Morgunblaðið - 02.05.2019, Blaðsíða 47
FÓTBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu,
Pepsi Max-deildin, hefst í dag með
fjórum leikjum. Miklar breytingar
hafa átt sér stað hjá mörgum liðum í
deildinni og mæta nokkur lið til leiks
í ár sem eru að einhverju leyti óskrif-
að blað.
Flestir spá því að Breiðablik og
Valur muni berjast um Íslandsmeist-
aratilinn í ár. Blikar hafa ekki styrkt
sig mikið en það er ákveðinn missir
að Guðrúnu Arnardóttur sem samdi
við Djurgården í Svíþjóð í desember
á síðasta ári. Það verður áhugavert
að sjá hvernig Þorsteinn Hall-
dórsson, þjálfari Blika, mun leysa
varnarleikinn í sumar en Breiðablik
var það lið á síðustu leiktíð sem fékk
á sig fæst mörk allra liða í deildinni.
Valskonur hafa styrkt sig gríðarlega
með ungum en jafnframt góðum leik-
mönnum. Liðið ætlar sér Íslands-
meistaratitilinn í haust og allt annað
en sigur í Íslandsmótinu mun teljast
vonbrigði á Hlíðarenda.
Hörð barátta í neðri hlutanum
Þór/KA er það lið sem er einna lík-
legast til þess að berjast við Breiða-
blik og Val um Íslandsmeistaratit-
ilinn. Það munu margir ungir
leikmenn fá langþráð tækifæri með
Akureyrarliðinu í sumar og það gæti
komið niður á titilvonum Akureyr-
inga. Stjarnan og ÍBV hafa bæði
misst öfluga leikmenn og sumarið
gæti orðið erfitt bæði í Garðabænum
og í Vestmannaeyjum. Bæði lið ætla
að gefa ungum og efnilegum leik-
mönnum tækifæri í sumar og ef allt
fer á versta veg gætu bæði lið sogast
niður í neðri hluta deildarinnar.
Fylkir, HK/Víkingur, Keflavík, KR
og Selfoss eru þau lið sem flestir spá
í neðri hluta deildarinnar í sumar.
Fylkiskonur eru með öflugt byrj-
unarlið en að sama skapi er breiddin
lítil í Árbænum. Sömu sögu er að
segja um Keflavík og HK/Víking og
þá eru Selfyssingar óskrifað blað
enda margir lykilmenn frá síðustu
leiktíð horfnir á braut og liðið hefur
styrkt sig með leikmönnum sem erf-
itt er að segja til um. Vesturbæingar
hafa styrkt sig mikið en hvort það er
nóg til að rífa liðið upp í efri hluta
deildarinnar er ekki sjálfgefið.
Blikar í fantaformi
Blikar eru ríkjandi bikar- og Ís-
landsmeistarar og það er erfitt að
sjá eitthvert lið stoppa Kópavogs-
liðið í sumar. Þær virka í fantaformi
og í betra líkamlegu ásigkomulagi
en á síðustu leiktíð. Það sem gæti
stoppað Valskonur í að elta Blika er
hraðinn í liðinu en margir leikmenn
Valsliðsins eru komnir til ára sinna
og miðja liðsins er til að mynda mun
hægari en í Kópavoginum.
Þór/KA mun sigla lygnan sjó um
miðbik deildarinnar og í ár verða sjö
lið sem munu berjast við fallið. Það
skiptir máli fyrir öll liðin í deildinni
að byrja vel en maímánuður gæti
ráðið hreinum úrslitum um það,
hvaða lið falla úr deildinni í haust,
sem og hvaða lið það verður sem
stendur uppi sem Íslandsmeistari.
Vilja allir vinna Breiðablik
Alexandra Jóhannsdóttir átti frá-
bært síðasta sumar með Blikum og
var algjör lykilmaður í liði Breiða-
bliks sem varð bæði Íslands- og bik-
armeistari. Þó að hún sé einungis 19
ára gömul er Alexandra að fara inn í
sitt þriðja tímabil í röð í efstu deild.
„Sumarið leggst mjög vel í mig og
ég held að deildin sé sterkari í ár en
hún var í fyrra. Það að koma inn í
sumarið sem ríkjandi bikar- og Ís-
landsmeistarar er auðvitað nýtt fyr-
ir okkur. Að sama skapi þá er
Breiðablik lið sem öll lið í deildinni
vilja vinna og þannig hefur það alltaf
verið. Við ætlum að einbeita okkur
að því í sumar að taka einn leik fyrir
í einu og eitt skref í einu eins og
maður segir,“ sagði Alexandra í
samtali við Morgunblaðið.
Alexandra á von á harðri baráttu
um Íslandsmeistaratitilinn í ár og
telur að þrjú til fjögur lið muni berj-
ast um Íslandsmeistaratitilinn.
Var lengi í gang í fyrra
„Það eru nokkur lið í deildinni
sem geta vel blandað sér í baráttuna
um Íslandsmeistaratitilinn. Ég held
að Stjarnan verði dálítið óskrifað
blað í sumar, það er engin pressa í
Garðabænum, og það mun hjálpa
liðinu. Stelpurnar í Þór/KA eru allt-
af sterkar og það er erfitt að spila á
móti þeim eins og hefur sýnt sig í
vetur.“
Alexandra skoraði 8 mörk í 22
leikjum í deild og bikar síðasta sum-
ar og stefnir á að gera enn betur í
ár.
„Mitt persónulega markmið fyrir
tímabilið í ár er að gera betur en í
fyrra. Ég var sein í gang á síðustu
leiktíð en mér gekk mjög vel á seinni
hluta tímabilsins og markmiðið núna
er að eiga heilt, gott tímabil.“
Tveggja hesta hlaup um
Íslandsmeistaratitilinn?
Sjö lið sem gætu hæglega fallið Miklar breytingar og mörg óskrifuð blöð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lykilhlutverk Alexandra Jóhannsdóttir er nýorðin 19 ára en var í stóru
hlutverki hjá Blikum í fyrra og lék sinn fyrsta A-landsleik á þessu ári.
ÍÞRÓTTIR 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019
Krókháls 1 • 110 Reykjavík • S. 567 8888 • www.pmt.is
Allt til merkinga & pökkunar
Kemur með snertiskjá og WiFi Hægt er að fá ofninn í mörgum litum
TURBOCHEF ECO
er minnsti og sparneytnasti ofninn
frá TurboChef
Hentar sérstaklega vel fyrir kaffihús, bensínstöðvar og minni staði
sem eru með skyndibita.
Spænski knattspyrnumarkvörðurinn
Iker Casillas, heims- og Evrópumeistari
með Spánverjum, var fluttur á sjúkra-
hús í Porto í gær eftir að hafa fengið
hjartaáfall á æfingu með liði Porto. Fé-
lagið staðfesti fljótlega að ástand hans
væri stöðugt og Casillas væri ekki í
hættu. Hann er 37 ára gamall, hefur
leikið 167 landsleiki og varð fimmfaldur
Spánarmeistari og þrefaldur Evr-
ópumeistari með Real Madrid en hefur
leikið með Porto frá árinu 2015.
Viðar Ari Jónsson og Oliver Sigur-
jónsson skoruðu fyrir lið sín í 1. umferð
norsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í
gær. Viðar fyrir Sandefjord í 2:0 útisigri
á Tönsberg og Oliver fyrir Bodö/Glimt í
8:0 útisigri á Åga en Oliver var fyrirliði
liðsins í leiknum.
Hollenska knattspyrnufélagið PSV
Eindhoven tilkynnti í gær að samið
hefði verið við íslensku landsliðskonuna
Önnu Björk Kristjánsdóttur um að
leika áfram með liðinu á næsta tímabili.
Anna kom til PSV í janúar frá Limhamn
Bunkeflo í Svíþjóð og samdi þá
til hálfs árs. Hún
hefur spilað
fimm leiki með
PSV í úrvals-
deildinni og
skorað tvö
mörk en misst
af nokkrum leikj-
um vegna
meiðsla.
Eitt
ogannað
Sigurganga Söru Bjarkar Gunnarsdóttur,
landsliðsfyrirliða í knattspyrnu, með
Wolfsburg hélt áfram í gær þegar lið
hennar vann Freiburg, 1:0, í úrslitaleik
þýsku bikarkeppninnar í Köln. Pólski
framherjinn Ewa Pajor skoraði sig-
urmarkið í seinni hálfleik. Sara hefur þar
með orðið þýskur bikarmeistari öll þrjú
tímabilin sem hún hefur leikið með Wolfs-
burg en félagið er hinsvegar búið að
vinna bikarinn fimm ár í röð. Þá blasir
þýski meistaratitillinn við liðinu þriðja ár-
ið í röð en Wolfsburg nægir að vinna ann-
an þeirra tveggja leikja sem liðið á eftir í
1. deildinni. Sara og samherjar hennar
gætu tryggt það gegn Hoffenheim á
sunnudaginn. Sara lék allan leikinn á
miðjunni hjá Wolfsburg í gær. vs@mbl.is
Enn vinnur Sara bikarinn
Bikarinn Sara Björk Gunnars-
dóttir fagnar bikarsigrinum.
Elísabet Gunnarsdóttir var nærri
því að vinna fyrsta titilinn í sögu
sænska knattspyrnufélagsins
Kristianstad en lið hennar tapaði
2:1 fyrir Gautaborg í úrslitaleik
sænsku bikarkeppninnar í gær. El-
in Rubensson skoraði sigurmark
Gautaborgarliðsins, sem lék á
heimavelli, úr vítaspyrnu í uppbót-
artíma þegar allt stefndi í fram-
lengingu. Elísabet er að hefja sitt
11. tímabil sem þjálfari Kristian-
stad, sem hefur einu sinni áður tap-
að bikarúrslitaleik, árið 2014. Sif
Atladóttir lék með Kristianstad,
sem og Svava Rós Guðmundsdóttir
sem fór af velli skömmu fyrir lok
fyrri hálfleiks þar sem meiðsli sem
hún varð fyrir í næsta leik á undan
tóku sig upp. vs@mbl.is
Elísabet nálægt fyrsta titli
Ljósmynd/Kristianstad
Silfur Elísabet Gunnarsdóttir.