Skessuhorn


Skessuhorn - 16.08.2006, Síða 1

Skessuhorn - 16.08.2006, Síða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI Virka daga 10-19 Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18 nettö alltaf gott - alltaf ódýrt 33. tbl. 9. árg. 16. ágúst 2006 - Kr. 400 í lausasölu I Flatey var á árum áður mjög blómlegt athafhalif og þar hefur verið stunduð verslunfrá á miðóldum. Þó heilsárs búseta í eyjunni hafi að mestu lagst af er mikið mannlíf þar á sumrin. Þessi ungi herra, Hilmar Þór, eyðir stórum hluta sumarsins hjá ómmu sinni og afa í Flatey. Þar stundar hann verslunarstörf en hann selur gestum og öðrum ferðamönnun skeljar.; lundalappir og heimatilbúna sultu. Hann sagði blaðamanni, sem leið átti um eyjunafyrr íþessum mánuði að vel gengi að selja vaminginn og væri þá alveg sama hvemig viðraði. I þorpinu á Flatey hefur svipmót gamla tímans að miklu leyti haldið sér. Hilmar Þór setur óneitanlega skemmtilegan svip á mannlífið í eyjunni og tekur alla sem heimsækja eyjuna aftur í tímann. K00 Talsverður samdráttur í fasteignaviðskiptum á Akranesi Breytt bæjarmála- samþykkt stendur Félagsmálaráðuneytið hefur úrskurðað að málsmeðferð sem viðhöfð var við breytingar á bæjarmálasamþykkt Snæfells- bæjar hafi uppfyllt skilyrði sveitarstjórnarlaga. Mun ráðu- neytið því staðfesta samþykkt- ina. Það var Gunnar Orn Gunn- arsson bæjarfulltrúi minnihluta bæjarstjórnar sem sendi ráðu- neytinu stjórnsýslukæru þann 4. júlí s.l. á hendur meirihluta bæjarstjórnar og bæjarstjóra þar sem karfist var að ráðu- neytið hafnaði umræddum breytingum. Upphaflega hafði bæjarstjórn samþykkt um- ræddar breytingar að lokinni seinni umræðu þann 27. apríl 2006. Áður en ráðuneytið hafði staðfest þá breytingu samþykkti bæjarstjórn frekari breytingar að lokinni fyrri um- ræðu á fundi þann 15. júní. Þar sem bæjarstjórn samþykkti einnig á þessum fundi tillögu um sumarfrí í júlí og ágúst var málinu vísað til seinni umræðu í bæjarráði, sem bæjarstjórn hafði veitt fullt umboð til starfa sem bæjarstjórn. Við þá afgreiðslu bókaði Gunnar Örn hörð mótmæli við því að seinni umræða færi fram í bæjarráði en ekki bæjarstjórn. Vísaði hann meðal annars til samtals við „lögmann félags- málaráðuneytisins og lögmann samtaka sveitarfélaga sem báð- ir efuðust um réttmæti þess að færa þessa umræðu yfir í bæjar- ráð í sumarleyfi bæjarstjórnar" sagði m.a. í bókuninni. m ATLANTSOLIA Dísel *Faxabraut 9. í síðasta mánuði var þinglýst 13 kaupsamningum í fasteignavið- skiptum á Akranesi. Er það tals- verður samdráttur frá því í mánuð- inum á undan þegar þinglýst var 27 samningum. Þetta kemur ffam í samantekt frá Fasteignamati ríkis- ins. Mikill samdráttur hefur einnig orðið í mörgum öðrum sveitarfé- lögum á sama tíma. Rétt er þó að geta þess að í júlímánuði í fyrra var einungis þinglýst 10 kaupsamning- um á Akranesi. Fasteignamat ríkisins hóf í apríl á síðasta ári að birta tölur yfir þing- lýsta kaupsamninga ffá mánuði til mánaðar á Akranesi. Ef bornar eru saman tölur síðustu ijögurra mán- aða í ár og á sama tíma í fýrra kem- ur talsverður samdráttur í ljós. Frá því í apríl til loka júlí í fyrra var 122 kaupsamningum þinglýst á Akra- nesi eða rúmlega 30 samningum á mánuði. Sömu mánuði þessa árs var þinglýst 73 samningum eða rúm- lega 18 samningum á mánuði. Sam- drátturinn er því ríflega 40%. Eins og ffam kom í ffétt Skessu- horns í júlí voru þá merki um að hægt hefði á húsnæðismarkaði og ýmis teikn á loffi um lækkandi fast- eignaverð á Akranesi m.a. vegna breytinga á útlánareglum og mikils ffamboðs á nýju húsnæði. Má í þessu sambandi nefna að nokkrar eignir hafa verið á söluskrá um margra mánaða skeið. Þá virðist sem lækkun sé að einhverju leyti að koma ffam því sjá má á fasteigna- auglýsingum að ýmsar fasteignir hafa verið lækkaðar í verði. Sem dæmi má nefna eldra einbýlishús sem í janúar var auglýst til sölu fyr- ir 28,3 milljónir króna er nú skráð á 21,5 milljónir króna. Þá eru dæmi um fasteignaeigendur sem tekið hafa eignir sínar af sölu vegna lítill- ar eftirspurnar. KOP Einn prammanna að störfum í Hraunsfirði. Ljósm.: Sverrir Karlsson. Þang- skurðar- prammar í Hrauns- firði Vegfarendur sem leið áttu um Hraunsfjörð á Snæfells- nesi á dögunum ráku upp stór augu þegar þeir sáu torkenni- leg tæki við störf skammt frá landi. Við fýrstu sýn virtust vera um að ræða skurðgröfur en þegar nánar var að gáð kom í Ijós að þarna voru komnir þangskurðarprammar í eigu Þörungaverksmiðjunn- ar á Reykhólum. Að sögn Halldórs Ó. Sigurðssonar framkvæmdastjóra verksmiðj- unnar er þetta ekki í fýrsta skipti sem prammarnir fara svo langan veg til þangskurð- ar. Síðast hafi þeir að öllum líkindum verið í Hraunsfirði fýrir fjórum árum en það er sá tími sem þangskurðarsvæði eru að jafhaði hvíld að skurði loknum. Þegar fara þarf með prammana svo langan veg ffá verksmiðjunni á Reykhólum ferjar flutningaskipíð Karlsey, sem er í eigu Þörungaverk- smiðjunnar, þá á milli svæða. HJ

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.