Morgunblaðið - 07.05.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.05.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2019 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að Bandaríkjamenn myndu láta meira til sín taka á norðurslóðum til þess að stemma stigu við „ágengri hegð- un“ Kínverja og Rússa á svæðinu. Ráðherrafundur Norðurskautsráðs- ins hefst í dag í borginni Rovaniemi í Finnlandi, en þar eru samankomn- ir utanríkisráðherrar þjóðanna átta við norðurheimskautsbaug. Ísland mun þar taka við formennsku í ráðinu úr hendi Finna næstu tvö ár- in. Deildi hart á Kínverja Pompeo varaði við því að norð- urslóðir væru nú orðnar að vett- vangi „alþjóðlegs valds og sam- keppni“ vegna þeirra gríðarmiklu náttúruauðlinda sem þar væri að finna, einkum í formi olíu og jarð- gass, steinefna og fiskistofna. Fordæmdi Pompeo sérstaklega tilraunir Kínverja til að seilast til áhrifa á norðurslóðum, en Kína er áheyrnarríki í Norðurskautsráðinu. Gagnrýndi Pompeo að Kínverjar hefðu reynt að lýsa sér sem ríki sem væri „næstum norðurslóða- þjóð“. „Það eru eingöngu til norð- urslóðaríki og ríki sem eru ekki á norðurslóðum. Það er engin þriðja skilgreining til, og að halda öðru fram veitir Kínverjum nákvæmlega engan rétt,“ sagði Pompeo og bætti við að fylgjast yrði grannt með um- svifum Kínverja. Segir kröfur Rússa ólöglegar Þá gagnrýndi Pompeo einnig rússnesk stjórnvöld fyrir kröfur þeirra um yfirráð yfir nýjum sigl- ingaleiðum sem nú væru að mynd- ast á norðurslóðum vegna bráðn- andi íss. Sagði hann Rússa nú þegar krefjast þess ólöglega að aðrar þjóðir bæðu þá um leyfi til að sigla „Norðausturleiðina“ svonefndu og að rússneskir lóðsar væru um borð í þeim skipum sem þar færu um. Þá hótuðu Rússar að sökkva með her- valdi þeim skipum sem hlýddu ekki þeim boðum. „Þessar ögrandi aðgerðir eru hluti af ágengri hegðun Rússa á norðurslóðum,“ sagði Pompeo. Bætti hann við að Bandaríkin myndu treysta bæði hervald sitt á norðurslóðum sem og utanríkissam- skipti við ríki heimshlutans. Þá myndu Bandaríkjamenn ráðast í endurnýjun á ísbrjótum sínum. Mikilvægt væri að norðurslóðir yrðu ekki heimshluti þar sem engin lög ríktu. Segjast ekki standa í hótunum Rússar hafa áður sagt að aðgerð- ir þeirra á norðurslóðum ógni ekki öryggi annarra ríkja, heldur miði eingöngu að því að treysta öryggi Rússlands. „Allt sem við gerum á norðurslóðum miðast við það, við erum ekki að hóta neinum,“ sagði Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, á fundi norðurskauts- ríkjanna í St. Pétursborg í síðasta mánuði. Pompeo og Lavrov funduðu í gær í Rovaniemi og ræddu sérstaklega þar málefni Venesúela. Sagði Pom- peo Lavrov að Rússar yrðu að láta af stuðningi sínum við Nicolas Mad- uro, forseta landsins, en ástandið í landinu hefur verið mjög ótryggt undanfarna daga. Gagnrýnir ásælni Kínverja  Bandaríkin muni láta meira til sín taka á norðurslóðum til að halda Rússum og Kínverjum í skefjum  Pompeo og Lavrov ræddu málefni Venesúela í gær AFP Norðurslóðir Vel fór á með Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, og Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í upphafi fundar þeirra. Meghan, hertoga- ynja af Sussex, eignaðist son í gærmorgun. Harry prins, eig- inmaður hennar, tilkynnti fæð- inguna um hádeg- isbilið og sagði að móður og barni heilsaðist mjög vel. „Þetta hefur verið ótrúlegasta lífsreynsla sem ég get ímyndað mér,“ sagði Harry enn- fremur, en hann var viðstaddur fæð- inguna. „Hvernig nokkur kona getur gert það sem þær gera er ofar öllum skilningi,“ sagði Harry ennfremur. Í tilkynningu frá konungshöllinni sagði að drengurinn hefði fæðst kl. 5.26 að staðartíma, en Harry og Meghan völdu að láta fæðinguna fara fram á heimili þeirra við Frog- more Cottage, sem er á landareign Windsor-kastala. Barnið vó rúmlega 16 merkur, en það er sjöunda í erfða- röð bresku krúnunnar. Þá kom fram að móðir hertogaynj- unnar, Doria Ragland, væri himinlif- andi með fyrsta barnabarn sitt, og að hún dveldi nú með hinum nýbökuðu foreldrum. Viðbót í konungs- fjölskylduna Meghan Markle  Sonur Meghan og Harry fæddist í gær Mannkynið er að sóa náttúruauð- lindum jarðarinnar, samkvæmt nýrri skýrslu á vegum Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var í gær. Vara höfundar skýrslunnar við því að um ein milljón tegunda dýra og plantna sé nú í útrýmingarhættu vegna lakr- ar umgengni mannkynsins við nátt- úruna. Í skýrslunni er varað við því að aukinn fjöldi útdauðra tegunda geti ýtt undir fyrsta fjöldadauða jarðar- innar síðan risaeðlurnar dóu út fyrir um 65 milljón árum. Þá myndi það kalla á stórfelldar breytingar á fram- leiðslu og neyslu nánast allra þeirra vara sem mannkynið notar í dag, til þess að snúa þeirri þróun við. Robert Watson, fyrrverandi yfir- maður IPBES, stofnunar Samein- uðu þjóðanna um fjölbreytni lífríkis og vistkerfis, kynnti útdrátt úr skýrslunni í gær, en hún er 1.800 síðna löng. Sagði Watson ógnina sem að mannkyninu steðjaði af ofnýtingu náttúruauðlinda vera að minnsta kosti jafnmikla og þá sem stafaði af hlýnun jarðar. „Við erum að vega að sjálfum grundvelli hagkerfa, atvinnu, fæðu- öryggis, heilsu og lífsgæða um allan heim,“ sagði Watson og bætti við að ríki heims þyrftu að fara að huga að öðrum þáttum en bættum hagvexti í efnahagsstjórn sinni. Helst í hendur við hnatthlýnun Í skýrslunni er rakið hvernig minnkandi fjölbreytni í lífríkinu og hlýnun jarðarinnar haldist í hendur. Þannig hafi breytt nýting landsvæð- is á síðustu 50 árum ýtt undir aukna losun gróðurhúsalofttegunda og hvort tveggja sett fjölda tegunda í útrýmingarhættu. Þá er bent á að 93% helstu fiski- stofna séu í hnignun eða nýtt um- fram það sem sjálfbært er, þrátt fyr- ir tilraunir stjórnvalda til þess að koma böndum á ofveiði. Helsta ráðleggingar skýrslunnar eru þær að stemma þurfi stigu við eyðingu hitabeltisskóga, draga úr neyslu kjöts og hætta ríkisstyrkjum til orkufreks iðnaðar og framleiðslu kolefniseldsneytis. Milljón tegundir sagðar í hættu  Ný skýrsla SÞ um náttúruumgengni AFP Heimur á heljarþröm Kóralrif eru á meðal þess sem er nefnt í skýrslu Sam- einuðu þjóðanna en þeim hefur farið mjög hnignandi á síðustu áratugum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.