Skessuhorn - 03.05.2006, Blaðsíða 22
22
MIÐVIKUDAGUR 3. MAI2006
.gggsanaftBia
Margrét er heiðursborgari
og elsti íbúi Dalabyggðar
Hér er Sigrtín Margrét, fimm mánaía aé heilsa upp á langalangömmu sína Margréti.
Eins og fram kom í síðast tölu-
blaði Skessuhorns átti Margrét
Oddsdóttir frá Jörva í Haukadal
aldarafmæli sl. miðvikudag. Að því
tilefni var haldin veisla henni til
heiðurs á laugardaginn var í Fé-
lagsheimilinu Árbliki í Miðdölum
og leit blaðamaður inn til að óska
henni til hamingju með daginn.
Það voru stöllur hennar úr Dala-
byggð sem tóku það hlutverk að
sér að sjá um framkvæmd og und-
irbúning veislunnar og var ekki
annað að sjá en þeim hafi tekist vel
til. Um 150 manns voru mættir til
að fagna þessum degi með Mar-
gréti sem þótti afar vænt um að sjá
allan þennan fjölda og þakkaði
þeim innilega fyrir þann heiður
sem henni var veittur. Þess má
geta að hún var gerð að heiðurs-
borgara Dalabyggðar sl. laugardag
og er hún vel að þeim titli komin.
Meðal gesta var Siv Friðleifs-
dóttir, heilbrigðisráðherra en hún
er gift Þorsteini Húnbogasyni,
barnabarni Margrétar. Siv sagði að
Margrét væri afar litrík kona sem
sæist einna helst í fatavali hennar.
Margrét hefur gaman af því að um-
gangast fólk og er létt í lund og
segir að fólk eigi að hafa gaman af
lífinu og skemmta sér. Sjálf vill hún
lifa hundrað ár í viðbót og að sögn
Þorbjargar Guðbrandsdóttur,
barnabarns hennar vill hún fá Kára
Stefánsson til að uppfylla þessa ósk
hennar.
Margrét, sem er fædd að Hömr-
um í Haukadal 26. apríl 1906, er
elsti íbúi Dalabyggðar og á 63 af-
komendur. Margrét og eiginmaður
hennar, Þorsteinn Jónsson sem lést
fyrir tíu árum áttu fjögur börn;
Húnboga, Alfheiði og Mörtu Þor-
steinsbörn en einnig áttu þau Bryn-
hildi, sem lést árið 1958 aðeins 27
ára gömul.
KÓÓ
Keppt fram yfir miðnætti
á öldungamóti BLI
Um síðustu helgi stóð 31. öld-
ungamót Blaksambands Islands
yfir og að þessu sinni var það hald-
ið á Snæfellsnesi. Um þúsund
manns í 95 liðum kepptu í Grund-
arfirði, Olafsvík og Hellissandi þar
sem keppt var ffá snemma morg-
uns og langt fram yfir miðnætti.
Blaðamaður leit við í íþróttahúsið í
Grundarfirði á laugardaginn en þá
stóð yfir kvennaleikur Fylkis úr
Reykjavík og liðsins Eikar frá Ak-
ureyri og var stemningin ágæt.
Mótsgestir fengu meðal annars
ffítt í sund í Olafsvík og Grundar-
firði til að slappa af í heitum potti
milli leikja. Mótinu lauk á sunnu-
dagskvöldinu með glæsilegu loka-
hófi í félagsheimilinu Klifi í Olafs-
vík þar sem hljómsveitin í svörtum
fötum lék fyrir dansi.
Sigurvegaramir aé lokinni verðlaunaafhendingu.
Rótburstuðu Opna
Borgarfjarðarmótið
A fimmtudag í síðustu viku var
lokakvöld í þriggja kvölda móti
briddsfélaganna á sunnanverðu
Vesturlandi, en mótið nefnist Opna
Borgarfjarðarmótið. A því tóku
þátt 22 pör úr Borgarfirði, Borgar-
nesi og Akranesi. Fyrri tvö kvöldin
var spilað í Logalandi en endað á
Akranesi. Spilaður var barómeter, 4
spil milli para. Strax eftir fyrsta
kvöldið fóru línur að skírast hvert
stefhdi í baráttu efstu para. Borg-
firðingamir Sveinbjörn Eyjólfsson
og Lárus Pétursson stóðu efstir
strax eftir fyrsta kvöldið og leiddu
mótið til enda. Annað kvöldið
leysti að vísu yngri bróðir Lárusar,
Jón Smári, Sveinbjörn af og var ár-
angur þeirra bræðra engu lakari.
Eftir að síðasta spil hafði verið spil-
að kom í ljós að þeir félagar höfðu
halað inn 192 stig, meira en tvöfalt
fleiri stig en þeir sem höfnuðu bæði
í öðra og þriðja sæti náðu samtals.
Sannarlega frábær árangur hjá
Lárusi, Sveinbirni ogjóni Smára. I
öðru sætd með 98 stig enduðu þeir
Eyjólfur Ornólfsson og Þorsteinn
Pétursson úr Borgarfirði og í þriðja
sæti Alfreðar tveir af Akranesi,
Kristjánsson og Viktorsson með 91
stig. Eftir að úrslit höfðu verið
kynnt lýsti Guðmundur Ólafsson
mótsstjóri því yfir að stefnt yrði að
því að Opna Borgarfjarðarmótið
verði haldið næst í haust. MM
Kjördæmismót Vestur-
lands í skólaskák
Síðastliðinn föstudag fór kjör-
dæmismót Vesturlands í skólaskák
fram í Grunnskólanum í Borgar-
nesi. Það voru Andakílsskóli,
Grunnskólinn í Borgarnesi,
Grunnskólinn í Búðardal, Klepp-
járnsreykjaskóli og Varmalands-
skóli sem sendu keppendur á mót-
ið. Keppendur voru 14 og keppt
var í tveimur flokkum. í báðum
flokkum var hörð barátta enda
mikið í húfi því efsta sætið í báðum
flokkum gaf þátttökurétt á Lands-
mótinu í skólaskák sem verður
væntanlega haldið á Laugarvatni
dagana 8.-11. júní nk.
Urslit mótsins voru eftirfarandi:
Yngriflokkur, 1.-7. bekkur, 11
keppendur alls
1. AuSur Eiðsdóttir 5,5 vinningar
úr 6 umferðum (gerði jafntefli við
Gunnlaugu Birtu)
2. Hulda Rún Finnbogad., 5 vinn.
3. Gunnlaug Birta Þorgrímsdo'ttir, 4
vinningar.
Eldriflokkur, 8.-10. bekkur, 4
keppendur alls
1. Jóhann Óli Eiðsson, 3 vinningar
úr 3 umferðum
2. Tinna Kristín Finnbogad., 2 vinn.
3. Fjölnir Jónsson, 1 vinningur
Glæsilegt íþróttahús vígt á Reykhólum
Sr. Sjöfn Þór sóknarprestur vígði húsið ogfékk hún dygga aðstoð fi'á þessum krökkum.
Ihúar Reykhóla geta verið stoltir af nýja húsinu.
Á laugardaginn síðasta var vígt
nýtt íþróttahús á Reykhólum við
hátíðlega athöfn og voru um 100
gestir viðstaddir. Það var séra Sjöfh
Þór sóknarprestur sem vígði húsið
og blessaði en börnin í sveitinni
voru henni til aðstoðar. Þetta er
glæsilegt 425 fermetra hús sem
byggt var við Reykhólaskóla með
rúmlega 100 fermetra tengibygg-
ingu. Arkitekt hússins er Jón Guð-
mundsson. Kostnaður íþróttahúss-
ins nam um 69 milljónum króna og
er þá tekinn með kostnaður vegna
kaupa á borðum, stólum og öðrum
innanstokksmunum. Þó á eftir að
ganga fr á plani og bílastæði við hús-
ið.
Sveitarstjóri Reykhóla, Einar
Thorlacius er fullviss um að húsið
muni ekki eingöngu nýtast yngri
kynslóðinni til leiks og íþrótta,
heldur er húsið tilvalið fyrir hvers
kyns mannamót fyrir þá fullorðnu.
Þá tók hann, fyrir hönd hússins, á
móti fjöldanum öllum af gjöfum frá
hreppsbúum en húsið fékk meðal
annars glæsilegan farandbikar sem
ungviðin í sveitinni mtmu keppa
um. Húsinu bárust einnig að gjöf
matar- og kaffistell ásamt hnífapör-
um fyrir um þrjúhundruð manns,
málverk, klukka og margt fleira sem
prýða mun húsnæðið í framtíðinni.
KÓÓ