Morgunblaðið - 02.05.2019, Page 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni.is
– sjö viftur í einni
Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB)
Valin besta nýja
vara ársins,
Nordbygg 2016
Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar
ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými.
Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og
framleidd í Svíþjóð.
Þurr augu!
Fæst í öllum helstu apótekum.
Tvöföld virkni
Sex sinnum lengri ending
Thealoz Duo® er ný aðferð við meðhöndlun augnþurrks sem sækir
innblástur beint til náttúrunnar.
Til þess að koma jafnvægi á tárafilmuna notum við náttúrulegu efnin
trehalósa sem verndar frumurnar á yfirborði hornhimnunnar og
hýalúronsýru sem smyr yfirborð hornhimnunnar og gefur henni raka.
Augnheilbrigði
TREHALÓSI
Finnst í mörgum jurtum og
hjálpar þeim að þrífast við þurrar
aðstæður. Trehalósi verndar
frumurnar og gerir þeim kleift að
starfa með fullum afköstum.
HÝALÚRONSÝRA
Er að finna í augunum og
hefur einstaka getu til að binda
vatn. Hjálpar til við að smyrja
og viðhalda táravökvanum á
yfirborði augans.
Án rotvarnarefna
– Getur þú lýst þínum fatastíl?
„Fatastíllinn minn er frekar ein-
faldur en samt rosalega fjölbreyttur.
Ég myndi segja að ég skiptist á að
vera dömuleg og töffari. Ég hef gam-
an af því að prófa mig áfram og fæ
mikinn innblástur á Instagram og í
því sem ég sé með eigin augum frá
fólki sem ég vinn með og í versl-
unum,“ segir hún.
Þegar Helena er spurð að því fyrir
hverju hún falli hverju sinni þegar
kemur að fötum segist hún elska skó
og fallega blazer-jakka.
„Ég fell alltaf fyrir vel hönnuðum
skóm og blazer-jökkum. Þegar ég
þarf að henda einhverju saman með
hraði finnst mér best að nota basic-
flíkur til dæmis svartar buxur og
rúllukraga, svo lífga ég upp á útlitið
með því að fara í áberandi blazer-
jakka eða einhverja spennandi skó.
Flottur jakki getur gengið á ótal
vegu og verið kærkomin tilbreyting
sem kryddar fataskápinn, sér-
Marta María Jónasdóttir
mm@mbl.is
Helena er fædd og uppalin í Vest-
urbæ Reykjavíkur. Eftir Versl-
unarskólann flutti hún til Kaupa-
mannahafnar til þess að vinna í
tískufatageiranum þar. Þegar hún
var orðin mjög góð í dönsku fór hún í
bachelor-nám í alþjóðamarkaðsfræði.
„Ég fann fljótlega út úr því að
þangað langaði mig til þess að stefna.
Á dönskum vinnumarkaði var lögð
rík áhersla á meistaranám. Þá var ég
búin að vera búsett í Kaupmanna-
höfn í sex ár og langaði að koma að-
eins heim og verja tíma með fjöl-
skyldunni. Það varð úr ég flutti heim
til Íslands árið 2014 og fór þá í meist-
aranám tengt markaðsfræði í Há-
skólanum í Reykjavík, fann ástina í
leiðinni og geri ekki ráð fyrir því að
flytja aftur til Kaupmannahafnar í
bili,“ segir Helena en sambýlismaður
hennar er Bernharð Arinbjarnarson.
Eftir nám fékk Helena vinnu sem
markaðsstjóri NTC sem rekur 15
verslanir á höfuðborgarsvæðinu þar
á meðal Galleri 17, GS Skór, GK ogS-
mash. „Þetta er ótrúlega skemmti-
legt og krefjandi starf þar sem engir
tveir dagar eru eins og ég fæ tæki-
færi á því að vinna með mjög mikið af
hæfileikaríku fólki og í kringum ótrú-
lega mikið af fallegum flíkum,“ segir
Helena í samtali við Smartland.
staklega þegar sniðið er spennandi
eða liturinn,“ segir hún.
– Hvernig klæðir þú þig spari?
„Ég fer helst í litaða dragt eða fal-
legan kjól. Þá er ég mjög hrifin af
blómamunstri núna. Það er auðveld-
ara að réttlæta kaup á fínum fötum
þegar maður getur hugsað sér að
nota flíkurnar dagsdagalega líka en
þá klæðast til dæmis strigaskóm og
leðurjakka við. Mér finnst mikilvægt
að nýta fötin vel sem við kaupum
okkur og njóta þess að vera stundum
fínni hversdagslega.“
– Velur þú liti eða ertu alltaf í
svörtu?
„Áður fyrr gekk ég rosalega mikið
í svörtu. Núna er ég orðin mun lita-
glaðari, ætli það endurspeglist ekki
það að tískan núna er mjög litrík,“
segir Helena.
– Hver er dýrmætasta flíkin í fata-
skápnum?
„Dýrmætasta flíkin í fataskápnum
er fylgihlutur. Það er vintage Bur-
berry-belti sem móðir mín gaf mér,
hún keypti beltið í London þegar hún
var á mínum aldri,“ segir hún.
– Eru einhver tískuslys í fata-
skápnum þínum?
„Hverju tímabili fylgir sjarmi. Ég
verð þó að viðurkenna að bleiku
spandex-leggingsbuxurnar klæddu
mig ekki vel, þetta tískuslys á stóran
þátt í að móta minn stíl í dag. Ég hef
þroskast með árunum og spái miklu
meira í hvað ég kaupi, hvernig ég get
notað það og hvernig flíkin klæðir
mig,“ segir hún og hlær.
– Ertu safnari?
„Ég myndi ekki segja að ég væri
safnari, en ég geymi uppáhaldsflíkur
frá hverju tímabili því tískan fer allt-
af í hringi. Ég man eftir nánast
hverri flík sem ég kaupi til dæmis
hvar ég keypti hana og hvað hún
kostaði. Það er mikilvægt að við ber-
um virðingu fyrir flíkunum okkar, en
ég kýs alltaf að gefa mínar áfram svo
þær nýtist sem best.“
– Er ekki erfitt að vinna í fatafyr-
irtæki, eru ekki miklar freistingar?
„Það eru ótrúlega miklar freist-
ingar því það er svo breitt og gott úr-
val í öllum þessum verslunum. Ég er
með nokkrar óskrifaðar reglur sem
ég fer eftir svo að ég missi mig ekki.
Þá má það hljóma skringilega en ég
samgleðst öðrum þegar þeir fá sér
eitthvað fallegt í fataskápinn.“
– Hvað dreymir þig um að eignast
fyrir vorið?
„Mig vantar helst nýja yfirhöfn.
Einhverra hluta vegna hef ég aldrei
fengið mér rykfrakka þrátt fyrir að
hafa alltaf langað í hann. Það er
reyndar ótrúlega flottur rykfrakki í
Moss X Fanney Ingvars línunni sem
kom í verslanir um miðjan apríl.“
– Hvaða föt myndir þú taka með
þér á eyðieyju?
„Ég væri alveg til í vikufrí á eyði-
eyju með kærastanum. Ætli ég
myndi ekki taka með mér sólgler-
augun mín, leopard sundbol og ki-
mono. Á leiðinni myndi ég næla mér í
nýjusta útgáfuna af danska Costume-
blaðinu og vera alsæl.“
– Uppáhaldshönnuður?
„Mér finnst ótrúlega gaman að
fylgjast með Virgil Ablohs sem er
listrænn stjórnandi hjá Louis Vuit-
tion og stofnandi Off-White. Hann er
mjög skapandi og hristir vel upp í
hlutunum. Annars finnst mér Vic-
toria Beckham gera alveg ótrúlega
flotta og klæðilega hluti sem falla
nær mínum persónulega smekk.“
– Snobbar þú fyrir merkjum?
„Ég myndi ekki segja að ég snobb-
aði fyrir merkjum en ég á alveg mín
uppáhalds. Ég vill frekar eiga færri
flíkur sem ég er virkilega ánægð með
en að fylla fataskápinn af einhverju
sem ég nota minna.“
Fór í meistaranám og fann ástina
Helena Gunnars Mar-
teinsdóttir, markaðsstjóri
NTC. vill frekar eiga færri
og vandaðri flíkur. Hún
segist alls ekki vera mikill
safnari þótt hún geymi
flíkur frá ákveðnum
tískutímabilum. Helena
segist hafa lært margt af
því að kaupa sér bleikar
glansbuxur.
Rautt er málið Helena kann vel
við sig í drögtum. Hér klæðist hún
rauðri dragt sem bæði er hægt að
nota spari og hversdags.
Morgunblaðið/Eggert
Geggjaður samfestingur
Helena hefur gaman af því
að klæða sig upp.