Morgunblaðið - 02.05.2019, Page 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019
KJALAR Hybrid jakki Kr. 18.990.-
SMÁRALIND
MÍA Tveggja laga regnjakki kr. 18.990.-
Þúsundir stuðningsmanna stjórnar-
andstæðingsins Juans Guaido svör-
uðu kalli hans um ný mótmæli á göt-
um borga Venesúela í gær.
Stuðningsmenn stjórnar Nicolas
Maduro efndu einnig til mótmæla á
alþjóðadegi verkalýðsins og ákvað
Maduro-stjórnin að loka fyrir notk-
un ýmissa samskiptamiðla.
Til nokkurra átaka kom milli mót-
mælenda og þjóðvarnarliða í ná-
grenni La Carlota-herstöðvarinnar í
Caracas, höfuðborg landsins. Beittu
stjórnvöld m.a. táragasi gegn mót-
mælendum sem reyndu að loka hrað-
braut.
Ekki nægan stuðning
Guaido hélt ræðu á mótmælafundi
stjórnarandstæðinga í gær og viður-
kenndi hann að ekki hefði fengist
nægilegur stuðningur innan raða
hersins á þriðjudag til þess að þvinga
Maduro úr embætti forseta. „Við
verðum að horfast í augu við það að í
gær voru ekki nægilega margir [her-
menn] sem studdu okkur,“ hefur
CNN eftir Guaido. Þá bætti hann
við: „Við höldum í þá kröfu að herinn
í heild verði með okkur. Við erum
ekki að biðja um átök. Við viljum
ekki átök milli bræðra, heldur öfugt.
Við viljum bara að þeir standi með
fólkinu.“
Á þriðjudag sendi Guaido, sem 50
ríki viðurkenna sem lögmætan leið-
toga Venesúela, frá sér myndband
þar sem hann sagðist hafa stuðning
innan hersins. Var hann á mynd-
bandinu með stjórnarandstæðingn-
um Leopoldo Lopez sem sagði her-
menn hafa bjargað sér úr
stofufangelsi. Maduro svaraði
myndabandinu með yfirlýsingu þar
sem hann sakaði stjórnarandstöðuna
um að hafa gert misheppnaða tilraun
til valdaráns.
Munu Bandaríkin stíga inn?
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í samtali við
Fox Business í gær að hernaðarleg
íhlutun Bandaríkjanna til þess að
styðja áform Guaido um að koma
Maduro úr embætti forseta Vene-
súela kæmi enn til greina. „Forset-
inn hefur verið alveg skýr og afdrátt-
arlaus. Hernaðarleg íhlutun er
möguleiki ef það er það sem þarf til.
Þetta er afstaða Bandaríkjanna.“
Pompeo fullyrti á þriðjudag á
CNN að Maduro hefði verið reiðubú-
inn til þess að flýja Venesúela, en að
hann hefði hætt við fyrir tilstilli
Rússa. Rússar hafa fyrir sitt leyti
vísað þessum ásökunum á bug og
sagði Sergei Lavrov, utanríkisráð-
herra Rússlands, við Pompeo í sím-
tali ráðherranna í gær að ágengar
aðgerðir Bandaríkjanna myndu hafa
í för með sér alvarlegar afleiðingar.
Jafnframt harmaði Lavrov það sem
hann kallaði ólögleg afskipti af inn-
anlandsmálum Venesúela.
Spennan eykst í Venesúela
Stjórnvöld lokuðu fyrir netmiðla Kastaðist í kekki milli stjórnarandstæðinga
og stuðningsmanna Maduro Bandaríkin segjast ekki útiloka hernaðaraðgerðir
AFP
Uppreisn Átök urðu milli mótmælenda og öryggissveita stjórnvalda sem beittu táragasi. Leiðtogi stjórnarandstæð-
inga hefur biðlað til hermanna að láta af stuðningi við stjórnvöld og standa með fólkinu í landinu.
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, tilkynnti Gavin William-
son varnarmálaráðherra á fundi
þeirra í gær að hún hefði fengið í
hendur niðurstöðu rannsóknar þar
sem voru afgerandi sönnunargögn
um að hann hefði lekið leynilegum
upplýsingum af fundi þjóðarörygg-
isráðs landsins. Var Williamson þá
rekinn úr embætti varnarmálaráð-
herra vegna trúnaðarbrests, að því
er segir í umfjöllun BBC. William-
son neitar að hafa lekið umræddum
upplýsingum.
Málið kom til rannsóknar eftir að
það rataði í fjölmiðla að til stæði að
heimila aðkomu kínverska fyrir-
tækisins Huawei að uppbyggingu
5G-nets í Bretlandi.
Penny Mordaunt hefur verið
skipuð varnarmálaráðherra. Hún
hefur verið þingmaður frá árinu
2010 og ráðherra frá 2014.
Varnarmálaráðherra
rekinn úr embætti
BRETLAND
Breskur dómstóll hefur dæmt
stofnanda Wikileaks, Julian Ass-
ange, til 50 vikna fangelsisvistar
fyrir að hafa brotið gegn skilyrðum
dómstólsins fyrir því að hann fengi
að halda frelsi sínu fram að réttar-
höldum vegna framsalsbeiðni
sænskra yfirvalda fyrir sjö árum,
þegar hann leitaði hælis í sendiráði
Ekvador í London.
Assange var handtekinn 11. apríl
síðastliðinn eftir að hafa verið vísað
úr sendiráðinu. Fyrir breskum
dómstólum bíður afgreiðsla fram-
salsbeiðni alríkisdómstóls í Banda-
ríkjunum. Talið er að Assange muni
berjast gegn framsalinu.
Assange hlaut 50
vikna fangelsisvist