Morgunblaðið - 07.05.2019, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 7. M A Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 106. tölublað 107. árgangur
MEGHAN OG
HARRY EIGN-
UÐUST SON
BRAGÐ
HÆTTULEGT
BÖRNUM
BERGLIND RÓS
BEST Í FYRSTU
UMFERÐINNI
RAFRETTUR 11 ÍÞRÓTTIR 24-27SJÖUNDI Í ERFÐARÖÐINNI 28
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ástandið er síst betra en í fyrra,
það er alvarlegur skortur á hjúkr-
unarfræðingum hvort sem það er
vetur, sumar, vor eða haust. Það er
einnig tilfinnanlegur skortur á
sjúkraliðum. Við könnuðum ástandið
í nágrannasjúkrahúsunum og á
Akranesi sem hefur ekki gengið vel
að ráða fólk í sumarafleysingar,“
segir Anna Sigrún Baldursdóttir, að-
stoðarmaður forstjóra Landspítala.
Hún segir að fundað hafi verið um
stöðuna í gær og hvernig spítalinn
gæti brugðist við öðruvísi en með því
að loka deildum og draga úr þjón-
ustu.
Anna Sigrún segir að það sé eðli-
legt að draga úr starfsemi og loka
deildum á sumrin, t.d. skurðdeildum
sem ekki sinna bráðaþjónustu. Það
sama eigi við um göngudeildir sem
fólk nýti minna að sumri til.
„Á móti kemur að við fáum annars
konar sjúklingahóp til okkar á sumr-
in. Þar má nefna ferðamenn og sjúkl-
inga sem fengið hafa þjónustu hjá
stofnunum sem telja sig hafa getu til
að loka á sumrin,“ segir Anna Sigrún
og nefnir sem dæmi fæðingarþjón-
ustuna í Reykjanesbæ sem hingað til
hefur dregið úr þjónustu á sumrin.
„Við erum að skipuleggja sumarið
þessa dagana og róum að því öllum
árum að draga sem minnst úr nauð-
synlegri starfsemi og sinna því hlut-
verki sem Landspítala ber. Sumum
deildum er einfaldlega ekki hægt að
loka eða draga úr þjónustu,“ segir
Anna Sigrún.
Gengur illa að manna stöður
Allra leiða leitað til þess að uppfylla hlutverk Landspítala Skortur á hjúkrunar-
fræðingum og sjúkraliðum ekki minni en í fyrra Annar sjúklingahópur á sumrin
Staðan á Landspítala
» Alvarlegur skortur á hjúkr-
unarfræðingum og sjúkralið-
um.
» Ekki hægt að skerða þjón-
ustu eða loka sumum deildum.
» Ferðamenn og sjúklingar
annarra stofnana auka álag á
Landspítalanum á sumrin.
„Þarna er dregin
upp mjög alvar-
leg mynd,“ sagði
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
umhverfis- og
auðlindaráð-
herra um niður-
stöður nýrrar
skýrslu á vegum
Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ) sem
kynntar voru í gær. Þar er greint frá
því að vistkerfum jarðar hraki nú
hraðar en dæmi eru um.
„Þetta er mikilvæg viðvörun til
mannkyns um í hvað stefnir. Ef
fram heldur sem horfir blasir við
okkur hnignun lífríkisins og vist-
kerfanna sem við byggjum afkomu
okkar á,“ sagði Guðmundur Ingi.
Hann sagði að eyðilegging á bú-
svæðum fjölda lífvera og vistkerfum
ætti stærstan þátt í þessari hnignun,
en bein nýting og loftslagsbreyt-
ingar hefðu einnig áhrif og eins
mengun og ágengar framandi teg-
undir.
Guðmundur Ingi sagði að tíma-
setning skýrslunnar væri ekki til-
viljun. Á næsta ári þyrfti að taka
ákvarðanir um markmið alþjóðlegs
samnings um vernd lífríkisins og líf-
fræðilegrar fjölbreytni til ársins
2030. Skýrslan væri mikilvægt inn-
legg í þá umræðu. Norðurlöndin
hafa beitt sér fyrir metnaðarfullum
markmiðum að frumkvæði Íslend-
inga. Ályktun þess efnis var sam-
þykkt á fundi norrænu umhverfis-
ráðherranna í Reykjavík í apríl.
„Það er mikilvægt að ráðast í að-
gerðir þar sem við tryggjum frekari
vernd búsvæða og vistkerfa, sjálf-
bæra nýtingu auðlinda og endur-
heimt fyrri gæða vistkerfanna. Þetta
er leiðarstefið sem þarf að hafa í
huga þegar við horfum til markmiðs-
setningar fyrir árið 2030,“ sagði
Guðmundur Ingi. »13
„Mjög
alvarleg
mynd“
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
Svört skýrsla um
ástand vistkerfanna
Sala álfsins, sem er mikilvægasta fjáröflunarleið SÁÁ, hefst í dag og lýkur
12. maí. Álfurinn, sem í ár skartar myndarlegu yfirvaraskeggi, fagnar nú
stórafmæli, en þetta er 30. árið í röð sem hann er til sölu. Féð, sem aflað er
með sölunni, er notað til að greiða fyrir meðferð fyrir ungt fólk og fyrir
sálfræðiþjónustu fyrir börn sem eiga foreldra með fíknisjúkdóm. Um 1.300
börn hafa þegar fengið slíka þjónustu hjá SÁÁ.
Heimir Bergmann hjá SÁÁ seldi Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands
fyrsta álfinn í ár og bauðst forsetanum að kaupa álf í yfirstærð.
Guðni forseti fékk þrítugan álf í yfirstærð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jafnréttisstofu er skylt sam-
kvæmt lögum að sinna eftirliti með
framkvæmd jafnréttislaga og veita
stjórnvöldum ráðgjöf á sviði jafn-
réttismála. Þá er sérstaklega kveð-
ið á um að stofnuninni er skylt að
vinna gegn launamisrétti, en henni
er ekki veitt innsýn í þá tölfræði
sem snýr beint að ákvæðum laga
um jafna meðferð á vinnumarkaði.
„Þetta eru upplýsingar sem við
fáum ekki,“ svarar Katrín Björg
Ríkharðsdóttir, framkvæmdastjóri
Jafnréttisstofu, spurð hvort stofan
fái tölfræðilegar upplýsingar út-
tektarinnar. Hún segist ekki reikna
með að stofnunin muni kalla eftir
umræddum upplýsingum. »14
Fær ekki tölurnar
„Mér finnst ég hafa átt mjög stöð-
ugt og gott tímabil. Ég skoraði ekki
mörg mörk en stend bæði líkam-
lega og andlega betur að vígi en til
dæmis eftir síðasta keppnistímabil.
Ég er ánægð með stöðuna á mér og
vil meðal annars þakka það breytt-
um æfingum að einhverjum hluta,“
segir Sara Björk Gunnarsdóttir,
landsliðsfyrirliði í knattspyrnu,
sem á sunnudaginn varð þýskur
meistari með Wolfsburg þriðja árið
í röð. Á dögunum vann hún líka
þýska bikarinn þriðja árið í röð
með félaginu.
„Krafan er sú að liðið sé eitt það
besta í heiminum. Eitt markmiðið
er að vinna Meistaradeild Evrópu;
með þann leikmannahóp sem liðið
hefur úr að spila í dag eigum við að
geta unnið Meistaradeildina,“ segir
Sara Björk Gunnarsdóttir. Íþróttir
»24-27
Krafa að liðið sé eitt það besta í heiminum
Ljósmynd/Wolfsburg
Wolfsburg Sara Björk Gunn-
arsdóttir er mjög sigursæl.
Búast má við stífum fundahöldum
hjá Ríkissáttasemjara á næstunni,
en alls losna 173 kjarasamningar í
ár, þar af 152 fyrir rúmum mánuði.
Sjö samningar munu losna um miðj-
an þennan mánuð, einn í júní, tveir í
október og tíu í desember.
Nú eru þrjú mál á borði sátta-
semjara, en það eru kjarasamn-
ingar Félags íslenskra flugumferð-
arstjóra, flugfreyja Icelandair og
mjólkurfræðinga. Fundað verður í
deilu flugumferðarstjóra og SA
vegna Isavia í dag og á morgun
verður fundur í máli Flugfreyju-
félags Íslands og SA vegna Ice-
landair.
Elísabet Ólafsdóttir, skrif-
stofustjóri embættisins, segir að
viðræður séu að fara á fullt við op-
inberu félögin og þau félög á al-
menna markaðnum sem eru í við-
ræðum við ríki og sveitarfélög. »4
Búist við önnum hjá Ríkissáttasemjara
Morgunblaðið/Golli
Ríkissáttasemjari Nú eru þrjú mál á
borði embættisins og fundað verður í dag.