Skessuhorn


Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 2006 ■■.r.-ttliM.- Ráðið í stöður þrettán flokksstjóra Bæjarráð Akraness hefur sam- þykkt ráðningu í störf þrettán flokksstjóra við Vinnuskóla Akra- ness sumarið 2006. Að tillögu Ein- ars Skúlasonar, æskulýðsfulltrúa voru Geir Guðjónsson, Oskar Stef- ánsson, Olöf Helga Jónsdóttir, El- ísabet Osk Jónsdóttir, Edda Osk Einarsdóttir, Unnur Jónsdóttir, Samúel Þorsteinsson, Berglind Bergsdóttir, Bjarnfríður Leósdótt- ir, Tinna Björg Kristinsdóttir, Haf- dís Bergsdóttir og Laufey Jóhanns- dóttir ráðin í fullt starf. Þá voru Matthildur Kr. Sophusdóttir og Vigdís Elfa Jónsdóttir ráðnar í hálfa stöðu hvor. Þá var Helgi Olafur Jakobsson ráðinn í starf traktors- manns. HJ Jón Karl Olafsson formaður SAF og Sturla Böðvarsson samgöngurdðherra. Atriði úr leikþættinum um landnám Islands. Dans, tónlist og leikur í Laugargerðisskóla Ný heimasíða SAF opnuð Á aðalfundi SAF, Samtaka aðila í ferðaþjónustu, sem haldinn var 6. apríl sl. opnaði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra formlega nýja heimasíðu SAF. Stærstu breytingar á nýju síðunni eru nýtt félagatal þar sem félagsmenn setja sjálfir inn lýs- ingu á vöru sinni og þjónustu, bæði á íslensku og ensku og verður m.a. erlendum ferðaskrifstofum kynnt þessi nýja þjónusta. Þetta er því ókeypis markaðstækifæri íyrir fé- lagsmenn SAF. Eru félagsmenn sem enn hafa ekki sett inn upplýs- ingar um fyrirtæki sitt, hvattir til þess að gera það nú þegar. Enn- fremur er opið spjallsvæði félags- manna. Mun meiri upplýsingar er að hafa á nýju heimasíðunni t.d. er öflug fræðslusíða þar sem félags- menn geta nálgast upplýsingar um alls kyns menntun, námskeið o.fl. sem þeim stendur til boða. MM Langasandsreið Dreyra Á sumardaginn fyrsta hélt hesta- mannafélagið Dreyri í sína árlegu Langasandsreið. Saman riðu um 40 knapar á gæðingum sínum frá Æð- arodda að Dvalarheimilinu Höfða. Þar var heilsað var upp á heimilis- fólk og starfsmenn og heimilinu færður blómvöndur í tilefni sumar- komimnar. Þaðan var haldið á sand- irm og segja má að menn og hross hafi „slett úr klaufunum" og upp- hófust mikil hlaup og hamagangur. Þegar aftur var komið f Æðarodda tók við vöfflukaffi sem einnig er fastur liður á þessum degi hjá hesta- mannafélaginu. SO Á sumardaginn fyrsta var kennsla fram að hádegi í Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi en eftir hádegi var danssýning nemenda. Ásrún Krist- jánsdóttir, danskennari hefur verið með danskennslu í skólanum einu sinni í viku sfðan á áramótum. Nemendur hennar sýndu ýmis konar dansa t.d. hringdans, dans ársins og Ladabæjardans og í lokin var marserað með foreldrum. Að lokinni danssýningu hófs tónlista- dagur Steinunnar en þar komu fram nemendur sem hafa verið í tónlistarnámi hjá Steinku Páls í vet- ur og var flutt margs konar tónlist, eða allt frá þjóðlögum upp í þimg- arokk. Loks fluttu krakkarnir í 4. og 6. bekk gamanleikrit um landnám Islands sem þau hafa samið með Kristjáni Frímanni Krisjánssyni, kennara og komu þar fram margar skemmtilegar persónur. Þar var t.d. Skarphéðinn járnsmiður sem að vísu kom aldrei fram í sýningunni vegna þess að hann var skilinn eftir í Færeyjum. Hin fræga Gróa á Leiti kom þó við sögu í eigin persónu svo dæmi sé tekið. Dagurirm var góður í skólanum og skemmtileg byrjun á góðu sumri. ÞSK Sveitahótel með hulduverum Hraunsnef er nýlegt sveitahótel í Norðurárdal í Borgarfirði um- kringt mosavöxnu grjóti sem fallið hefur úr Hraunsnefsöxlinni í ald- anna rás. Grjótið er nú hýbýli álfa, dverga og ýmissa hulduvera. Her- bergi hótelsins eru tíu, öll með sér inngangi, snyrtingu, sturtu, og sjónvarpi og bera þau nöfn Ása úr norænni goðafræði. Á staðnum er einnig veitingastaður og tjaldstæði. Þá er boðið upp á klukkutíma jeppaferðir, fjársjóðsleit og ýmis konar afþreyingu við allra hæfi. Ferðaþjónustan er byggð á forni ís- lenskri þjóðtrú og í samráði við náttúruverurnar á svæðinu sem ber að virða. Sveitahótelið að Hraunsnefi er prýðileg viðbót við flóru ferðaþjón- ustu í héraðinu og ánægjulegt að nýir aðilar komi með nýjungar eins og ábúendur á bænum hafa verið að gera undanfarin ár. MM T^enninn^s Hvem ætlarþú að kjósa í vor? Að velja sér fólk til að stjórna bæjarfélögum er í dag ennþá mikil- vægara en oft áður. Það helgast af því að verkefni ríkisins munu ör- ugglega flytjast til sveitarfélagana í auknum mæh. Þá vil ég vita afstöðu ffamboðanna í mínum bæ til þeirra mála sem varða aldraða, fatlaðra og langveika. Eg mun ekki velja fagur- gala og innantóm orð, heldur mtm ég kjósa þau sem eru með aðgerðar- plan. Hvemig ætlaðra að gera hlut- ina og hvenær? Mun ég spyrja fólk- ið í framboðunum að. Reyndar vona ég að val milli ffamboða verði vegna annarra málefha en ofantal- ins. Málefhi hópana sem ég taldi upp áðan eiga að vera sameiginlegt verkefni okkar allra, alveg óháð flokkum. Eg held að við Islending- ar séum þannig gerð að við viljum allt það besta fyrir hópa sem minna mega sín. Nú hefur OBI ásamt fleirum kynnt hugmyndir um nýja nálgun hinna ýmsu málaflokka. Eg skora á öll framboð á landinu að ná sér í eintak af skýrslunni, affita hana og líma inní stefnuskrá síns ffam- boðs. Bæta svo við dagsetningum sem segja hvenær á að efna loforð- in. Einfalt og gott. Við skulum vinda okkur í að leysa þetta strax. Ekki á morgun, heldur í dag. Annað mikilvægt atriði er að full- trúar í sveitarstjórnum hafi vilja og þor til að sameinast og stækka sveit- arfélögin. Með auknum verkefnum verða einingarnar að vera það stór- ar að þær þoh að veita mannsæm- andi þjónustu. Smákónga hugsun bara gengur ekki lengur. Það er verið að gera þá hugsun brottræka úr fyrirtækjarekstri og sama á að gera í sveitastjórnarmálum. Nýtum fjármagnið í annað en kostnað við allt of mikla yfirbyggingu. Skipulag nýrra íbúðahverfa verð- ur að taka mið af „aðgengi fyrir alla.“ Ekki ætti að byggja eina ein- ustu íbúð nema tryggt sé að hægt sé að nota íbúðina fyrir alla, alltaf. (Með minniháttar breytingum) Hugsið ykkur að einn fjölskyldu- meðlimur fótbrotni og þurfi að aka um í hjólastól tímabundið. Höfum það í huga þegar við kaupum íbúð. Reyndar vil ég að byggingareglu- gerð kveði á um að þetta verði tryggt. Aðgengi að þjónustu sem boðin er almenningi á að vera fyrir alla. Gefum okkur þriggja ára aðlögun- artíma og effir það verði þeim stöð- um sem ekki uppfylla þessi skilyrði lokað. Starfsleyfi verði ekki endur- nýjað. Eg veit t.d. að minn ágæti tannlæknir sem býður sína þjónustu á annarri hæð í lyftulausu húsi, er að drepast í móral vitandi af mér hálf skríðandi upp og niðiu- í tíma hjá honum. Hann vantar bara hreinar línur varðandi aðgengi og þá skellir hann lyftu í húsið. (Reyndar el ég á samviskubitinu hjá honum í hvert sinn sem ég heim- sæki hann). Við ættum reyndar öll að velja þjónustu sem hefur aðgengi fyrir alla. Sleppa hinum, þá þyrfti engar reglugerðir til að laga að- gengi, þjónustuveitendur mundu laga til hjá sér strax. Semsagt, aðgengi að þjónustu, skipulag nýrra hverfa, stækkun sveitarfélaga og gjörbreytt hugsun við þjónustu þeirra sem minna mega sín eru þau mál sem ég ætla að kjósa um. En þú? Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins, S. 6/ 7 6828

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.