Skessuhorn - 10.05.2006, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2006
Hestvagnar í Stykkishólm
Vafalaust á það eftir ai sjást í Stykkishólmi á næstu árum ai brúihjón velji þennan farkost á stóra daginn.
mikið notaður af brúðhjónum.
Hann er allur minni og fínlegri í
sniðum með rauðbólstruðum sæt-
um og tekur 4 farþega.
Aðspurður um hvort hann hefði
ekki leitað eftír samstarfi við önn-
ur fyrirtæki í ferðaþjónustu, svar-
aði Sæþór: „Eg kynnti þessa hug-
mynd fyrir tveimur aðilum en það
gekk ekki upp enda þarf maður að
vera hæfdega geggjaður til að fara
út í svona.“ En eitthvað hlýtur
þetta nú að kosta? ,Já það er nú
mínusinn í þessu því kostnaðurinn
hleypur á milljónum.“
I vagni frá vöggu til
grafar
Sæþór vert á Narfeyrarstofu er
hvergi banginn og kvíðir ekki
verkefnaskorti, sumarið fari vel af
stað og ferðamannatíminn sé
stöðugt að lengjast. Hann segir
fjölmarga möguleika í rekstri
vagnanna og sér fyrir sér að báðir
vagnarnir verði brúkaðir innan-
bæjar til styttri ferða, fargjaldi
verði styllt í hóf og ferðirnar
sniðnar að óskum farþeganna. Ein-
hverjar ferðir verði líka farnar með
leiðsögn.
Sæþór bendir á að um árabil hafi
ekki verið til líkbíll í Hólminum og
sér hann fyrir sér að stærri vagninn
geti sinnt því hlutverki sómasam-
lega ef svo ber undir. Minni vagn-
inn verði áfram leigður út til brúð-
hjóna sem vonandi sækist eftir því
í auknum mæli að staðfesta samvist
sína í Stykkishólmi.
Stærri hestvagninn renndi í hlað
síðastliðið mánudagskvöld og þess
er því skammt að bíða að hest-
vagnar hjónanna á Narfeyrarstofu
verði teknir í gagnið. Stefnt er að
því að stóri vagninn getí ekið nýrri
bæjarstjórn í Ráðhúsið eftír kosn-
ingarnar 27. maí. I öllu falli verða
vagnarnir tilbúinir til notkunar
fyrir sjómannadaginn 10. júní.
JTA
Undanfarin ár hefur atvinnulíf í
Stykkishólmi byggst æ meira á
túrisma og er hverskyns ferðaþjón-
usta orðinn snar þáttur í bæjarlíf-
inu. Nýjasta skrautfjöðurin í hatt
bæjarbúa er framtak þeirra hjóna
Sæþórs Þorbergssonar og Stein-
unnar Helgadóttur sem reka veit-
ingahúsið Narfeyrarstofu því nú á
dögunum festu þau kaup á tveimur
hestvögnum með öllum tilheyr-
andi búnaði.
Fréttaritari Skessuhorns hitti
Sæþór að máli og spurði hann hver
aðdragandinn að þessari viðskipta-
hugmynd hafi verið? „Eg sá þetta
auglýst um daginn og þetta small
einhvernveginn í hausinn á mér.
Eg er aldrei lengi að hugsa svo ég
skellti mér bara á þetta.“
Vagnhjólin snúast hratt í Hólm-
inum og Sæþór var ekkert að
tvínóna við þetta heldur keyptí
hestvagn um leið. Ekki einn held-
ur tvo. „Fyrri eigandi átti þrjá
vagna,“ sagði Sæþór og bætti við
að einn vagnanna mundi þjóna
borgarbúum á Arbæjarsafninu,
hinir tveir kæmu í Hólminn.
Ekki þarf að hafa áhyggjur af því
hver á að draga vagninn því með í
kaupunum fylgir þrautreyndur
dráttarklár á 16. vetri auk þess sem
Sæþór mun leita á náðir gamallar
rauðskjóttrar hryssu, í eigu fjöl-
skyldunnar, sem væntanlega mun
ganga í endurnýjun lífdaga sem
þarfastí þjónninn.
Tveir hestar verða spenntir fyrir
annan vagninn sem tekur 10 far-
þega. Hinn vagninn er dreginn af
einum hesti og hefur m.a. verið
Dalabyggð tilneíiiir þrjá
heiðursborgara
Sveitarstjórn Dalabyggðar sam-
þykkti samhljóða á dögunum að
gera þrjá íbúa sveitarfélagsins að
heiðursborgurum. Eins og áður
hefur komið fram í frétt Skessu-
horns var Margrét Oddsdóttir
gerð að heiðursborgara á 100 ára
afmæli sínu á dögunum. Tilnefn-
ingin er til komin vegna langs og
farsæls ævistarfs í Dalasýslu þar
sem hún hefur verið öðrum fyrir-
mynd í jákvæðni og nægjusemi.
Var henni afhent skjal vegna til-
nefningarinnar í afmælisfagnaði
hennar. Þá samþykkti sveitarstjórn
að gera Friðjón Þórðarson og
Hjört Einarsson að heiðursborgur-
um vegna óeigingjarns starfs þeirra
og eljusemi í þágu samfélagsins.
Þeim verða afhent skjöl útnefning-
unni til staðfestíngar síðar.
HJ
Könnun SHA um
fylgi flokkanna
Miklar breytingar verða í bæjar-
stjóm Akraness við kosningamar í
vor ef marka má skoðanakönnun
sem ffam fór á fylgi flokkanna með-
al starfsfólks Sjúkrahússins og
heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi
á dögunum. Könnun sem þessi hef-
ur farið ffam við fjölmargar undan-
gengnar kosningar, bæði til sveitar-
stjórnar og Alþingis. A heimasíðu
stofhtmarinnar segir að spakir menn
fullyrði að niðurstaða könnunarinn-
ar á SHA fari iðulega nærri niður-
stöðu sjálfra kosningannna. Hjá
stofhuninni vinna í dag um 240
manns. Sett var upp sérstök kjör-
deild sem opin var í eina viku og að-
eins fengu þeir að taka þátt sem
kosningarétt eiga við bæjarstjórnar-
kosningamar í vor.
I könnuninni tóku þátt 134
starfsmenn og varð niðurstaðan
effirfarandi:
B-listí Framsóknarflokks fékk
14,9% og einn mann kjörinn. Tap-
ar því einum.
D-listí Sjálfstæðisflokks fékk
36,6% og fjóra menn kjörna eins
og hann hefur nú.
F-hsti Frjálslynda flokksins fékk
8,2% og einn mann kjörinn. Hef-
ur engan nú.
S-listi Samfylkingar fékk 14,1% og
einn mann kjörinn. Tapar tveimur.
V-listi Vinstri hreyfingar fékk
20,9% og tvo menn kjörna. Hefur
engan nú.
Auðir seðlar og ógildir vom 5,2%.
Samkvæmt þessari könnun er
núverandi meirihluti Framsókar-
flokks og Samfylkingar kolfallinn,
fengi aðeins 2 fulltrúa en hefur 5 í
dag.
HJ
Sæþór og Steinunn nýbúin ai fá stætri vagninn heim á hlai sl. mánudagskvöld.
Auknar fjárveitingar til
öldrunarþjónustu á Akranesi
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra, til-
kynnti á fundi í Bíóhöllinni á
Akranesi að hún hefði fallist á
beiðni Dvalarheimilisins Höfða á
Akranesi um breyta 5 dvalarrým-
um í hjúkrunarrými. Jafnframt til-
kynnti hún að tekin hefði verið
ákvörðun um að efla heimahjúkr-
un heilsugæslunnar á Akranesi.
Með breytingu dvalarrýma í
hjúkmnarrými segir Siv í samtali
við Skessuhorn að verið sé að
koma til móts við sívaxandi þörf og
óskir stjórnar Höfða. Kostnaður
við hjúkrunarrými er talsvert meiri
en við dvalarrými eða 14 þúsund
krónur á dag í stað 6 þúsund krón-
ur á dag. Er því reiknað með að
kostnaður vegna þessarar ákvörð-
unar verði um 15 rnilljónir króna.
Til þess að efla heimahjúkrun
hefur ráðherra ákveðið að verja sex
milljónum króna til þeirrar starf-
semi heilsugæslunnar. Ráðherra
segir að með þessum auknu fjár-
munum telji stjórnendur stofnun-
arinnar að hægt verði að tvöfalda
heimahjúkrunina. Fram tíl þessa
hefur verið veitt heimahjúkrun og
þjónusta að degi til virka daga en
ekki um helgar en hér eftir verður
heimahjúkrun í boði fram til
kvölds alla daga vikunnar.
Siv segir að með þessum aðgerð-
um sé hægt að gera fólki kleyft að
búa lengur í heimahúsum sem séu
sjálfsögð mannréttindi. Jafnframt
dragi þessi breyting úr eftírspurn
eftir dýrari kostum eins og vistun á
stofnunum.
Eins og áður sagði tílkynnti ráð-
herra um þessar auknu fjárveiting-
ar á fundi í Bíóhöllinni. Fundurinn
var haldinn af frambjóðendum
Framsóknarflokksins við bæjar-
stjórnarkosningarnar í vor. Siv
segir framsóknarmenn á Akranesi
sem og á öðrum stöðum á landinu
leggja þunga áherslu á málefni
aldraðra og þessi ákvörðun sé liður
í þeirri stefnu.
HJ
Segja afkomu og rekstur
Stykkishóbnsbæjar við þohnörk
Bæjarfulltrúar minnihlutans í bæj-
arstjórn Stykkishólms telja að rekst-
ur og aflkoma sveitarfélagsins sé við
þolmörk. Þetta kom fram á bæjar-
stjórnarfundi í síðustu viku þegar
ársreikningar sveitarfélagsins fyrir
síðasta ár voru til seinni umræðu í
bæjarstjóm.
Bæjarfulltrúarnir, þau Hilmar
Hallvarðsson, Sigurborg Sturlu-
dóttir og Helga Guðmundsdóttir,
lögðu á fúndinum ffam svohljóðandi
bókun: „Við yfirlestur ársreiknings
Stykkishólmsbæjar og undirfyrir-
tækja kemur í ljós að reksturinn og
afkoman er við þolmörk. Þar sem
búið er að skuldbinda bæjarsjóð
ffam í tímann verður að gæta að-
halds í rekstri og skoða alla rekstrar-
þættí vel með betri afkomu í huga án
þess að skerða þá þjónusta sem nú
þegar er veitt.“
Eins og fram kom í ffétt Skessu-
horns fyrir skömmu var rekstur
Stykkishólmsbæjar neikvæður um
53,5 milljónir króna sem var talsvert
verri niðurstaða en gert hafði verið
ráð fyrir í fjárhagsáætlun en þar var
reiknað með að reksturinn yrði nei-
kvæður um 13,2 milljónir króna. HJ