Skessuhorn


Skessuhorn - 03.05.2006, Síða 26

Skessuhorn - 03.05.2006, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 .Kr-Mlih. ■. Fjölskyldmi íjýrirrúmi Málefni fjölsk\7ldunnar eru mörgum hugleikin nú þegar kosn- ingar nálgast. Við í Samfylking- unni höfum tekið skýra afstöðu til þess hvernig við viljum koma til móts við þarfir fjölskyldufólks. I okkar huga er algjört grundvallar- atriði að skapa foreldrum gott svigrúm til þess að vera til staðar í lífi barna sinna og búa fjölskyldum öruggt og ekki síður afslappað um- hverfi. Flestir eru sammála um mikilvægi þess að foreldrar og börn hafi góðan tíma til samveru enda er það svo að það veganesti og sá lærdómur sem manneskjan aflar sér á fyrstu æviárunum innan fjölskyldunnar er undirstaða per- sónuþroska og farsældar í lífinu. Gengi hvers og eins í tilverunni veltur að miklu leyti á því hvernig til tekst með þá félagsmótun sem á sér stað innan fjölskyldunnar þar sem siðferðiskennd okkar og hæfi- leikinn til þess að lifa í samfélagi við aðra mótast. Við lærum ekki á hugtök eins og réttlæti, samkennd eða ábyrgð í tómarúmi heldur í samskiptum við aðrar manneskjur og þar gegnir fjölskyldan fykilhlut- verki. Til þess læra að þekkja sjálf okkur, möguleika okkar, ábyrgð, takmarkanir og kröfurnar sem til okkar eru gerðar í lífinu verðum við að geta speglað okkur í okkar allra nánast umhverfi og treyst því fyrir okkur. Ábyrgð yfirvalda Það er að hluta til á ábyrgð bæj- aryfirvalda að búa fjölskyldum það umhverfi að þær geti rækt hlutverk sitt með sóma. Við í Samfylking- unni erum reiðubúin að axla þá ábyrgð. Til þess að treysta undir- stöður fjölskyldunnar viljum við fella niður leikskólagjöld í jöfnum áföngum á næsta kjörtímabili og auka þjónustu við börn og foreldra eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur með því að koma á fót frí- stundaskóla fyrir yngstu bekki grunnskólans. Auk þess viljum við bjóða upp á foreldraráðgjöf og bæta aðgengi að sérfræðiráðgjöf um málefni tengd fjölskyldunni. Gjaldfrjáls leikskóli og frístundaskóli Niðurfelling leikskólagjalda er viðurkenning og staðfesting á því að leikskólinn er fyrsta skólastigið þar sem fram fer mikilvægt nám og undirbúningur fyrir frekari skóla- göngu. Það er að okkar mati eðli- leg krafa að leikskólar njóti jafn- ræðis á við önnur skólastig. Þar fyrir utan hefur þetta fjárhagslegan ávinning í för með sér fyrir for- eldra ungra barna, sem að jafnaði eru ungt fólk að koma undir sig fótunum og er því tvímælalaust til þess fallið að treysta undirstöður fjölskyldunnar. Eitthvert brýnasta hagsmunamál fjölskyldunnar tel ég vera að sam- þætta skóla, íþrótta og tómstundir yngstu barnanna og búa þannig um hnútana að öll fjölskyldan ljúki vinnudegi á sama tíma. Ef tóm- stundir og íþróttaæfingar barn- anna fara að miklu leyti fram eftir að hefðbundnum vinnudegi lýkur gefst lítill tími til samveru og sam- ræðna um það sem máli skiptir í lífinu auk þess sem það skapar óþarft álag á alla, börn og foreldra. Við verðum að sjá til þess að for- eldrar hafi nægan tíma til þess að sinna hinu eiginlega uppeldishlut- verki og geti verið sá spegill sem börnin horfa í og læra af en við þurfum líka að gæta að því að börnin hafi tíma til þess að horfa í þennan spegil. Og þegar börnin nenna því ekki lengur ættu þau að geta leikið sér frí og frjáls án þess að hafa stöðugar áhyggjur af því að koma of seint á íþróttaæfingu eða í tómstundastarf, vitandi að foreldr- ar þeirra eru til staðar ef á þarf að halda. Anría Lára Steindal, skipar 3. sæti á lista Samfylkingarinnar og óháðra. Nýtt ljóð við „Iádu fluguna“ Á Sigfusarhátíð sem haldin var á Reykhólum fyrir skömmu flutti sönghópur 13 kvenna í Reykhóla- hreppi nýtt ljóð við lag Sigfúsar Halldórssonar um lidu fluguna. Sönghópurinn heitir eftir laginu „Litlu flugurnar“. Nýja ljóðið er efdr Eystein G. Gíslason úr Skál- eyjum. Ljóðið er svohljóðandi: HJ Frjálsir tifa vorsins léttu lækir litlarfjólur brosa sólu mót. Ungir piltar spentir mjög og sprækir spá í bverja íturvaxna snót. Allir kaldir vetrarvindar þagna vorsins gleðifer um land og sæ. I hverjum glugga „litlar flugur“ fagna ogfljúga út í lífsins milda blæ. Þar skal verða kátt og sungið saman í sumardýrð við kveðum nýjan brag. „Litlarflugur“ auka glens og gaman við gítarslátt og söngva hér í dag. Þar ganga aftur vorar fomu flugur ogfrjálsar kitla ung og gömul nef. Þá lifnar daufur okkar æskuhugur við endurvakin glaðra tóna stef. Gaman er á vorsins grænu völlum þar verma bráðutn fuglar eggin smá. Sól og vindar bræðafónn áfföllum ogfólkið gleytnir vetrardrunga þá. Við skriðufótinn heilsar bláu blómi bam að leik og þá er skapið kátt. Því vorið er að æskumannsins dómi svo yndislegt og gott áflestan hátt. l/tintVw’tfiit} Eg hætti við að hengja mig - heimurinn er svo fagur Margir finna í sér einhvern óróa þegar fer að vora og ekki síst gamlir sveita- menn og bændur sem hafa sest að á mölinni. Stuttu eftir að Höskuldur Ein- arsson frá Vatns- horni flutti til Reykjavíkur varð honum að orði: Viti gamlir veðrin á sig veturinn hér tekst að þreyja. En hvernig vorið virkar á mig vil ég ekki neinum segja. Fyrsta vorið sitt í Reykjavík var hann að vinna í yndislegu veðri þar sem vel sást til Skarðsheiðarinnar og varð víst tíðlitið í átt- Einn ég skima allt í kring, er nokkur að kalla? Það er að grcenka lauf og lyng í lautunum upp til fjalla. Þura í Garði vann lengi við lystigarðinn á Akureyri. Eitt sinn að vorlagi eða snemm- sumars kom hún í heimsókn til aldraðs ná- granna síns, settist hjá honum og fór að segja honum frá högum sínurn og ástandi. Kvaðst hún hafa verið svo lasin og lág af sér að und- anförnu bæði andlega og líkamlega að sér hefði fullkomlega dottið í hug að hengja sig. Já, karlinn taldi að það gæti verið athugandi mál og þegar hann fylgdi henni til dyra í glaðasólskininu kvaddi hann hana með þess- ari vísu: Nú er fögur sólar sýn, seinna ríkir vetur, hengdu þig áður heillin mín, ég held þér líði betur. Morguninn eftir var gamli maðurinn á gangi snemma meðfram lystigarðinum. Þar innan við girðinguna var Þura og rakaði um blómabeð. Hann bauð henni góðan dag og gat þess að hún væri snemma komin til vinnu. Þá kvað Þura: Andánum lyfti á œðra stig, upp er runninn dagur. Ég hœtti við að hengja mig, heimurínn er svo fagur. Samt er það nú svo að ekki er heimurinn alltaf jafnfallegur enda löngu sannað að ef ekkert væri verra gæti heldur ekkert verið betra. Einhverntíma í misjafnri tíð orti Hall- dór Snæhólm: Ekki verður á því stans, oft er hart á baríð. Það er eins og œvin manns árans tíðarfarið. Annar Húnvetningur, Bjarni Jónsson frá Gröf í Víðidal sem síðar var lengi úrsmiður á Akureyri hefur greinilega verið orðinn eitt- hvað þreyttur á tíðarfarinu þegar hann kvað að vorlagi: Ánum má ég inni gefa, ekki finnst mér vorið létt. Skammtar eins og skít úr hnefa skaparinn hvern sólskinsblett. Stundum verður mér á að efa að hann sé að gera rétt. Kannske hefur það verið sama vorið sem hann orti: Það má oft við þessu búast að þungbœr komi snjóavor, ef Cuð hefur ekki í öðru að snúast en að drepa fé úr hor. Kannske var það ekkert undarlegt þó menn gæfust upp fyrir erfiðleikunum eins og vorin gátu verið og geta svosem enn, menn eru bara betur undir það búnir nú orðið. Allavega orti Bjarni síðar og má segja að hann hafi verið þekktari fyrir þann tón sem þar bregður fyrir: Aldrei skal ég eftir plóg oftar ganga hokinn. Maður fær víst meira en nóg af moldinni í lokin. En íslensk náttúra getur líka verið dásam- leg, hvaða skilningur sem lagður er í þau orð. Elís Kjaran var eitt sinn staddur ásamt fleira fólki á Dynjanda í Arnarfirði á yndis- legu snemmstunarskvöldi eins og þau geta fegurst orðið á Vestfjörðum. Kona í hópnum lét hrifningu sína í ljós með þessum orðum: „En hvað ég get skilið að það skuli hafa fæðst 18 börn á svona stöðum hér áður fyrr, þar sem töffarnir eru svona takmarkalausir.“ Elli svaraði að bragði: Ástfanginn ég upp til hlíða augum renni, kvöldsól skín. Nú er átján barna blíða - best að prófa Hafdís mín. Jakob Jónsson var eitt sinn í Borgarnesferð að vorlagi í yndislegu veðri. Þetta var á tím- um stuttu tískunnar og útsýnið í öllum skiln- ingi eins og best varð á kosið. Fleiri voru í Borgarnesferð um þetta leyti og varð þetta allt saman tilefni eftirfarandi: Clettinn strýkur vorsins vindur glaður vanga og hár og agnarstuttu pilsin. jafnvel gamall, latur Mýramaður mjakast um og virðist finna til sín. Ekki man ég betur en það hafi verið Bjarrú frá Gröf sem lýsti bikini sundfötum á þessa leið: Upp um lœrin allir sjá og allt í kringum naflann. En mjög er hulin meyjum hjá margföldunartaflan. Löngu áður en mönnum datt í hug að nokkuð væri til sem héti fuglaflensa spókuðu afkomendur landnámshænsnanna sig í húsa- görðum hinna íslensku sjávarplássa og nutu þar lífsins lystisemda að vild. Stefán Stefáns- son ffá Móskógum gekk á effi árum um göt- ur Sauðárkróks og sá þar hænsnahóp í garði: Fjörið mitt er faríð brott fátt er nú til bjargar. Helvíti á haninn gott að hafa þœr svona margar. Lengi hefur það verið siður góðra manna að smáagnúast út í nágrannasveitirnar þó kannske sé ekki alltaf mikil alvara á bakvið. Lárus Þórðarson mun vera höfundur þessar- ar sveitarlýsingar: Horfi ég í Hrútafjörð, hvergi sér í græna jörð. Víða skín í svartan svörð sviðinn vítishita. Cráa mela, móabörð, mun hér ævin flestum hörð, enda sveitin illa gjörð eins og flestir vita. Einhverra hluta vegna þótti höfundi þó tryggara að semja bragarbót: Horfi ég í Hrútafjörð, höldar ganga þar um jörð. Sólin gyllir grænan svörð, gefur vorsins hita. Víðar grundir, gróin börð, geyma bóndans sauðahjörð, sveitin er með sóma gjörð sem að allir vita. Látum það verða lokaorðin að sinni. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur K. Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S435 1367 og 849 2715 dd@simnet.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.