Morgunblaðið - 07.05.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.05.2019, Blaðsíða 23
DAGBÓK 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2019 Í klípu „FYRIRTÆKIÐ ÞITT TAPAÐI 147 MILLJÓNUM Á SÍÐASTA ÁRSFJÓRÐUNGI. Á ÉG BARA AÐ LÍTA FRAMHJÁ ÞVÍ?” eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „VIÐ FLUGUM LÁGFLUG YFIR EINA AF BORGUM YKKAR … AÐDÁUNARVERÐ!” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera þakklátur fyrir að vera maðurinn í lífi hennar. PÚKI KVARTAR ALDREI ÞEGAR ÉG SVINDLA NEEEI! ÉG GLEYMDI SKILDINUM! ÉG ER VARNARLAUS!! JAH, ÉG VEIT EKKI … ÞÚ ERT MEÐ BJÓRVÖMB! kvikmyndir; 3) Rannveig Kristjáns- dóttir, f. 15.9. 1997, sálfræðinemi í HÍ. Maki: Karl Kvaran, hagfræði- nemi í HÍ. Stjúpbörn Sigurjónu eru 1) Ingvar Jóhann Kristjánsson, f. 25.11. 1969. viðskiptafræðingur. Börn hans eru Þórey, f. 2007 og Vala og Kristján, f. 2009, og 2) Barbara Krist- ín Kristjánsdóttir, f. 8.7. 1974, mann- auðsstjóri KFC Ísland. Dóttir hennar er Júlía Ingvarsdóttir, f. 2006. Systkini Sigurjónu eru Eyjólfur Orri Sverrisson, f. 7.7. 1965, flugvirki, bús. í Kópavogi, maki: Geirný Sigurð- ardóttir, verkefnastjóri í Barnahúsi, og Jón Einar Sverrisson, f. 21.3. 1976, deildarstjóri, bús. í Kópavogi, maki: Rannveig Gunnlaugsdóttir sjúkra- þjálfari. Foreldrar Sigurjónu eru hjónin Rannveig Guðmundsdóttir, f. 15.9. 1940 á Ísafirði, fyrrverandi bæjar- fulltrúi, ráðherra og alþingiskona, og Sverrir Jónsson, f. 9.7. 1939 á Ísafirði, rekstrartæknifræðingur. Þau eru búsett í Kópavogi. Sigurjóna Sverrisdóttir Aðalsteinn Guðmundsson sjómaður og bóndi í Stakkadal og trésmiður í Rvík Ragnar Aðalsteinsson kaupmaður í Rvík Þórlaug Gyða Ragnarsdóttir jólameistari í Kópavogi k Gissur Páll Gissurarson tenór Guðrún Sæmundsen húsmóðir í Rvík Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa lónsins Gunnbjörn Guðmundsson rentari í Reykjavíkp Áshildur Bragadóttir fjármálastjóri Sahara Guðmundur Einarsson refaskytta á Brekku Guðrún Magnúsdóttir bóndi á Brekku á Ingjaldssandi Jón H. Guðmundsson skólastjóri barnaskólans á Ísafirði og í Digranesskóla í Kópavogi Jóhannes Kristjánsson skemmtikraftur Halla Signý Kristjánsdóttir alþingiskona Árelía Eydís Guðmundsdóttir, rithöfundur, dósent HÍ og lífskúnster Eygló Kristjánsdóttir nuddfræðingur í Reykjanesbæ Kristján Guðmundsson bóndi á Brekku, eiginmaður Árilíu Jóhannesdóttur Sverrir Jónsson tæknifræðingur, bús. í Kópavogi Sigríður Jóhannesdóttir húsmóðir á Ísafirði og síðar í Kópavogi Jóna Á. Sigurðardóttir húsmóðir á Flateyri Jóhannes Andrésson sjómaður á Flateyri við Önundarfjörð Árilía Jóhannesdóttir húsmóðir á Brekku, síðar í Rvík. Árilía er móðir Eyglóar, Höllu Signýjar og Jóhannesar Kristjánsbarna Guðmundur Guðmundsson bóndi í Stakkadal Sigríður H. Zakaríasdóttir bóndi í Stakkadal í Aðalvík Guðmundur Kr. Guðmundsson skipstjóri á Ísafirði Elsa V. Haraldsdóttir hárgreiðslumeistari á Salon VEH Brynhildur Jónasdóttir ljósmóðir á Sléttu, Ísafirði og Rvík Sigurjóna Jónasdóttir húsmóðir á Ísafirði Jónas Dósóþeusson hreppstjóri á Sléttu Þórunn Brynjólfsdóttir bóndi á Sléttu í Jökulfjörðum Úr frændgarði Sigurjónu Sverrisdóttur Rannveig Guðmundsdóttir alþingiskona og ráðherra, bús. í Kópavogi Ólafur Stefánsson skrifaði áLeir: Ég notaði kyrrðina á föstudaginn langa til að þýða ljóð Brechts um móðurina sem sá á eftir syni sínum í stríðsvél Hitlers. Í ár eru liðin áttatíu ár frá upphafi stríðsins, sem skildi Evrópu eftir í rúst, og enn lengra síðan Brecht og margir fleiri listamenn hröktust í útlegð og áttu ekki afturkvæmt fyrr en að hildarleiknum loknum. Á útlegðarárunum samdi Brecht mikið af andófsefni gegn stríðs- rekstri nasistastjórnarinnar og kom á framfæri gegnum útvarp, t.d. við þýska hermenn á austur- vígstöðvunum. Hann hamraði á því að stríðið væri tapað og að þeir ættu ekki heimkomu von. Sama að- ferð og Marlene Dietrich notaði til að draga kjark og baráttuvilja úr þýskum hermönnum. Ljóðið um móðurina er af þessum toga. Mín skömm, ég fékk þér skóna, og skyrtuna moldarbrúna. Það hefði ég ekki að eilífu gert, með allt sem að veit ég núna. Er sá ég þig höndina hefja, með Hitlerskveðju svo fljótt. Ég vissi’ ekki þá að við það mundi hún visna og missa þrótt. Sonur, ég heyrði þig hrópa um hetjur og ofurkyn. Mig grunaði ekki né gáði, að gerðist þú böðulsins vin. Seinna ég sá þig ösla um svaðið sem Hitlers þý. Vissi’ ekki’að þeir sem villtust þá leið vart kæmu heim á ný. Sonur, þú sagðir að landið sjá myndi nýja tíð, en ræddir ekki um að rigndi sprengjum, um rústir, hungur og stríð. Þú barst þína brúnu skyrtu, mín byrði og sekt var rík, er skynjaði loks og skildi: sú skyrta var dauðsmanns flík. „Svona er það bara,“ segir Ár- mann Þorgrímsson á Leir: Þegar læðist aldur að unaðs stundum getan hafnar, elli glöpin eru það eina sem þá vex og dafnar. „Sléttubönd eru skemmtilegur bragarháttur og gaman að lesa þau líka aftur á bak,“ segir Ingólfur Ómar: Öndin léttist seggja senn seiða glettur ljóða. Böndin sléttu ylja enn ómar fléttan góða. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ljóð þýskrar móður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.