Morgunblaðið - 02.05.2019, Síða 56
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
SUMAR
& SÓL
GILBERT garðstóll. Svartur. 15.900 kr.
Dansk-íslenska tríóið NOR fagnar
útgáfu plötunnar The six of us með
tónleikum í Edinborgarhúsinu í
kvöld kl. 20. Tríóið skipa Richard
Andersson á kontrabassa, Óskar
Guðjónsson á saxófón og Matthías
Hemstock á trommur. Tríóið leikur
síðan í Alþýðuhúsinu á Siglufirði
annað kvöld kl. 21. Platan er óður
til fjölskyldulífsins.
NOR leikur í Edinborg-
arhúsi og Alþýðuhúsi
FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 122. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sigurkarl Jóhannesson var hetja ÍR-
inga í þriðja úrslitaleik Íslands-
mótsins í körfuknattleik gegn KR
og hann segir að stemningin fyrir
fjórða leik liðanna í kvöld sé gríðar-
lega góð og spennan mikil. ÍR
myndi með sigri í kvöld verða Ís-
landsmeistari í fyrsta skipti í 42 ár
en KR þarf sigur til að fá oddaleik
um titilinn á heimavelli. »45
Gríðarleg stemning og
spennan er mikil
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Prins Póló heldur í stutta tón-
leikaferð norður í land. Fyrstu
tónleikarnir verða á Pöbbnum á
Hvanneyri í dag, fimmtudag. Þeir
næstu hjá Gísla Eiríki Helga á
Dalvík annað kvöld og loks á
Gamla Bauk á Húsavík laugardag-
inn 4. maí. Prins-
inn kemur
fram einn síns
liðs með gít-
arinn að
vopni, slær á
létta gítar-
strengi og
svarar
frammíköllum
úr sal. Miða-
sala er á tix.is
og við
hurð.
Prins Póló í stutta tón-
leikaferð á Norðurlandi
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Árleg Sæluvika Skagfirðinga stendur
nú sem hæst. Meðal helstu viðburða
Sæluviku er sýning Leikfélags Sauð-
árkróks, sem sýnir nú nýtt leikrit,
Fylgd, eftir heimamanninn Guðbrand
Ægi Ásbjörnsson.
Leikritið vísar
til hins hugljúfa
lags sem Diddi
fiðla samdi við
ljóð Guðmundar
Böðvarsson og er
m.a. þekkt í flutn-
ingi Pálma
Gunnarssonar.
Einnig eru flutt
nokkur ný lög eft-
ir skagfirska laga-
og textahöfunda. Meðal þeirra er
Geirmundur Valtýsson, sem við setn-
ingu Sæluvikunnar fékk Samfélags-
verðlaun Skagafjarðar í ár.
Auk Fylgdar hafa tvö önnur lög í
leikritinu heyrst áður. Annað þeirra
er Kveðjustund, sem móðir Ægis,
Fjóla Guðbrandsdóttir, samdi við
texta Guðrúnar Gísladóttur. Tók lag-
ið þátt í Dægurlagakeppni Kven-
félags Sauðárkróks árið 1963 og fékk
aukaverðlaun.
„Það skemmtilega við lagið hennar
mömmu er að hún samdi það með
mig í maganum,“ segir Ægir og hlær
en hann kom í heiminn á Sauðárkróki
9. desember 1963, nokkrum dögum
áður en keppnin sjálf fór fram.
Fjallar leikritið um fimm manna
fjölskyldu, vini hennar og sveitunga í
litlu samfélagi á landsbyggðinni. Um
tilurð þessa leikrits segir Ægir að lík-
lega megi rekja hana til þess þegar
hann og Árni Gunnarsson skrifuðu
leikritið Tifa tímans hjól árið 2013,
með lögum eftir Geirmund. Leikfélag
Sauðárkróks sýndi verkið, sem fékk
fádæma góðar viðtökur. Upp úr því
kom formaður félagsins að máli við
Ægi og hvatti hann til að skrifa
meira. „Ég var búinn að gera grind
að leikriti þegar brotist var inn í bíl
hjá okkur fjölskyldunni, þegar við
vorum í ferðalagi á Spáni, og tölvunni
minni stolið. Ég þurfti því að byrja
upp á nýtt,“ segir Ægir en hann fór á
fullt eftir að hafa heyrt flutning á lag-
inu Fylgd. Upp frá því spannst sögu-
þráður og fékk Ægir nokkra laga- og
textahöfunda til liðs við sig. Brugðust
þeir skjótt og vel við beiðninni og úr
varð leikrit með sönglögum. Sjálfur á
Ægir tvö lög og fimm texta en hann
er einnig leikstjóri, hannar leikmynd-
ina og sér um lýsinguna. Alls taka 40
manns þátt í uppfærslunni, þar af 25
leikarar.
Auk þeirra Geirmundar eiga lög og
texta í verkinu þau Úlfar Ingi Har-
aldsson, Eiríkur Hilmisson, Fjóla
Guðbrandsdóttir, Gunnar Rögnvalds-
son, Sigfús Arnar Benediktsson,
Skarphéðinn Ásbjörnsson, bróðir
Ægis, Árni Gunnarsson og Guðrún
Gísladóttir.
Leikritið er sýnt í Félagsheimilinu
Bifröst, tvær sýningar eru að baki en
alls eru tíu sýningar áformaðar, sú
síðasta 12. maí nk. Sýnt er við þröng-
an kost í Bifröst, eða eins og Ægir
bendir á að endingu í samtalinu:
„Við erum að keppa við stærri fé-
lagsheimili og menningarhús í kring-
um okkur, sem eru betur í stakk búin
til að setja upp leikrit, eins og í
Varmahlíð, á Hofsósi og Skaga-
strönd. Það er mikið búið að tala um
nýtt menningarhús á Sauðárkróki en
tími er kominn á framkvæmdir.“
Ljósmynd/Gunnhildur Gísladóttir
Sæluvika Leikarar í leikritinu Fylgd sem sýnt er núna á Sæluviku Skagfirðinga. Á myndina vantar formann Leik-
félags Sauðárkróks, Sigurlaugu Dóru Ingimundardóttur, sem einnig stígur á svið í Félagsheimilinu Bifröst.
Í maga móður sinnar
er eitt lagið var samið
Nýtt leikrit, Fylgd, sýnt á Sæluviku Skagfirðinga í ár
Guðbrandur Ægir
Ásbjörnsson