Skessuhorn - 31.05.2006, Blaðsíða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 31. MAI2006
Kvöldgöngur UMSB að hefjast
Fjölumdæmisþing
Lionshreyfingarinnar á
Akranesi um næstu helgi
Tæplega 200 lionsfélagar; karlar
og konur, eru skráðir til Fjölum-
dæmisþings Lionshreyfingarinnar
sem að þessu sinni verður haldið á
Akranesi dagana 2. til 3. júní nk.
Auk þingfulltrúa eru makar þeirra
og aðrir gestir sem sækja Akranes
heim þessa daga, þannig að gesta-
íjöldi verður vel á fjórða hundrað
talsins í bænum af þessum sökum.
Þingið verður haldið í Fjöl-
brautaskólanum á Akranesi. Dag-
skrá þess er í stórum dráttum á þá
leið að föstudaginn 2. júní verða
skólar embættismanna lions-
klúbbanna næsta starfsár, svo sem
formanna, ritara, gjaldkera og
svæðisstjóra. Fjölumdæmi Lions
skiptist í tvö umdæmi, A og B og
eru þing hvors umdæmis haldin
síðdegis á föstudeginum. A föstu-
dagskvöldið verður haldið veglegt
kynningarkvöld í FVA. A laugar-
daginn verður Fjölumdæmisþingið
sjálft haldið og hefst það með
skrúðgöngu á laugardagsmorgun.
Þá tekur við þingsetning og sjálft
þinghaldið hefst að því loknu og
stendur fram eftir degi. Lionsþing-
inu lýkur með hátíð sem haldin
verður á laugardagskvöldið í há-
tíðasal FVA.
Lionsklúbbur Akraness og lions-
klúbburinn Eðna standa sameigin-
lega að skipulagningu og umsjón
Merki Lionshreyfingarinnar.
með þinghaldi í ár á 50 ára afmæl-
isári Lionsklúbbs Akraness og 25.
starfsári Lkl. Eðnu. Hefð er íyrir
því að klúbbar víðsvegar um landið
sjá um þinghald til skiptis. A Islandi
eru starfandi 96 lionsklúbbar með
um það bil 2500 félagsmönnum.
Á Lionsþinginu verður kosinn
nýr fjölumdæmisstjóri. I framboði
eru báðir umdæmisstjórar A og B
umdæmanna og er Valdimar Þor-
valdsson á Akranesi umdæmisstjóri
á B svæði annar þeirra sem í kjöri
eru en hann etur kappi við Guð-
mund Rafhar Valtýsson umdæmis-
stjóra A umdæmis um embættið.
Landsbanki Islands er styrktar-
aðili þingsins á Akranesi og leggur
hann til bæði fjármagn og möppur
vegna þinghaldsins.
MM
Ungmennasamband Borgar-
fjarðar stendur nú í sumar fýrir
kvöldgöngum líkt og undanfarin
ár. Eðli málsins samkvæmt er
Borgarfjarðarhérað göngusvæðið
og margir hnjúkar sem stefnan er
tekin á. Gengið verður annað
hvert fimmtudagskvöld á vegum
sambandsins. Þeir staðir sem
stefnt er á að ganga um eru m.a.
Hraunsnefsöxl, Brekkufjall,
Fljótstunga, Akrafjall, Eldborg,
Einkunnir og Litla-Skarðsfjall.
Fyrsta gangan verður um
Hraunsnefsöxl í Norðurárdal
fimmtudaginn 8. júní.
Hraunsnefsöxl
fiall ársins
Hraunsnefsöxl í Norðurárdal
hefur verið valið sem fjall UMSB
fyrir árið 2006. UMSB er aðili í
verkefninu „Fjölskyldan á fjallið“
sem er verkefni á vegum UMFI.
Fjölskyldan á fjallið er einn liður í
verkefninu Göngum um Island.
Settir eru upp póstkassar með
gestabókum á 20 fjöllum víðsvegar
um landið, en öll þessi fjöll eiga
það sameiginlegt að vera tiltölu-
lega létt að ganga á. Fiinmtudags-
kvöldið 8. júní kl. 19.30 verður
gengið á fjallið og verður gestabók
með í för. Gengið verður frá hlað-
inu á bænum Hraunsnefi. Aætlað
er að það taki um 3 tíma að ganga
á fjallið og niður aftur. Borgfirð-
ingar sem og aðrir geta í sumar
gengið á fjallið og skrifað nafn sitt
Rauðbrók íforgrunni, Hraunsnefsöxlfyrir miðju og Baula í haksýn.
Ljósm: Mats Wihe Lund
í gestabókina. í haust verður síðan
dregið úr nöfnum þeirra sem
gengið hafa á fjöllin sem tilnefnd
hafa verið í verkefninu Fjölskyldan
á fjallið og er þá von á glaðningi.
Síðustu tvö ár var Varmalækjar-
múli fjall UMSB. Það verður
gestabók einnig á fjallinu í sumar.
Annað hvert fimmtudagskvöld
verður kvöldganga á vegum
UMSB líkt og undanfarin ár og er
þetta fyrsta gangan í sumar. Næsta
ganga verður 22. júní kl. 20.00 en
þá verður gengið á Brekkufjall í
Andakíl. Nánari upplýsingar um
kvöldgöngur UMSB er að fmna á
vefhum www.umsb.is
MM
Sigur er vís hjá Sjálfstæðisflokki - Samjylkingin hjálpar til
í síðasta þætti birti
ég vísu og eignaði
Gunnlaugi Pétri Sig-
urbjörnssyni sem um
tíma var póstur á
Akranesi. Ekki var
blaðið löngu komið
út þegar Stefán
Bjarnason fyrrver-
andi yfirlögreglu-
þjónn hafði samband við mig og kvaðst vera
réttur höfundur vísunnar auk þess sem hún
væri ekki alveg rétt með farin. Ef ég man rétt
fór Stefán með hana svona:
Upp við vegg á varðstofunni
vaxið hefur fífill hljóður.
En frómt frá sagt þá finnst þar inni
fíflamergð - en lítill gróður.
Bið ég alla hlutaðeigandi velvirðingar á
þessum mistökum mínum.
I kuldakastinu sem gekk yfir nýlega varð
mér óneitanlega hugsað tdl þess hvemig þetta
hefði komið við menn fýrir svona hundrað
árum eða svo og þarf þó ekki svo langt aftur
til að svona kuldakast hefði valdið bændum
verulegu tjóni. A kuldavori, líklega fýrir næst-
síðustu aldamót orti Einar Sigurðsson á
Reykjarhóli í Skagafirði en unglambaskinn
voru þá í nokkru verði hjá kaupmönnum:
Féll um hnjóta hjörð úr hor,
hún ei fóta gáði.
Þetta Ijóta lambskinnsvor
loksins þrjóta náði.
Einhverjum þótti stuðlasetningin að-
finnsluverð hjá Einari og mig minnir að það
hafi verið Friðrik Sigfússon í Pottagerði sem
orti:
Ég er frá og ekkert veit
óðarskrá að hnuðla.
Þótt þeir fái fram í sveit
fjögur há í stuðla.
Það er nú svo með þetta blessað veðurfar að
skaparanum gengur illa að stjórna því svo all-
ir verði ánægðir og stendur þá ekki á
óánægjukveini hjá mannskepnunni. Ein-
hverntíman kvað Agnar Jónsson ffá Illuga-
stöðum og virðist ekki hafa verið of sáttur við
veðurlagið:
Frost og hiti þankann þjá,
þó er leitt að kvarta.
Andvörp bitur berast frá
bœnaþreyttu hjarta.
Nú eru kosningarnar afstaðnar og efstu
menn listanna geta hætt að hamast við að
koma sér upp málefnalegum ágreiningi og
farið að biðla hver til annars um meirihluta-
samstarf því náttúrlega var þessi ágreiningur
nánast enginn. Allir hafa líka unnið stórsigra,
bara ef fundin eru rétt viðmið. Hver er líka að
velta sér upp úr hugsjónum ef völd eru í boði?
Mörgum þóttu það nokkur tíðindi þegar Gísli
S. Einarsson gerðist bæjarstjóraefni Sjálfstæð-
isflokksins á Akranesi og af því tilefhi kvað
Georg á Kjörseyri:
Mikið er Císla magnaður þokki
og magaorgelspil.
Sigur er vís hjá Sjálfstæðisflokki.
- Samfylkingin hjálpar til.
Þetta gengur líka allt út á samvinnu og ekk-
ert nema gott um það að segja. Þannig á það
að vera.
Mörgum þykir pólitíkusar vera duglegir að
lofa fýrir kosningar en stundum verða efnd-
irnar minni. Ekki veit ég hvort sá ágæti mað-
ur sem Indriði Þorkelsson orti um hefur ein-
hvemtíman verið í sveitarstjóm en trúlega
hefur hann þá ekki verið á lista heldur kosinn
óhlutbundinni kosningu hafi svo verið:
Ekkert gott um Odd ég hermi.
- Eitt er samt.
Sína lofar hann upp í ermi
öllum jafnt.
Ekkert gott sér Oddur temur.
- Eitt er samt.
Engan svíkur hann öðrum fremur.
- Alla jafnt.
Meðan jafhréttið var ekki eins langt komið
og nú er þó ýmsum konum þyki hægt miða,
var skörungskvenmaður nokkur á Austurlandi
kosin í hreppsnefhd. Maður hennar var dugn-
aðarbóndi en lét konu sinni effir félagsmála-
vafstrið og hafði sig lítt í frammi af bæ en
sinnti eigin búskap því betur. Þá kvað Hjálm-
ar Guðmundsson í Fagrahvammi:
Athygli honum enginn veitir
þó ötull sé hann við búskapinn.
Menn vita tœplega hvað hann heitir,
- hreppsnefndarkonumaðurinn.
Stundum er sagt að hver þjóð fái þá ríkis-
stjórn sem hún verðskuldar og þá væntanlega
á sama hátt hvert sveitarfélag þá sveitarstjórn
sem það á skilið. Stundum verður manni samt
á við að heyra í stjórnmálamönnum fýrir
kosningar að hugsa eitthvað sem svo. „Nei
eigum við virkilega ekkr skilið eitthvað skárra
en þetta.“ Ekki man ég hvort ég hef nokkurn-
tíman heyrt nafn á höfundi eftirfarandi
klásúlu sem má lesa hvort heldur er sem vísu
eða laust mál:
Allir flokkar sýnast sam -
sekir um alveg framúrskar -
andi mikla fíflsku í fram-
ferði sínu um kosningar.
Þó einhverjum kunni að detta annað í hug
þá efast ég ekki um það að allir frambjóðend-
ur vilji af heilum hug vinna vel og vilji sínu
samfélagi allt hið besta. Menn greinir bara á
um aðferðirnar. Einhvemtíma var sagt að
sveitarstjórnarstörf væru dæmigerð kvenna-
störf; erfið, vanþakklát og illa launuð. Þar af
leiðir að þeir geta varla lofað forsjónina nóg-
samlega sem vom svo ljónheppnir að ná ekki
kjöri. Um það leyti sem fýrstu kosningar
stóðu fýrir dyram í Borgarfjarðarsveit fór að
kvisast hverjir væra að koma saman lista. Þá
orti Vigfús Pétursson:
Þetta verður fríður flokkur,
frœgðarsólin óðum rís.
Valið lið sem varla nokkur
viti borinn maður kýs.
Varla þarf að geta þess að listinn hlaut yfir-
burða kosningu.
Þeir Eiríkur Einarsson ffá Hæli og Jörund-
ur Brynjólfsson í Kaldaðarnesi voru andstæð-
ingar í pólitík og eitthvert sinn eftir kosning-
ar þegar Jörundur hafði farið með sigur af
hólmi kvað Eiríkur:
jafnan sigrar jörundur,
játum vorar nauðir.
Hann er fjár og fjörhundur
en fólkið mestu sauðir.
Oft hafa farið glettur á milli manna í póli-
tíkinni og mismikil alvara að baki. Jón Pálma-
son á Akri orti um Eystein Jónsson ráðherra:
Eysteinn hann má eiga það,
öðrum fremur hinum.
Hann hefur svikist aftan að
öllum sínum vinum.
Menn era og hafa alla tíð verið misjafhlega
máli farnir, svo stjórnmálamenn sem aðrir.
Sumir hafa málkæki sem andstæðingar þeirra
eða jafnvel bara einhverjir gamansamnir ná-
ungar hafa gaman af að velta sér upp úr. A
stjórnmálafúndi á Siglufirði ortu þeir í félagi,
Stefán Stefánsson frá Móskógum og Gísli O-
lafsson firá Eiríksstöðum, undir ræðu Péturs
Jónssonar ffá Brúnastöðum í Fljótum:
Að efninu ég kem, kem, kem,
kannske ef menn skilja.
En takmarkið er sem, sem, sem,
Siglfirðingar vilja.
Lýðræðið er réttur meirihlutans til að hafa
rangt fýrir sér sagði einhver, hvað sem er nú
til í því. Ekki veit ég hver orti eftirfarandi en
mér finnst ekki ólíklegt að þarna sé átt við
hinn þekkta „Löngumýrarskjónu Björn“.
Allavega sé ég ekki í fljótheitum aðra sem era
líklegri til að hafa hlotið slík skeyti, hvert
sönnunargildi sem mínar skoðanir hafa nú í
því máli:
Lýðrœðið er sem Ijós í vindi,
lítið er þar um skjól og vörn.
Þó eru mikil mannréttindi,
að maður þarf ekki að kjósa Björn.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Refsstöðum 320 Reykholt
S435 1367 og 849 2715
dd@simnet.is