Morgunblaðið - 02.05.2019, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 02.05.2019, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019 ✝ Kjartan Gísla-son fæddist í Reykjavík 9. júlí 1950. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 16. apríl 2019. Foreldrar hans voru Gísli Gíslason frá Haugi í Gaulverjabæjar- hreppi, f. 1916, d. 2006, og Ingibjörg Jónína Níelsdóttir, ættuð úr Húnaþingi, f. 1918, d. 2013. Systkini Kjartans eru Kristinn Hilmar, f. 1945, Halldóra Jenný, f. 1947, Óskar Sveinn, f. 1951, og Ingibjörg Sólrún, f. 1954. Kjartan kvæntist árið 1979 eftirlifandi eiginkonu sinni, Ólöfu Sigríði Jónsdóttur, f. 1. janúar 1950. Foreldrar hennar vinna fyrir sér og starfaði alla tíð á framkvæmdasviði Reykja- víkurborgar, lengst af sem rekstrarstjóri hverfastöðv- arinnar á Stórhöfða, en hann tók við því starfi árið 1988. Síðustu árin starfaði hann sem verkefna- stjóri á skrifstofu viðhalds og framkvæmda hjá umhverfis- og skipulagssviði borgarinnar. Hann hætti störfum vegna veik- inda haustið 2015 og hafði þá starfað hjá borginni í tæp 50 ár eða frá því í apríl 1968. Á yngri árum keppti Kjartan í handbolta með Fram og var alla tíð mikill áhugamaður um íþrótt- ir. Hann stundaði hestamennsku um árabil og vann mikið fyrir Hestamannafélagið Fák. Hann var mikill hagleiksmaður og liggja eftir hann mörg falleg verk. Útför Kjartans verður gerð frá Dómkirkjunni í dag, 2. maí 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. voru Jón S. Ólafs- son, f. 1919, d. 1984, og Erna Ósk- arsdóttir, f. 1924, d. 2006. Börn Kjartans og Ólafar eru: 1) Erna Guðríður, f. 16.11. 1979, gift Þorbirni Geir Ólafs- syni og eiga þau tvö börn: Ólaf Geir og Ernu Rós. 2) Ingi- björg Rós, f. 30.12. 1982, maki Björgvin Freyr Vil- hjálmsson. Ingibjörg á tvö börn, Birgi Kjartan og Ólaf Erni. 3) Jón Ólafur, f. 6.7. 1988, í sambúð með Önnu Kristínu Vilbergs- dóttur. Þau eiga eina dóttur, Rannveigu Rós. Kjartan ólst upp í Vogahverf- inu í Reykjavík og gekk í Voga- skóla. Hann byrjaði ungur að gleði og gæfa okkar fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem fórum við um landið út og inn er fjársjóðurinn okkar pabbi minn. (Denver/Guðrún Sigurbjörnsdóttir) Elsku pabbi, við þökkum þér fyrir allt og vonum að þér líði vel. Hvíl í friði. Þín börn, Erna, Ingibjörg Rós og Jón Ólafur. Það eru líklega tæp 17 ár síðan Kjartan bróðir okkar greindist fyrst með krabbamein og æ síðan háði hann harða glímu við meinið. Í veikindunum kom glöggt í ljós úr hverju hann var gerður því hann bugaðist aldrei og var stað- ráðinn í að njóta þeirra góðu stunda sem gáfust. Það var dæmi- gert fyrir hann að meira af vilja en mætti tók hann þátt í ferming- arveislu elsta barnabarnsins, Ólafs Geirs, á laugardegi og á þriðjudegi var hann allur. Föðurminning Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabbi minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum okkar hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góð- leg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skín inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut Kjartan var einstaklega fallegt barn en átti oft erfitt þar sem hann var fæddur með þrálátt ex- em sem angraði hann svo mikið að hann þurfti margsinnis að leggj- ast inn á sjúkrahús. Á þeim tíma mátti ekki heimsækja börn á sjúkrahúsum og eina sambandið sem hann hafði við okkur var í gegnum hringlaga glugga á her- bergishurðinni. Á milli Kjartans og mömmu var alla tíð mjög sterk- ur þráður og mamma sagði gjarn- an í angurværum tón að Kjartan hefði verið blíðastur af sínum börnum. Kjartan reyndist henni líka einstaklega vel síðustu árin sem hún lifði og varla leið sá dag- ur að hann kæmi ekki í heimsókn til hennar. Aðeins ár var á milli Kjartans og Óskars og fram eftir öllum aldri var annar varla nefndur á nafn án hins – þeir voru Kjarri og Skari. Á sumrin skildi þó leiðir þegar þeir voru sendir í sveit en Kjartan var mörg sumur á Haugi í Gaulverjabæjarhreppi og síðar á Vestri-Hellnum í sömu sveit. Kjartan rakst ekki vel í skóla, sem átti rót sína að rekja til þess að hann var svo greinilega lesblindur þó að engin slík greining hafi verið til á þeim tíma. Skólaganga hans var því styttri en hann hefði sjálfur kosið. Hann var ekki nema 17 ára þegar hann réð sig til Reykjavík- urborgar sem átti eftir að verða hans starfsvettvangur í 50 ár. Lengst af var hann rekstrarstjóri hverfabækistöðvarinnar við Stór- höfða sem sá um viðhald á austur- svæðum borgarinnar. Það lék líka allt í höndunum á honum og hann var listasmiður. Það kom best í ljós þegar hann byggði húsið í Frosta- skjóli frá grunni og lagði metnað sinn í að vinna hvert einasta verk sjálfur. Kjartan æfði handbolta og keppti með Fram um tíma en auk þess stundaði hann hestamennsku með pabba og var mjög laginn við hesta. Pabbi átti einstaklega fallega jarpa meri en hún var stríðlynd eins og eigandinn og átti hann í miklum brösum með hana. Merin tók hins vegar miklu ástfóstri við Kjartan og þegar hún gekk undir honum sýndi hún alla sína bestu takta. Árið 1979 stofnaði Kjartan sína eigin fjölskyldu þegar hann kvænt- ist Ólöfu og börnin þrjú fæddust. Eftir það áttu þau hug hans allan og vildi hann allt fyrir þau gera. Fór ekki á milli mála hvað hann var stoltur af börnunum sínum og barnabörnum og aðeins það besta var nógu gott fyrir þau. Kjartan var mjög tilfinninganæmur og þess vegna kannski dulur en góðvilji hans og trygglyndi fór ekki framhjá neinum. Stórt skarð hefur nú verið höggvið í systkinahópinn en við kveðjum góðan bróður og yljum okkur við minningarnar úr Ferju- voginum. Við sendum Ólöfu, Ernu Guðríði, Ingibjörgu Rós, Jóni Ólafi og þeirra börnum innilegar samúð- arkveðjur. Kristinn, Halldóra, Óskar og Ingibjörg Sólrún. Kjartan Gíslason  Fleiri minningargreinar um Kjartan Gíslason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Þórólfur Helga-son fæddist í Núpsöxl á Laxárdal í Austur-Húna- vatnssýslu 27. októ- ber 1923. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Norður- lands á Sauðárkróki 16. apríl 2019. Foreldrar hans voru hjónin Kristín J. Guðmundsdóttir, f. 27.11. 1894, d. 3.5. 1983, og Helgi Magnússon, f. 13.5. 1895, d. 25.10. 1981. Þórólfur var þriðji elsti af níu systkinum, elst- ur var Egill, f. 4.8. 1919, d. 21.6. 2003, næst var Guðríður, f. 16.3. 1921, d. 11.2. 2019, Guðmundur, f. 30.6. 1926, d. 25.7. 2017, Krist- ín, f. 23.8. 1927, María, f. 7.4. 1933, Stefán, f. 19.9. 1934, d. 2011, b) Árni, f. 8.8. 2013, og c) Andrés Þórólfur, f. 5.6. 17, 3) Gunnar Þór, f. 29.3. 1983, maki Elisa Saukko, f. 4.11. 1986, og barn þeirra Óskar Otto, f. 8.12. 2015. Í Tungu bjó einnig seinni eiginkona föður hans og móðir Andrésar, Elísabet, f. 13.11. 1912, d. 28.1. 2006. Þórólfur ólst upp í Núpsöxl til 12 ára aldurs er hann flutti með foreldrum sínum og systkinum að Tungu í Gönguskörðum. Hann bjó á móti föður sínum frá 1950 til 1976 og frá 1976 til 1998 á móti Andrési bróður sínum er hann hætti búskap. Þórólfur átti heimili í Tungu til æviloka. Þór- ólfur sat í hreppsnefnd um ára- bil, var fjallskilastjóri og forð- agæslumaður auk þess sem hann sinnti ýmsum öðrum félagsstörfum. Útför Þórólfs fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 2. maí 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. 27.2. 2017, Valdís, f. 10.11. 1935, og Andrés, f. 27.5. 1954. Þórólfur var ókvæntur en fjöl- skylda hans í Tungu var hálf- bróðir hans Andr- és, f. 27.5. 1954, maki Ásdís Edda, f. 9.1. 1956, börn þeirra eru: 1) Ás- geir Már, f. 11.4. 1978, barn hans Víkingur Þór, f. 31.12. 2003, úr fyrra hjónabandi, sam- býliskona Sandra Rós, f. 11.4. 1977, börn þeirra a) Ólafur Andrés, f. 9.10. 2015, og b) Edda Sirrý, f. 25.1. 2017. 2) Elísabet Rán, f. 7.12. 1980, maki Bene- dikt Egill, f. 2.12. 1980, börn þeirra eru: a) Elísabet, f. 13.11. Ævigöngu Þóra bróður er lokið hér á þessari jörð. Það er komið að kveðjustund og leita margar minningar upp í hugann. Þegar ég var barn gat ég alltaf leitað til Þóra bróður ef eitthvað bjátaði á, hann var mitt skjól. Seinni tíma samfundir fara líka í minningabankann, það var alltaf notalegt að hitta Þóra og rifja upp eitt og annað enda var hann stál- minnugur, en ég veit að hann var ekki fyrir orðmælgi og upptalningu til aflestrar fyrir almenning, svo margt geymi ég með sjálfri mér. Á tólfta ári flutti Þóri með foreldrum okkar frá Núpsöxl á Laxárdal fremri að Tungu í Gönguskörðum. Þar ól hann öll sín ár við búskapinn, fyrst hjá pabba, síðan hjá Andrési bróður þegar hann tók við jörðinni. Hann vann öll sín verk af trú- mennsku og dyggð. Upplifði ótrú- legustu breytingar á sviði landbún- aðar allt frá handverkfærum og allsleysi til nútíma vélvæðingar þar sem mannshöndin er að verða óþörf. En dýrin þarfnast oft sér- stakrar umönnunar og þar stóð Þóri vaktina. Ég trúi að orfið hans sé enn til, hann hafði gaman af að slá í kring, hafa snyrtilegt. Árið 1981 fórum við tvö í heim- sókn til Kiddu og Magga í Ástralíu, sú ferð var fyrsta og eina utan- landsferðin hans Þóra, hún var okkur báðum mikil upplifun og æv- intýri. Við ferðuðumst töluvert um Suðvestur-Ástralíu og sáum margt áhugavert og skemmtilegt. Það var unun hvað Þóri naut sín vel. Mig grunar að hann hefði alveg kosið að dvelja lengur, en örlögin gripu í taumana, við þurftum aðeins að flýta heimferðinni. Það er hljótt yfir Gönguskörð- um í dag. Ég kveð þig, kæri bróðir, og þakka fyrir allt. Þú hefur sann- arlega skilað góðu dagsverki. Valdís Helgadóttir (Dísa systir). Elsku frændi, elsku Þóri frændi. Þegar ég hugsa til þín upplifi ég mikið þakklæti. Þvílík forréttindi það voru að fá að alast upp með þér í Tungu því þú varst fyrirmynd á svo marga vegu alla þína tíð. Alltaf tilbúinn að hlusta og segja sögur og oftar en ekki kom vísa inn á milli. Þú komst eins fram við alla, sýndir þolinmæði og gæsku. Það má með sanni segja að þú værir maður orða þinna og alltaf stóðst allt sem þú varst búinn að ákveða að gera. Sumir myndu segja að stundum hafi það komið fram sem þrjóska en ég leyfi mér að segja að það sé vegna þrautseigju og mik- ilvægis þess að standa við sitt. Meðvitað og ómeðvitað tók ég eftir þessum eiginleikum og reyni að til- einka mér þá í daglegu lífi. Alltaf varstu barngóður og sonur okkar Elísu, hann Óskar Ottó, leitaði mik- ið til þín, rétt eins og öll hin börnin í fjölskyldunni. Ég minnist þín með gleði í hjarta og á eftir að sakna þín og þeirra stunda sem við áttum saman í sveitinni. Það verður skrítið að koma í Tungu og fá ekki faðmlag og koss á kinn frá Þóra frænda. Þóra verður minnst fyrir að vera góður maður, heiðarlegur, hagsýnn og farsæll bóndi. Sagt er að börnin læri það sem fyrir þeim er haft og því er ómet- anlegt að hafa alist upp með Þóra frænda með alla hans góðu eigin- leika. Megir þú hvíla í friði. Kveðja, Gunnar Þór Andrésson. Elsku bróðir og vinur. Þakka þér samfylgdina í 65 ár. Það er komið að kveðjustund og söknuðurinn er mikill. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynn- ast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Minningin lifir um góðan mann. Hafðu þökk fyrir allt. Þinn bróðir, Andrés Helgason. Þórólfur Helgason Sálm. 10.14 biblian.is Þú gefur gaum að mæðu og böli og tekur það í hönd þér. Hinn bágstaddi felur þér málefni sitt, þér sem hjálpar munaðarlausum. Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, PETRÍNA HELGA STEINADÓTTIR, Sólvangi, Hafnarfirði, lést 25. apríl á LSH Fossvogi. Útför verður frá Grensáskirkju föstudaginn 3. maí klukkan 13. Þeim er vildu minnast hennar er bent á KFUM og K og Kristniboðssambandið. Elín Einarsdóttir Guðmundur Ingi Leifsson Guðmundur Th. Einarsson Þórstína Aðalsteinsdóttir Rósa Einarsdóttir Ragnar Baldursson Steinunn E. Egeland Torstein Egeland barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, sonur, stjúpsonur, bróðir og mágur, GÍSLI BIRGISSON, lést á heimili sínu miðvikudaginn 24. apríl. Útför hans fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 7. maí klukkan 13. Arnór Blær, Sóley Bára, Aron Darri Guðfinna Gísladóttir Birgir Georgsson Dong Qing Guan Jóhann Birgisson Georg Birgisson Viktor Blær Birgisson Steindór G. Corrigan Marica Corrigan Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN HAUKUR JAKOBSSON, Haukur Dúdda, Múlasíðu 7c, Akureyri, lést laugardaginn 27. apríl á Sjúkrahúsi Akureyrar. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 8. maí klukkan 13.30. Sveinn Ævar Stefánsson Bjargey H. Pétursdóttir Eiður Stefánsson Dagbjört H. Eiríksdóttir Matthildur Stefánsdóttir Tómas Ólafsson Anna Stefánsdóttir Hilmar M. Baldursson Tinna Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, LILJA K. KRISTINSDÓTTIR, Múlavegi 17, Seyðisfirði, lést á Landspítalanum Fossvogi miðvikudaginn 24. apríl. Útför hennar fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn 4. maí klukkan 14. Þeim er vildu minnast hennar er bent á Umhyggju, félag langveikra barna, og SOS barnaþorp. Magnús S. Stefánsson Kristinn G. Magnússon Linda Mae Kirker Stefán H. Magnússon Ágúst T. Magnússon Arna Magnúsdóttir og barnabörn Faðir minn og bróðir, EINAR BRAGASON, Brekkustíg 33a, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 21. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð. Guðmundur Hjörtur Einarsson Bára Bragadóttir Baldur Þór Bragason og aðrir aðstandendur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÚN ÓSKARSDÓTTIR, lést 16. apríl. Jarðarförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 10. maí klukkan 13. Ágúst Óskar Sigurðsson Anna María Úlfarsdóttir Anna Þórdís Sigurðardóttir Rainer Lischetzki Edda Björk Sigurðardóttir Jón Ármann Guðjónsson og barnabörn Minningar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.