Morgunblaðið - 07.05.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.05.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2019 Hamraborg 10, Kópavogi Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU ——— HANDBOLTI Olísdeild karla Undanúrslit, þriðji leikur: Selfoss – Valur ...................................... 29:26  Selfoss vann einvígið, samtals 3:0, og leikur til úrslita við Hauka eða ÍBV. Danmörk Úrslitakeppnin, 1. riðill: Skjern – Aalborg ................................. 35:28  Björgvin Páll Gústavsson varði annað tveggja skota í marki Skjern. Tandri Már Konráðsson skoraði eitt mark fyrir liðið.  Janus Daði Smárason skoraði fimm mörk fyrir Aalborg og Ómar Ingi Magn- ússon þrjú. Arnór Atlason er aðstoðarþjálf- ari liðsins.  Staðan: Skjern 6, Aalborg 6, Tvis Hol- stebro 3, SönderjyskE 2. Aalborg og Skjern hafa leikið fjóra leiki af sex, hin liðin þrjá leiki. Tvö efstu fara í undanúrslit. Svíþjóð Undanúrslit, þriðji leikur: Skövde – Sävehof .................................25:28  Ágúst Elí Björgvinsson varði 13 skot í marki Sävehof.  Staðan er 2:1 fyrir Sävehof. Úrslitakeppni NBA Vesturdeild, undanúrslit: Portland – Denver............................ 112:116  Staðan er 2:2. KÖRFUBOLTI KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Nettóvöllur: Keflavík – ÍBV..................... 18 Samsungv.: Stjarnan – HK/Víkingur . 19.15 Jáverkvöllur: Selfoss – Breiðablik...... 19.15 HANDKNATTLEIKUR Umspil karla, úrslit, fjórði leikur: Digranes: HK – Víkingur (1:2) ............ 19.30 Í KVÖLD! Noregur Viking – Vålerenga ................................. 1:1  Samúel Kári Friðjónsson var í liði Viking fram á 90. mínútu. Axel Óskar Andrésson er frá keppni vegna meiðsla.  Matthías Vilhjálmsson var í liði Våler- enga fram á 90. mínútu. Staða efstu liða: Molde 7 5 1 1 17:6 16 Bodø/Glimt 6 4 1 1 15:9 13 Odd 6 4 1 1 9:5 13 Vålerenga 7 3 2 2 10:9 11 Viking 6 3 1 2 9:8 10 Kristiansund 7 3 1 3 7:8 10 Mjøndalen 6 2 2 2 10:11 8 Brann 7 2 2 3 9:10 8  Í LAUGARDAL Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þegar leikjadagskrá tímabilsins var sett upp og ljóst var að Víkingar áttu að hefja Íslandsmótið í knattspyrnu á að mæta Val og FH má alveg fyrir- gefa þeim stuðningsmönnum liðsins sem sáu ekki fyrir sér stig á töflunni að tveimur umferðum loknum. En nú naga leikmenn Víkings sig í handarbökin yfir því að vera aðeins með tvö stig í höfn eftir viðureign- irnar við liðin tvö sem margir telja þau sterkustu í deildinni í ár. Þeir gerðu jafntefli við FH, 1:1, á Eim- skipsvelli Þróttar í Laugardalnum í gær og misstu niður forystu manni fleiri. Gegn Val komust þeir þrisvar yfir, í þriðja skiptið á 88. mínútu. Engin furða að leikmenn og stuðn- ingsmenn Fossvogsliðsins gráti það að vera ekki með fjögur eða jafnvel sex stig á toppi deildarinnar. „Að hafa náð forystunni fjórum sinnum, þrisvar í leiknum gegn Val, en vera samt bara með tvö stig eftir tvær umferðir. Ég veit að við vorum að spila við tvö af bestu liðunum en við gætum hæglega verið komnir með sex stig á þessari stundu,“ sagði Nicolaj Hansen, markaskorari Vík- ings, við Morgunblaðið. Færeysku landsliðsmennirnir í FH, í það minnsta tveir af þremur, hafa oft átt betri dag. Brandur Olsen fékk rauða spjaldið rétt fyrir hlé, braut af sér eftir að hafa fengið gult spjald og tiltal að auki. Rétt áður hafði Gunnar landi hans Nielsen misst boltann klaufalega fyrir fætur hins danska Nikolajs Hansens sem þakkaði fyrir auðvelt mark, 1:0. Ólafur H. Kristjánsson þurfti að endurskipuleggja FH-liðið í hálfleik og lék 4-3-2 í seinni hálfleiknum þar sem liðið dró sig aðeins aftar en freistaði þess að sækja hratt með Jákup Thomsen í aðalhlutverki. Halldór Orri Björnsson kom inná sem varamaður hjá FH og lagði strax grunninn að góðri sókn sem hann batt síðan endahnút á sjálfur með laglegu skoti, 1:1. Þótt ótrúlegt megi virðast er þetta fyrsta deild- armark Halldórs fyrir FH-inga, á hans þriðja tímabili í Hafnarfirði, eft- ir að hafa skorað grimmt fyrir Stjörnuna fram að því. Víkingsliðið hefur komið mörgum á óvart í byrjun móts, bæði fyrir frammistöðuna gegn tveimur sterk- um liðum og svo þá staðreynd að flestir virtust telja liðið á leið í harða fallbaráttu. Arnar Gunnlaugsson hef- ur greinilega búið sína menn vel und- ir mótið. Þeir virka samstilltir, skipu- lagðir og kraftmiklir og ættu eftir þessa ágætu byrjun að vera með all- þokkalegt sjálfstraust. Nokkrir ungir strákar eru í stórum hlutverkum, með Sölva Geir Ottesen sem leiðtoga í vörninni. Markvörðurinn Þórður Ingason var þó þeirra besti maður í gærkvöld en hann varði í þrígang glæsilega frá FH-ingum í leiknum. Það er talsvert betri bragur á FH- ingum í fyrstu leikjunum á þessu tímabili en í fyrra. Liðsheildin virðist sterkari og einstakir leikmenn virð- ast njóta sín betur, eins og t.d. Krist- inn Steindórsson á miðjunni og svo Guðmundur Kristjánsson sem er orðinn gríðarlega öflugur miðvörður og hefur farið vel af stað á þessu tímabili. Hann var bestur FH-inga í gær og steig aldrei feilspor í vörn- inni. Stutt frá sex stigum en eru bara með tvö  Tíu FH-ingar jöfnuðu gegn Víkingum sem hafa komið á óvart í byrjun móts Morgunblaðið/Hari Jafnt Jónatan Ingi Jónsson og Erlingur Agnarsson á ferð í Laugardal í gær. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is KR-ingurinn Pálmi Rafn Pálmason náði þeim stóra áfanga á sunnudaginn að skora sitt 100. mark í deildakeppni á ferlinum þegar KR vann ÍBV 3:0 í annarri umferð Pepsi Max-deildar karla í knattspyrnu í Vesturbænum. Pálmi Rafn, sem er 34 ára gamall, hóf meist- araflokksferilinn 15 ára gamall með Völsungi árið 2000 og skoraði 15 mörk fyrir Húsvíkinga í 43 leikjum í 2. og 3. deild þrjú fyrstu árin. Hann fór þaðan í KA, lék tvö ár í úrvalsdeild og eitt í 1. deild þar sem hann gerði 6 mörk í úrvalsdeild- inni og 10 í 1. deildinni. Þaðan lá leiðin í Val þar sem Pálmi varð Ís- landsmeistari 2007 og skoraði 17 mörk í deild- inni á þremur árum. Eftir það lék Pálmi í norsku úrvalsdeildinni í sex og hálft ár, með Stabæk og Lilleström, og skoraði þar 32 mörk í 166 leikjum. Pálmi hefur leikið með KR frá 2015. Hann er búinn að skora í fyrstu tveimur leikjum tímabils- ins, skoraði 11 mörk í fyrra og er alls kominn með 20 mörk í 86 leikjum fyrir Vesturbæinga í úrvalsdeildinni. Pálmi Rafn skoraði hundraðasta markið gegn Eyjamönnum Morgunblaðið/Árni Sæberg Hundrað Pálmi Rafn Pálmason hefur gert eitt hundrað mörk í deildakeppni Íslands og Noregs. 1:0 Nikolaj Hansen 40. 1:1 Halldór Orri Björnsson 71. I Gul spjöldÁgúst, Davíð Örn og Atli Hrafn (Víkingi), Brandur og Davíð Þór (FH). I Rauð spjöldBrandur (FH) 44. M Þórður Ingason (Víkingi) Sölvi Geir Ottesen (Víkingi) Halldór S. Sigurðsson (Víkingi) Júlíus Magnússon (Víkingi) Logi Tómasson (Víkingi) Guðmundur Kristjánsson (FH) Hjörtur Logi Valgarðsson (FH) Jákup Thomsen (FH) Björn Daníel Sverrisson (FH) Kristinn Steindórsson (FH) VÍKINGUR R. – FH 1:1 Víkingur: (4-5-1) Mark: Þórður Inga- son. Vörn: Davíð Örn Atlason, Sölvi Geir Ottesen, Halldór Smári Sigurðs- son, Logi Tómasson. Miðja: Ágúst Eðvald Hlynsson, Júlíus Magnússon, Erlingur Agnarsson (Atli Hrafn Andrason 46), Mohamed Didé Fof- ana (Viktor Andrason 66), Rick ten Voorde. Sókn: Nikolaj Hansen. FH: (4-3-3) Mark: Gunnar Nielsen. Vörn: Pétur Viðarsson, Guðmann Þórisson, Guðmundur Kristjánsson, Hjörtur Logi Valgarðsson. Miðja: Brandur Olsen, Björn Daníel Sverr- isson, Kristinn Steindórsson (Davíð Þór Viðarsson 78). Sókn: Jónatan Ingi Jónsson (Halldór Orri Björnsson 65), Jákup Thomsen, Atli Guðnason (Þórir Jóhann Helgason 46). Dómari: Ívar Orri Kristjánsson, 7. Áhorfendur: 1.280.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.