Morgunblaðið - 02.05.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019
sp
ör
eh
f.
Sumar 30
Töfrandi ferð um Móseldalinn þar sem rómantík og
náttúrufegurð lætur engan ósnortinn. Við dveljum í Tríer,
sem er elsta borg Þýskalands, og förum þaðan í heillandi
ferðir m.a. til bæjarins Bernkastel-Kues, á vínhátíð í
Zeltingen og til glæsilegu borgarinnar Koblenz þar sem við
förum í skemmtilega siglingu á Mósel. Við trompum þessa
glæsilegu ferð í stórhertogadæminu Lúxemborg.
5. - 12. september
Fararstjórn: Kristín Jóhannsdóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 212.600 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Mósel & Rín
sem hefur verið
vilji íslenskra
stjórnvalda í ára-
tug hið minnsta,“
segir Guðlaugur
Þór.
Í janúar var til-
kynnt að stigin
hefðu verið fyrstu
skrefin í átt að
loftferðasamningi
á milli Íslands og
Japan og á síðasta ári tók tvískött-
unarsamningur gildi á milli
ríkjanna.
Mikilvægi Íslands er að aukast
Spurður hvað valdi því að nú hafi
náðst samkomulag um viðræður um
fríverslunarsamning, fyrst stefnt
hafi verið að því um langa hríð, segir
Guðlaugur það vera vegna mikillar
vinnu íslenskra stjórnvalda og gagn-
kvæms vilja frá Japan.
„Það gerist ekkert af sjálfu sér og
það er mjög ánægjulegt að sjá að
það starf sem við höfum verið að
vinna er að skila árangri. Við erum
lítill markaður en ég hef lagt áherslu
á að mikilvægi Íslands er að aukast.
Það hefur verið markmið mitt síðan
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Íslensk sendinefnd úr utanríkis-
ráðuneytinu er á leið til Tókýó í
byrjun næsta mánaðar til þess að
hefja viðræður um mögulegan frí-
verslunarsamning milli Íslands og
Japan. Guðlaugur Þór Þórðarson ut-
anríkisráðherra segir það hafa verið
markmið sitt að efla samskiptin við
Japan síðan hann tók við embætti og
það sé nú að skila sér.
Íslenska sendinefndin heldur til
Tókýó 6. júní, en þangað munu fara
fulltrúar frá ráðuneytinu með sér-
þekkingu á viðskiptamálum. Vonir
standa til að það viðskiptasamráð
sem þar mun hefjast muni svo leiða
til fríverslunarsamnings.
„Við höfum átt í einstaklega góð-
um samskiptum við Japan, en nú er-
um við komin á veg með viðskipta-
málin og loftferðamálin. Við höfum
ýtt mjög fast á eftir því að fá frí-
verslunarsamning og nú erum við
loks farin af stað, en hversu langan
tíma þetta mun taka og hver niður-
staðan nákvæmlega verður á eftir að
koma í ljós. En þetta er fyrsta skref-
ið og gríðarlega ánægjulegt skref,
ég tók við að efla samskiptin við Jap-
an og það hefur skilað sér nú þegar.
Vonandi mun það bera enn frekari
ávöxt,“ segir Guðlaugur, sem fór í
opinbera heimsókn til Japan á síð-
asta ári. Í kjölfarið kom japanskur
kollegi hans, Taro Kono, hingað til
lands og varð um leið fyrsti japanski
utanríkisráðherrann sem það gerir.
Ræða einnig við Bandaríkin
Á sama tíma og fulltrúar utanrík-
isráðuneytisins verða í Tókýó að
ræða viðskiptamál mun bandarísk
sendinefnd koma hingað til lands til
þess að ræða sama hlut á milli Ís-
lands og Bandaríkjanna. Guðlaugur
útskýrir að Ísland njóti bestu kjara í
viðskiptum við Bandaríkin þó frí-
verslunarsamningur sé ekki í gildi á
milli ríkjanna. Vonir standa þó til að
slíkar viðræður fari af stað, en
undirbúningur viðræðna hófst þegar
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, kom hingað í stutta
heimsókn 15. febrúar síðastliðinn.
„Þá ákváðum við að hafa efna-
hagssamráð, sem ég vona sömuleiðis
að muni leiða til fríverslunarsamn-
ings,“ segir Guðlaugur Þór Þórðar-
son utanríkisráðherra.
Hefja viðræður við Japan
um fríverslunarsamning
Stórt og mikilvægt fyrsta skref, segir utanríkisráðherra
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Reynslan sem fengist hefur af notk-
un dróna til eftirlitsflugs frá Egils-
staðaflugvelli lofar góðu, að sögn
Georgs Kr. Lárussonar, forstjóra
Landhelgisgæslu Íslands (LHG).
„Við bindum miklar vonir við
þetta tæki og þá möguleika sem það
gefur,“ sagði Georg. „Við erum
ábyrg fyrir leitar- og björgunar-
svæði sem er 1,9 milljónir ferkíló-
metra. Þá er efnahagslögsaga okkar
760 þúsund ferkílómetrar og marg-
falt stærri en landið sjálft. Skipaum-
ferð hefur stóraukist á okkar svæði
og mun aukast enn meira á komandi
árum. Okkur veitir ekki af að nýta
alla fáanlega tækni til þess að hafa
yfirsýn og geta stundað eftirlit, leit
og björgun á þessu stóra svæði. Við
erum því ákaflega spennt fyrir þess-
ari nýju drónatækni.“
Þriggja mánaða tilraun
Dróninn fór í fyrsta eftirlitsflugið
17. apríl frá Egilsstaðaflugvelli.
Hann verður gerður þaðan út fram í
júlí og reyndur við íslenskar aðstæð-
ur. Um er að ræða tilraunaverkefni
LHG og Siglingaöryggisstofnunar
Evrópu (EMSA). Sextán manna
hópur fylgir drónanum, tæknimenn
og flugmenn sem fjarstýra drónan-
um um gervihnött. Starfsmenn LHG
fylgjast með og læra.
Dróninn er af gerðinni Hermes
900, smíðaður í Ísrael til borgara-
legra eftirlitsstarfa. Hann er með 15
metra vænghaf, vegur rúmt tonn,
hefur um 800 sjómílna (1.482 km)
flugdrægni og getur verið samfleytt
á lofti í tólf klukkustundir. Dróninn
getur flogið upp í 30.000 feta hæð en
fær ekki að fara hærra en í 10.000 fet
hér. Honum er aðallega flogið í 3-4
þúsund feta hæð. Dróninn getur
auðveldlega flogið að lögsögumörk-
unum milli Íslands og Færeyja og
aftur til baka. Hann flýgur á um 120
km/klst. hraða og er búinn afísing-
arbúnaði. Dróninn er með öfluga
myndavél og sendir myndir til
stjórnstöðvar í rauntíma. Þá verður
hann búinn fullkominni ratsjá á
næstu dögum. Hún getur fylgst með
skipaumferð í 180 km fjarlægð sé
flogið í 10.000 fetum.
Egilsstaðir henta vel
Egilsstaðir urðu fyrir valinu fyrir
tilraunaflugið vegna þess að ekki er
heimilt að fljúga slíku flugfari á suð-
vesturhorninu vegna umferðar um
Reykjavíkurflugvöll og Keflavíkur-
flugvöll. Góð aðstaða fyrir drónann
er í flugskýli ISAVIA á Egilsstöðum.
Dróninn er sá fyrsti sem EMSA
tekur til prófunar, að sögn Georgs.
Landhelgisgæslan sótti um aðkomu
að tilraunaverkefninu fyrir meira en
ári. Þá var strax hafist handa við
undirbúning hér á landi í samvinnu
við ýmsar stofnanir. Georg segir að
dróninn sé ekki búinn jafn öflugum
búnaði og TF-SIF, flugvél LHG, en
tækninni fleygi ört fram. Myndavél
drónans er öflug og kemur að góðum
notum við eftirlit með brottkasti
sjávarafla, með farþegabátum og
öðru sem litið er eftir. Dróninn hefur
nú þegar safnað miklum upplýsing-
um um umferð og athafnir skipa og
báta úti fyrir Austfjörðum frá því að
flug hans hófst. Ekkert af því hefur
þó gefið tilefni til lögreglurannsókn-
ar, enn sem komið er.
Drónar eru framtíðin
Georg sagði að dróninn sé við-
kvæmari fyrir hliðarvindi í flugtaki
og lendingu en flugvél LHG. Engu
að síður hefur hann reynst vel í þeim
aðstæðum sem hann hefur lent í.
„Við gerum ráð fyrir að þetta sé
framtíðin, þótt það verði ef til vill
ekki á allra næstu árum,“ sagði
Georg. „Það er mjög gott fyrir okkur
að fá að taka þátt í þessu þróunar-
verkefni. Við reiknum með því að
Landhelgisgæslan muni eignast
svona tæki í framtíðinni.“ Georg seg-
ir að kostnaðurinn við dróna sé enn
mikill en muni væntanlega lækka
með tíð og tíma. Þá megi vænta þess
að í framtíðinni verði rekstrarkostn-
aður dróna minni en mannaðra flug-
véla til eftirlitsstarfa.
Víðförull dróni vaktar hafsvæðin
Landhelgisgæslan tekur þátt í evrópskri tilraun með notkun eftirlitsdróna Verkefni í samvinnu við
Siglingaöryggisstofnun Evrópu (EMSA) Öflugur dróni fer í eftirlitsferðir frá Egilsstaðaflugvelli
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Egilsstaðaflugvöllur Dróninn getur verið á flugi í allt að tólf klukkustundir og flogið um 1.482 km vegalengd í hverri ferð. Hann flýgur 120 km/klst.
Dróni Vænghaf drónans er 15 metrar og hann vegur um eitt tonn. Í honum er fullkominn tækjabúnaður.