Skessuhorn - 03.05.2006, Side 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 18. tbl. 9. árg. 3. maí 2006 - Kr. 400 í lausasölu
Borgarbyggð
hluthafi í
menntaskóla
Bæjarráð Borgarbyggðar sam-
þykkti í síðustu viku að leggja
fram 10 milljónir króna í hlutafé í
Menntaskóla Borgarfjarðar ehf.
Að auki kom fram að gert sé ráð
fyrir að leggja fram frekara hluta-
fé á þessu ári og því næsta. Jafri-
framt var samþykkt að tilneíha
Helgu Halldórsdóttur, Finnboga
Rögnvaldsson og Sveinbjörn Eyj-
ólfsson til setu í stjóm félagsins.
Eins og fram hefur komið í ffétt-
um hyggst hið nýja félag reisa og
reka menntaskóla á Borgarnesi.
I Skessuhorni í næstu viku
verður greint nánar ffá ff amgangi
menntaskólamálsins í Borgamesi,
enda tíðinda að vænta í því máli af
hálfu ráðuneytis menntamála í
þessari viku. HJ
Falsaðir seðlar
íumferð
Falsaðir peningar komu inn á
borð gjaldkera KB banka á Akrar
nesi í síðustu viku en maður
nokkur kom í bankann til að
leggja inn peninga úr sjóði sem
hann hafði með að gera. Innan
um seðlana sem maðurinn kom
með reyndust vera tveir falsaðir
500 kr. seðlar. Svo virðist sem
seðlamir hafi verið prentaðir úr
tölvuprentara og tíltölulega auð-
velt var að sjá við nánari skoðun
að ýmislegt var athugavert við þá.
Þrír aðrir seðlar til viðbótar
komu ffam nokkm seinna. Málið
er í rannsókn en ástæða er til að
vara fólk við því að fleiri seðlar
gætu verið í umferð. Vert er að
geta þess að hér er um alvarlegt
lögbrot að ræða en í 150 gr. al-
mennra hegningarlaga segir;
„Hver, sem falsar peninga í því
skyni að koma þeim í umferð sem
ósviknum gjaldeyri, svo og hver
sá, sem í sama skyni aflar sér eða
öðmm falsaðra peninga, skal sæta
fangelsi allt að 12 árum.“ SO
ATLANTSOLIA
Dísel 'Faxabraut 9.
Fyrsti maí var haldinn hátíðlegur um borg og bæ sl. mánudag. Hér má sjá kröfugöngu verkalýðsfélaganna á Akranesi fara af stað.
Ljósm. KK
Umferðaröiyggi
reiknað um Teigsskóg
Vegagerðin hefur fengið verk-
fræðistofuna Línuhönnum til að
reikna út umferðaröryggi þeirra
kosta sem í boði eru við lagningu
Vestfjarðavegar milli Bjarkalundar
og Eyrar í Reykhólahreppi. Sem
kunnugt er hafnaði Skipulags-
stofnun með úrskurði tveimur
þeirra leiða. Vegagerðin hefur á-
samt fleirum kært þann úrskurð til
umhverfisráðherra.
I matsskýrslu hafði Vegagerðin
metið þrjár leiðir B, C og D en
sjálf valið leið B sem þá heppileg-
ustu. Hún er talin vegtæknilega
besti kosmrinn, hún liggur öll um
láglendi og styttir núverandi veg
um 6,25 km. Leið D liggur hins
vegar um Odrjúgsháls og Hjalla-
háls, brattan fjallveg sem fer upp í
336 metra hæð yfir sjávarmáli.
Eins og áður sagði felur úr-
skurður Skipulagsstofnunar í sér
að leiðum B og C er hafnað en
fallist er á leið D með skilyrðum.
Helstu rök gegn leið B telur
Skipulagsstofnun vera umtalsverð
umhverfisáhrif sem vegagerð um
Teigsskóg hefði í för með sér.
I röksmðningi Vegagerðarinnar
er meðal annars bent á að leið B sé
talin öruggari fyrir umferð en leið
D og með tilliti til þess séu ekki
fyrir hendi nægar ástæður til að
hafha henni. Þessu til áréttingar
heíúr Vegagerðin nú, eins og áður
sagði, fengið verkfræðistofuna
Línuhönnun til að reikna umferð-
aröryggi beggja kostanna og verða
þeir útreikningar lagðir fram með
kærunni.
HJ
------7------------------
A dauða-
siglingu
Mikið hefur verið um hraðakst-
ur í Borgarfjarðarhéraði að und-
anfömu og tók lögreglan í Borg-
amesi alls um 40 ökumenn fyrir of
hraðan akstur í liðinni viku. Þaraf
mældust nokkrir á „dauðasigl-
ingu,“ eða langt yfir 100 km/klst
og af þeim var einn á mótorhjóli.
Það hefúr vakið athygli lögreglu
að um innansveitarmenn hefur
einungis verið að ræða í þessum
ofsaakstri að undanfömu. Náðust
umræddir ökumenn strax. Einn
missti bifreið sína reyndar útaf
þegar verið var að stöðva hann og
er hann auk hraðakstursins grun-
aður um ölvun við akstur. Að
sögn Theodórs Þórðarsonar, yfir-
lögregluþjóns em hraðamælingar-
tæki lögreglunnar orðin mun
betri en áður var og er nú hægt að
mæla ökuhraða á mun lengri
vegalengdum en hægt var áður.
Einnig er hægt að mæla hraða
ökutækja með fjölbreyttari hætti
úr lögreglubifreið en áður var og
svokallaðir „radarvarar“ duga
ökumönnum ekki lengur til að
varast hraðamælingamar. SO
Veiðileyfi
ákrónu
Veiðifélagið Laxá býður veiði-
mönnum veiðileyfi á Vatnasvæði
Lýsu á Snæfellsnesi á eina krónu
nk. fösmdag, laugardag og sunnu-
dag. Það þykja tímamót, því lax-
veiðileyfi gera lítið annað en
hækka í verði þessa dagana, enda
kaupa fjármálafyrirtæki veiðileyfi í
stórum kippum eins og ffam hef-
ur komið í fjölmiðlum. „Við ætl-
um að selja leyfið á eina krónu
næsm helgi,“ sagði Agúst K.
Agústsson hjá Laxá í samtali við
Skessuhom.
Veiðivonin í lax er kannski ekki
mikil á Vamasvæði Lýsu núna, en
útiveran er góð. Lýsa er eitt af
fáum vatnasvæðum á Islandi þar
sem allar tegundir íslenskra
ferskvamsfiska veiðast, þ.e. sjó-
bleikja, vamableikja, urriði og lax
og þar er vissulega hægt að æfa sig
við fluguveiðina enda aðstæður
þar góðar til slíks í lækjunum.GR