Skessuhorn - 31.05.2006, Blaðsíða 24
Ngtt og öflugt
I CC i 1 til ífaúöakaupa
íbúðalán.is
www.ibudaíaríis
FJÁRHAGSLEG GLITNIR^
VELGENGNI ÞÍN
ER 0KKAR VERKEFNI
Daglegar ferðir
Opnunartímarvirka daga 8-12 og 13-17. # /
Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sími: 458 8880 .
landflutningar@landflutningar.is • www.landflutningar.is
Nýr meirihluti á Akranesi boðar upp-
stokkun og breytingar á mörgum sviðum
Á fundi með fréttamönnum, sem
haldinn var á Breiðinni á Akranesi
í hádeginu í gær, boðuðu forystu-
menn nýs meirihluta á Akranesi
uppstokkun og breytingar á ýms-
um sviðum á Akranesi. Gísli S.
Einarsson fyrrverandi þingmaður
Samfylkingarinnar verður bæjar-
stjóri, Karen Jónsdóttir verður for-
maður bæjarráðs og Gunnar Sig-
urðsson verður forseti bæjarstjórn-
ar. Sjálfstæðisflokkurinn og Frjáls-
lyndir og óháðir í bæjarstjórn
Akraness hófu formlegt meiri-
hlutasamstarf síðdegis í gær og
lauk viðræðunum síðla kvölds með
samkomulagi um myndun meiri-
hluta í bæjarstjórn. Meirihlutann
skipa fjórir fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins og einn fulltrúi Frjáls-
lyndra og óháðra. Flokkarnir hlutu
samtals 1.571 atkvæði í kosningun-
um á laugardaginn eða 47,61% at-
kvæða. Meirihlutinn er sögulegur
fýrir þær sakir að þetta er í fýrsta
skipti sem Frjálslyndi flokkurinn á
aðild að meirihlutasamstarfi í
sveitarfélagi á landinu.
Eins og áður sagði verður Gísli
S. Einarsson bæjarstjóri. Karen
Jónsdóttir bæjarfulltrúi Frjáls-
lyndra og óháðra verður formaður
bæjarráðs allt kjörtímabilið og
Gunnar Sigurðsson bæjafulltrúi
Sjálfstæðisflokks verður forseti
bæjarstjórnar allt kjörtímabilið og
tekur einnig sæti í bæjarráði. Það
var oddviti Sjálfstæðisflokksins
sem átti frumkvæðið að viðræðum
flokkanna en einnig kom fram á
fundinum að Sjálfstæðismenn
hefðu einnig rætt óformlega við
Vinstri-græna og Framsóknar-
flokkinn.
Sverðin slíðruð og
stefnumálum fylgt
Forystumenn flokkanna lögðu
áherslu á að þrátt fyrir að stór orð
hefðu fallið í kosningabaráttunni
væri sá slagur að baki og fullt
traust ríkti á milli flokkanna. Nú
þegar verður ráðist til fram-
kvæmda við nokkur af þeim
stefnumálum sem flokkarnir
kynntu í kosningabaráttunni. Fram
kom að gert yrði nú þegar sértakt
átak í umhverfismálum og meðal
framkvæmda sem ráðist yrði strax í
væri malbikun Grenigrundar. Þá
verður gerð sérstök úttekt á fjár-
hagsstöðu bæjarfélagsins og einnig
verður gerð úttekt á stjórnkerfinu.
Horfið verður nú þegar frá hug-
myndum fyrri meirihluta um
flutning bókasafns í nýtt húsnæði á
Miðbæjarreit sem bæjarfélagið
festi kaup á fýrir skömmu. Þess í
LATTU OKKUR
FÁÞAÐ
ÓÞVEGIÐ
Efnalaugin Múlakot ehf
Borgarbraut 55
310 Borgarnesi
Sími 437 1930
Bæjarfulltrúar hins nýja meirihluta á Akranesi ásamt verðandi bæjarstjóra, Gísla S Einarssyni. F.v. Þórður Þ Þóríarson, Sæmundur
Víglundsson, Gunnar Sigurðsson, Karen Jónsdóttir, Gísli S Einarsson og Eydís Aðalbjörnsdóttir.
stað verður núverandi húsnæði
Bóksafnsins við Heiðarbraut end-
urbætt og kannaður sá möguleiki
að Tónlistarskólinn nýti hið nýja
húsnæði á Miðbæjarreitnum. Að
öðrum kosti verður það selt. Það
er einnig vilji hins nýja meirihluta
að byggja upp frekari öldrunar-
þjónustu við Höfða. Einnig verður
þrýst á um uppbyggingu Akranes-
hafnar sem fiskihafnar í samræmi
við stefnumótun Faxaflóahafna.
Gísli S. Einarsson verðandi bæjar-
stjóri á Akranesi sagði að bæjarbú-
ar myndu fljótlega sjá hina nýju
vendi meirihlutans sópa.
Oddvitar beggja flokkanna
sögðu að meirihlutamyndunin nyti
fulls stuðnings formanna beggja
flokkanna en sem kunnugt er urðu
mikil orðaskipti á milli flokkanna í
fýrradag eftir að Sjálfstæðisflokk-
urinn sleit meirihlutaviðræðum við
Frjálslynda flokkinn í Reykjavík og
myndaði meirihluta með Fram-
sóknarflokki.
HJ
r
South
River
Band
I
HÓTEL HAMAR BORGARNESI
Föstudaginn 2. júní kl. 21:00
Aðgangseyrir 1.500.-