats Wibe Lund ljósmyndara sem rekur vefin www.myndasafh.is, en þar er verið að setja inn myndir ffá öllum bújörðum landsins og eyðijörðum. Mats segist afar þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að vinna þetta verk, enda einsýnt að margir sem ferðast með Baldri hafa gaman af að skoða heimahagana á góðum ljósmyndum. Myndin sem fylgir þessari frétt er einnig um borð í Breiðafjarðar- ferjunni nýju, en ólíkt hinum myndunum stendur ekki hvaðan hún er. Nú geta menn spreytt sér á því að þekkja fjörðinn sem myndin sýnir. A þessa mynd eru hinsvegar felld inn nöfh allra gefanda mynd- anna, með hamingjuóskum til Sæ- ferða sem eru eigendur Baldurs. SO y'reMfiu/ t'iAan/iar Myntu - smjörsósa með fisld Sósan: 2 skalotlaukar smátt saxaðir 1 tsk smjör 2 dl þurrt hvítvín 1 dl. hvítvínsedik 1 dl. rjómi 3 greinar fersk mynta 1/2 tsk estragon 1/2 - 1 tsk gran piparkom graslaukur 250 gr. kalt smjör í smáhitum Bræðið smjörið í skaftpotti yfir meðalhita. Setjið hvítvín, edikið og skalotlaukinn í pottinn og sjóðið niður um helming. Bætið þá rjómanum og myntunni útí og látið suðuna koma upp. Hrærið köldu smjörinu saman við í bitum. Bætið estragoni, graslauk og grænum pipar saman við. Látið sósuna standa í 20 mín. Sigtdð í gegnum klæði. Vínið: Eins og fingrafar mannsins þá eru engin vín eins. Ekki einu sinni vín frá sama framleiðanda úr sömu uppskerunni með sömu þrúgu samsetningu eru eins. Þó að þau séu lík að innihaldi. Það eru því oft einkenni vín- berjanna sem hafa ber í huga þeg- ar valið er vín með mat. Ágætis regla er að velja vín eftir þvi hvað fer í matargerðina. Ef við erum að útbúa ítalskan rétt, þá myndi eði- legt val vera að velja ítalsk vín þar sem oft má finna sömu kryddin sem notuð voru í matargerðinni í víninu. Oft er talað um að nota skuli vín með sýru með mat eða sósu sem inniheldur sítrus ávexti. Nefna má sem dæmi Sauvingnon Blanc vín sem oftast hafa góða sýru. Með uppskriftinni hér fyrir ofan legg ég aðal áherslu á sósuna þar sem að hún er í þessu tilviki það sem myndi ákvarða hvaða vín ætti að velja með. Þurrt hvítvín er nefnt og gæti það verið vín eins og Gewurstraminer eða Chablis. Ef þau vín eru notuð í sósuna er eðlilegast að það sé einnig drukk- ið með matnum. Það mætti líka benda á að þetta er rjómalöguð sósa og þá þurfum við vín sem inniheldur sýru til þess að brjóta fituna í rjómanum niður. Mynta, graslaukur, pipar og estragon eru líka atriðin sem ætti að hafa í huga. Eftir að hafa litið á þetta í heild að þá myndi mitt persónulega val vera að drekka Riesling og þá kanski sérstaklega vín ffá Ástralíu þar sem þurkur og sýra eru ekki eins áberandi eins og í Riesling frá Frakklandi eða Þýskalandi. Það mætti t.d nefha „Peter Lehmann Barossa Riesling," sem lýst er svona á heimasíðu ÁTVR „Frekar létt, þurrt og ferskt með sítrus- og eplakeimi, olíu- og kókosnótum.“ Ltfiðheil! Jón Om, veitingarstjóri Icelandair Hótel Hamar. Verum stolt af Skaganum! Ljósm: Mats Wibe Lund Laus störf í Borgarnesi HÚSASMIÐJAN ...ekkert mál ^Húsasmiðjuskólinn: Við rekum skóla þar sem starfsmenn sækja námskeið. Haldin eru um 100 námskeið á ári og námsvísir er gefinn út vor og haust. ^Starfsmannafélag: Hjá okkur er öflugt starfsmannafélag sem sér m.a. um skemmtanir fyrir starfsmenn og fjölskyldur þeirra, íþróttaviðburði og útleigu sumarhúsa. ^Heilsuefling: Húsasmiðjan og starfsmannafélagið styðja við heilsurækt starfsmanna. * Viðskiptakjör: Við bjóðum starfsmönnum góð kjör. Viljum ráða áhugasama starfsmenn í eftirtalin störf - Deildarstjóra í málningardeild - Afgreiðslu- og sölumann í verslun Sveigjanlegur vinnutími - Starfsmann í vörumóttöku og áhaldaleigu. - Helgarstarfsmenn. Umsóknum skal skilaðtil Jóns Bek, rekstrarstjóra verslunarinnar í Borgarnesi Einnig er hægt að sækja um á netinu Húsasmiðjan hf. er stærsti söluaðili byggingarvara á íslandi og eitt af 25 stærstu fyrirtækjum landsins. Húsasmiðjuverslanirnar eru 78 talsins um land allt. í verslunum okkar höfum við á boðsstólnum yfir 80 þúsund vörutegundir - allt frá grunni að góðu heimili. Hjá Húsasmiðjunni hf. starfa að jafnaði um 700 manns á öllum aldri og við leggjum mikla áherslu á að starfsmenn eigi þess kost að eflast og þróast í starfi. www.heimaskagi.is V

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.