Morgunblaðið - 02.05.2019, Side 30

Morgunblaðið - 02.05.2019, Side 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019 Afmælisbarn dags- ins, Ljósmæðrafélag Íslands, er 100 ára í dag. Þennan dag fyr- ir einni öld komu 20 ljósmæður saman á heimili Þórdísar El- ínar Carlquist ljós- móður og eiginmanns hennar, Axels Wil- helms Carlquist vindlagerðarmanns, á Laugavegi 20 í Reykjavík. Var þar stofnað fé- lag er hlaut nafnið Ljósmæðra- félag Íslands. Eiga ljósmæður á Íslandi því fyrsta stéttarfélag fag- lærðra kvenna hér á landi. Meðal markmiða félagsins var í upphafi að styrkja félagsanda ljósmæðra og glæða áhuga þeirra á öllu er að starfi þeirri lýtur. Allt frá stofnun félagsins hafa ljósmæður þurft að heyja erfiða baráttu til að fá mannsæmandi laun fyrir gríð- arlega ábyrgðarmikið starf. Ljós- mæðrafélag Íslands hefur gefið út Ljósmæðrablaðið frá árinu 1922 eða í 97 ár. Saga ljósmæðrastéttarinnar á Íslandi spannar langt tímabil og er samofin örlögum skjólstæðinga ljósmæðranna, það er konunum, nýfæddum börnum og fjölskyldum þeirra. Ljósmæðrafélag Íslands hefur áorkað miklu og er nú svo komið að Íslendingar eiga ein- hverjar best menntuðu ljósmæður í heiminum. Á þessum tímamótum er við hæfi að minnast formóður ljósmæðra á Íslandi, danskrar lærðrar ljósmóður sem kom hing- að til lands fyrir 258 árum, árið 1761, frá höfuðborg Íslands, Kaupmannahöfn, ásamt íslenskum eiginmanni sínum, Benedikt Magnússyni járnsmið, og 11 ára dóttur þeirra hjóna, Anne Margr- ethe. Danska ljósmóðirin, Margr- ethe Katrine Magnússen, hefur hingað til ekki fengið mikla at- hygli í sögubókum en tilgangurinn með komu hennar til Íslands var að kenna íslenskum konum réttu handtökin við að hjálpa fæðandi konum við að koma börnum sínum í heiminn. Margrethe Katrine átti aldrei afturkvæmt til síns heima- lands, Danmerkur, og hún bjó öll sín 44 ár hér á landi á Nesi við Seltjörn. Hún lést 19. júní árið 1805, þá 85 ára að aldri. Talið er að hún hafi tekið í það minnsta á móti yfir 160 börnum í Reykjavík og nágrenni. Í tilefni 100 ára afmælis Ljós- mæðrafélags Íslands fagnar félag- ið tímamótunum með ýmsum hætti. Þann 11. apríl 2019 kom út frímerki tileinkað 100 ára afmæli Ljósmæðrafélags Íslands, hannað af Kristínu Þóru Guðbjartsdóttur. Ljósmæður héldu afmælishátíð 27. mars og á sjálfan afmælisdaginn, 2. maí nk., munu ljósmæður leggja stein í götu við Laugaveg 20 til að minnast stofnunar félagsins. Gengið verður þaðan í Hörpu þar sem norræn ljósmæðraráðstefna verður haldin. Tæplega 700 ljós- mæður frá 26 löndum eru skráðar til leiks. Þess ber einnig að geta að fyrsti ljósfaðir Noregs, Jan Bakke, kemur hingað til lands í byrjun maí í tilefni afmælisins. Sýning sem ber heitið „Við tökum vel á móti þér“ verður opnuð í Þjóðarbókhlöðunni 5. maí á al- þjóðadegi ljósmæðra og það eru Ljósmæðrafélag Íslands, Lands- bókasafn Íslands – Háskóla- bókasafn og Kvennasögusafn Ís- lands sem standa að sýningunni. Nýtt ljósmæðratal kemur út á árinu og saga félagsins frá 1980 og fram til dagsins í dag. Þótt margt hafi áunnist í aldar gamalli sögu Ljósmæðrafélags Ís- lands eiga markmið forkólfa fé- lagsins enn við, að styrkja fé- lagsanda og hlúa að málefnum sem að starfinu lúta, og mun fé- lagið því halda vegferð sinni ót- rautt áfram á nýrri öld. Eftir Áslaugu Írisi Valsdóttur og Erlu Dóris Halldórsdóttur Erla Dóris Halldórsdóttir Áslaug Íris er formaður Ljósmæðra- félags Íslands og Erla Dóris er hjúkr- unarfræðingur og doktor í sagnfræði. Netfang Áslaugar: formadur@- ljosmodir.is og netfang Erlu Dórisar: edh@hi.is Áslaug Íris Valsdóttir Aldarafmæli Ljósmæðrafélags Íslands fagnað í dag » Þennan dag fyrir 100 árum var stofnað fé- lag er hlaut nafnið Ljós- mæðrafélag Íslands. MIKIÐ ÚRVAL AF SÆNSKUM MORA HNÍFUM Karl-Johan sveppahnífur Verð kr. 3.900 Tálguhnífar Verð frá kr. 2.990 Skeiðarkrókar Verð frá kr. 3.950 Smiðshnífur/sporjárn Verð kr. 1.890 Hnífsböð erð kr. 1.520 Spónhnífar Verð frá kr. 5.350 Skátahnífar Verð frá kr. 4.420 V Opið virk a dag a frá 9-18 lau frá 1 0-16 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Vinnuhnífar Verð frá kr. 980 Flökunarhnífur Verð kr. 5.270 Vefverslun brynja.is Fagmennska í 100 ár Smurþjónusta Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is SAMEINUÐ GÆÐI Á fundi borgarráðs 19. júlí 2018 var sam- þykkt að skipa þver- pólitískan stýrihóp í þeim tilgangi að endur- skoða stefnu Reykja- víkurborgar gegn ein- elti, áreitni og ofbeldi. Borgarfulltrúi Flokks fólksins sem jafnframt er sálfræðingur og sér- fræðingur í eineltis- málum var formaður hópsins. Vinna stýrihópsins hófst formlega í október og lauk í febrúar 2019. Afrakstur stýrihópsins var lagður fyrir borg- arráð til samþykktar 7. mars og borg- arstjórn 19. mars. Í stýrihópnum voru nokkrar breytingar gerðar á stefnunni og öllu fleiri á verklaginu. Sérstaklega má fagna auknu gegnsæi og tímamörkum sem nú hefur verið sett á vinnslu eineltismála hjá Reykjavíkurborg. Helstu efnislegar breytingar á stefnunni Í stefnunni sjálfri var ákveðið að hafa forvarnakaflann ítarlegri en í fyrri stefnu. Einnig var tekin ákvörð- un um að breyta skilgreiningu einelt- is lítillega. Stýrihópurinn var sam- mála um að nota ekki hugtakið „síendurtekin“ eins og er í reglugerð ráðuneytisins nr. 1009/2005 en þar er skilgreining eineltis þannig að það sé ófrávíkjanlegt skilyrði að hegðunin sé sí-endurtekin. Þessu hefur fylgt nokkur vandi. Einstaka rannsak- endur hafa nefnilega gengið svo langt að fullyrða að „síendurtekin hegðun“ merki að háttsemin þurfi að vera við- höfð vikulega yfir það tímabil sem kvörtunin nær til ef hún eigi að flokk- ast undir skilgreiningu um einelti. Þrenging skilgreiningarinnar með þessum hætti árið 2015 hefur haft fælingarmátt. Sumir þolendur segja að ekki þýði að leggja inn kvörtun þar sem skilgreiningin er allt of þröng. Skilgreiningin í hinni endurskoðuðu stefnu Reykjavíkurborgar er því eft- irfarandi: Einelti er endurtekin ótilhlýðileg háttsemi sem almennt er til þess fall- in að valda vanlíðan hjá þeim sem fyrir henni verður, svo sem með því að gera lítið úr, móðga, særa eða ógna viðkomandi eða að valda honum ótta. Skoðanaágreiningur eða ágreiningur vegna ólíkra hagsmuna fellur ekki hér undir. Helstu breytingar á verklagi Í hinni endurskoðuðu stefnu og breyttu verklagi er gerð skýrari grein fyrir hvað felst í frum- kvæðisathugun atvinnurekanda og í hvaða tilvikum ber að gera hana. Skv. 7. gr. reglugerðar 1009/2015 ber at- vinnurekanda að bregðast við berist honum ábending. Frumkvæðisrann- sókn er þó ekki rannsókn á málum til- tekins starfsmanns líkt og þegar til- kynning berst frá þolanda heldur er þá framkvæmd almenn könnun á til- teknum atriðum á starfsstöð (vinnu- staðamenningu, stjórnunarháttum). Í hinu endurskoðaða verklagi er lögð áhersla á aukið gegnsæi í verk- ferlum samkvæmt upplýsingalögum og nýjum persónuverndarlögum. Að- eins er hægt að taka við tilkynningu undir nafni. Ef tilkynning er ekki undir nafni fer rannsókn ekki af stað en atvinnurekandi getur hafið frum- kvæðisrannsókn samkvæmt ofan- greindu. Tilkynnandi getur dregið til- kynningu sína til baka hvenær sem er og mikilvægt er að það sé þá gert með skriflegum hætti. Málsaðilar, þolandi og meintur gerandi, hafa aðgang að öllum upp- lýsingum og gögnum sem tengjast málinu að teknu tilliti til laga um per- sónuvernd og vinnslu persónu- og upplýsingalaga nr. 140/2012. Þeir sem rætt er við (vitni) fá að vita það fyrir fram að ferlið er opið og gegn- sætt gagnvart aðilum máls sem munu sjá skráningar allra viðtala. Aðilar sem rætt er við fá tækifæri til að lesa yfir það sem hafa á eftir þeim í álits- gerð um málið og þeim gefinn kostur á að lagfæra framburð sinn óski þeir þess. Á fundum í tengslum við málið er rituð fundargerð sem farið er yfir í lok fundar. Fundargerðir skulu vera á stöðluðu formi. Ef aðilar óska eftir afriti af fundargerð er hún afhent. Óhæði rannsakenda Sá sem tilkynnir mál er eigandi málsins ef þannig má að orði komast. Teymi hefur leiðbeinandi hlutverk og leiðbeinir viðkomandi við að kæra til lögreglu ef mál eru þess eðlis. Ef fag- aðila utan eineltisteyma borgarinnar er falið að rannsaka málið, t.d. vegna vanhæfis eða tengsla rannsakenda borgarinnar við aðila málsins, skal leita samþykkis þess sem tilkynnti málið (þolanda). Til að niðurstaða könnunar verði trúverðug skal tryggja óhæði rannsakenda, ekki ósvipað því þegar dómstóll kallar til dómkvaddan matsmann. Tilkynnandi verður að fá tækifæri til að hafa hönd í bagga með hverjir rannsaka mál hans. Hann þarf að geta treyst því að sá sem fenginn er til að rannsaka málið sé sannarlega óháður. Aðrar nýjungar eru þær að sett hafa verið inn tímamörk rannsóknar og verði tafir skal upplýsa aðila máls. Einnig er opnað fyrir þann möguleika að ef ekki næst einróma niðurstaða fulltrúa teymis við rannsókn gefst færi á að skila séráliti sem tilgreinir afstöðu. Við endurskoðun stefnunnar og verklags var tekið tillit til ábendinga sem borist hafa frá starfsfólki sem hefur verið aðilar máls. Umsagnir voru fengnar frá starfsfólki með reynslu af vinnslu mála af þessu tagi og hafðar voru til hliðsjónar ábend- ingar frá starfsfólki mannauðsþjón- ustu og fagsviða borgarinnar. Hald- inn var upplýsingafundur með Persónuvernd. Sú gullna regla sem stýrihópurinn fylgdi við endurskoðun stefnunnar og verklags var sanngirni, meðalhóf og gegnsæi. Aukið gegnsæi og tímamörk á vinnslu eineltismála Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur »Þeir sem rætt er við fáað vita það fyrir fram að ferlið er opið og gegn- sætt gagnvart aðilum máls og munu þeir sjá skráningar allra viðtala. Kolbrún Baldursdóttir Höfundur er sálfræðingur og borgarfulltrúi Flokks fólksins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.