Morgunblaðið - 02.05.2019, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Frábært úrval af
sundfatnaði
Team Rynkeby er samnorrænt góðgerðar-
starf. Stuðningsmenn þess hjóla á hverju
sumri til Parísar til styrktar krabbameins-
sjúkum börnum. Félagið var stofnað árið
2002 þegar 11 hjólreiðamenn ákváðu að
hjóla til Parísar í þeim tilgangi að sjá lokin
á Tour de France-hjólreiðakeppninni. Guð-
björg Þórðardóttir einn forsvarsmanna
keppninnar hér á landi heimsótti Ísland
vaknar í gærmorgun, en hún segir að ís-
lenskir hjólreiðamenn hafi safnað milljónum
fyrir styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna.
Fyrirkomulagið er þannig að hver hjól-
reiðamaður greiðir þátttökugjald, en innifal-
ið í því er reiðhjól, sérmerktur hjólafatn-
aður sem liðið hjólar í, gisting á leiðinni auk
þess sem öll umgjörð keppninnar er innifal-
in í þátttökugjaldi. Hugsa þarf fyrir mörgu
þegar hjóla skal á annað hundrað kílómetra
á hverjum degi. Hjólreiðamönnunum fylgja
bílar og bílstjórar sem sjá þátttakendum
fyrir næringu á leiðinni.
Fimmtíu og fjögur lið
Í dag samanstendur Team Rynkeby af tvö
þúsund og eitt hundrað hjólreiðamönnum og
fimm hundruð aðstoðarmönnum. Þessi hóp-
ur skiptist í fimmtíu og fjögur lið frá Dan-
mörku, Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, Fær-
eyjum, Íslandi og nú hefur Þýskaland einnig
bæst í hópinn.
Guðbjörg sagði í viðtalinu að þeir Íslend-
ingar sem ætluðu að hjóla með í ár væru við
stöðugar æfingar um þessar mundir. Að
hennar sögn er eftirsóknarvert að taka þátt
í verkefnum sem þessu þar sem mun þægi-
legra sé að hjóla víða erlendis en hér heima.
Þannig séu mun minni líkur á sterkum mót-
vindi, hitastigið sé mun þægilegra og brekk-
urnar færri og auðveldari. „Það er mun
þægilegra að hjóla í léttum klæðnaði heldur
en kappklæddur eins og maður þarf að gera
hér,“ sagði hún í spjallinu í Ísland vaknar
sem heyra má inni á heimasíðu K100. Ekki
er sjálfgefið að fá að taka þátt, en valið er
úr þúsundum umsækjenda sem sótt hafa um
þátttökurétt en slíkar umsóknir eru fylltar
út á heimasíðu Team Rynkeby.
Ísland vaknar mun fylgjast náið með ís-
lenska hópnum á ferðalagi sínu og verður í
reglulegu sambandi við Guðbjörgu meðan á
ferðinni stendur. islandvaknar@k100.is
Hjóla frá Danmörku til Parísar
Hjólreiðar Hópur hjólar frá Danmörku til Parísar til styrktar krabbameinssjúkum börnum.
Hátt á þriðja þúsund hjól-
reiðamanna munu á næstunni
hjóla frá Danmörku til Parísar
undir merkjum Team Rynkeby
og safna peningum fyrir
krabbameinssjúk börn.
Tesla og rafmagsbílar voru til umræðu í
Græjuhorni síðdegisþáttarins sem er á dag-
skrá þáttarins alla mánudaga á K100. Þar
sagði Árni Matthíasson blaðamaður frá því að
Tesla mundi opna verslun á Krókhálsi á næst-
unni. Fyrirtækið stofnaði nýverið Tesla Mot-
ors Iceland ehf. sem verður í tengslum við
Tesla í Noregi. Ýmsir hafa flutt inn og selt
Teslur hér á landi en rekstur þeirra hefur
farið á hausinn. Margir eru þó spenntir og
fylgjast náið með þróun rafbílamarkaðarins
og fylgst er náið með fréttum af framleið-
endum í fremstu röð. Þróun Teslunnar og
þjónusta við viðskiptavininn er dæmi um
áhugaverða nálgun. Þannig nefndi Árni sem
dæmi að Teslan uppfærði bílana sína yfir net-
ið. Til dæmis má nefna nýja uppfærslu sem
gerir Model 3 hraðskreiðari, gerir kleift að
láta bílinn keyra til sín á bílastæði, gefur við-
vörun þegar maður er að fara yfir á rauðu
ljósi, hægt er að hita bílsæti og stýri úr fjar-
lægð áður en maður fer inn í bílinn og
bremsur vorur bættar. Aðrar uppfærslur eru
eins og til að mynda sjálfstýring sem hjálpar
við að rata rétta leið af hraðbraut, segir
hann. Svo er bara spurning hvenær bílstjór-
inn er orðinn óþarfur.
AFP
Nýjasta tæknin Í græjuhorninu er fjallað um
nýjustu tæknina á léttan og skemmtilegan hátt.
Teslubílarnir upp-
færðir yfir netið