Skessuhorn


Skessuhorn - 03.05.2006, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 03.05.2006, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 2006 attCSSUIÍUhJ’ Tilboði í Harastaði tekið Byggðaráð Dalabyggðar hef- ur samþykkt með tveimur at- kvæðum gegn einu kauptilboð, að upphæð 42 milljónir króna, frá Verslun Einars Þorgilssonar ehf. í Hafnarfirði í jörðina Harastaði. Núverandi ábúandi hefur rétt til þess að ganga inn í tilboðið. A fundi byggðaráðs lagði for- maður ráðsins tdl að 10 milljónir af söluandvirðinu verði varið til viðhaldsffamkvæmda á húsnæði á Laugum og 10 milljónum verði varið til viðhaldsfram- kvæmda á félagsheimilum í sveitarfélaginu. Guðrún Jóna Gunnarsdóttir byggðaráðsmaður óskaði eftir að bókað væri að salan á jörðinni Harastöðum hafi ekki verið ákveðin með hagsmtmi sveitar- félagsins í huga og stuðlar að auknrnn eignarhlut auðmanna á jörðum á Fellsströnd sem og annars staðar. Það er sveitarstjórn Dala- byggðar sem hefur síðasta orðið við söluna. HJ Til minnis Við minrtum á árlega bifhjóla- sýningu Raftanna á laugardag- inn milli klukkan 13 og 17. Sýningin fer fram í íþróttamið- stöðinni í Borgarnesi, þar sem sýndir verða gamlir og nýir fák- ar og búnaður tengdur mótor- sporti. CcOJ Ve&wrhorfwr Á fimmtudag er gert ráð fyrir suðaustlægri átt, 8-13 m/s og rigningu sunnan til á landinu. Hiti 6-14 stig. Stíf suðvestleg átt og rigning með köflum á föstudag en lægir og léttir til hér Vestanlands seinnipartinn. Á laugardag og sunnudag verður austlæg eða breytileg átt, víðast bjart og áfram milt veður. SpMmin| viKiinnar í síðustu viku voru lesendur spurðir hvort sumardekkin væru komin undir bflinn. 68% svöruðu spumingunni játandi, 3% vissu það ekki og 29% svarenda voru ekki búnir að koma vetrardekkjunum undan og sarga því áfram á nöglun- um aðeins lengur! í næstu viku spyrjum við: „Er búið að skipu- leggja sumarfríið á þínu heimili?" Svaraðu án undanbragða á www.skessuhorn.is Vestlenclintjnr viKi^nnar Vestlendingur vikunnar er Mar- grét Oddsdóttir, til heimilis á dvalarheimilinu Silfurtúni í Dalabyggð. Margrét varð 100 ára gömul þann 26.apríl sl. og hlaut hún nafnbótina heiðurs- borgari Dalabyggðar í tilefni þessa merka áfanga. Víðtæk leit að vélsleðamanni Vélsleðamaður sem leitað var að ffá því um 9 á laugardagsmorgni á Langjökli fannst heill á húfi um klukkan 18 um kvöldið sama dag rétt vestan við Klakk. Um 160 björgunarsveitarmenn á um 10 snjó- bílum, 50 vélsleðum, 20 björgunar- sveitarbílum ásamt þyrlu ffá vama- liðinu og flugvél Flugmálastjórnar tóku þátt í leitinni við erfiðar að- stæður veðurfarslega séð. Vom það björgunarsveitarmenn á vélsleðum sem fundu manninn sem var orðinn kaldur og blautur en ekkert annað amaði að honum. Vélsleði mannsins hafi orðið bensínlaus en hann hafði bmgðist rétt við með því að bíða við sleðann þar til hann fannst. MM Elísabet verður mennmgarfuUtrúi Vesturlands Menningarráð Vesturlands hefur ráðið Elísabetu Haraldsdóttur í starf menningarfulltrúa á Vestur- landi. Elísabet er myndlistarmaður og lauk námi af myndlistarbraut Listaháskóla Islands árið 1971. Hún er með mastersgráðu af myndlistarbraut ffá Listaháskólan- um í Vínarborg og hefur starfað að list sinni samhliða öðram störfum og tekið þátt í félagsstarfi lista- manna m.a. verið formaður leirlist- arfélagsins. Hún hefur verið í ráð- gjafahópi Handverks og hönnunar ffá upphafi verkefnisins. Elísabet hefur starfað við kennslu frá árinu 1976 og nú síðast sem deildarstjóri og skólastjóri í Andakílsskóla á Hvanneyri. Einnig hefur hún verið stundakennari og prófdómari við Handíðaskóla íslands sem nú er Listaháskóli Islands. Elísabet er fædd árið 1949. Eig- inmaður hennar er Gunnar Orn Guðmundsson, dýralæknir og era þau búsett á Hvanneyri. Elísabet mun hefja störf í júlí. MM Framkvæmdum við stækkun stúku Akranesvallar frestað Bæjarráð Akraness hefur frestað hugmyndum um stækkun áhorf- endastúku knattspyrnuvallarins á Jaðarsbökkum á Akranesi. I nóv- ember á síðasta ári heimilaði bæj- arráðið stækkun stúkunnar þannig að hún tæki 1000 áhorfendur í sæti í stað 700 áhorfenda. Eins og fram kom í Skessuhorni var fram- kvæmdanefnd íþróttamannvirkja falið að leita til hönnuða um út- færslu á stúkunni og leggja síðan fyrir bæjarráð hugmyndir ásamt kostnaðaráætlun. Stækkunin var fyrirhuguð til þess að mæta aukn- um kröfum Knattspyrnusambands Evrópu og var í upphafi talið að kostnaður við stækkunina yrði um 15 milljónir króna. Fyrir fundi bæjarráðs í síðustu viku lá hins vegar fyrir verðhug- mynd ffá SS verktökum í fram- kvæmdina að fjárhæð rúmar 49 milljónir króna eða ríflega þrefalt hærri upphæð en upphaflega var rætt um. Að sögn Guðna Tryggva- sonar, sem sæti á í framkvæmda- nefnd íþróttamannvirkja, má rekja þennan verðmun til þess að um- fang verksins er mun meira en upphaflegar hugmyndir gerðu ráð fyrir. HJ Ráðhús Borgarbyggðar vígt á laugardagfrui Næstkomandi laugardag kl. 15 verður nýtt Ráðhús Borgarbyggðar að Borgarbraut 14 vígt. Af því til- efni býður Borgarbyggð íbúum að koma og skoða húsið og þiggja veit- ingar milh kl. 15 og 17. I tengslum við opnun hússins munu böm Hall- dórs E. Sigurðssonar afhenda sveit- arfélaginu málverk til minningar um föður sinn, en Halldór var fyrsti sveitarstjórinn í Borgamesi og á síð- asthðnu ári vora hðin 50 ár ffá því að Halldór kom til starfa sem sveit- arstjóri hjá Borgarneshreppi. Einnig verður opnuð ljósmyndasýn- ing sem spannar 50 ára tímabili í ffamkvæmdasögu Borgarness, en myndimar era allar teknar af Sig- valda Arasyni verktaka. Borgarbyggð festi kaup á fasteign- inni að Borgarbraut 14 árið 2004. Húsið var upphaflega byggt fyrir Sparisjóð Mýrasýslu árið 1960 og síðar var byggt við húsið árið 1980. Frá því í árslok 2005 hafa staðið yfir gagngerar breytingar á því til að það nýtist sem best undir starfsemi bæj- arskrifstofu, bæjarstjórnar og nefnda. Páll Björgvinsson arkitekt hjá Teiknistofu Vesturlands teiknaði breytingarnar á húsinu. Byggingar- stjóri var Guðmundur Eiríksson og aðalverktaki var Sólfell ehf. Undir- verktakar hjá Sólfelh vora; Híbýla- máltm Garðars, Blikksmiðja Guð- mundar Hallgrímssonar, Múrsmíði, Sigmar H. Gunnarsson, Trésmiðjan Stígandi, Gólflagnir og íslandslyft- ur. Um raflagnir sá Gfitnir ehf, en ásamt þeim sá Bragi Þór Sigurdórs- son um hönnxm raflagna. Hönnun hf. sá um hönnun loffæstikerfis. MM Skipuleggjendur siglingakeppni í heimsókn í Grundarfirði Skipuleggjendur siglingakeppn- innar „Skippers D’Islande" vora á ferð í Grandarfirði í síðustu viku. Sem kunnugt er, er þar um að ræða siglingu ffá Paimpol í Frakklandi til Grundarfjarðar og aftur til baka. Keppnin hefst þann 24. júní í sum- ar. Að sögn Bjargar Agústsdóttur, bæjarstjóra í Grandarfirði skoðuðu ffakkarnir aðstæður og vora mjög ánægðir enda hefur undirbúningur gengið vel í Grandarfirði. Nú þegar hafa 25 skútur verið skráðar í keppnina. Með keppnis- skútunum sigla tvær seglskútur af gerðinni „golétte“ sem era nákvæm eftirlíking af fiskiskútunum sem veiddu við íslandsstrendur á 19. og 20. öld. Reiknað er með að áhafnir skútanna telji um 200 manns en að auki er reiknað með komu hóps ferðamanna ffá Frakklandi til þess að fylgjast með keppninni. HJ Hundar drápust AKRANES: Sex hundar drápust í heimahúsi á Akranesi sl. laugar- dag, fimm fullvaxta hundar og einn hvolpur. Lögregla fékk til- kynningu tun klukkan 11 um mikinn vamsleka í kjallara húss- ins og stafáði lekinn ffá krana sem að skrúfað var ffá og rarm heitt vatn á golf í þvottahúsi. I þvottahúsinu vora hundamir sex sem allir vora dauðir þegar að var komið. Tahð er að krani hafi opnast við það að htmdabúr sem hundamir vora í valt á hann. Talsvert tjón varð á húsnæðinu og kom slökkvilið Akraness á staðinn og dældi út vatni. -so Missti tólið og ók á staur BORGARNES: Ungur öku- maður ætlaði sé um of þegar hann hugðist tala í súnann sinn undir stýri í miðju hringtorginu ofan við Borgarnes fyrir skemmstu. Hann missti vald á ökutækinu sem hafnaði á ljósa- staur. Staurinn brotnaði og öku- tækið stórskemmdist og var fjar- lægt af kranabíl. Okumaðurinn var í bílbelti og sakaði hann ekki. Líklegt er talið að hann fjárfesti í handffjálsum búnaði á næstunni. -so Umhverfisátak á laugardag BORGARNES: Bæjarráð Borg- arbyggðar hefur samþykkt að efna til umhverfisátaks í Borgar- nesi nk. laugardag. Undanfarin ár hefur sveitarfélagið staðið fyr- ir slíkum átaksverkefiium með góðum árangri. Markmiðið með þessu verkefni er að stuðla að fegurri ásýnd bæjarins, en glæsi- legt bæjarstæði Borgamess nýtur sín óneitanlega betur ef um- hverfið er snyrtilegt. Ibúar era hvattir af bæjarstjórn til að taka til hendinni á laugardaginn og hreinsa lóðir sínar og fjarlægja þaðan allt rusl. Starfsmenn Njarðtaks munu fara um bæinn og taka rasl sem fehur til við hreinsunina. -mm Slys í göngunum 11VALI'JÖRÐ UR: Slys varð í Hvalfjarðargöngunum á mið- vikudagskvöld í hðinni viku þeg- ar ung kona sofnaði undir stýri og skah biffeið hennar utan í gangnavegginn. Konan var flutt til skoðunar á Sjúkrahús Akra- ness en hún kenndi eymsla í hálsi. Bíllinn var óökufær effir slysið. Loka þurffi göngunum meðan lögregla og björgunar- menn uxmu á vettvangi. -so Dómur fyrir hnefahögg AKRANES: Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt karl- maim á Akranesi í 45 daga skil- orðsbxmdið fangelsi fýrir að hafa aðfaramótt aðfangadags á síðasta ári slegið marrn tvö hnefahögg í andlitið með þeim afleiðingum að spranga kom í kjálka þess er sleginn var. Atvikið átti sér stað á veitingastaðnum Café Mörk á Akranesi. Aður en dómur var kveðinn upp hafði ákærði greitt þeim er harrn sló skaðabætur. Þá var honum einnig gert að greiða 20.700 krónur í sakarkostnað. -hj

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.