Skessuhorn


Skessuhorn - 31.05.2006, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 31.05.2006, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 31. MAI2006 *a£ssuiiuk~r: Kosningaúrslit í sveitarstjómar- kosningunum á Vesturlandi og viðbrögð við þeim Akraneskaupstaður Á Akranesi greiddu 3.493 kjósendur atkvæði og var kjör- sókn því 83,9%. B-listi Framsóknarflokks hlaut 435 atkvæði og einn mann kjörinn, D-listi Sjálfstæðisflokks hlaut 1.254 atkvæði og fjóra menn kjörna, F-listi Frjálslyndra og óháðra fékk 317 atkvæði og einn mann kjörinn, S-listi Samfylking- arinnar hlaut 821 atkvæði og 2 menn kjörna og V-listi Vinstri hreyfingarinnar-græns framboðs hlaut 473 atkvæði og einn mann kjörinn. Helstu breytingar eru þær að Fram- sóknarflokkurinn og Samfylking tapa bæði einum manni og meirihluti flokk- anna er því fallinn. Bæjarfulltrúar eru Guðmundur Páll Jónsson, Gunnar Sig- urðsson, Sæmundur Víglundsson, Ey- dís Aðalbjörnsdóttir, Þórður Þ. Þórðar- son, Karen Jónsdóttir, Sveinn Kristins- son, Hrönn Ríkarðsdóttir og Rún Hall- dórsdóttir. Sótt að Samfylkingunni úr tveimur áttum Sveinn Kristinsson oddviti framboðs- lista Samfylkingarinnar segir að sótt hafi verið að Samfylkingunni úr tveim- ur áttum í kosningabaráttunni og það skýri slæma útkoma flokksins úr kosn- ingunum á laugardaginn. Því sé heldur ekki að neita að talsverð óánægja hafi verið meðal flokksmanna um tiltekin mál í verkum bæjarstjómarinnar. Fylgistap Samfylkingarinnar í bæjar- stjórnarkosningunum á Akranesi hefur vakið talsverða athygli en flokkurinn tapaði ríflega fimmtungi fylgis síns í kosningunum og fékk aðeins tvo menn kjörna en hafði þrjá áður. Sveinn segir kosningabaráttuna hafa verið nokkuð sérstaka að því leiti til að sótt hafi verið að flokknum úr tveimur áttum. Annars vegar hafi fyrrum þingmaður flokksins ákveðið að ganga til liðs við Sjálfstæðis- flokksins og þar með ákveðið að hefna þess í héraði sem á hallaði á Alþingi. Það hafi óneitanlega veikt flokkinn. Þá hafi framboð Vinstri-grænna sótt að flokknum ffá vinstri með góðum árangri. Aðspurður hvort ekkert í störfum flokksins á liðnu kjör- tímabili hafi vakið óánægju hjá kjósendum segir Sveinn ekki geta neitað því að tvö mál hafi einkum vakið óánægju. Ann- ars vegar hafi það verið staða skipulags- og umhverfismála. „Hér hefur verið mjög mikil uppbygging á liðnum árum og það hefur haft áhrif á útlit bæjarins. Hann líti ekki fallega út sem stendur vegna þessara miklu framkvæmda. Einnig hef- ur komið fram talsverð óánægja með byggingu fjölnota íþróttahússins á Jaðarsbökkum. Þar er fyrst og fremst um að ræða óánægju með staðsetningu hússins og að það sé of áberandi“ segir Sveinn en bendir á að á öðrum stöðum hefði húsið orðið í raun meira áberandi. Við skoruðum ekki Guðmundur Páll Jónsson bæjarstjóri og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Akraness segir aldrei gott þegar settu marki er ekki náð. Þetta segir hann um það mikla fylgistap sem Framsóknarflokkurinn varð fyrir í bæjarstjórn- arkosningunum á laugardaginn. Flokkurinn tapaði ríflega helmingi síns fylgis frá síðustu kosningum og fékk einn mann kjörinn en hafði tvo áður. „Við töldum okkur spila góðan leik en við skoruðum ekki og það eru mörkin sem telja“ segir Guðmundur Páll. Hann segir án efa marga þætti skýra fylgistap flokksins. Flokkur- inn á landsvísu hafi mætt ákveðnum mótbyr og einnig hafi ákvörðun Sjálfstæðisflokksins um að bjóða fram bæjarstjóra- efni úr röðum andstæðinga sinna skapað ákveðnu umróti. Aðspurður hvort ekki megi rekja fylgistapið til verka frá- farandi meirihluta segir svo eflaust vera þó erfitt sé að benda á ákveðið mál í því sambandi. „Það eru mjög ólíkar aðstæð- ur hér ríkjandi en voru til dæmis þegar ég fór fyrst í fram- boð árið 1994. Þá var hér mikið atvinnuleysi og óvissa ríkj- andi. Aðstæður nú eru með öðrum hætti“ segir Guðmundur Páll. „Ég þurfti að eyða miklum tíma í kosningabaráttunni í að útskýra þá miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað á Jaðarsbökkum. Fólk gerði ekki ágreining um uppbygging- una sem slíka heldur frekar hvar sú uppbygging átti að eiga sér stað. Hvort sú uppbygging hefur unnið gegn okkur get ég ekki sagt til um. Guðmundur Páll var ráðinn bæjarstjóri til loka kjörtíma- bilsins og verði henn ekki endurráðinn mun hann hverfa að nýju til starfa hjá HB Granda en hann fékk leyfi frá störfum þar þegar hann tók við starfi bæjarstjóra á síðasta ári af Gísla Gíslasyni. Oddviti Vinstri-Grænna mjög ánægður Rún Halldórsdóttir, oddviti framboðslista Vinstri hreyf- ingarinnar-græns ffamboðs á Akranesi, segist mjög ánægð með þann árangur sem flokkurinn náði í bæjarstjórnarkosn- ingunum á Akranesi. Flokkurinn náði inn manni í bæjar- stjórn í fyrsta skipti. Rún segir árangurinn hafa í raun verið betri en búist var við og bendir í því sambandi á það fylgi sem flokkurinn mældist með í skoðanakönnunum í kosn- ingabaráttunni. Því sé ljóst að sjónarmið flokksins hafi fallið íbúum á Akranesi vel í geð. Meðvituð um nýjar skyldur Karen Jónsdóttir oddviti Frjálslyndra og óháðra á Akra- nesi segir kjósendur á Akranesi hafa sýnt flokknum mikið traust með góðum sigri flokksins í kosningunum. „Um leið og við þökkum fyrir stuðninginn og traustið erum við með- vituð um þær skyldur sem fylgja þeim ffábæra árangri sem náðist. Við munum ekki skorast undan þvi að axla ábyrgð og árangur til heilla fyrir íbúa Akraness". Skýr skilaboð um kjölfestu okkar Gunnar Sigurðsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjar- stjórn Akraness segir úrslit kosninganna skýr skilaboð um að íbúar bæjarins vilji að Sjálfstæðisflokkurinn komi að stjórn- un bæjarins þrátt fyrir að hreinn meirihluti hafi ekki náðst. „Við munum fara eftir þessum skýru skilaboðum og stefna að því að verða kjölfestan í næsta meirihluta sem myndaður verður í bæjarstjórn“ sagði Gunnar. Sameinað sveitar- félag sunnan Skarðsheiðar I sameinuðu sveitarfélagi sunnan Skarðsheiðar greiddu 354 kjósendur atkvæði og var því kjörsókn 87,8%. E-listi SamEiningar hlaut 170 atkvæði og fjóra menn kjörna, H-listi H4 hlaut 80 atkvæði og einn mann kjörinn og L-listi Hval- fjarðarlistans hlaut 104 atkvæði og tvo menn kjörna. I sveitarstjórn hlutu því kosningu Hallfreður Vilhjálmsson, Sig- urður Sverrir Jónsson, Hlynur Máni Sig- urbjörnsson, Ása Helgadóttir, Arnheiður Hjörleifsdóttir, Magnús Ingi Hannesson og Stefán Gunnar Ármannsson. Jafliframt fór fram skoðanakönnun á nafni á hið nýja sveitarfélag. Langflest atkvæði hlaut nafn- ið Hvalfjarðarsveit eða 206 atkvæði. Settum stefnuna á hreinan meirihluta Hallfreður Vilhjálmsson oddviti E-listi samEiningar í sameinuðu sveitarfélagi sunnan Skarðsheiðar segist mjög ánægður með árangur listans í kosningunum enda náði hann fjórum mönnum og hreinum meirihluta. „Það gera sér allir ákveðnar væntingar þegar lagt er upp í framboð og strax í upphafi stefhdum við á hreinan meirihluta. Það er hins vegar ekki sjálfgef- ið að menn nái settu marki en í þetta sinn tókst það“ segir Hallfreður. Við kosningarnar fór einnig ffam skoð- anakönnun á nafn á hið nýja sveitarfélag og hlaut nafnið Hvalfjarðarsveit yfirgnæf- andi stuðning. Hallfreður sagði yfirburði þessa nafns hafa komið á óvart en er afar sáttur við niðurstöðuna og svo sé um aðra sveitarstjórnarmenn listans og því geti fátt komið í veg fyrir að hið nýja sveitarfélag- ið muni bera nafnið Hvalfjarðarsveit. Sameinað sveitarfélag í Borgarfirði I nýju sveitarfélagi í Borgarfirði greiddu kjósendur 1.925 atkvæði og var því kjörsókn um 77%. B-listi Framsóknar- flokksins hlaut 599 atkvæði og þrjá menn kjörna, D-listi Sjálfstæðisflokksins hlaut 675 atkvæði og þrjá menn kjörna og L-listi Borgarbyggðarlistans hlaut 511 atkvæði og þrjá menn kjörna. Ef miðað er við úrslit kosninganna í Borgar- byggð fyrir fjórum árum þá tapaði Framsóknarflokkur ein- um manni til Borgarbyggðarlistans. I sveitarstjórn voru því kjörin Björn Bjarki Þorsteinsson, Sveinbjörn Eyjólfsson, Finnbogi Rögnvaldsson, Torfi Jóhannesson, Jenný Lind Eg- ilsdóttir, Sigríður Björk Jónsdóttir, Ingunn Alexandersdótt- ir, Finnbogi Leifsson og Haukur Júlíusson. Verðum að líta í eigin barm Sveinbjörn Eyjólfsson oddviti Framsóknarmanna í nýju sameinuðu sveitarfélagið í Borgarfirði segir úrslit kosning- anna nokkur vonbrigði en flokkurinn fékk þrjá menn kjörna. „Við lögðum upp með að fá fjóra menn kjörna og það tókst ekki. Á einhvern hátt höfum við ekki hitt kjósendur og þurf- um að fara yfir hvers vegna það hefur ekki tekist. Auðvelda skýringin er sú að við vorum á þeim hluta landsins þar sem Framsóknarflokkurinn tapaði miklu fylgi. Ég vil hins vegar ekki kenna öðrum um og því verðum við að líta í eigin barm. Við vorum með góða stefnu og gott framboð en það dugði

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.