Skessuhorn - 10.05.2006, Page 22
22
MIÐVIKUDAGUR 10. MAI 2006
jKtsavnuú'i
Ætlum okkur stærri
hluti en í fyrra
Fyrsta til
þriðja sæti
- segir þjálfarinn
- þrátt fyrir ungt lið
Olafur Þórðarson þjálfari ÍA
„Það hafa orðið miklar breyt-
ingar á liðinu frá síðasta sumri og
við höfum misst sterkasta mið-
varðapar landsins til margra ára,
þá Gunnlaug Jónsson og Reyni
Leósson og það er skarð fyrir
skildi, það er alveg Ijóst. Hins
vegar höfum við fengið til baka
nokkra gamla Skagamenn úr at-
vinnumennsku og það er frábær
styrkur fyrir liðið, það hefur mikið
að segja“, sagði Ólafur um liðið
sem hann stýrir nú í sumar.
Ólafur telur að liðið hafi komið á
óvart síðasta sumar og enginn
hafi átt von á því að það myndi
lenda í 2.-3. sæti eftir að hafa
misst sjö leikmenn frá því árinu
áður. Árangurinn hafi verið gríðar-
lega góður miðað við það sem á
undan var gengið. Ólafur er bjart-
sýnn á komandi leiktíð og ætlar
liðinu að gera betur í sumar og
spáir því 1 .-2. sæti. „Við höldum
áfram að byggja ofan á árangur
síðasta sumars og með því að fá
þessa leikmenn til baka; Þórð
Guðjónsson, Bjarna Guðjónsson,
Arnar Gunnlaugsson auk Árna
Thors, ætlum við okkur stærri
hluti en við upplifðum í fyrra.“
Ólafi finnst nýtt stuðnings-
mannafélag orðið löngu tímabært
og fagnar þvf tilkomu þess. „Fleiri
þurfa að ganga í klúbbinn og
verða tólfti maðurinn á vellinum,
það hjálpar liðinu alveg gríðarlega
og vonandi láta sem flestir í sér
heyra. Maður fer á fótboltavöll til
að láta í sér heyra og hafa gaman
af því.“
Það er Ijóst að ÍA liðið kemur
vel undan vetri og allir leikmenn
eru nokkuð heilir. Liðinu gekk
ágætlega í Deildarbikarnum og
þar sáust taktar sem ekki hafa
sést hjá liðinu í mörg ár. Það er
því ástæða til að taka undir með
þjálfaranum og fleirum um að
gengi Skagaliðsins verður gott í
sumar. Þá er bara að fara á völlinn
og hvetja þá gulu!
SO
Leikir Meistaflokks IA í
Landsbankadeildinni:
Sunnudagur 14/5 16:00 Grindavík - ÍA Grindavíkurvöllur
Laugardagur 20/5 16:00 ÍA - KR Akranesvöllur
Fimmtudagur 25/5 20:00 FH - ÍA Kaplakrikavöllur
Mánudagur 29/5 19:15 Valur-ÍA Laugadalsvöllur
Mánudagur 05/6 19:15 ÍA - Fylkir Akranesvöllur
Fimmtudagur 08/6 19:15 Keflavík - ÍA Keflavíkurvöllur
Fimmtudagur 15/6 19:15 ÍA - Breiðablik Akranesvöllur
Fimmtudagur 22/6 19:15 ÍBV - ÍA Hásteinsvöllur
Miðvikudagur 28/6 19:15 ÍA - Víkingur R. Akranesvöllur
Föstudagur 07/7 19:15 ÍA - Grindavík Akranesvöllur
Mánudagur 17/7 19:15 KR-ÍA KR - völlur
Mánudagur 31/7 19:15 ÍA - FH Akranesvöllur
Fimmtudagur 10/8 19:15 (A - Valur Akranesvöllur
Sunnudagur 20/8 18:00 Fylkir - ÍA Fylkisvöllur
Mánudagur 28/8 18:00 ÍA - Keflavík Akranesvöllur
Sunnudagur 10/9 14:00 Breiðablik - ÍA Kópavogsvöllur
Sunnudagur 17/9 14:00 ÍA - ÍBV Akranesvöllur
Laugardagur 23/9 14:00 Víkingur R. - ÍA Víkingsvöllur
Samkaup minnir á sig á Akranesi
Bæjarráð Akraness hefur falið
bæjarstjóra að ræða við Guðjón
Stefánsson framkvæmdastjóra
Samkaupa hf. í ffamhaldi af bréfi
sem hann sendi bæjarfélaginu þar
sem hann óskar efdr viðræðum um
mögulegar staðsetningar fyrir
verslanir fyrirtækisins. Fyrirtækið
rekur nú tvær verslanir á Akranesi.
I bréfi ffamkvæmdastjórans kemur
ffam að skipulagsmál og úthlutun
lóða sé orðinn verulegur þáttur í
því að viðhalda og efla samkeppni.
Sem kunnugt er hafa tveir sam-
keppnisaðilar Samkaupa nýlega
fengið lóðum úthlutað á Akranesi
án auglýsingar.
I bréfi Guðjóns segir meðal ann-
ars: „Með hinni stórfelldu upp-
byggingu á nýjum íbúðasvæðum
hefur samkeppni á matvörumark-
aði jafnframt farið að snúast um
hvaða aðilar fái úthlutað lóðum til
slíkrar starfsemi. Alla jafna eru það
sveitarfélögin sem ráða úthlutun-
um og lögmálin sem fara þarf eftír
kannski misjöfh eftir aðstæðum.“
Þá segir bréffitari ffá áhuga fyr-
irtækisins að fá úthlutað lóðum til
reksturs matvöruverslana „þegar
slíkar úthlutanir verða á döfinni“.
„Við teljum mjög mikilvægt að
sveitarfélögin sýni því skilning að
samkeppni á markaði minnkar og
deyr út ef einn eða tveir aðilar
verða þar ráðandi". HJ
Guðlaugur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Meistaraflokks og 2. flokks ÍA.
Guðlaugur Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri mfl. ÍA og 2.fl. er
mjög bjartsýnn á sumarið og tel-
ur liðið hafa fulla burði til að verða
í einu af þremur efstu sætunum
þegar Landsbankadeildinni lýkur
í haust, þrátt fyrir að liðið sé mjög
ungt. Munar þar mikið um að
hafa fengið „útlendingana heim“.
Tveir erlendir leikmenn eru í liðinu
og ekki stendur til að fjölga þeim
að svo stöddu. „Með þetta lið þá
á okkur alveg að geta gengið
þokkalega í Evrópukeppninni,
sem er einnig gott fyrir reksturinn
sem er í járnum. Tap hefur verið á
rekstrinum undanfarin tvö ár en
ég hef trú á að við komumst
ágætlega útúr þessu sumri hvað
fjárhaginn varðar," sagði Guð-
laugur um gengi félagsins í sum-
ar. Þegar nýtt stuðningsmannafé-
lag barst í tal í spjalli okkar kvaðst
hann mjög ánægður með framtak
forsvarsmanna þess og sagði þá
vera að gera virkilega góða hluti,
Taldi Guðlaugur víst að stuðn-
ingsmannafélagið ætti eftir að rífa
upp stemninguna á vellinum og
vonaðist hann til að aðrir taki þátt
í hvatningu þeirra til liðsins.
Aðspurður um horfur I rekstri
meistaradeildarinnar sagði Gulli:
„Að reka svona félag er bara eins
og hver annar fyrirtækjarekstur,
þetta kostar allt saman óhemju
mikla peninga. Við höfum verið
að endurnýja styrktarsamninga
við fyrirtæki og einstaklinga og
þeir peningar skipta félagið öllu
máli,“ sagði Guðlaugur að lokum.
SO
100 mörk í sumar?
Nú í sumar hafa þrír leikmenn ÍA
góða möguleika á að skora sitt
eitthundraðasta mark fyrir félagið.
Þessir leikmenn eru Hjörtur Hjart-
arson, Þórður Guðjónsson og
Arnar Gunnlaugsson. Nú er að
bíða og sjá hvort að köppunum
tekst að ná þessu markaskori og
setja nöfn sín enn frekar á spjöld
sögu félagsins. SO
Leikjahæstu
leikmenn ÍA
frá upphafi
(Miðað við alla leiki)
Pálmi Haraldsson 456 leikir
Alexander Högnason 452 leikir
Haraldur Ingólfsson 402 leikir
Kári Steinn Reynisson 399 leikir
Guðjón Þórðarson 392 leikir
Ólafur Þóröarson 377 leikir
Karl Þórðarson 367 leikir
Jón Alfreðsson 365 leikir
Árni Sveinsson 364 leikir
Gunnlaugur Jónsson 351 leikir
Jón Gunnlaugsson 343 leikir
Komnir
Markahæstu leikmenn ÍA frá upphafi Matthías Hallgrímsson 163 mörk Ríkharður Jónsson 139 mörk Þórður Þórðarson 106 mörk Haraldur Ingólfsson 106 mörk Hjörtur Hjartarson 98 mörk Teitur Þórðarson 95 mörk
Nýtt leikja- met Pálma Pálmi Haraldsson hefur nú slegið hæsta leikjamet félags- ins en fyrrum félagi hans úr lið- inu, Alexander Högnason átti það með 452 leiki. Pálmi hefur nú leikið 456 leiki með liðinu og væntanlega hækkar sú tala umtalsvert í sumar. SO
og farnir
Komnir:
Þórður Guðjónsson frá Stoke City
Bjarni Guðjónsson frá Plymounth
Arnar Gunnlaugsson frá KR
Árni Thor Guðmundsson frá HK
Farnir:
Gunnlaugur Jónsson
Finnbogi Llorenz
Reynir Leósson
Þorsteinn Gíslason
Guðmundur Páll Heiðarsson
Andrés Vilhjálmsson
Ágúst Örlygur Magnússon
Unnar Örn Valgeirsson -hættur
Þórður Þórðarson -hættur
Hjálmur Dór Hjálmsson -hættur
Sigurður Ragnar Eyjólfsson -hættur