Skessuhorn - 31.05.2006, Blaðsíða 22
22
MIÐVIKUDAGUR 31. MAI 2006
^suiiuk. !
Akraneshlaup í bKðskaparveðri á kosningadagsmorgun
Um 300 manns tóku þátt í Akra-
neshlaupinu sem að þessu sinni fór
fram í 14. skipti í blíðskaparveðri sl.
laugardag. Þátttakendur fóru ýmist
hlaupandi, gangandi eða á hjólum.
Að þessu sinni var keppt í 21 km
hlaupi, 10 km hlaupi og 3,5 km
hlaupi, 10 km hjólreiðakeppni var
liður í keppninni og 2 og 3,5 km
göngu. Langflestir voru skráðir til
leiks í göngu og skokki og var svo
að sjá að þetta væri hin besta fjöl-
skylduskemmtun. Allir þátttakend-
ur fengu stuttermaboli og verð-
launapening en einnig voru auka-
lega veitt verðlaun fyrir þrjú efsm
sætin í hverjum flokki. I þessu 14.
Akraneshlaupi var það Kvenna-
neínd Knattspyrnufélags IA sem sá
um framkvæmd hlaupsins með
stuðningi fjölda íyrirtækja.
Helstu úrslit
121 km hlaupi karla kom Valur
Þórsson fyrstur í mark á tímanum
1:17:12, annar varð Birgir Sævars-
son á tímanum 1:19:35 og þriðji
Jakob Þorsteinsson á tímanum
1:21:13. í kvennaflokki í sömu
vegalengd var það Huld Konráðs-
dóttir sem kom fyrst í mark á tím-
anum 1:34:10, önnur varð Sigur-
björg Eðvarðsdóttir á tímanum
1:37:00 og sú þriðja var Guðrún
Kristín Sæmundsdóttir á tímanum
1:39:24.
110 km hlaupi karla sigraði Stef-
án Guðmundsson á tímanum 35:19,
Stefán Viðar Guðmundsson kom
annar í mark á tímanum 35:23 og
Jón Jóhannson varð sá þriðji á tím-
anum 38:50. í kvennaflokki komu
þær þrjár fyrstar í mark Brynja Blu-
meinstein á tímanum 51:42, Kristín
Lív Jónsdóttir á tímanum 52:47 og
Unnur Yr Haraldsdóttir á tímanum
53:32. Þess má geta að Kristín Lív
og Unnur Yr kepptu í flokki 14 ára
ogyngri.
I 10 km hjólreiðum varð Helgi
Ibsen Heiðarsson fyrsmr í flokki
karla á tímanum 18:40, Sveinn
Magnússon varð annar á tímanum
20:18 og Trausti Valdimarsson varð
þriðji á tímanum 20:19. Ingibjörg
Björnsdóttir varð fyrst í flokki
kvenna í hjólreiða-
keppni og Rósa Hall-
dórsdóttdr önnur.
I 3,5 km hlaupi varð
Uchechukwu Michael
Eze fyrstur í mark á
tímanum 15:01, á
tímanum 17:22 kom
Watchsun Sook-
hawatako annar í
mark og Jón Axel varð
sá þriðji á tímanum
17:38.
SO
Hér kemur Heimir Fannar Gunnlaugsson í mark ásamt
börnum sínum.
Tvíburasystumar Sigurlaug og Auður Amadœtur blésu
ekki úr nös eftir skokkið.
Ekki var að sjá annað en kynslóðabilið hafi rœkilega verið brúað í
hlaupinu.
Inga í Akrasport lét sig ekki vanta, hér
með tveimur knáum piltum.
Verðlaunahafar ásamt forseta lslansd, hr. Ólafi Ragnari Grímssyni og eiginkonu hans
Dorrit Moussaieff.
Afhending verðlauna
á Bessastöðum
Nýlega tóku þrjú tmgmenni af
Vesturlandi á móti verðlaunum fyr-
ir framlag sitt til Smásagna- og
ljóðasamkeppninnar sem Æskan og
RUV stóðu fyrir. Alls voru það
fimmtán ungmenni af landinu öllu
sem verðlaunuð voru. Vestlending-
amir em þau Dagbjört Birgisdóttdr
frá Tröð í Norðurárdal, en hún er
nemandi í Varmalandsskóla, Sævar
Berg Sigurðsson frá Akranesi nem-
andi í Gmndaskóla og Kristrún
Vala Kristdnsdóttdr frá Okrum 1 á
Snæfellsnesi og er hún nemandi í
Lýsuhólsskóla.
SO
Skólaslit
Laugargerðisskóla
Laugargerðisskóla í Eyja- og
Miklaholtshreppi var slitið í 41.
sinn á sunnudaginn var. Það kom
fram í ræðu Jóhönnu H Sigurðar-
dóttur skólastjóra við það tdlefni að
skólastarfið hafi verið mjög kröft-
ugt í vetur og nemendur staði sig
vel og alltaf verið skólanun til sóma
hvar sem þeir hafi komið. Nem-
endur tóku þátt í ýmsum keppnum
í vetur og stóðu sig mjög vel og 9.
bekkur komst meðal annars í úr-
slitakeppni f KappAbel verkefninu.
Þá fékk Foreldrafélag Laugargerð-
isskóla hvatningarverðlaun Heimil-
is og skóla, eins og greint hefur
verið frá í Skessuhomi.
A skólaslitunum vom veitt verð-
laun fyrir íþóttir og vom það þau
Þórður Gíslason ffá Mýrdal og
Olöf Eyjólfsdóttdr ffá Vegamótum
sem fengu veðlaunin fyrir íþrótta-
mann og -konu Laugargerðisskóla.
Þá fékk Kristín Perla Sigurbjörns-
dóttir frá Minni-Borg verðlavm fyr-
ir mestu ffamfarir í sundi. Að lokn-
um skólaslitum bauð svo skólinn í
glæsilegt kaffihlaðboð. ÞSK
Firmakeppni hestamanna í Grundarfirði
Sigurvegarar í unglingaflokknum.
Örn var knapi á Hettu.
aldrei hefur verið
teknar jafn margar
myndir af keppend-
um og á þessu mótd.
Knapi mótsins var
valinn Ingólfur Örn
Kristjánsson og
hestur Hetta frá Ut-
nyrðinsstöðum í
eigu Kolbrúnar
Grétarsdóttur og
Kristjáns M Odds-
sonar, en Ingólfur
KH
Félagar í Hesteigendafélagi
Grundarfjarðar gáfu sér tíma frá
kosningaamstri og héldu firma-
keppni síðastliðinn laugardag. Alls
tóku um 45 fyrirtæki og einstak-
lingar þátt í mótinu en einungis var
dregið um þrjú efstu sætin. Þátt-
taka knapa og hesta var mjög góð í
flestum greinum og oft hörð og
skemmtileg keppni. Mótið fékk á
sig alþjóðlegan blæ þar sem farþeg-
ar af skemmtiferðaskipi sem lá á
firðinum komu og horfðu á. Dóm-
ari mótsins útskýrði fyrir erlendu
áhorfendunum á ensku í hverju
væri að keppa hverju sinni og ýmsu
sem laut að íslenska hestinum og
Önnur úrslit á mótinu urðu þessi:
Bflokkur
Kolbrún Grétarsdóttir og Feykir - Hrann-
arbúðin
Krístján M Oddsson og Mímir - Vélaleiga
Kjartans og Svanhvítar
Gunnar Kristjánss. og Fengur - Mareind
Unglingar
Ingólfur Öm Kristjánsson og Hetta -
Kristín Haraldsd. nuddari
Þorsteinn Már Ragnarsson og Hólm-
sljama - Blómabúð Maríu
Dagfríður Gunnarsdóttir og Einir - Sme-
þvottur
Aflokkur
Helga Hjálmrós Bjamadóttir og Gáski -
Hótel Framnes.
Kolbrún Grétarsdóttir og Spóla - Gráborg
Ólafur Tryggvason og Lilja - Vélsmiðjan
Berg
Bamaflokkur
Rúnar Ragnarsson og Kristall - Vikublaðið
Þeyr
Guðrún Ösp Ólafsdóttir og Valur - Ferða-
þjónustan Suður Bár
Opið Tölt
Kolbrún Grétarsdóttir og Feykir - Snyrti-
stofan Ósk
Kristján M Oddsson og Mímir - Almenna
umhverfisþjónustan
Gunnar Kristjánss. og Rökkvi - Dodds ehf
Tölt bama og unglinga
Ingólfur Öm Kristjánsson og Hetta -
Djúpiklettur
Þorsteinn Már Ragnarsson og Hólm-
stjama - Guðmundur Runólfsson H/F
Saga Björk Jónsdóttir og Léttir - Láki
Skeið
Helga Hjámrós Bjamadóttir og Gáski -
kaffi 59
Bjami Jónasson og Fluga - Landsbanki
blands
Ólafur Tryggvason og Lilja - Sægarpur.
Arlegur reiðtúr Dreyra og Gusts
Síðasliðinn laugardag fóru félagar í Hesta-
mannafélögunum Dreyra á Akranesi og Gusti í
Kópavogi í árlegan sameiginlegan reiðtúr. Félögin
hafa síðustu 5 ár skipts á að sækja hvort annað
heim. Að þessu sinni skipulögðu Dreyrafélagar
reiðtúrinn. Alls voru það um 120 manns og nokk-
uð fleiri hross sem lögðu af stað frá Súlunesi í
Melasveit í logni og glampandi sól. Riðinn var dá-
góður sprettur á melabökkunum en svo var haldið
sem leið lá að Leirárgörðum þar sem borinn var
fram kvöldverður og skemmtun haldin fram eftir
kvöldi. Glatt var yfir mannskapnum og reiðtúrinn
talinn hafa heppnast mjög vel bæði af aðstandend-
um hans og þátttakendum.
BG
Anna, Jón, Ólafur og Hallgrímur að ræða málin.
Riðið t hlað á Leirárgörðum. Að snæðingi í gömlu hlöðunni á Leirárgörðum.