Skessuhorn


Skessuhorn - 03.05.2006, Page 27

Skessuhorn - 03.05.2006, Page 27
„•ussauhÖBM MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 2006 27 Sveitarfélögin norðan Hvalfjarðar móti afstöðu sína til Sundabrautar Þróun höfuðborgarsvæðisins þarf að skoða í mun stærra sam- hengi en gert hefur verið. Nú þeg- ar ráðast skal í það stórverkefni sem er lagning Sundabrautar er ekki úr vegi að sveitarfélögin sem eru í nyrðri hluta svæðisins efli með sér samstarf og komi að þeirri hugmyndavinnu til að há- marka notagildi þessarar fram- kvæmdar. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykja- vík hefur um langt skeið lagt áherslu á að hafist verði handa við lagningu Sundabrautar sem fyrst og að hún verði lögð í einum áfanga alla leið upp á Kjalarnes, með tveimur akreinum í hvora átt. Flokkurinn hefur einnig sagt að það samráðsferli við íbúa sem nú er í gangi hefði átt að hefjast mun fyrr. Ovissa varðandi skipulags- ferlið og undirbúning hjá Reykja- víkurborg hafi valdið því að málið hafi tafist úr hófi eins og fram kom í Morgunblaðinu þann 20. apríl sl. Samstarf sveitarfélaganna I mínum huga er afar mikilvægt að sveitarfélögin hér norðan Hvalfjarðar myndi með sér sam- starf. Þau þurfa að rýna til gagns og komast þannig til botns í því hvaða leið hentar þeim best og koma þeirri skoðun á framfæri með rökstuðningi. Sveitarfélögin norðan Hvalfjarðar eiga að hafa afgerandi skoðun á þessari miklu framkvæmd. Grundvallarforsenda þess að fólk, fyrirtæki og fjármögnunarað- ilar séu ánægð með aðstæður sínar og umhverfi er að allir finni til ör- yggis. Bilaeign og umferð hefur aukist gríðarlega á síðustu árum. Því er mikilvægt að gera ráðstaf- anir til þess að auka umferðarör- yggi. Hafa verður að leiðarljósi að það er ekki einungis nóg að huga að fjölda ökutækja, heldur einnig fjölbreytni þeirra og þess farms er þau flytja við íslenskar aðstæður. Breikkun vega er til að auka afköst og öryggi vegfarenda og því væri rökrétt að tryggingafélög kæmu að hönnun vegstæða og sam- göngumannvirkj a. Kraftur leystur úr læðingi Tölulegar staðreyndir hafa sýnt hversu góð og varanleg fram- kvæmd tvöföldun Reykjanesbraut- ar hefur reynst. Sömuleiðis er hægt að fullyrða um ágæti fram- kvæmdar við Vesturlandsveg að og um Mosfellsbæ. Vegalagning aust- ur í Arborgarbyggð, 2+1 akrein, mun hins vegar ekki standa undir væntingum vegfarenda um um- ferðaröryggi. Sú gagnrýni sem hefur komið fram á hluta af þeirri framkvæmd staðfestir það. Með tilkomu Suðurstrandarvegar mun hann styrkja þau sveitarfélög sem honum tengjast. Nú ættum við að vera farin að sjá hvaða kraftur hef- ur verið leystur úr læðingi við gerð Hvalfjarðarganga. Á þeim hraða sem höfuðborgar- svæðið er að þróast á er nauðsyn- legt að horfa fram á veginn og vanda allar ákvarðanatökur. Með því að hanna 2+2 akreinar að sporði Borgarfjarðarbrúar er tekin ábyrg hagstjórnarákvörðun til framtíðar. Það er skylda hvers sveitastjórnarmanns að stuðla að þeim ákvörðunum sem auka far- sæld komandi kynslóða. Þess vegna tekur Sjálfstæðisflokkurinn á Akranesi undir þau orð er sögð voru að „Sterk höfuðborg er sterk landsbyggð.“ Við eigum samleið - í báðar áttir! Haraldur Helgason, Höf. skipar 7. sati fi-amboðslista Sjálfstæðisflokksins til bœjarstjómar- kosninganna 21. maí nk. Meirihlutinn vaknar afþymirósarsvefni með andfielum I ævintýrinu um Þymirós var fögnuður um gervallt kóngsríkið þegar hún loksins vaknaði af svefhi sínum. Full ástæða er líka til að gleðjast yfir þeim fregnum að Þyrnirósarsvefn meirihluta bæjarstjórnar í launamálum starfsmanna Akraneskaupstaður sé loks á enda. En svo er virðist sem meirihlutinn hafi vaknað með andfælum. „Æ, æ, það eru að koma kosningar! Þeir starfsmenn bæjarins sem lægst hafa haff launin eru vel að þeim leiðréttingum komnir, sem fregnir herma að meirihlutinn ætli nú að koma á með þöglu að- ferðinni. Það sérkennilega er aff- ur á móti að málið hefur hvorki verið kynnt í bæjarstjórn né bæj- arráði. Ekki frekar en sú ákvörðun að leggja út 240 milljónir fyrir nýtt bókasafn fyrir nokkrum dög- um, án heimildar í fjárhagsáætl- un! Heldur meirihlutinn að hann þurfi ekki að gera grein fyrir svo veigamiklum atriðum. Heldur hann kannski að hann greiði kostnaðinn úr eigin vasa en ekki af skattfé bæjarbúa? Rétt er að benda á að þessi sami meirihluti felldi í nóvember 2002 tillögu okkar Sjálfstæðismanna um að fela þáverandi bæjarstjóra, Gísla Gíslasyni, að leiðrétta kjör lægst launuðustu starfsmanna bæjarins sem eru starfsmenn á Dvalarheimilinu Höfða. Þórður Þ. Þórðarson, bæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, hefur ítrekað vak- ið máls á því að það sé bænum til skammar að greiða undir 150 þús- undum króna í mánaðarlaun. Síð- ast vék hann að þessu á fundi bæj- arstjórnar 24. janúar sl. Orð hans hafa til þessa mætt litlum skiln- ingi meirihlutans. En aftur að nýjum kjarasamn- ingum við starfsmenn bæjarins. Afi hverju þetta pukur? Er það af því að verið er að sniðganga launa- nefnd sveitarfélaganna? Eg ætla rétt að vona að svo sé ekki og að hún sé hér með í ráðum. Annars er hætta á því að öllum gerðum samningum verði vísað heim í hérað og þeir þar með í uppnámi. Vonandi er heldur ekki verið að fórna trúverðugleika bæjaryfir- valda á Akranesi hjá Samtökum sveitarfélaga á Islandi fyrir laumuspil meirihlutans í síðbún- um kosningaundirbúningi? Bara eitt í lokin. Af hverju þetta pukur og laumuspil með nýtt bókasafn og þessa launahækkun? Eru bæði þessi mál ekki það stór í sniðum að sjálfsagt og eðlilegt hefði verið að kynna þau rækilega fyrir öllum kjörnum fulltrúum í Bæjarstjórn Akraness? I það minnsta að uppfylla ákvæði sveit- arstjórnarlaga? Hvað er alltaf verið að breiða yfir og fela? Gunnar Sigurðsson Höf. skipar 1. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi fyrir bæjarstjómar- kosningamar 21. maí nk. Akraneskaupstaðu r Reykjavíkur Síminrí Akraneskaupstaður í samvinnu við Orkuveitu Reykjavíkur og Landsíma íslands óskar eftir tilboðum í verkið Skógahverfi - 1. áfangi Jarðvinna og lagnir Helstu magntölur eru: Gröftur . 65.000 m3 Fyllingar . 74.000 m3 Fráveitulagnir , 5.000 m Vatnslagnir , 3.300 m Hitaveitulagnir , 2.100 m Háspennustrengir 930 m Lágspennustrengir . 6.400 m Ljósastaurar 72 stk Símastrengir , 22.000 m Verklok eru 15. des. 2006. Útboðsgögn eru til sölu hjá tækni- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar, Dalbraut 8 á Akranesi og hjá Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1, Reykjavík fyrir kr. 5.000,-. Tilboð verða opnuð að Dalbraut 8 á Akranesi, föstudaginn 19. maí 2006, kl. 11:00. Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs INGI TRYGG VASON hdl. lögg. fasteigna- og skipasali FASTEIGN í B0RGARNESI BORGARBRAUT 65a, Borgarnesi íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi fyrir aldraða og/eða öryrkja. íbúðin skiptist í samliggjandi stofú og eldhús, eitt herbergi, hol, baðherbergi og geymslu. Skápur í holi og viðarinnrétting í eldhúsi. Sameiginl. geymsla á 1. hæð. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Ingi Tryggvason hdl - löggiltur fasteigna- og skipasali Borgarbraut 61,310 Borgarnes, s. 437 1700, 860 2181 - fax 437 1017, netfang: lit@simnet.is - veffang: lit.is V______________________________________________________J Til afhendingar strax. Verð: 17.000.000 \ DONA NOBIS - Gef oee fríð Tónleikar í Reykholtskirkju laugardaginn 13. maí 2006 kl. 17.00 Freyjukórinn og Gospelsystur Reykjavíkur j "j Stjórnendur: Zsuzsanna Budai og Margrét J. Pálmadóttir

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.