Morgunblaðið - 02.05.2019, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 02.05.2019, Qupperneq 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019 ✝ Björg Þor-steinsdóttir fæddist í Reykjavík 21. maí 1940. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi annan páskadag, 22. apríl 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Þor- steinn Davíðsson kaupmaður, f. 1918, d. 2003, og Guðný Árna- dóttir húsmóðir, f. 1917, d. 1992. Systkini Bjargar eru Davíð, f. 1948, fyrrverandi menntaskóla- kennari, og Halldóra, f. 1949, bókasafnsfræðingur. Davíð var kvæntur Janice Balfour, f. 1950, þau skildu. Börn þeirra eru Ás- laug, f. 1972, Brynja, f. 1975, og Þorsteinn, f. 1980. Sambýlis- kona Davíðs er Sigríður Björns- dóttir, f. 1953. Halldóra var gift Guðmundi E. Sigvaldasyni, f. 1932, d. 2004. Dóttir þeirra er Guðný Þóra, f. 1981. Björg giftist 1962 Ragnari Árnasyni mælingaverkfræðingi, f. 1926, d. 2016, þau skildu. Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands og Myndlistaskólann í Reykjavík og forstöðumaður Safns Ásgríms Jónssonar 1980- 1984. Hún tók þátt í félags- störfum og sat m.a. í stjórn fé- lagsins Íslensk grafík, Félags ís- lenskra myndlistarmanna, í ráði Norrænu myndlistarmið- stöðvarinnar NKC í Sveaborg, Finnlandi og í fulltrúaráði Lista- safns Sigurjóns Ólafssonar. Verk Bjargar er að finna í fjölmörgum opinberum söfnum og einkasöfnum hér heima og erlendis, m.a. Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Lista- safni Árnesinga, Bibliothèque Nationale, París, Museet for Internasjonal Samtidsgrafikk í Fredrikstad í Noregi, Museo Nacional de Grabado Contemp- eraneo í Madríd á Spáni og víðar. Á ferlinum hlaut hún fjöl- margar viðurkenningar fyrir list sína. Á ferli sínum vann Björg með marga miðla og var óþreytandi að afla sér þekkingar og prófa nýjan efnivið. Hún málaði, teiknaði, vann grafíkmyndir, vatnslitamyndir, collage-verk og tók ljósmyndir. Björg vann óslitið að listsköpun sinni til ævi- loka. Útför Bjargar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 2. maí 2019, klukkan 11. Dóttir þeirra er Guðný, f. 1963, bókasafnsfræð- ingur og leikkona. Sonur Guðnýjar og Ólafs Rögnvalds- sonar kvikmynda- gerðarmanns, f. 1958, er Ragnar Árni tónlist- armaður, f. 1991. Björg lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1960, stundaði myndlist- arnám við Handíða- og mynd- listaskóla Íslands, Akademie der bildenden Künste í Stuttgart, Myndlistaskólann í Reykjavík, Atelier 17 hjá S.W. Hayter og École Nationale Supérieure des Beaux-Arts í París. Björg hélt yfir 30 einkasýningar á Íslandi, Noregi og Frakklandi og tók þátt í samsýningum á Íslandi og víða um heim. Björg var styrk- þegi frönsku ríkisstjórnarinnar 1971-1973 og hlaut starfslaun listamanna 1977-1978, 1990 og 1992-1995. Björg var stundakennari við Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Þú straukst sængina og sagð- ir við mömmu þína „en það eru engir englar“ eins og lærisveinn- inn Tómas, sem trúði engu nema hann gæti þreifað á því. Þú varst ávallt svo góð við mig, elsku vinkona. Varst mikil listakona og verða aðrir að skrifa þína ferilskrá. Ég átti nokkrar myndir, sem þú hafðir gefið mér í gegnum árin og lang- aði mig til að kaupa mynd af þér. Lét taka frá mynd eftir þig á safninu Íslensk grafík í Tryggvagötu en þá var verið að sýna þar myndir sem þú hafðir málað. Skömmu seinna, þegar ég var að hátta mig eitt kvöldið, fann ég einhvern torkennilegan hlut inni í sænginni minni. Það var þá myndin, sem ég hélt að ég hefði keypt og þú hafðir tekið og laumast með inn til mín. Það var mikil hlegið en ég mátti alls ekki borga myndina. Ég kveð þig með erindi úr ljóði eftir Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi. Sofðu rótt, sofðu rótt, nú er svartasta nótt. Sjáðu sóleyjarvönd, geymdu hann sofandi í hönd. Þú munt vakna með sól, guð mun vitja um þitt ból. Góða nótt, góða nótt. Vertu gott barn og hljótt. Meðan yfir er húm situr engill við rúm. Sofðu vært, sofðu rótt, eigðu sælustu nótt. (Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi.) Ástarþakkir fyrir samveruna, þín vinkona Þurí. Þuríður Guðmundsdóttir. Það mun hafa verið á áttunda áratug síðustu aldar að ég var að skoða myndlistarsýningu í bænum. Þá gengur ung kona rösklega í salinn og hverfur gegnum dyr baka til. Hávaxin með mikið hrokkið ljóst hár, svipsterk og tignarleg. Ég þótt- ist þar kenna einn sýnenda, Björgu Þorsteinsdóttur, sem hafði þá þegar vakið mikla at- hygli með verkum sínum. Mér varð starsýnt á hana og þóttist vart hafa séð glæsilegri konu. Næstu árin hittumst við af og til á listsýningum og tókum tal saman en kynni okkar urðu nán- ari eftir að hún falaðist eftir verkaskiptum við mig á sýningu á Kjarvalsstöðum 1981. Hún fékk vasa eftir mig, ég fékk grafík eftir hana. Mikið þótti mér vænt um þetta. Við höfðum heilmikil sam- skipti á næstu árum, töluðum oft saman í síma um listina og til- veruna. Kölluðum gjarna hvor á aðra við undirbúning sýninga og mér þótti gott að heyra hennar álit.Við ferðuðumst saman til Kúbu og New York og gengum saman um Ísland ásamt öðrum vinum. Hún bauð vinum sínum oft til sín og var mikill höfðingi heim að sækja; veislur hennar bæði gómsætar og með glæsi- brag. Hjá henni hitti ég einnig aðrar listakonur sem gott var að kynnast. Björg var vinmörg og hugaði vel að vinum sínum. Hún var skjót til hjálpar ef hún vissi af vini í vanda. Einhverju sinni lá ég með brjósklos og gat mig varla hreyft. Mætti þá ekki Björg með veislumat í fartesk- inu, réðst síðan á draslið sem safnast hafði upp í eldhúsi mínu og skildi við allt fágað og fínt. Fyrir sextán árum veiktist hún af banvænum sjúkdómi sem hefur að lokum lagt hana að velli. Hún barðist við sjúkdóm- inn með reisn og þeirri ná- kvæmni sem henni var í blóð borin og hélt glæsileik sínum fram á síðasta dag. Fyrir nokkrum mánuðum eignaðist hún forláta ryksugu, létta og þægilega í notkun. Henni fannst að ég ætti endilega að eignast slíkan grip líka og veik eins og hún var orðin kom hún akandi í hendingskasti upp að Hulduhólum til að sýna mér tækið og lét sig ekki muna um að ryksuga vinnustofugólfið hjá mér í leiðinni. Hún hafði síðan ekki þrek til að þiggja hjá mér tesopa. Svona var Björg hugulsöm og nærgætin. Alltaf hreinskiptin og um leið skapstór, gat reyndar orðið fjúkandi reið ef henni fannst á sig hallað. Reisn og fágun einkenndu Björgu. Hún var í senn höfð- ingleg og lítillát. Hún var með sínum hætti galdrakona og töfrar listar hennar munu halda minningu hennar á lofti og veita fólki hlutdeild í persónu hennar og nærveru þótt hún sé sjálf horfin á braut. Ég er forsjóninni þakklát fyr- ir að hafa átt Björgu Þorsteins- dóttur að vini. Ættingjum hennar votta ég samúð og virðingu. Steinunn Marteinsdóttir. Birtan, sólskinið, endurskin í vatni sem gárast í hægum and- vara, tjáning með óhlutbundnum formum sem fjallar um lífs- galdurinn allt um kring. Þannig mynd kemur í hugann nú er ég hugsa til verka Bjargar Þor- steinsdóttur. Þá var sama hvaða efnivið eða tækni hún tókst á við. Alltaf var unnið af öryggi í tækni og einstakri næmi fyrir litum og formum. Hún skilur eftir sig mikið lífs- verk, helgaði sína ríku hæfileika myndlistinni og vann af innri þörf, full orku. Ótal sýningar að baki og störf að málefnum myndlistarinnar. Björg fór gjarnan til útlanda í vinnustofudvöl, meðal annars til að finna nýja strauma og friðinn í fjarlægðinni frá öllu heima. Úr slíkri dvöl kom hún ætíð heim með úrval af verkum, teikning- um, málverkum, skissum. Alltaf eitthvað nýtt að gerast þar, jafn- vel tilraunir með nýtt efni, eða nýjar leiðir í tækninni. Ótal margt kemur í hugann á kveðjustund: Ferðalög, bæði hér á landi og erlendis. Björg var góður ferðafélagi, alltaf svo full af áhuga og andlegri orku að það var ekki hægt annað en að nota tímann vel og njóta hvort sem það var náttúruskoðun í sólskini eða regni, nú eða listin og lífið í heimsborgum. Það er margs að minnast frá um fjögurra áratuga vináttu. Hreinskilin og heil var hún í öllu. Ómetanlegt var að fá hana í vinnustofuheimsókn þeg- ar eitthvað stóð til og þurfti að velja og krítisera og mörg voru samtölin okkar þar sem gaman var að bera saman bækur sínar um það sem var á döfinni í list- inni eða öðru. Að hafa átt Björgu sem vin- konu og að hafa fengið að njóta verka hennar í listinni hefur ver- ið dýrmætt og lifir með okkur áfram sem nutum. Verk hennar munu halda áfram að gefa. Ég kveð Björgu með söknuði og þakklæti í huga og sendi inni- legar samúðarkveðjur til að- standenda hennar. Jóhanna Bogadóttir. Björg Þorsteinsdóttir HINSTA KVEÐJA Amma gaf mér af næmi sinni fyrir formi og fegurð í heiminum. Hún innrætti mér natni í því sem ég móta, fyrir sjálfan mig og aðra. Auðmýkt, skilningur og virðing fyrir því sem er gott einkenndi vegferð hennar. Ástarþakkir, amma, fyr- ir óþreytandi stuðning, um- hyggju og forsjá. Ragnar Árni. ✝ Sigurður Jóns-son fæddist 20. desember 1922 á Vesturgötu í Reykja- vík. Hann andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir 21. apríl 2019. Foreldrar hans voru Jón Otti Vigfús Jónsson skipstjóri, f. 3.9. 1893, d. 22.7. 1973, og Gyða Sig- urðardóttir, f. 6.9. 1892, d. 4.12. 1971. Sigurður var næstelstur fjög- urra systkina. Vigdís, f. 9.11. 1918, d. 7.1. 2014, Sigurður, f. 20.12. 1922, d. 21.4. 2019, Sigríð- ur, f. 22.12. 1925, d. 5.3. 1989, og Jón Otti, f. 17.1. 1930. Fyrri eiginkona Sigurðar var Kristjana Sigrún Jakobsdóttir, f. 17.5. 1928, d. 17.5. 1958, og áttu þau þrjú börn; 1) Gyðu, f. 20.6. 1944, d. 31.5. 2018. Hennar börn eru Kristjana Sigríður, Ragnhild- ur Jóhanna og Thor Axel. 2) Lilju, f. 22.12. 1948, d. 11.2. 2017. Henn- ar barn er Sigurður. 3) Sigurð, f. 24.9. 1951. Hans dóttir er Rita. Seinni kona Sigurðar var Sigurborg Ólafsdóttir, f. 16.7. 1930. Áttu þau einn son, Þorstein, f. 24.2. 1960. Hans synir eru Jak- ob Már og Daníel Már. Þau skildu. Sigurður var í Miðbæjarskól- anum sem barn og í Héraðsskól- anum á Laugarvatni tvo vetur. Hann fór svo á sjó á síldveiðar og á togara. Sig- urður byrjaði í Toll- gæzlunni 19 ára og var þar þangað til 90 ára reglunni var náð. Sigurður var mik- ill sundmaður og lærði sund á Álafossi sjö ára. Hann byrjaði að æfa sund með KR og keppti í 17 ár. Hann átti öll met í bringusundi í mörg ár og var fyrsti Íslendingurinn sem komst í úrslit á Evrópu- sundmóti en það var árið 1947. Það liðu svo 38 ár áður en næsti maður komst í úrslit. Sigurður keppti svo á Ólympíuleikunum í London árið 1948. Sigurður bar bæði gullmerki KSÍ og KR. Sigurður var mikill hljómlistarmaður og spilaði á harmonikku, trommur, munn- hörpu og píanó, hann spilaði á sveitaböllum og dansleikjum í Reykjavík í gamla daga. Sig- urður stundaði gömlu dansana í fjölmörg ár, stundum fór hann þrisvar í viku á dansleik. Fyrstu búskaparárin bjó hann á Vesturgötu og síðan byggði hann húsið í Goðheimum 6 árið 1959. Hann bjó þar til 1968 og keypti þá íbúð í Álfheimum 46 og bjó þar til dauðadags. Útför hans verður gerð frá Fossvogskapellu í dag, 2. maí 2019, klukkan 13. Fallinn er frá í hárri elli móður- bróðir minn, afreksmaðurinn Sig- urður Jónsson, oft nefndur Sigurð- ur KR-ingur. Fæddur og uppalinn í Vesturbænum, Reykvíkingur í húð og hár. Siggi frændi var afburða- góður sundmaður. Bringusund- sgreinar einokaði hann og setti Ís- landsmet í hverri grein. Keppinaut eignaðist Sigurður síðar og var það nafni hans, Sigurður Jónsson, ávallt nefndur Þingeyingur, til að- greiningar frá KR-ingnum. Góð vinátta var á meðal þeirra nafna. Siggi frændi var valinn fyrir Ís- lands hönd til keppni á stórmótum erlendis, m.a. Norðurlandamótum, Ólympíuleikunum í London 1948 og Evrópumeistaramótinu í Móna- kó 1947. Þar komst Sigurður í úr- slit í 200 m bringusundinu. Siggi frændi var hörkutól er gafst aldrei upp. Sundæfingar voru þrisvar í viku á kvöldin eftir langan vinnudag. Eldmóður og ástríða voru það aðhald er þurfti. Þrjú börn eignaðist Sigurður með fyrri konu sinni, Kristjönu Jakobsdóttur; Gyðu, Lilju og Sig- urð. Kristjana féll frá einungis þrí- tug að aldri. Seinni kona Sigurðar var Sigurborg Ólafsdóttir, sonur þeirra er Þorsteinn. Lífið var ekki alltaf dans á rós- um. Búskapur í kjallaranum á Vesturgötu 36a, hjá foreldrum hans, við þröngar aðstæður og síð- ar í húsnæði reistu af eindæma dugnaði í Goðheimum í Reykjavík. Siggi frændi var sjálfum sér trúr og stefnufastur. Með árunum hafði frændi reglulega samband, með umhyggju að leiðarljósi. Sigurður hafði ástríðu fyrir dansi og músík. Vikulegar ferðir á gömlu dansana og á efstu árum æfði Siggi línudans. Gömlu góðu dansskórnir eru nú á hillu lagðir, en eflaust bíður eftir honum gljá- fægt par við skör nýrra danssala. Ég kveð frábæran frænda með vinarkveðju til allra afkomenda hans. Einar Gíslason. Sigurður Jónsson ✝ Jón Hannessonfæddist á Hvammstanga 1. júní 1926. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 16. apríl 2019. Foreldrar hans voru hjónin Hannes Jónsson, kaup- félagsstjóri Kaup- félags Vestur- Húnvetninga og al- þingismaður, og kona hans, Hólmfríður Jónsdóttir, ættuð frá Húsavík. Systkini Jóns eru: 1) Ásta Hannesdóttir. f. 1924, 2) Þorbjörg Hannesdóttir. f. 1927. d. 1992. 3) Auður Hannesdóttir. f. 1930. 4) Benný Hannesdóttir. f. 1934. d. 2008. 5) Haukur Hann- esson. f. 1936. d. 2014. Árið 1954 kvæntist Jón Svan- hildi Jóhannesdóttur, f. 10. júní 1926, þau slitu samvistum árið 1991. Barn þeirra er Hannes Jónsson, f. 3.5. 1964, kvæntur Guðlaugu Kristbjörgu Jóns- dóttur, f. 19.11. 1968. Börn þeirra eru 1) Unnur Ösp Hannes- dóttir, f. 3.6. 1992. Sambýlis- maður hennar er Haukur Árni Björgvinsson og eiga þau eina dóttur, Guðmundu Kristbjörgu Hauksdóttur, f. 6.4. 2017, 2) Arn- ar Atli Hannesson, f. 23.4. 1999. Barn Hannesar frá fyrra sam- bandi er Jón Gunnar Hannesson, f. 30.4. 1988. Sam- býliskona hans er Sylwia Sowa. Jón ólst upp á Hvammstanga, hann sótti nám í Reykholtsskóla og síðar í Mennta- skólann á Akureyri þar sem hann lauk gagnfræðaprófi. Árið 1948 fór Jón til Bandaríkjanna að læra flugvirkjun, nánar tiltekið Cal-Aero technical institute í Glendale í Kaliforníu og lauk þar námi ári síðar. Hann var einn af fyrstu flugvirkjum Íslands en vann aldrei við það fag. Frá árinu 2012 bjó Jón í Ásbúð í Garðabæ ásamt Hannesi og Guðlaugu tengdadóttur sinni, bjó þar í íbúð á neðri hæð húss- ins. Í nóvember árið 2018 fluttist Jón á hjúkrunarheimilið Sólvang í Hafnarfirði þar sem hann bjó þar til hann lést. Eftir að Jón komst á eftirlaun lærði hann samkvæmisdansa og ferðaðist mikið til útlanda. Jón vann til margra verðlauna í pútt- keppnum á sínum efri árum. Alla sína tíð tefldi Jón mikið og spiluðu þau systkinin kana einu sinni í viku til síðasta dags. Útför Jóns fer fram frá Vídal- ínskirkju í Garðabæ í dag, 2. maí 2019, og hefst athöfnin kl. 13. Kæri tengdafaðir, það er kom- ið að kveðjustund. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Takk fyrir allt, minn kæri. Þín tengdadóttir Gulla. Guðlaug K. Jónsdóttir. Jón Hannesson  Fleiri minningargreinar um Björgu Þorsteins- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, MAGNÚS INGÓLFSSON, lést á sjúkrahúsinu í Neskaupstað laugardaginn 27. apríl. Útförin verður í kyrrþey að ósk hins látna. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heilbrigðisstofnun Austurlands. Helga María Aðalsteinsdóttir Finnur Freyr Magnússon Bergþóra Hlín Arnórsdóttir Katrín María Magnúsdóttir Þorsteinn Óli Sveinsson Hanna Magnúsdóttir Valdís Fjölnisdóttir Aðalsteinn Ingi Magnússon Þórdís Mjöll Benediktsdóttir og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, REYNIR CARL ÞORLEIFSSON bakarameistari, Helgubraut 7, Kópavogi, lést á Landspítalanum í Reykjavík 25. apríl. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju 7. maí kl. 15:00. Jenný Eyland Þorleifur Karl Reynisson Helena Rós Hafsteinsdóttir Anna María Reynisdóttir Kristinn Þór Ingvason Henrý Þór Reynisson Elísa Örk Einarsdóttir Magnús Þór Reynisson Erna Dís Eriksdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.