Skessuhorn


Skessuhorn - 31.05.2006, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 31.05.2006, Blaðsíða 9
 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2006 9 Menningartnála- samstarf Suðvesturhomsins Úttekt á menningarstarfsemi og samstarfsmöguleikum á sviði menningarmála á Akranesi, í Reykjavík, Hafnarfirði, Reykjanes- bæ og Arborg hefur verið gefin út í skýrluformi. Forsaga þessarar skýrslu er að sumarið 2005 var Reykjavíkur Aka- demíunni falið að taka saman skýrslu í samvinnu við skrifstofu menningarmála um samstarfs- möguleika sveitarfélaga á Suðvest- urlandi í menningar- og ferðaþjón- ustumálum. Markmiðið var að gera úttekt á menningarmarkaðinum á þessu svæði og koma fram tillögum um hvernig efla mætti samstarf í menningarmálum og hvernig hrinda mætti slíku í framkvæmd. Leitað var til allra stærri sveitarfé- laga á svæðinu og varð niðurstaðan sú að Akraneskaupstaður, Arborg, Hafiiaríjarðarbær og Reykjanesbær yrðu, auk Reykjavíkurborgar, aðilar að skýrslunni. Tilgangur hennar er að benda á markmið og leiðir til að auka samstarf sveitarfélaga á Suð- vesturlandi á sviði menningarmála. I skýrslunni segir að greina megi aukinn áhuga á að byggja upp sam- starf milli sveitarfélaga og stofnana til að samnýta kraftana og þjóna þannig almenningi og ferðamönn- um betur. I skýrslunni kemur fram að af þessum fimm sveitarfélögum greiðir Akraneskaupstaður hæstu útgjöld til menningarmála árið 2004. Sveitarfélagið greiðir rétt tæpar 17.000 krónur á hvern íbúa, Reykjavíkurborg 15.000 krónur, Hafnarfjarðarbær rúmar 10.500 krónur, Reykjanesbær tæpar 12.000 krónur og Sveitarfélagið Arborg tæpar 13.000 krónur. Stærsti ein- staki útgjaldaliður til menningar- mála sveitarfélaganna er rekstur bókasafna. SO Þetta er að vísu aliönd úr Dölunum og hefur hún því verið hýst í kuldatíð undanfar- inna vikna og hýr því við betri aðstœður en frœnkur hennar; œðarkollumar hafa þurft að búa við. Ahrifa þurrka og kulda- tíðar gætir minni hér en í öðrum landshlutum Það hefur vart farið ffam hjá neinum sá kuldi sem verið hefur á landinu öllu megnið af þessum mánuði. Síðustu daga er þó heldur að hlýna í veðri og langtímaspá gerir ráð fýrir hægt hlýnandi veðri næstu viku. I kuldatíð undanfarinna vikna hefur veðrið verið einna skaplegast hér á Vesturlandi miðað við aðra landshluta. Kuldi og frostanætur samhliða lítilli úrkomu í maí hefur haft töluverð áhrif á grassprettu og m.a. hefur seinna en oft áður verið hægt að hleypa kúm og sauðfé út af þeim sökum. Þá hefur æðarvarp gengið illa sumsstaðar sem og varp annarra fugla. Lambfé hefur þurft að hýsa óvenju lengi í vor enda er beit víða í lágmarki. Þegar blaðamaður hafði samband við Eirík Blöndal, ffam- kvæmdastjóra Búnaðarsamtaka Vesturlands í liðinni viku sagði hann að veðurfarið væri hreint ekki gott fyrir bændur en sem betur fer væri ekki komið lengra fram á sum- arið. Hann sagði kulda og þurrk auðvitað ekki góðan fyrir gróður en menn yrðu að halda í vonina um að júnímánuður verði góður og þá gæti orðið ágætis grasspretta þrátt fyrir allt. Hvað kornrækt varðar taldi Eiríkur ósennilegt að hún hafi eyðilagst á Vesmrlandi en uppskeru mun sennilega seinka eitthvað. Helst megi búast við að tjón hafi orðið hjá kornbændum í Melasveit því þar gæti kornið hafa bæði skrælnað í miklum þurrki og jafn- vel fokið í skurði í hvassviðri sem gekk yfir í síðustu viku. Taldi Eiríkur að það yrðu æðar- bændur í landinu sem færu einna verst út úr þessu kuldahreti undan- farinna vikna þar sem ómögulegt væri að vernda æðarvarpið við veðri sem þessu. Þó telja menn að ekki verði veruleg afföll á varpinu hér á Vesmrlandi en því seinki eitthvað sérstaklega við Breiðafjörð. Svanur Steinarsson stundar æðarvarp í Straumfirði á Mýrum. Hann segir að varpið líti mjög vel út hjá sér og nú þegar séu ungar farnir að koma úr eggjum: „Það gengur ágætlega hjá okkur og sérstaklega í eyjimum þar sem tófan nær ekki að gera usla.“ Svanur segir aðstæður miklu betri á Mýrunum en t.d. norðan heiða þar sem snjóaði talsvert. Við þær aðstæður nái kollurnar ekki að halda hreiðrunum þurram og þá endi þær á að yfirgefa þau. Við Breiðafjörð segist Svanur hafa heyrt að einhver seinkun verði á varpinu sökum kulda en ekki sé bú- ist við að áhrifin verði önnur og verri. MM/SO Tónlist firá fyrri tíð og rímur á IsNord hátíðinni IsNord tónlistarhátíðin í Borgarfirði verður haldin í annað sinn um næstu helgi og að þessu sinni verður tón- leikahald í Borgarneskirkju, Reykholtskirkju og Surtshelli í Hallmundarhrauni. Mikil vakning á sér nú stað á land- inu öllu um söguarf Islend- inga og á hátíðinni verður því lögð áhersla á tónlist sem tengist söguarfi þjóðarinnar. Tónlist sem tengist fyrri tíð, víkingum og þá sérstaklega Egilssögu til að vekja athygli á söguarfi Borgarfjarðar og þeim menningarsjóði sem þar býr, verður einkennandi fýrir hátíðina í ár. Þá verða dregn- ar fram perlur frá íslenskum tónskáldum í bland við það besta frá Norðurlöndunum með því markmiði að gera íslenska og norræna tónlist aðgengilegri al- menningi. F'jölbreytt tónlistardagskrá er þar á ferð og má þá einna helst nefna flutning á tónverki eftir enska tónskáldið Gavin Bryars sem samið er við ljóðlínur úr Höfuð- lausn Egils Skallagrímssonar. Þá verða rímur kveðnar í Surtshelli og leikið á gömul hljóðfæri við kertaljós og kyndlaflökt og mun ís- Tónlistarfólk sem stóð að hátíðinni íjýrra á tröppum Borgameskirkju. lenskt landslag koma til með að spilar stórt hlutverk. Gestur er því bent á koma klæddir eftir veðri og vindum og í góðum skóm. Einnig verður flutt tónlist eftir Jón As- geirsson, Jón Nordal, Jón Þórar- insson og Jón Leifs en söngur og hljóðfæratónlist eftir fjórmenning- ana og nafnana hafa fýrir löngu skipað stóran sess í hjörtum lands- manna. Flytjendur era ekki af verri end- anum en þeir eru meðal annars Kammerkór Vesturlands og Sin- fóníuhljómsveit Norðurlands auk fjölmargra einsöngvara, fiðlu- og píanóleikara. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Jónína Erna Arn- ardóttir, píanóleikari í Borgarnesi. IsNord er glæsileg tónlistarhátíð sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara en allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni isnord.is (sjá einnig auglýsingu á baksíðu þessa blaðs). KÓÓ Opnunartími í sumar: 15. maí -14. september frá kl. 10-17 alla daga. Skipnlögð dagskráratriði á Safnasvæðinu. Görðum, Akranesi sumarið 2006 10. júní - Hátíð hafsins í tilúfni sjómannadag? og háHd liafsins vorða vmsar uppákomtir ínni á Saínasvæði. Fiskiveisla |.wsem kokkar Galitó laða fram hinar ymsu krásir úrafurðum hatsins Víkingahópurinn Hringhomi vvnhir á svvcómu með lciki og spil ásamt þvt aó sýna handvcrk og matreiða að hætti víkinga Mörg tónlistaratriði verða allan daginn. Keppni i sjávarsúpugerð verður í tjaldi á s\ æðinu. \liir eru hvattir til að skrá sig ‘H þátttöku. Sjávarveisian byrjar kl. 19:00 i tjakiínu og éru miðapantanir i síma 431 - 5566 éöa á muR’um^museum.is. 17. júní - Þjóðhátíðardagurinn i tiloíoi þjóðhatiðijrdags vorður ymíslegt um að vera allan dagínn á Safnasv.txhnu.. Kalfihlaðborð á þjóðlegu mitunúm frá kl 1300. Fólk eindregið hvatt til að mmta i þjöðbúningum sínum og þeir sem það gera eiga von á glaðningi. Helgina 6.-9. júlí - írskir dagar á Akranesi A kskttm dögtim verður vnusiegt nm að vera á Safna.sA’íéðimi Rtn auglyst verður siðar. Uugardagmn 8.júh munu Bifhjóbsamtök lýðveldisins, Sniglarnir, koma í hcimsókn a fákum sinum og aka um bæinn og enda a Safnasv æðinu að tiorðum. beir numu sfakira við á planinu við Garðakafft og þar fá ge-stir ráðrúm til að hitta kappana og skoða hjólbeirra. 12. ágúst -Markaðsdagur á Skaga Söiiibásar i matkaðsljaldí á Safnásva-ði.mi. Aílí sem þu vilt selia á lieima t tjaldinu hjá okkur. Sóluáðílar skrái þáttföku \ slma 431 - 5%b. Fngin básaleiga er, en koma þarímeð borð undir varmnginn. Einstakt ag veglegt saftt safna á einuni stað: Steinaríki fslands Íþróttasafn íslands Byggöasafn Akraness og nærsveifa f rétta átt, sýning Landmælinga íslands Útívistarsvæði Upplýsingamiðstöð feröamanna Garðakaffi 9, september - Sveítarómantík Stórf \i) vveita kvnnt á Satnásvæðimk bar verður m.a. sýni gamalf iiandbragð víð hatidlðn ýmisköóári keppt verður 'i kjothópugerð og fá gebHr að stnékká og áæma tun br.igð og litiif bá verður KidnumebUramót ísiands haldið fiennan dag i fjal-dinu. Skránitig í súpu* og kleinngetðer i síma 431 •* 5566 og á muR'umCemuisvum.is I Garðtikáífi verður Hólmsfeinn Sna.'dal með ljósmyndasý'ningu og fjTirlcstur sem haiin kallar ‘ l’ppgefnir nytjahiuíir '. Í.ifandi tónlist verður í tjaldinu yfir d.igtnn sem sfðan endar með harmonikubaili uni ki ðldið á svæðinu. Nánari dágskra Safnasvæðid á Akranesi 366 * Fax 431 $567 * Veffang: wwv Netfang: museiinv^museitni ís

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.