Skessuhorn


Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 1
Virka daga 10-19 Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18 nettö alltaf gott - alltaf ódýrt VIKUBLAÐ A VESTURLANDI 17. tbl. 9. árg. 26. apríl 2006 - Kr. 300 í lausasölu Þúsund blak- menn á Nesinu Um næstu helgi fer ffarn á Snæfellsnesi 31. öldungamót Blaksambands Islands og hafa 95 lið tilkynnt þátttöku í mótinu og verðm það því annað þölmennasta mótið ífá upphafi. Má því æda að um 1.000 manns sæki Snæ- fellsnes heim um helgina. Dagskrá mótsins hefst á fimmtudagskvöldið með skráningu í íþróttahúsi Snæfellsbæjar í Olafsvík. Keppni hefst síðan snemma á föstudagsmorgni og verður keppt í Olafsvík, á Hellissandi og í Grundarfirði. Keppni lýkur á sunndag. Sem von er má reikna með að gestir muni setja mikinn svip á maruilífið á Nesinu tun helgina og verður margt í boði fyrir gesti. Mótinu lýkur með lokahófi í félagsheimilinu Klifi á sunnudagskvöldið. HJ Borghildur og hinar flóttahœnt4mar ígóðum félags- skap heimiliskattanna í austurbœ Stykkishólms með- an allt lék í lyndi. Flóttahænur sigldu yfir fjörð I Stykkishólmi hafa um nokkurt skeið ver- ið aldar landnámshænur í lidum púmakofa í austurbænum. Eldið hefur ffam til þessa gengið vel og það fór vel um hænsnin lengst af. En í ljósi aukinnar útbreiðslu fuglaflensu af skæðara tagi og auldns viðbúnaðarstigs dýralæknisembætta töldu ræktendur sér ekki lengur stætt á að ala hinn ffjálsa stofn ein- göngu í samræmi við þarfir hverrar hænu. Ræktendumir, þær Sigurlína Sigurbjöms- dóttir og Anna S. Gunnarsdóttir, gripu þá til þeirra ráða að svifta pútumar frelsinu þar til flensan er gengin yfir. Aðbúnaður hænsnanna á þessu litla búi var hinsvegar hannaður með frelsi landnámshænunnar að leiðarljósi og stóð aldrei til að nýta hann sem sóttkví til lengri eða skemmri tíma. Það varð því úr að senda hænumar sjö með flóabátnum Baldri yfir fjörð því samningar tókust við ábúandann á Brjánslæk, Ragnar Guðmundsson bónda og hafharjarl, um að taka hænumar í vistun þar til hættan verður gengin yfir. Forystuhænan Borghildur og hinar sex tóku sér því far með nýja Baldri þriðjudaginn eftir páska og dvelja nú, eftir því sem næst verður komist, í góðu yfirlæti, innandyra á Brjánslæk. JTA ATLANTSOLIA Dísel *Faxabraut 9. Þjóðbúninganámskeið sem haldið var á Akranesi á vegum Heimilisiðnaðarskólans lauk nú á dögunum. Má sjá hluta afþeim konum sem sóttu námskeiðið í sínum þjóð- búningum á myndinni. Kennari þeirra var Guðrún Hildur Rosenkjcer, meistari í kkeðskurði og kjólsaum. Konumar sjö sem sóttu námskeiðið drógu upp nálina þann 11. febrúar sl. og hafa verið undir leiðsögn fjóra laugardaga síðan og befur þetta auk þess verið mikil heimavinna. En sannarlega gLesilegur árangur. Ljósm. SO Bókasafii fyrir tæpan kvartmillj- arð króna utan fj árhagsáædunar Bæjarráð Akraness hefur falið bæjarstjóra að ganga ffá kaupum á húsnæði vmdir Bókasafn Akra- ness fyrir um 240 milljónir króna þrátt fyrir að ekki hafi verið gert ráð fyrir kaupunum í fjárhagsá- ætiun. Bæjarráðsmaður minni- hlutans sakar meirihlutann um baktjaldamakk og telur óeðhlegt að málefni Bókasafns fari í for- gang á meðan önnur brýnni verk- efhi bíða. Að undanfömu hafa nokkrar umræður farið ffam um húsnæð- ismál Bókasafns Akraness. Nú- verandi safnahús var byggt árið 1965 og er 1.057 fermetrar að stærð. Húsið er að brunabótamati tæpar 105 milljónir króna og tæpar 51 milljón króna að fast- eignamati. Bókasafnið tók til starfa í þessu húsnæði þann 26. febrúar 1972. Þrátt fyrir að 34 ára sé ekki langur tími er núverandi húsnæði tahð talsvert illa farið og samkvæmt bókun meirihluta bæj- arráðs er tahð að kostnaður við viðgerð á því nemi „tugum millj- óna króna,“ svo vitnað sé í bókun meirihlutans. Eins og ffam hefur komið í fféttum Skessuhoms hefur með nýju deiliskipulagi verið gert ráð fyrir því að núverandi húsnæði bókasafhsins verði endurinnrétt- að með íbúðum fyrir eldri borg- ara og segir í bókun meirihlutans að það verði gert í tengslum við nýja byggingu með þjónustu- íbúðum fýrir aldraða á svæðinu. Eins og áður sagði samþykkti bæjarráð á fundi í síðustu viku, að tillögu Kristjáns Sveinssonar og Magnúsar Guðmundssonar, að staðfesta kaupsamning við Smáragarð ehf. í Kópavogi rnn kaup á um 1.300 fermetra hús- næði í fasteign þeirri er nú rís við Dalbraut 1. Fyrir það húsnæði greiðir bærinn rúmar 240 millj- ónir króna. Helmingur þeirrar upphæðar greiðist er húsnæðið verður fokhelt og hinn helmingur upphæðarinnar verður greiddur við afhendingu þann 1. október. I bókun meirihluta bæjarráðs segir að nýja húsnæðið verði hluti af uppbyggingu miðbæjarsvæðisins á Akranesi. Að sögn Jóns Pálma Pálssonar, bæjarritara verður nýja húnæðið afhent fullbúið, það er allir milli- veggir og gólfefni verða frágeng- in og sömu sögu er að segja af loftræstingu og rafmagns-, vams og tölvulagnir. Harm segir starfs- fólkið því einungis þurfa að flytja með sér skápa, bækur og búnað sem notaður er á bókasafninu í dag. Þrátt fyrir að þama sé um mjög mikla fjárfestingu að ræða, og að- eins séu liðnir tæpir fjórir mánuð- ir af gildistíma núverandi fjár- hagsáætitmar, var ekki gert ráð fyrir þessum kaupum í áætlun- inni. Samþykkti meirihluti bæjar- ráðs því að vísa fjármögnun til endurskoðunar fjárhagsáætlunar- innar. Guðrún Elsa Gunnarsdóttir bæjarráðsmaður minnihlutans lagði til að málinu yrði ffestað til næsta fúndar bæjarráðs en því var hafiiað. I bókun sem hún lagði ffam mótmælir hún harðlega vinnubrögðum meirihlutans og segir minnihlutann ítrekað hafa óskað eftir því að gerð yrði grein fyrir hvað ætti að gera við bóka- safnshúsið ef breytingar yrðu gerðar á skipulagi svæðisins. „Fulltrúar meirihlutans hafa ekki haft manndóm í sér að horfa í augun á okkur og segja okkur sannleikann. Þeir hafa kosið að láta sem ekkert væri að gerast í þeim efnum og fullyrt í beinni út- sendingu að það væri ekki verið að vinna bak við tjöldin. Annað er nú að koma í ljós og ljóst er að búið er að gera samning bak við tjöldin.“ Og bæjarráðsmaður minnihlutans gagnrýnir ekki að- eins vinnubrögðin sjálf heldur gerir athugasemdir við að málefni bókasafns skuli með þessum hætti sett í forgang á meðan önnur brýnni verkefni bíða að hennar mati. ,JVlá þar nefna bæði leik- skólabyggingu og tónlistarskóla svo nokkuð sé nefnt," segir í bók- un minnihlutans. „Eg get ekki með nokkru móti sætt mig við slík vinnubrögð og hefði óskað að meirihlutinn hefði kynnt málið fyrir bæjarfulltrúum Sjálfstæðis- flokksins. Það hefði verið algjör lágmarkskurteisi" segir Guðrún Elsa að lokum í bókun sinni. HJ Flligger Hörpuskin, Hörpusilki og Utitex fást nú hjá KB Búrekstrardeild Egilsholt 1-310 Borgarnes Afgreiðsla sími: 430-5505 Fax: 430-5501 Opið frá kl. 8-12 og 13-18 alla virka daga

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.