Skessuhorn - 03.05.2006, Page 21
S3Ea»Í)Uö£ií3
MIÐVIKUDAGUR 3. MAI2006
21
„ Vió eigum okkar vini t hestunum. “ Hér em þau hjón í hesthúsinu á Bergi.
komst úr meðferð? „Kannski hef ég
bara sleppt af honum taki og farið að
hugsa um sjálfa mig. Það er erfitt að
lýsa þessu. Hlutimir virka svo ein-
faldir þegar þeir ganga vel. Einhvern
tímann hringdi í mig maður sem var
í meðferð á sama tíma og ég. Hann
hafði farið oft og var fullur þegar
hann hringdi. Hann fór að segja mér
að ég hefði ekki þurít að fara í með-
ferð og hefði bara farið fyrir Flosa.
Eg benti manninum á að Flosi væri
ennþá edrú en hann ekki og því ætti
ég kannski að fara í meðferð fyrir
hann líka. Þá felldi hann talið. Það
fer enginn í meðferð fyrir aðra.
Maður fer fyrir sjálfan sig.“
Nú hlýtur lífmynstrið að hafa
breyst þegar áfengið var horfið úr
ykkar lífi? ,Já auðvitað myndaðist
ákveðið tómarúm en við vorum fljót
að fylla það. Þessu nýja lífi fylgdi svo
mikið firelsi til athafha. Eg hef aldrei
verið mikið að velta því fyrir mér
hvort maður eigi við sjúkdóm að
stríða eða ekki. Ekki heldur af hverju
ég drakk og hvemig. Eg velti skoð-
unum annarra ekki fyrir mér. Eg
taldi mig þurfa að fara þessa leið og
fór hana. Eg læt skoðanir annarra
ekki hafa áhrif á mitt líf. Það hef ég
lært í lífi okkar Flosa.“
Gróa á Leiti
og hennar þjónar
Líf þjóðþekkts fólks er oft í um-
ræðunni hjá almenningi. Þið hafið
eflaust í gegnum tíðina fengið jkkar
skammt af þeim umræðtun? „Eg hef
löngu lært að leiða alla slíka umræðu
hjá mér. Fyrst tók ég eftir henni og
sámaði hún oft. Maður fór að reyna
að vinna úr umræðunni en svo kom
að því að ég áttaði mig á því að ég
gat engu breytt. Það hafa líka allir
frelsi til þess að hugsa og tala. Eg hef
líka leyfi til þess að hugsa og tala um
nágungann. Maðtur verður að gera
það upp við sig hvort maður vill láta
svona sögur hafa áhrif á sig eða
ekki.“
Veltekið
Nú er nokkuð langt um Hðið síð-
an þið miðborgarbömin flytjið í
Reykholtsdalinn. I þá daga var þetta
ffekar sjaldgæft en nú er það komið
í tísku. Var þetta ekki eins og að
flytja á heimsenda í hugum borgar-
búa? „Það hjálpaði að við stóðum í
raun aldrei frammi fyrir raunvem-
legri ákvörðun um að flytja hingað.
Þetta þróaðist með tímanum og var
kannski auðveldara fyrir vikið. Þetta
var kúvending á okkar lífi. Við sjátun
hins vegar ekki eftír því. Hér líður
okkur óskaplega vel.“
I hugum fólks er oft lengra út á
land en til höfuðborgarinnar. Misst-
uð þið tengsl við vini ykkar eftir að
þið fluttuð hingað? „Nei það var
frekar öfugt. Nú kemur fólk hingað
tíl þess að umgangast okkur og hvíl-
ast. Það dvelur lengur. Við byggðum
gestahús í hesthúsinu og það er mik-
ið notað. Einhver vina okkar spurði
okkur einhverju sinni hvar við hefð-
um fengið þessar góðu dýnur, sem
hann sagði vera í rúminu þar. Hann
sagðist aldrei hafa sofið jafnvel og
hvílst jafn vel. Það gerði hann ekki
vegna dýnanna heldur vegna kyrrð-
arinnar sem hér ríkir.“
Hvernig var ykkur tekið hér?
„Okkur var tekið mjög vel og fyrir
það erum við ævinlega þakklát. Hér
eignuðumst við nýja vini tíl viðbótar
við þá sem við þegar áttum. Hér
hefur okkur liðið óskaplega vel.“
Byggðaþróun
í Borgarfirði
Nú hefur tíðarandinn breyst ffá
þeim tíma er þið fluttuð hingað. Nú
ganga jarðir hér kaupum og sölum
fyrir háar fjárhæðir. Hvemig líst þér
á þessa þróun. Þetta hlýtur að hafa
breytt samfélaginu hér? ,Já búskap-
ur leggst niður að stórum hluta á
þessu svæði með áframhaldandi þró-
un og mér finnst það ekki skemmti-
leg tilhugsun. Við verðum hins veg-
ar að fara varlega í að dæma þá er
selja. Aldraður maður sem er að
hætta búskap stendur ffammi fyrir
því að selja og við getum ekki dæmt
hann fyrir að taka hæsta tilboði. Hér
selst allt sem er falt en sem betur fer
er hér ennþá hefðbundinn búskapur
á flestum bæjum. Mannlífið hefur
ekki breyst mikið vegna sölu jarða.
Mesta einstaka breytingin á mannh'fi
hér varð þegar Bónus opnaði versl-
un í Borgamesi. Þá fóra flestir að
sækja verslun þangað og því breytt-
ust verslunarhættir hér í sveitinni.
Það er mesta einstaka breytingin
sem átt hefur sér stað á undanföm-
um árum.
Langlífi í ættmni
Nú búið þið hér í nágrenni við
Olaf son ykkar og hans fjölskyldu?
,Já það var algjör lúxus fyrir okkur að
þau skyldu flytja hingað í nágrennið.
Olafur lagði fyrir sig listina. Hann er
óbóleikari og kennir á blásturshljóð-
færi í tónlistarskólum í Borgarfirði.
Auk þess er hann mikill hestamaður
eins og við. Við emm því hér í nábýh
við okkar nánustu og það er afar
verðmætt. Maður finnur það sérstak-
lega þegar eitthvað óvænt hendir."
Nálægð þeirra gerir ykkur kannski
líka mögulegt að búa hér lengur en
ella þegar árin færast yfir? Ertu farin
að velta ellinni mikið fyrir þér? „Eg
get nú tæplega sagt það. Eg á svo
margt eftir. Eg hefði reyndar ekkert á
móti því að flytja á elliheimili en það
er langt í það. Mér finnst að hver og
einn verði að eldast eftir sínum að-
stæðum. Það er mikilvægt að maður
sé ekki að streitast á móti. Við verð-
um að finna það sjálf hvenær ellin fer
að sækja á og bregðast rétt við. Því
megum við ekki vera að tengja það
dagatalinu. Aðstæður hvers og eins er
svo misjafnar. Móðir mín er 97 ára
gömul og býr ennþá í eigin húsnæði.
Eg á afabróðir sem er elsti framsókn-
armaður landsins. Mamma hans, sem
var langamma mín, varð 107 ára og
dóttir hennar varð 105 ára. Þetta er
ættgengt og við breytum því ekki.
Við megum því ekki taka réttindi af
fólki með pennastriksaðferðum. Við
eigum ekki að kvíða ellinni heldur
taka einn dag í einu þegar árin færast
yfir.“
I tilefni af sjömgsafmæli Lilju og
gullbrúðkaupsafmæli þeirra Flosa
verður efnt til vinafagnaðar á laugar-
daginn kemur klukkan 15 í Félags-
heimilinu Logalandi í Reykholtsdal.
Þar vonast þau hjón til þess að sem
flestir samgleðjist þeim á þessum
tímamótum. Skessuhom óskar þeim
heiðurshjónum til hamingju með
áfangana. HJ
LATTU OKKUR
FÁÞAÐ
ÓÞVEGIÐ
\jí\
J \< JI
(J jr, c t rnj r.
Efnalaiigin Múlakot ehf.
Borgarbraut 55
310 Borgarnesi
Sími 4371930
Bílstjórar
BM Valld ehf. óskar eftir að rdða röska og
duglega bílstjóra með meirapróf sem
steypubílstjóra hjd fyrirtækinu d Akranesi.
Milcil verkefni framundan og góð laun í boði.
Allar ndnari upplýsingar
veitir Pétur V. Hanson í síma 860 5015.
BM Volló ehf.
BM-VAilÁ Bíldshöfða 7
Atvinna í Borgarnesi
Starfsfólk óskast í ræstingar.
Kvöld-, nætur- og helgarvinna.
Umsækjendur þurfa að
geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar veittar í síma:
892-8454
og á netfanginu
bontaekni@simnet.is
Akraneskaupstaður
Akranes - Yfirkjörstjórn
Móttaka
framboðslista
Yfirkjörstjórn Akraness veitir móttöku framboðslista
I vegna komandi bæjarstjórnarkosninga í fundarsal
I bæjarstjórnar, Stillholti 16-18, 3. hæð, Akranesi,
I laugard. 6. maí 2006 frá kl. 11:00-12:00.
Yfirkjörstjórn Akraness
L ....................JL
AUGLYSING UM M0H0KU FRAMBOÐSLISTA
VEGNA SVEITARSTJÓRNARKOSNINGA
í SAMEINUÐU SVEITARFÉLAGI BORGARBYGGÐAR,
BORGARFJARÐARSVEITAR, HVÍTÁRSÍÐUHREPPS 0G
KOLBEINSSTAÐAHREPPS 27. MAÍ 2006
Framboðsfrestur vegna sameiginlegra sveitarstjórnarkosninga í ofangreindum
sveitarféLögum 27. maí 2006 rennur út kl. 12:00 á hádegi, laugard. 6. maí 2006.
Framboðslistar skulu hafa borist undirrituðum formanni
yfirkjörstjómar fyrir ofangreindan tíma.
| Yfirkjörstjórn verður á bæjarskrifstofunni að Borgarbraut 14, Borgarnesi laugardaginn
i 06. maí 2006 frá kL. 11:00 - 12:00 og veitir þar framboðsListum viðtöku.
K
O
Z
\ F.h. yfirkjörstjórnar
Hilmar Már Arason - Kjartansgötu 1-310 Borgarnesi