Skessuhorn


Skessuhorn - 31.05.2006, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 31.05.2006, Blaðsíða 17
SKESSIIHOBKI MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2006 17 Jafnt ungir sem aldnir hafa gaman af lömhunum, en mismikið gaman aö lyktinni þó! segja þeim aðeins frá sögunni, nátt- úrunni og jarðsögunni. Tilfinning fólks fyrir þessu svæði er að breyt- ast mjög mikið, það er að verða sí- vinsælla.“ Heilshugar í nýtt hlut- verk í sveitarstjóm Um síðastliðna helgi var kosið um fulltrúa í sveitarstjórn samein- aðs sveitarfélags sttnnan Skarðs- heiðar. Arnheiður skipar 3. sætd á E lista samEiningar sem vann góðan sigur í kosningunum og náði inn fjórum mönnum af sjö í sveitar- stjórn. Aðspurn hvað sér finnist um niðurstöður kosninganna og nýtt hlutverk í sveitarstjórn segist Arn- heiður vera afar spennt. „Það er hreint frábært og mikil hvatning að fá þennan mikla stuðn- ing fólksins. Eg er mjög sátt við úrslitin og fer tvíefld inní þetta starf en ég við- urkenni að það er ör- lítill kvíði líka. Maður veit ekki alveg hvað maður er að fara út í og þó ég hafi starfað mikið í nefndum á vegum Hvalfjarðar- strandarhrepps þá er þetta öðruvísi.“ Hvað helstu verk- efni nýrrar stjórnar varðar og hvar hún sjái krafta sína best nýtast segir Arnheið- ur fjölda erfiðra og krefjandi verkefna GuðmunduraS liggja fyrir og lykilatriðið sé að taka á þeim af heilum hug. Þar ber einna hæst sameining sveitarfélaganna fjögurra. „Sameiningin er stærsta verkefnið með öllu sem því fylgir og mikilvægt að það starf fari fram með sem bestum hætti svo útkom- an verði góð öllum til hagsbóta. Það er ákveðin hagræðing sem á sér stað, t.d. ein sveitarstjórn í stað fjögurra, en þá í leiðinni aukin verkefni. Fleiri stórverkefhi liggja fyrir, t.d. Heiðarskóli. Hið nýja sveitarfélag ætti að hafa alla burði til þess að vera með góðan og öfl- ugan skóla. Við viljum hlúa að fjöl- skyldunni og fjölskyldufólki og þá er skóli og leikskóli eitt af lykilat- riðum samfélagsins. Hvað varðar mig persónulega þá er það mín stefna og ég hef lagt upp með það að kraftar mínir nýtist hvað best í sveitarstjórn þegar kemur að umhverfis- málum. Þar hef ég bæði brennandi á- huga og líka ákveðna þekkingu og reynslu, hef t.d. starfað í 3 ár hjá UMIS í Borgar- nesi sem unhverfis- ráðgjafi. Þetta er vax- andi sveitarfélag, hér eru t.d. stóriðjur á Grundartanga þar sem umsvifin eru alltaf að aukast. En þó þetta séu þau málefhi sem ég hef beitt mér fyrir og sett mér markmið varðandi þá standa atvinnu- og skólamál mér einnig nærri. Við höfum verið að byggja upp þetta fyrirtæki hér á Bjarteyjar- sandi og hef ég gríðarlegan áhúga á ferðaþjónustu. Því mun ég örugg- lega leggja nokkuð púður í þá mála- flokka líka og hjálpa til við að gera nýtt sameinað sveitafélag að spemi- andi valkosti fyrir ferðamenn. Þá er mikilvægt að leggja áherslu á sér- stöðu svæðisins. Þó það sé ekki beint hlutverk sveitarstjórnar að standa í uppbyggingu ferðamála, þá er það samt hlutverk hennar að hlúa vel að sínu svæði, efla það og kynna það útávið og það tengist að sjálfsögðu ferðaþjónustu," segir Arnheiður að lokum. BG rétta ungri stúlku lamb sem sat svo alveg kjurrt ífangi hennar. Akraneskaupstaður Auglýsing um deiliskipulag a Akranesi Tillaga að deiliskipulagi Dalbraut 1 - Miðbæjarreit á Akranesi Með vísan til 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að aeilisKÍpulagi Dalbrautar 1 - Miðbæjarreit á Akranesi sem er breyting á eldra skipulagi. Skipulagssvæðið er lóðin Dalbraut 1 í Miðbæjarreit á Akranesi. | Breytingin felst m.a. í að hámarkshæð byggingar verður 6 metrar í stað 5 metra og smávægilegar t breytingar eru gerðar á byggingarreit og SKÍlgreindum lóðamörkum. | Tillagan, ásamt frekari upplýsingum, liggur frammi á skrifstofu tækni- og umhverfissviðs að 5 Dalbraut 8, Akranesi, fra 30. maí 2006 til og með 27. júní 2006. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 11. júlí 2006 og skulu þær berastá bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 3. hæð. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni. Akranesi 23. maí 2006 - sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar Þorvaldur Vestmann GRUNNSKÓLINN i BORGARNESI Frá Grunnskólanum í Borgarnesi: BORGARBYGQÐ Lausar kennarastöður Grunnskólinn í Borgarnesi- skóli á grænni grein - auglýsir lausartil umsóknar kennarastöður við skólann frá upphafi næsta skólaárs. Leitað er að vel menntuðum kennurum sem vilja taka þátt í þróun skólastarfs með öðrum starfsmönnum skólans. Lögð er áhersla á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti, teymisvinnu kennara og vellíðan. Unnið er í anda uppbyggingarstefnu. Meðal kennslugreina er stuðnings- og sérkennsla, umsjónarkennsla á miðstigi, stærðfræði, íslenska, samfélagsgreinar og raungreinar á unglingastigi. í skólanum eru um 330 nemendur og mun þeim fjölga á næstu misserum enda er Borgarbyggð vaxandi byggðarlag þar sem gott er að búa. Á heimasíðu (www.grunnborg.is) er að finna ýmsar upplýsingar um skólann en auk þess veita Kristján | Gíslason (kristgis@grunnborg.is) skólastjóri og Hilmar \ Már Arason (hilmara@grunnborg.is) aðstoðarskólastjóri | fúslega allar upplýsingar í síma 437-1229. Skólastjóri S 897 6433 & 431 1340 ATVIMA Starfsmenn óskast Óskum eftir mönnum með meiraprófog eða vinnuve'lare'ttindi. Mikil vinna framundan. Góð laun í boði fyrir góða menn. Nánari upplýsingar í síma 897 6453 eða netfang: throtturehf@simnet.is IttÉÍÉSMMiÉÍfiiliÍÉHfiHMHHMHÍMíÉiÉttlMÉÉIÍÍIIÉ^ PGV ehf. i Bæjarhrauni 6 i 220 Hafnafjörður i Sími: 564 6080 i Fax: 564 60811 www.pgv.is GLUGGITIL FRAMTIÐAR ENGIN MÁLNINGAVINNA HV0RKI FUI NE RYÐ FRÁBÆR HITA 0G HUOÐEINANGRUN FALLEGT UTLIT MARGIR OPNUNARMÖGULEIKAR ÖRUGG VIND- 0G VATNSÞETTING PGV ehf. sérhæfir sig í smíði glugga hurða, sólstofa og svalalokanna úr PVC-u Öllum framleiðsluvörum PGV fylgir 10 ára ábyrgð Gluggarnir eru viðhaldsf ríir og á sambærilegum verðum og gluggar sem stöðugt þarfnast viðhalds

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.