Morgunblaðið - 02.05.2019, Side 2

Morgunblaðið - 02.05.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019 a. 595 1000 Lignano Ítalía Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a 13. júní í 11 nætur Frá kr. 139.995 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Forystufólk verkalýðshreyfingar- innar lagði áherslu á það í ávörp- um sínum á baráttudegi verkalýðs- ins í gær, 1. maí, að baráttunni fyrir bættum kjörum lyki aldrei. Það endurspeglaðist í því að nú, rétt eins og fyrir heilli öld, væri til að mynda enn barist fyrir góðu húsnæði á viðráðanlegu verði. Þá væri enn jafn satt nú og þá að eina leið fólks til að sækja bætt lífskjör væri að standa saman. Drífa Snædal, forseti ASÍ, und- irstrikaði þetta í ræðu sinni á há- tíðarfundi stéttarfélaga á Norður- landi í Hofi á Akureyri. Þá sagði hún að misrétti hefði aukist til muna síðustu áratugi og að þrátt fyrir þrefalt meiri framleiðni í heiminum nú en fyrir tuttugu ár- um skilaði sá auður sér ekki til vinnandi fólks. „Þvert á móti hefur hann ratað í vasa ótrúlega fárra einstaklinga sem hafa svo getað breytt leik- reglum samfélagsins til að verða enn ríkari,“ sagði Drífa, en í ávarpi á heimasíðu sambandsins lýsti hún einnig áhyggjum yfir stöðu lýðræð- isins. Þróun sundrungar sagði hún hafa leitt til þess að traust til lýð- ræðisins færi þverrandi. Að ala á andúð gagnvart minnihlutahópum og etja þeim saman væri gömul saga og ný, en slíkar tilraunir mættu ekki hafa vinninginn. Bar- áttan væri um að skipta ætti auðn- um með sanngjörnum hætti. Drífa sagði jafnframt að verka- lýðshreyfingin hér hefði undir- strikað sérstöðu sína í aðdraganda kjarasamninga. Þar hefðu kjörin í öðrum löndum ekki verið viðmiðið, heldur hvað okkur sjálfum þætti sanngjarnt og réttlátt. Það kæmi íslensku verkalýðshreyfingunni í fremstu röð. Sniðganga skuli fyrirtækin Ragnar Þór Ingólfsson, formað- ur VR, sagði ávarpi sínu að vinnu væri hvergi nærri lokið þrátt fyrir samkomulag í kjaraviðræðum. Nú hæfist hin eiginlega vinna að fylgja eftir þeim málum sem samið var um til að bæta lífskjör. Þar yrði ekkert gefið eftir og vanefndum svarað af fullri hörku, þar sem hvatt yrði til þess að sniðganga þau fyrirtæki sem hunsa vegferð verkalýðshreyfingarinnar með verðhækkunum. Ragnar sagði umræðuna sem ríkti hér á landi í tengslum við verkföll ekki endurspegla stöðuna sem nú er uppi í nágrannalöndum. Það sæist meðal annars í kringum verkföll flugmanna norræna flug- félagsins SAS. Ragnar sagði að ferðaþjónustufyrirtæki og leið- arahöfundar stærstu miðla þar ytra ásamt talsmönnum sérhags- muna væru ekki „organdi eins og smábörn um meint yfirvofandi endalok“ í lækkandi hagvexti, verð- bólgu eða öðru. „Þess vegna megum við ekki trúa lyginni og svívirðilegum áróðri fámennra en valdamikilla hagsmunaafla í okkar samfélagi,“ sagði Ragnar. Niðurstaða lífs- kjarasamninganna hefði verið ásættanleg, en ekki endapunktur í baráttunni. Munu berjast árið um kring Sólveig Anna Jónsdóttir, formað- ur Eflingar, undirstrikaði að upp- risa verkalýðsins í kjarabaráttunni í vetur hefði varpað ljósi á þá for- herðingu og firringu sem mætir verkalýðnum hér á landi. Talsmenn óbreytts ástands skyldu nú venjast því að verkalýðurinn yrði ekki að- eins í baráttuhug einu sinni á ári. „Við ætlum ekki lengur að fórna okkur sjálfum fyrir þjóðfélag þar sem fámenn yfirstétt greiðir sjálfri sér milljarða í fjármagnstekjur á meðan fjöldi fólks fær aldrei um frjálst höfuð strokið, þar sem börn auðmanna fjárfesta í lúxusíbúðum á meðan börn þeirra sem búa við ofbeldi skortsins eru á hrakhólum,“ sagði Sólveig. Fagnar styttingu vinnuviku Sonja Ýr Þorbergsdóttir, for- maður BSRB, sagði árangurinn lít- inn í áralangri baráttu fyrir bætt- um vinnutíma. Auk þess væru meiri kröfur á launafólk og því hefði kulnun og streita aukist sam- hliða auknu álagi í samfélaginu. Stytting vinnuvikunnar í lífs- kjarasamningnum væri því fagn- aðarefni og yrði ein helsta krafa opinberra starfsmanna. Baráttu verkalýðs lýkur aldrei  Verkalýðshreyfingin berst enn fyrir mörgum sömu kröfum og fyrir heilli öld, segir forseti ASÍ  Verðhækkunum í kjölfar kjarasamninga verður mætt af hörku  Fleiri krefjast styttri vinnuviku Morgunblaðið/Hari Ingólfstorg Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, horfir yfir mannfjöldann á fjölmennum útifundi í gær. Morgunblaðið/Hari Kröfuganga Í Reykjavík var gengið niður Laugaveg og Austurstræti undir blæstri lúðrasveita venju samkvæmt. Ragnar Þór Ingólfsson, formað- ur VR, segist líta svo á að fyrir- tæki sem auglýsi sérstök tilboð á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí, grafi undan samstöðu verkalýðshreyfingarinnar þar sem verið sé að letja fólk til þess að sýna samstöðu í verki. „Þetta er ósvífið og til skammar fyrir þessi fyrirtæki. Fyrirtækin geta verið með tilboð alla aðra daga ársins og það að geta ekki leyft okkur að eiga þennan dag í friði er dapurlegt. Fyrir mitt leyti mun ég ekki stíga fæti framar inn í þessi fyrirtæki nema þau láti af þessu,“ sagði Ragnar. Hann segir eitt baráttumálið í kjarasamningaviðræðunum hafa verið að gera 1. maí að stórhátíðardegi hér á landi. „Við þurfum svo sannarlega að skerpa á þeirri kröfu næst,“ segir Ragnar. Ósvífið og til skammar AUGLÝST TILBOÐ 1. MAÍ Morgunblaðið/Þorgeir Akureyri Gengið var fylktu liði frá Alþýðuhúsinu og í áttina að Menningar- húsinu Hofi þar sem haldinn var hátíðarfundur stéttarfélaga á Norðurlandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.