Morgunblaðið - 02.05.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019
ÞVOTTAHÚSINNRÉTTINGAR, FATASKÁPAR & RENNIHURÐIR
HÁGÆÐADANSKAR
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Nettoline fær 5 stjörnur frá
dönskum gagnrýnendum
styrkur - ending - gæði
OPIÐ:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Laugardagar kl. 09 til 15
ÚRVAL INNRÉTTINGAVIÐ HöNNUm OG TEIKNUm VöNDUÐ GÆÐAVARAGOTT SKIPULAG
Fá mál, ef nokkurt, virðast í eðlisínu svo vafasöm eða fráleit að
þau komist ekki í gegnum Alþingi ef
vinstrimenn setja þau í faglegan
búning og vefja í orðskrúð og auka-
atriði. Kjarni málsins er þá fljótur að
týnast og jafnvel þingmenn sem alla
jafna ættu að geta
séð hversu varasamt
mál er á ferðinni
annaðhvort missa af
því í orðagjálfrinu
eða missa fótanna af
ótta við árásir of-
samanna á interneti
eða annars staðar.
Í fyrradag skilaðimeirihluti
velferðarnefndar (!)
frá sér nefndaráliti
um frumvarp heil-
brigðisráðherra um
fóstureyðingar, sem heita reyndar
þungunarrof í frumvarpinu. Í stað
þess að senda frumvarpið aftur inn í
ráðuneytið kvittar meirihlutinn upp
á allt sem þar er, fyrir utan orðalag
á nokkrum stöðum til að reyna að
réttlæta þinglega tilveru sína.
Í frumvarpinu er þannig ennþágert ráð fyrir að leyfðar verði
fóstureyðingar til 22. viku með-
göngu og að konan sem gengur með
barnið hafi sjálfdæmi þar um en
læknisfræðin ekki.
Skyldi engan undra að Inga Sæ-land hafði þetta um málið að
segja þegar það var rætt í desember
síðastliðnum: „Ég hef í rauninni
aldrei talað um neitt í þessu háa Al-
þingi sem hefur stungið mig eins í
hjartað og þetta frumvarp. Aldrei.
Það er líka þannig um marga, ekki
bara konur í samfélaginu, heldur Ís-
lendinga í samfélaginu sem finnst
þetta vera siðferðilega rangt. Og að
við skulum voga okkur að leggja
þetta fyrir, það eru margir sem eiga
ekki eitt einasta aukatekið orð yfir
því og ég er ein af þeim.“
Inga Sæland
Hve langt má
ganga? Alla leið?
STAKSTEINAR
Svandís
Svavarsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Vidar Zahl Arntzen, verjandi Gunn-
ars Jóhanns Gunnarssonar, sem sak-
aður er um að hafa myrt hálfbróður
sinn, Gísla Þór Þórarinsson, í Noregi
um helgina, segir að skjólstæðingur
sinn hafi skotið Gísla fyrir slysni.
Þetta kom fram í viðtali mbl.is við
Arntzen í gærkvöldi.
Arntzen segir að Gunnar hafi vitj-
að bróður síns til að skamma hann en
hafi ekki farið til hans með það í
huga að bana honum. Hleypt hafi
verið af skotvopninu fyrir slysni í
hita leiksins. Þá segir Arntzen að
Gunnar sé „í rúst“ vegna þess sem
gerðist. Hann sat í gær með Gunnari
við margra klukkustunda yfir-
heyrslu hjá lögreglunni í Finnmörk.
Var þetta fyrsta yfirheyrslan sem
Gunnar samþykkti.
Arntzen segist ekki telja rétt að
kæra Gunnar fyrir manndráp af
ásettu ráði. Verði Gunnar sakfelldur
fyrir þann glæp gæti hann sam-
kvæmt norskum lögum átt yfir höfði
sér allt að 21 árs fangelsisdóm.
Arntzen segist ekki treysta sér til
að fullyrða hver næstu skref sín í
málinu verði.
„Öll lögreglurannsóknin er eftir,
lögreglan er enn að rannsaka vett-
vanginn og safna gögnum, við fetum
okkar næstu skref bara eftir því,“
segir hann.
Segir dauða Gísla hafa verið slys
Verjandi Gunnars J. Gunnarssonar
segir að hleypt hafi verið af fyrir slysni
Mehamn Gísli Þór Þórarinsson sem
var myrtur um helgina.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Fyrsta skóflustungan var í gær tek-
in að nýju húsnæði fyrir Brunavarn-
ir Rangárvallasýslu sem til stendur
að byggja. Bygging nýju slökkvi-
stöðvarinnar á Hellu er í umsjá BR
Sverrissonar ehf. en Brunavarn-
irnar festu nýlega kaup á iðn-
aðarhúsinu sem á að rísa.
„Þetta er góður áfangi fyrir okkur
Rangæinga,“ sagði Ágúst Sigurðs-
son, sveitarstjóri Rangárþings ytra,
um upphaf framkvæmdanna.
„Slökkvistöðin okkar á Hellu var
tekin í gagnið 1969 og er barn síns
tíma. Það var kominn tími á endur-
nýjun á aðstöðunni. Gamla slökkvi-
stöðin var komin inn í mitt íbúða-
hverfi. Þetta var mjög þröngt.
Búnaður sem notaður er í dag við
brunavarnir er auðvitað miklu um-
fangsmeiri og krefst betri aðstöðu
en var á sínum tíma.“
Ágúst sagði að nýja staðsetningin
við Suðurlandsveginn yrði einnig
hentugri til þess að slökkviliðið gæti
brugðist hratt og örugglega við út-
köllum. Gamla húsnæðið yrði líklega
selt og ágóðinn nýttur í nýju bygg-
inguna. Þá stakk hann upp á því að
gamla húsnæðið yrði hugsanlega
notað til að búa betur að Tónlistar-
skóla Rangæinga, sem er í sömu
byggingu og gamla slökkvistöðin.
Áætlað er að nýja slökkvistöðin
verði tekin í notkun vorið 2020.
Byggingu húsnæðisins muni ljúka í
nóvember en síðan verði unnið að
innréttingu og öðru sem snýr að sér-
hæfingu þess að slökkviliðsstarfi.
„Fyrst og fremst eykur þetta ör-
yggið og gerir þessa starfsemi alla
liprari,“ sagði Ágúst. Öll þrjú sveit-
arfélög Rangárvallasýslu standa á
bak við húsnæðisflutninginn og
Ágúst sagði góða samstöðu ríkja um
málið.
Bygging nýrrar
slökkvistöðvar hafin
Slökkvistöð Rang-
árvallasýslu flyst á
hentugri stað
Hella Fyrsta skóflustungan tekin að
byggingu nýju slökkvistöðvarinnar.