Skessuhorn


Skessuhorn - 03.05.2006, Síða 13

Skessuhorn - 03.05.2006, Síða 13
gSESSUHOBKI MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 13 *m '1' í ■ Sigvaldi Arason tekurfyrstu skóflustungu af húsi Borgarverks viS Sólbakka í Borgamesi. Spennufíkn Eftir árið 1986 varð vegagerðin aftur fyrirferðarmest hjá Sigvalda og hans mönnum. „Við höfum lagt slitlag um allt land og höfum senni- lega náð að fara allan hringinn í malbikun og fræsingu. Síðan hefur verið mikið að gera í alls konar jarðvegsframkvæmdum, gatnagerð og grunnum og hinu og þessu. Við höfum farið víða, gerðum meðal annars flugvöllinn í Grímsey fyrir þremur árum, sem var mikið ævin- - ■ M tyri. Það liggur beint við að spyrja í framhaldi hvort langar útilegur hafi ekki verið þreytandi til lengdar? „Þetta gat verið þreytandi og stundum var þetta hálfgert sjó- mannslíf en það þýddi ekki að væla yfir því. Maður gat ekki látið verk- efnin koma til sín. Ef ég hefði verið að gera við útvarpstæki eða brauðristar þá hefði það horft öðruvísi við. Þá hefði ég getað set- ið á rassgatinu á sama stað en ég valdi mér hinsvegar þennan vett- vang og sé ekki eftdr því. Ef út í það er farið reikna ég reyndar með að verktakabisnessinn sé með áhættu- samari og erfiðari rekstri sem hægt er að finna. Það var það allavega hér áður fyrr þegar allt átti að ger- ast yfir sumarið. Þá var boðið út í dag og síðan átti verkið að vinnast í gær ef svo má segja. Fyrirvarinn á útboðunum var alltof stuttur þannig að maður vissi ekki fyrr en sumarið var byrjað hvað maður hefði að gera. Mér þótti hinsvegar gaman að þessu að því leyti að það fylgdi því viss spenningur að bjóða í verk og láta þau standa undir kostnaði. Þetta var ákveðin íþrótt og kannski hefur blundað í manni einhver spennufíkn, það kann að vera.“ Sigvaldi viðurkennir það líka að harm hafi haft mest gaman að vinn- unni þegar lætin voru mest. „Það myndaðist oft skemmtileg stemn- ing. Það voru líka margir ungir og skemmtilegir strákar í vinnuflokkn- um þannig að það var mikið líf í kringum þetta.“ Álfar í veginum Sigvaldi er ttegur til að rifja upp einhverjar uppákomur eða vesen en eftir nokkra umhugsun kemur upp í huga hans atvik sem reyndar hefur áður verið gert skil á prenti og í ljósvakamiðlum enda þótti það jafnvel yfirnáttúrulegt. „Við vorum að leggja fimm kílómetra vegar- spotta norðan við Búðardal sumar- ið 1995. I landi Ljárskóga var stærðarinnar grjót í vegstæðinu, þriðjungur svokallaðra Klofasteina sem sagan segir að í árdaga hafi ver- ið óskipt steinhella. Við ætluðum að færa steininn til en það gekk af- leitlega. Það var eiginlega með ólíkindum hvernig þetta gekk fyrir sig. Eftir að við réðumst á steininn gekk allt á afturfómnum. Bflarnir ultu, bræddu úr sér og vélarnar brotnuðu. Verkið gekk akkúrat ekki neitt af hvaða ástæðu sem það var. Eg hef aldrei lent í öðru eins, hvorki fyrr né síðar.“ Margir töldu að steinninn sem var í veginum væri álfasteirm og því hefðu íbúar hans lagt stein í götu vegagerðarmanna. Málið gekk meira að segja svo langt að Vega- gerðin fékk Regínu Hallgrímsdótt- ur, sem hafði orð á sér fyrir að sjá það sem aðrir sáu ekki, til að semja við álfana. Sigvaldi vill ekki gefa út á það hvort þarna hafi verið álfar á ferð en allavega hafi þetta verið alveg ótrúlegt. „Þetta var svo magnað að sumarið eftir, þegar sjálfri vega- gerðinni var að mestu lokið lentum við í enn einu óhappinu þarna. Við vorum að flytja tæki ofan af Holta- vörðuheiði og þangað vestur til að ljúka við slitlagið. Þegar við vorum komnir norðtu fyrir sæluhúsið fór valtari ofan af vagni og vagninn losnaði aftan úr bflnum og allt út í skurð. Allt var ónýtt og þá stóð mér ekki á sama. Hvort þarna voru álfarnir á ferðinni veit ég ekki en allavega held ég þeir hafi ekki haft afskipti af mínum verkum eftir það.“ Gott fólk Spurður um ástæðu þess hversu lengi hann entist í þessu fagi segir Sigvaldi að það hafi fyrst og fremst verið ólæknandi bfladella sem hélt honum við efnið. „Það að þetta skildi lafa allt saman öll þessi ár er hinsvegar fyrst og ffemst að þakka góðu starfsfólki. Maður stendur ekki einn í svona og það hefur margur góður maðurinn unnið í þessu með mér. Það er það sem ég get verið þakklátastur fyrir þegar ég horfi til baka,“ segir Sigvaldi að lokum. __ Myndimar með viðtalinu tilheyra ljósmyndasýningu Sigvalda sem sett verður upp í nýju ráðhúsi Borgamess sem tekið verður í notkun á laugardag. Þar er finna fjölmargar ljósmyndir firá fimm- tíu ára verktakaferli Sigvalda og tengjast ffamkvæmdasögu Borg- amess. Sýningin verður opnuð laugardaginn 6. maí klukkan 15.00 og verða myndimar á veggjum Ráðhússins fram á sumar. Jfarðvegsskipti á Borgarbraut t Borgamesi áður en gatan var malbikuð. TOSKA Vortónleikar 2006 Nemendur skóíans halda tónleika á sal skólans sem hér segir • Mánudaginn 8.maí kl.18.15 • Þriðjudaginn 9.maí kl.18.15 • Miðvikudaginn 10.maí kl.18.15 • Fimmtudaginn 11 .maí kl.18.15 • Föstudaginn 12.maí kl.20 tónleikar með tónlist eftir W.A.Mozart í flutningi nemenda úr söng og hljóðfæradeildum. (Ath. breytta tímasetningu) • Mánudaginn 15.maí kl.18.15 • Þriðjudaginn 16.maí kl.18.15 | Á þessum tónleikum flytja nemendur úr öllum deildum ] skólans fjölbreytta efnisskrá. Tónleikarnir eru öllum opnir og allir hjartanlega velkomnir. Nemendur og kennarar Tónlistarskólans á Akranesi Þrjár kennarastöður við Klébergsskóla Okkur vantar kennara í þrjár stöður við Klébergsskóla. Eina stöðu á miðstigi, 1/2 stöðu í heimilisfræðum, 1/2 stöðu í íþróttum og eina stöðu á unglingastigi og eru kennslugreinar m.a. íslenska, enska, náttúrufræði og sérkennsla. Við leitum að kröftugum og dugmiklum kennurum i í okkar ágæta starfsmannahóp. | Klébergsskóli er í Reykjavík undir Esjuhlíðum í stórkostlegu f umhverfi þar sem áhersla er lögð m.a. á útikennslu og þemanám. Þetta er einsetinn grunnskóli með 195 nemendur í 1. til 10. bekk. Við vinnum skv. starfsáætlun Reykjavíkur- borgar um einstaklingsmiðað nám og samvinnunám. Heimasíða skólans er klebergsskoli.is. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri Jónína Ólöf Emilsdóttir í símum 5666083 og 6648270 Netfang joninaoe@klebergsskoli.is. Umsóknarfrestur er til 10.maí. BORGARBYGGÐ Ráðhús Borgarbyggðar Laugardaginn 6. maí nk. kl. 15.00 verður nýtt Ráöhús Borgarbyggðar að Borgarbraut 14 vígt. Af því tilefni er íbúum boðið að koma og skoða húsið og þiggja veitingar frá kl. 15.00 til kl. 17.00. Bæjarstjórn Borgarbyggðar

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.