Skessuhorn - 10.05.2006, Qupperneq 5
SSESálí'HÖEH
MIÐVIKUDAGUR 10. MAI2006
5
Foreldrafélag Brekku-
bæjarskóla sendir
framboðum áskorun
Foreldraráð og Foreldrafélag
Brekkubæjarskóla á Akranesi hefur
sent framboðum við bæjarstjórn-
arkosningarnar í vor áskorun
vegna ástands lóðar skólans og
gangbrauta. I áskoruninni segir að
verulega viðbótarijárveitingu þurfi
í ár vegna framkvæmda við lóð
skólans og 15 milljóna króna fjár-
veiting sem bæjarstjórn hefur
ákveðið til framkvæmda sé alltof
lág. „Þeir sem vinna að skipulagn-
ingu lóðarinnar lýsa henni sem illa
hirtri iðnaðarlóð," segir orðrétt í
áskoruninni.
Foreldrarnir telja mikið mis-
ræmi í fjárveitingum á milli
grunnskóla sveitarfélagsins og
segja að 50 milljónir króna séu
ætlaðar framkvæmdir við lóð
Grundaskóla næstu þrjú árin „sem
teljast verður fullkláruð lóð miðað
við lóð Brekkubæjarskóla," segir í
áskoruninni. Þá segir að jöfnuður
sé nauðsynlegur milli skólanna og
framkvæmdir við Brekkubæjar-
skóla hafi dregist alltof lengi. „Þar
að auki er viðhaldi skólahúsnæðis-
ins ábótavant, þannig að það ligg-
ur undir skemmdum, einkum að
utan“.
Þá er einnig vakin athygli á því
að gangbrautarljós og merkingar
gangbrauta vanti við Merkigerði
og víðar og er í því sambandi vísað
í skýrslu Landsbjargar, sem gerði
úttekt á þeim málum á sínum tíma.
Einnig vilja foreldrarnir lækka há-
markshraða á götum við skólann í
30 km/klst. HJ
Fjárheimtur í
Kolbeinsstaðahreppi
I Kolbeinsstaðahreppi er enn fé
að heimtast af fjalli, en þann 2.
maí sl. náðu Skúli Skúlason og
Ragnar Hallsson frá Hallkellstaða-
hlíð tveimur tvílembum og tveim-
ur lömbum í Svínafelli við Heydal.
Onnur tvflemban og lömbin voru
frá þeim Sesselju Oddsdóttir og
Lárusi Gestssyni í Haukatungu 1 í
Kolbeinsstaðhreppi en þegar
blaðamaður hitti þau var sauð-
burður að byrja hjá þeim. Þau
sögðu að féð sem hefði verið að
heimtast væri í ágætu standi og
ullin byrjuð að losna, en ærin var
með tvær gimbrar frá £ fyrra og var
borin tveimur lömbun þegar þær
náðust. Einnig heimtist 6. maí
einn lambhrútur í hratminu við
Landbrot í Kolbeinsstaðahreppi
en bændur sem blaðamaður ræddi
við segjast ekki muna eftir því að
svona margt fé hafi verið að
heimtast þegar komið er þetta
langt fram á vorið.
ÞSK
Framsóknarflokkurinn í sameinuðu sveitarféiagi
Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvitársíðuhrepps
Kosningaskrifstofan verður opin:
Mánudaga til föstudaga, kl. 16:00 - 22:00.
Laugardaga og sunnudaga, kl. 13:00- 19:00.
Síminn á skrifstofunni er 437-1633
Kosningastjóri er
Valdimar Sigurjónsson
Sími 820-5205,
netfang: valdimars@bifrost.is
Allir velkomnir
Byggjum betra samfélag
Auglýsing
um deiliskipulag við Búðarbraut í Búðardal
Sveitastjóm Dalabyggðar auglýsir hér með tillögur að deiliskipulagi við Búðarbraut
1 í Búðardal Dalabyggð, skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1993.
Samkvæmt deiliskipulagstillögunni þá tekur hún til lóðar Leifssaíhs sem stendur
við Búðarbraut 1, hafnarsvæðis og athafhasvæðis við smábátahöfnina í Búðardal.
Stækkun verður á lóð safnahússins og gengið frá með fláum upp að götunni.
Til þess að stækka lóðina þarf að flytja Búðarbraut til um hálfa breidd sína.
Lóð safnahússins er hugsuð sem útisafnssvæði þar sem koma má
fyrir úti-sýningu auk dvalarsvæðis fýrir gesti.
Gert er ráð fyrir 17 bílastæðum þar af 2 fýrir fatlaða og 3 rútustæðum
norðan við húsið.
Athafhasvæðið við höfiiina verður frágengið þannig að auðvelt
sé að athafna sig við sjósetningu og aðkomu við flotbryggju.
Skipulagsuppdráttur ásamt greinagerð er til sýnis á skrifstofu byggingarfulltrúa
Miðbraut 11 Búðardal frá 10.05.2006 til og með 07.06.2006 Þeir sem telja sig eiga
I hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.
I Athugasemdum skal skila til byggingarfulltrúa fýrir 21.06.2006 og skulu
I þær vera skriflegar. Berist ekki athugasemdir innan tilskilins ffests
5 teljast tillögumar samþykktar.
Skipulags og byggingarfulltrúi
Bogi Kristinsson Magnusen