Skessuhorn


Skessuhorn - 03.05.2006, Qupperneq 4

Skessuhorn - 03.05.2006, Qupperneq 4
4 aoUSUtlUik. MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 Ein milljón frá bænum AKRANES: í tilefni að 80 ára afmæli skátastarfs á Akranesi var samþykkt á bæjarráðsfundi Akra- neskaupstaðar sl. fimmtudag að veita Skátafélagi Akraness eina milljón króna til félagsstarfs og viðhalds húsnæðis félagsins. I fundargerð bæjarráðs segir: „Bæjarráð vill þakka Skátafélagi Akraness fyrir áratuga félags- og æskulýðsstarf á Akranesi." -so Bitin af hundi AKRANES: Kona var illa bitin af hvmdi á Akranesi sl. föstudag. Að sögn sjónarvotta var konan, sem bitin var, að klappa hundin- um og þegar hún hætti að gæla við hann rauk hundurinn á hana og beit hana illa í hendina. Kon- an leitaði strax læknisaðstoðar en hún þurfti að gangast vmdir skurðaðgerð á hendinni eftir bit- ið. Hundurinn verður aflífaður. -so • • Olvun og ofsaakstur BORGARFJ ÖRÐUR: Lög- reglan í Borgamesi stöðvaði öku- mann sem mældist á um 180 km/klst hraða á föstudag. Annar ökumaður reyndi að stinga lög- regluna af eftir að hann hafði mælst á um 160 kílómetra hraða. Sá haftiaði utan vegar og á yfir höfði sé háar sektir því hann reyndist einnig vera ölvaður. AIls vom sjö ökumenn tekrúr fyrir of hraðan akstur af lögreglunni á föstudag og aðfaramótt laugar- dags en allir vora ökumennimir stöðvaðir fyrir of hraðan akstur á þjóðveginum frá Borgarnesi og að Hvalfjarðargöngunum. -mm Yngri böm í leikskóla GRUNDARFJÖRÐUR: Bæj- arstjóm Grundarfjarðar sam- þykkti samhljóða í síðustu viku tillögu Bjargar Agústsdóttur bæj- arstjóra um að veita leikskóla- stjóram heimild til að taka inn 18 mánaða böm, tímabundið, eða ffam til loka ársins „enda leyfi staða í starfsmannamálum það,“ eins og segir í tillögunni. Til þessa hefur verið miðað við tveggja ára aldur. -hj * Ur umferðinni AKRANES: Lögreglan á Akra- nesi hefur haft í nógu að snúast við löggæslu í umdæminu en til hennar komu 113 mál í hðinni viku. Af þeim tengdust 47 um- ferðinni. Hraðaakstur var nokk- uð áberandi og vora alls 19 kærð- ir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók var mældur á 133 km/klst hraða þar sem hámarks- hraði er 90 eða 43 km yfir leyfð- um hámarkshraða. Ökumaður var tekinn innanbæjar fyrir of hraðan akstur en hann var mæld- ur á 89 km/klst hraða þar sem er 50 km hámarkshraði og var hann því 39 km yfir hámarkshraða. -so Oflugustu klippur landsins Slökkviliðið á Akranesi tók í en þær voru fyrst notaðar á æfingu gagnið nýjar klippur á dögunum, sem slökkviliðið og Björgunarfélag Akraness héldu saman. Á æfing- unni sem fór fram á svæði Gámu var sett upp slys og klippumar fengu að sýna hvað í þeim býr. Nýju klippurnar era þrisvar sinn- um öflugri en þær gömlu sem slökkviliðið hafði til umráða og eru þær öflugustu á landinu í dag. Þær era af gerðinni HOLMATRO og koma frá Ólafi Gíslasyni í Eld- varnarmiðstöðinni. Klippurnar munu þjóna stóru og umferðar- þungu svæði, þar sem sérstaklega mikil þungaflutningaumferð er á vegum Vesturlands. SO/ Ijósm. MM Ályktun VLFA um flæði launafólks Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness var haldinn 26. apríl sl. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem skorað er á íslensk stjórnvöld og Alþingi Islendinga að afnema alls ekki takmarkanir á frjálsri för launafólks ffá hinum nýju aðildar- ríkum EES eins og fyrirhugað er að gera samkvæmt fyrirliggjandi fram- varpi félagsmálaráðherra. I álykt- uninni stendur einnig: „Aðalfund- urinn telur það ámæfisvert að ís- lensk stjómvöld hafi ekki látið gera úttekt eða rannsókn á því hvaða á- hrif erlent vinnuafl hefur haft á ís- lenskan vinnumarkað áður en tekin er ákvörðun um það að galopna landið fyrir launafólki ffá nýjum aðildarríkjum EES. Aðalfúndurinn telur að því markaðslaunakerfi sem viðgengist hefur á íslenskum vinnu- markaði á liðnum árum og áratug- um sé stórlega ógnað ef það ffum- varp sem nú liggur fyrir Alþingi fer í gegn óbreytt. Aðalfundur telur það einnig óskiljanlegt af hverju verið er að skerða eftirlitshlutverk stéttarfélaganna með erlendu vinnuafli eins og ffam kemur í fyr- irliggjandi fumvarpi félagsmálaráð- herra. Ljóst er að á stéttarfélögum hvílir rík skylda til að tryggja að á félagssvæði þeirra sé unnið sam- kvæmt íslenskum lögum og kjara- samningum og hafa stéttarfélögin þar víðtækra hagsmuna að gæta. Það verða kaldar kveðjur sem Al- þingi Islendinga sendir íslenskum launþegum á sjálfan baráttudag launafólks 1. maí nk. ef frumvarp félagsmálaráðherra verður sam- þykkt óbreytt. Aðalfundur Verka- lýðsfélags Akraness skorar á ís- lenska launþega að fylgjast með því hvernig þingmenn greiða fyrir- liggjandi ffumvarpi um ffjálsa för launafólks ffá hinum nýju aðildar- ríkjum EES atkvæði sitt.“ MM Sameiningarkosning verkalýðsfélaga Samningagerð vegna fyrirhug- aðrar sameiningar Verkalýðsfélags Borgarness, Verkalýðsfélagsins Harðar í Hvalfirði og Verkalýðsfé- lagsins Vals í Dalabyggð er nú á lokastigi. Verið er að ljúka við laga- og reglugerðarsmíði. Kynn- ingarbæklingur verður sendur inn á öll heimili á félagssvæðimum þar sem sameiningarsamningur og lög og reglugerðir nýs verkalýðsfélags verður kynnt. Sveinn G. Hálfdán- arson formaður Verkalýðsfélags Borgarness sagðist í samtali við Skessuhorn vonast til að kynning- arritið yrði komið í dreifingu fyrir lok næstu viku. Aðalfúndir félag- anna verða haldnir í ffamhaldi af komu bæklingsins inn á heimili fé- lagsmanna og mun kosning um sameininguna fara ffam effir aðal- fundina. SO Fyrsta hesthúsið í nýju hverfi á Hellissandi Hestamenn á Hellissandi hafa lengi beðið eftir nýju deiliskipulagi fyrir hesthúsabyggð á staðnum. Það hefnr nú verið samþykkt og nýlega var tekin fyrsta skóflustungan að fyrsta nýja hús- inu í hverfinu og gert ráð fyrir því að þau verði fleiri. Meðfylgjandi mynd sendi Brynja Guðmunds- dóttir, hestamaður á Hellissandi, Skessuhorni. MM A myndinni má sjá Snœbjöm Kristófersson á gröfunni og tilvonandi húseiganda; Páll Sigurvinsson. i iKSsi fi rHl Kosið milli fimm nafiia sunnan Skarðsheiðar Nafnanefnd sveitarfélaganna sunnan Skarðsheiðar hefúr lagt til við kjörstjórn að kosið verði á milli fimm naftia á hið nýja sveitarfélag sem verður til við sameiningu fjög- urra sveitarfélaga sunnan Skarðs- heiðar í vor. Nöfnin era í stafrófs- röð: Hafnarbyggð, Heiðarbyggð, Heiðarsveit, Hvalfjarðarbyggð og Hvalfjarðarsveit. Auglýst var eftir hugmyndum frá almenningi og bárast nefndinni 43 tillögur. Til Örnefnanefúdar vora 12 nöfn send til umsagnar en hún gat einungis fellt sig við þau fimm sem áður er getið. Sveitarfélögin sem sameinast í vor era Hvalfjarðarstrandarhrepp- ur, Innri-Akraneshreppur, Leirár- og Melahreppur og Skilmanna- hreppur. Að sögn Jóns Allanssonar for- manns nafnanefndarinnar er það kjörnefúdar að ákveða hvort kosn- ingin verður bindandi. Auk Jóns sátu í nefndinni Anton Ottesen og Steinunn Jóhannesdóttir. HJ Enn er fé að heimtast S-HEIÐAR: Þótt svo að sá árs- tími sé kominn að líða fer að því að bændur fari að reka fé sitt út í haga er enn að koma fé af fjalli. Á sl. föstudag náðust tvær kindur í Akrafjalli, en það voru þeir Halldór Einarsson og Jón Ottesen sem nálguðust þær. Þrátt fyrir góða tíð í vetur vora ærnar farnar að láta á sjá og voru heimkomunni fegnar er þeim var rétt hey. I viðtali við Skessuhorn sagði Jón Ottesen, að enn væra eftir fleiri kindur í fjallinu og bíður hann fyrsta tækifæris til að nálgast þær. -so Dæmdur fyrir dópvörslu DÓMUR: Héraðsdómur Vest- urlands hefur dæmt mann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu kannabis- plantna og einnig var honum gert að greiða sakarkostnað. Þann 4. júní 2004 fann lögregl- an í vörslu mannsins 189 kannabisplöntur, 147 grömm af kannabisstönglum, 16 grömm af kannabislaufum og 66 grömm af maríhúana. Varning- inn geymdi maðurinn í hlöðu- viðbyggingu á sveitabæ þar sem ræktun plantnanna fór fram. Játaði maðurinn að eiga plönt- urnar og einnig að hafa ræktað þær. Maðurinn á nokkurn saka- feril að baki meðal annars fyrir fíkniefnabrot. Auk refsingar- innar, sem áður er getið, var allur búnaður til starfseminnar gerður upptækur meðal annars ýmsar gerðir af lömpum. -hj Tvöfaldur framúrakstur HAFNARFJALL: Ökumaður sem ætlaði að fara ffam úr hæg- fara ökutæki undir Hafnarfjalli sl. föstudag gætti ekki að um- ferð fyrir aftan sig og þegar hann hóf framúraksturinn þá var önnur bifreið að fara fram úr honum. Hann snarbeygði þá til hægri til að koma í veg fyrir árekstur en missti við það stjórn á bíl sínum sem að fór út af og valt. Þrennt var í bílnum og vora allir fluttir á heilsugæslu- stöðina í Borgarnesi. Meiðsli fólksins munu hafa verið minniháttar. -so Aukin þjónusta BORGARNES: Héraðsbóka- safú Borgarfjarðar í Borgarnesi verður opið laugardaginn 6. maí kl 13 - 17. Þetta er tilraun sem starfsfólk Safnahússins vill gera til að koma til móts við kröfúr lánþega um að geta nýtt sér bókasafmð um helgar á sumrin. Verður safúið opið á þessum tíma, laugardaga kl 13:00 - 17:00, út ágústmánuð. Getur fólk nýtt sér þessa opn- unartíma til að skoða sýningar á munum hinna fjögurra safna Safnahússins í leiðinni. - {'fréttatilkynning) WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borqamesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200 sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulff.þ. greiða kr. 950. Verð í lausasölu er 400 kr. SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhom.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Fréttaritari: Bryndís Gylfadóttir 866 5809 bryndis@skessuhorn.is Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.