Skessuhorn - 16.08.2006, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2006
»ik£S9Utlu»J 1
Til minnis
Skessuhorn minnir á Danska
daga sem haldnir verða í
Stykkishólmi um komandi
helgi.
Ve5tirhorfnr
Hægviðri og víða léttskýjað á
fimmtudag en dálítil súld Vest-
anlands. Snýst í sunnanátt á
föstudag, víða rigning eða súld
sunnan- og vestantil um helg-
ina en bjart með köflum og
hlýtt á norðaustanverðu land-
inu.
Spttrnin^ viK^nnar
í síðurstu viku var spurt á
Skessuhorn.is; „Hafa um-
hverfismál á þínum slóðum
lagast í sumar?" Rúmlega
38% svarenda segja þau alls
ekki hafa lagast, rúmlega 23%
segja þau sennilega ekki hafa
lagast, rúmlega 13% svarenda
vita það ekki, tæplega 13%
segja þau líklega hafa lagast
og lokum sögðu einnig tæp-
lega 12% svarenda að þau
hafi tvímælalaust lagast.
í næstu viku spyrjum við:
„Nœr ÍA að halda
sœti sínu í efstu
deild í
knattspyrnu?"
Svaraðu án undanbragða
á www.skessuhorn.is
Vestlenciiníjwr
viK^nnar
Skessuhorn útnefnir að þessu
sinni Vestlending vikunnar
hinn óþekkta ökumann sem í
einu og öllu hefur farið að
ákvæðum umferðarlaga og
sýnt þar með samborgurum
sínum afar tímabært fordæmi.
Benedik!
Sýnt í
í
Uugard, 19. ágúst M. 20 uppselt
Sunnud. 20. ágúst kl. 15 ðrfá sarti laus I
Sunnud. 20. ágúst kl. 20 ðrfá sæti laus |
Föstud. 25. ágúst Id. 20 ðrfá sæti laus
Laugard. 26. ágúst M. 15 uppselt
Laugard, 26. ágúst M. 20 uppselt
Laugard. 2. september M. 20
Sunnud. 3. september M. 15
Sunnud. 3. september H. 20
Sta^esta þatf miða msð greiðslu
uiku fyrir sýníngatdag
LEIKHÚSTIIB00 TvtretUiúur k\oldvvrúur t>t* lcikhusmíöi kr. 4300 - 480Q.~ MIOAPSNIANIR f SiMA 55Í 1600 w 5SLYVÍÁ
Búist við talsverðrí
hækkun fasteignamats
í Grundarfirði
Skólablað í
næstu ríku
Næsta tölublað Skessuhorns
verður helgað skólamálum enda
skólar landsins að hefjast á ný
efir sumarleyfi. I blaðinu verð-
ur gerð úttekt á skólum í fjjórð-
ungnum og hugað almennt að
málefnum skólanna.
Þeim auglýsendum sem vilja
nýta sér þá umfjöllun er bent á
að hafa samband við auglýs-
ingadeild í síma 433-5500 eða
senda póst á netfangið
katrin@skessuhorn.is
-KÓP
Búist er við talsverðri hækkun
fasteignamats í Grundarfirði í kjöl-
far endurmats Fasteignamats ríkis-
ins á fasteignum þar. Endurmatið
fer ffam að beiðni Grundarfjarðar-
bæjar eftir að í ljós kom mikið
ósamræmi í verðmætamati ein-
stakra eigna og lóða. Endurmatinu
er nú að ljúka og síðar í mánuðin-
um mega fasteignaeigendur búast
við tilkynningu um nýtt mat eigna.
I framhaldinu geta húseigendur
gert athugasemdir við matið. End-
anlegt fasteignamat mun síðan taka
gildi 1. nóvember.
Fasteignamat er sem kunnugt er
grunnur að álagningu fasteigna-
skatta sveitarfélaga og að því er
kemur fram á vef Grundarfjarðar-
bæjar mun bæjarstjórn taka álagn-
ingu sína til endurskoðunar fýrir
næsta ár með hliðsjón af þeim
breytingum sem verða við endur-
matið. HJ
Fjánnálafyrirtæki styrkja
nám á Bifröst
Benedikt Gíslason, Straumi - Burðarási, Bemhard Þór Bemhardsson , forseti viðskipta-
deildar og Haukur Oddsson, Glitni, undirrita styrktarsamninginn.
Við setningu meistaranáms á Bif-
röst síðastliðna helgi var undirrit-
aður samningur á milli skólans og
fýrirtækjanna Glitnis og Straums -
Burðaráss. Samningurinn felur í sér
að fýrirtækin munu styrkja meist-
aranám í bankastarfsemi, fjármál-
um og alþjóðaviðskiptum. Fyrir-
tækin leggja ffam hvort um sig
tvær og hálfa milljón á ári í þrjú ár
eða samtals 15 milljónir króna.
Þessir fjármunir verða notaðir til
þess að styrkja prófessorsstöðu í
bankaviðskiptum við viðskiptadeild
skólans og munu þannig stuðla að
auknum rannsóknum á íslenskum
fjármálafýrirtækjum og á íslensku
fjármálalífi. Gert er ráð fýrir að
MS-nám í bankastarfsemi, fjármál-
um og alþjóðaviðskiptum verði
stefnumiðað og stefnt er að því að
höfða til þeirra sem hafa áhuga á að
starfa í fjármálafyrirtækjum eða við
fjármál í fyrirtækjum í miklum al-
þjóðaviðskiptum. Við ákvörðun um
innihald námsins var litið til sam-
bærilegs náms við erlenda háskóla
enda um alþjóðlega atvinnugrein
að ræða en fáir markaðir eru jafh
alþjóðlegir og fjármálamarkaðir.
Töluverður hluti kennslunnar mun
fara fram á ensku enda lögð áhersla
á að fá öfluga erlenda kennara. Þar
má helst nefna Edinborgarháskóla
og State University of New York.
Einnig eru fengnir kennarar frá
þekktum erlendum fjármálafyrir-
tækjum svo sem Bear Stearns fjár-
festingabankanum og Dow Jones
Corporation en einnig munu sér-
fræðingar íslenskra fjármála- og
ráðgjafafýrirtækja koma að.
-KÓP
Lóðin sem um rœðir er rnesta lóð við framkvœmdasvæði Bónusverslunarinnar.
S
Akvörðun bæjaryfirvalda staðfest
Félagsmálaráðuneytdð hefur
kveðið upp úrskurð í kæru Blikk-
verks sf. og Gísla Stefáns Jónssonar
ehf. á hendur Akraneskaupstað.
Kæran snéri að vilyrði fýrir úhlutun
lóðar við Smiðjuvelli 17 sem Akra-
neskaupstaður veitti Bílási ehf.
Kærendur höfðu sótt tun lóðina og
kröfðust þess að ákvörðun bæjarins
væri úrskurðuð ólögmæt og felld úr
gildi. Kærendur fundu það helst að
málsmeðferð bæjaryfirvalda að
samið var við Bílás um úthlutun
lóðarinnar án undangenginnar aug-
lýsingar og þannig hafi jafnræðis-
regla stjórnarskrárirmar verið brot-
in, enda hafi bæjaryfirvöldum átt að
vera kunnugt um áhuga þeirra á
lóðinni. Þá telja þeir m.a. að vinnu-
reglur Akraneskaupstaðar um út-
hlutun lóða hafi verið brotnar.
Félagsmálaráðuneytið fellst ekki
á þessi sjónarmið og úrskurðar að
ákvörðun bæjaryfirvalda skuli
standa óhögguð. Ráðuneytið fellst
á þær skýringar Akraneskaupstaðar
að Bílás ehf. hafi þegar ákvörðunin
var tekin staðið ffam kærendum
með tilliti til þáverandi húsnæðis-
aðstæðna og fýrri umsókna. Auk
þess telur ráðuneytið að bæjaryfir-
völd hafi heimild til að víkja frá
reglum um auglýsingar lóða, enda
kveði grein 3.4 í úthlutunarreglum
Akraneskaupstaðar á um að bæjar-
ráði sé í sérstökum tilvikum heimilt
að veita vilyrði fyrir lóðum án aug-
lýsinga þegar sótt er um lóðir innan
skipulagðra svæða eða á óskipu-
lögðum svæðum.
Félagsmálaráðuneytið beinir því
þó til bæjaryfirvalda að skýra reglur
hvað varðar þessa vmdantekningu á
þeirri meginreglu að auglýsa lóðir.
Ráðuneytið telur að regla 3.4 sé
ekki nógu skýr og gagnsæ svo borg-
ararnir geti treyst því að ákvarðanir
sem teknar séu á gnmdvelli hennar
séu byggðar á málefnalegum sjón-
armiðum og telur að í henni verði
að vera leiðbeiningarsjónarmið um
hvenær teljist rétt að beita henni.
-KÓP
Leik flýtt í
Landsbanka-
deildinni
FÓTBOLTINN: Vegna und-
anúrslita í Visa bikarkeppni
karla í fótbolta dagana 28. og
29. ágúst hefur leik IA og
Keflavíkur sem vera átti sunnu-
daginn 27. ágúst í Landsbanka-
deild karla verið flýtt og fer
leikurinn fram á Akranesvelli
fimmtudaginn 24. ágúst klukk-
an 18. -mm
Gistinóttum
fjölgar
LANDIÐ: Fjölgun varð á
gistinóttum á hótelum í júní um
8% á milli ára á landsvísu.
Hlutfallslega mest fjölgun var á
svæðinu Suðurnes, Vesturland
og Vestfirðir, eða um 17%, úr
12.100 í 14.100. Innlendum
ferðamönnum fjölgar meira en
erlendum, en Islendingum
fjölgaði um 22% en útlending-
um um 5% á landsvísu. Nokkur
fjölgun varð á gistirými, her-
bergjum fjölgaði um 2% en
rúmum um 1% og fjöldi hótela
fór úr 73 í 75. Gistinóttum
fyrstu sex mánuði ársins hefur
fjölgað um 10% miðað við
sama tíma í fýrra og varð fjölg-
unin hlutfallslega mest á Suð-
urnesjum, Vesturlandi og Vest-
fjörðum eða 26%, úr 36.700 í
46.100. 11% fjölgun má rekja
til Islendinga en 9% til erlendra
ferðamanna. -kóp
Enn eykst
umferð
HVALFJARÐARGÖNG: Um
liðna verslunarmannahelgi var
15% meiri umferð um Hval-
fjarðargöng en um sömu helgi í
fyrra. Þetta kemur fram á vef
Spalar. I júlí jókst umferð um
tæp 6% miðað við sama mánuð
í fýrra og frá október 2005 til
loka júlí 2006 jókst umferð um
13 % miðað við árið á undan. I
því sambandi er rétt að geta
þess að í tölum fyrra árs er stór
hluti umferðar verslunar-
mannahelgarinnar þar sem frí-
dagur verslunarmanna var þá 1.
ágúst. -hj
Borgarbyggð
styrkir
Snorrastofu
BORGARBYGGÐ: Byggða-
ráð Borgarbyggðar samþykkti á
dögunum að greiða Snorrastofu
í Reykholti 900 þúsund krónur
í framlag á árinu 2006. Á und-
anfömum ámm hefur Héraðs-
nefnd Mýrasýslu veitt framlag
til Snorrastofu en vegna breyt-
inga á sveitarfélagaskipan í sýsl-
unni var ekki gerð fjárhagsáætl-
un fýrir Héraðsnefhdina á árinu
2006. -hj
Ekið utan í
gangnavegg
HVALFJARÐARGÖNG:
Fólksbíl var ekið utan í gangna-
vegg Hvalfjarðarganga á
sunnudaginn var. Tvennt var í
bílnum en engin meiðsl urðu á
fólki. Ekki þurfti að loka göng-
unum en umferð var stýrt í
gegnum þau í eina átt í einu og
gekk hún afar hægt um tíma.
-kóp