Morgunblaðið - 07.05.2019, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2019
✝ Reynir CarlÞorleifsson
fæddist 25. sept-
ember 1952 í Vest-
mannaeyjum. Hann
lést á Landspítalan-
um í Reykjavík 25.
apríl 2019.
Foreldrar hans
voru Þorleifur
Bragi Guðjónsson,
f. 23. júlí 1922, d. 9.
nóvember 2010, og
Erika Minna María Guðjónsson,
f. 22. mars 1912, d. 10. ágúst
2007. Reynir Carl var eina barn
þeirra.
Hinn 25. september 1976 gift-
ist Reynir Jenný Þóru Eyland at-
vinnurekanda, f. 10. ágúst 1955.
Foreldrar hennar voru Henry
Juul Eyland, f. 21. júní 1922, d.
21. febrúar 1984, og Þórey Gunn-
laug Petra Þorsteinsdóttir, f. 11.
desember 1924, d. 26. desember
um frá 13-18 ára aldurs árin
1974-1979.
Reynir ólst upp í Vestmanna-
eyjum og flutti í gosinu 1973 til
Reykjavíkur, bjó þar til 1979 og
flutti þá í Kópavog. Í rúm tuttugu
ár bjó Erika móðir Reynis hjá
þeim í kjallaranum.
Reynir hóf nám í bakaraiðn
árið 1969 hjá Sigmundi Andr-
éssyni bakarameistara í Magn-
úsarbakaríi. Hann kláraði námið
í Snorrabakaríi í Hafnarfirði árið
1973. Hann starfaði ætíð við bak-
araiðnina, á tímabili sem sölu-
maður og bakari hjá Efnagerð
Laugarness og einnig til margra
ára bakari í Bernhöftsbakaríi. Þá
gegndi hann störfum til margra
ára hjá Landssambandi bakara-
meistara og var þar formaður
2004-2007. Reynir var einnig fé-
lagi í Kiwanisklúbbnum Eldey í
Kópavogi.
Reynir og Jenný stofnuðu fyr-
irtækið Reynir bakari ehf. árið
1994 á Dalvegi 4 og síðar opnuðu
þau útibú í Hamraborg 14. Eru
bakaríin starfandi enn í dag.
Útför Reynis fer fram frá
Digraneskirkju í dag, 7. maí 2019,
og hefst athöfnin klukkan 15.
1974. Börn þeirra
eru: 1) Þorleifur
Karl, bakari, f. 29.
september 1974,
maki Helena Rós
Hafsteinsdóttir
snyrtifræðingur.
Börn þeirra eru
Sylvía Mist, Aníta
Sif og Daníel Darri.
2) Anna María,
kennari, f. 12. ágúst
1977, maki Kristinn
Þór Ingvason kerfisfræðingur,
börn þeirra eru: Alex Leó, Reyn-
ir Elí og Ingvi Þór. 3) Henrý Þór,
bakari, f. 17. febrúar 1980, maki
Elísa Örk Einarsdóttir hár-
snyrtir, barn þeirra er Reynar
Erik. 4) Einnig á Reynir soninn
Magnús Þór, f. 13. janúar 1987,
maki Erna Dís Eriksdóttir og á
hann tvær dætur, Lilju Marý og
Ylfu Rún. Bára Millard, systir
Jennýjar, ólst upp hjá þeim hjón-
Elsku afi minn er látinn og er
það mikil sorg. Ég man vel eftir
því þegar ég var í heimsókn hjá
þér þegar ég var yngri og ég var
svo heillaður af bassahæfileikun-
um þínum.
Ég hef síðan stundum fengið
að koma í bakaríið til þín að hjálpa
til, til dæmis á bolludögum. Ég
mun ekki geta fengið tækifæri til
þess að sýna þér fyrsta bílinn
minn, menntaskólann sem ég fer í
og fleira sem ég geri í framtíðinni
og það eru sorgleg tíðindi.
Ég er stoltur af því að litli bróð-
ir minn hafi verið skírður í höfuðið
á þér þótt það særi mig að hann
muni ekki geta kynnst þér betur.
Ég tek því persónulega ábyrgð
á að passa upp á að litlu bræður
mínir gleymi þér ekki. Þín verður
sárt saknað afi.
Alex Leó Kristinsson.
Elsku afi okkar er látinn. Það
kom okkur mjög á óvart þegar
mamma sagði okkur að afi okkar
væri farinn. Við urðum leiðir og
sorgmæddir.
Núna getum við aldrei aftur
hlaupið til þín í bakaríinu, kall-
andi afi afi yfir alla búðina og sjá
þig að störfum. En elja þín og
dugnaður hefur skilað sér í besta
bakaríi landsins, eða það finnst
okkur allavega. Við getum heldur
aldrei sagt þér frá fótboltamótum
eða frá einhverjum ofurhetjum
eða bara því sem við myndum
vilja segja þér.
Við munum aldrei geta farið
með þér á þínar æskuslóðir í
Vestmannaeyjum, mamma hefur
sagt okkur mikið frá uppvaxtar-
árum þínum í Vestmannaeyjum,
hvernig þú hékkst í ljósastaurum
við blaðaútburð til að fjúka ekki á
haf út og hvernig þú þurftir að
flýja eldgosið.
Við stefnum á að fara í sumar
til Vestmannaeyja og fá að sjá
söguna beint í æð.
Við munum aldrei fá að sjá þig
spila á bassann þinn, en okkur
þykir mikið til þess koma að þú
hafir verið í hljómsveit og spilað á
böllum og tónleikum. Við erum
mikið þessa dagana að hlusta á
Eyþór Inga syngja Ég á líf sem á
ótrúlega vel við núna, því við eig-
um svo sannarlega líf út af þér.
Elsku afi, við höfum ennþá
hana Jenný ömmu okkar og við
skulum svo sannarlega sjá til þess
að henni leiðist ekki þegar við er-
um nálægt henni. Við vonum svo
sannarlega að þér líði vel á þeim
stað sem þú ert á núna. Mamma
mun passa að við gleymum þér
aldrei.
Reynir og Ingvi.
Okkur systur langar að minn-
ast Reynis sem hefur verið hluti
af okkar lífi alla tíð þar sem hann
er maður Jennýjar systur
mömmu og fjölskyldan lítil og
mjög náin og alltaf í góðu sam-
bandi og hefur alltaf verið gert
mikið saman.
Eigum við því margar góðar
minningar um hann úr sumarbú-
staðaferðum, einnig fórum við til
Spánar og ekki síst í bakaríinu
þar sem okkar fyrsta starf á
vinnumarkaðnum var hjá þeim.
Reynir var skipulagður og góður
vinnuveitandi og húmoristi sem
vildi öllum vel. Ekki áttum við von
á að þurfa að kveðja hann svo
fljótt.
Takk fyrir allar góðu samveru-
stundirnar á liðnum árum. Sam-
úðarkveðjur til Jennýjar, Þor-
leifs, Önnu Maríu, Henrýs,
tengdabarna og barnabarna.
Þórey, Telma, Íris
og fjölskyldur.
Erfitt er að kveðja góðan vin
og mág og að fá ekki að skapa
fleiri minningar með þér.
Á tímamótum sem þessum fer
hugurinn ósjálfrátt í gegnum lið-
inn tíma og samverustundir sem
svo sannarlega eru dýrmætar,
ljúfar og ómetanlegar. Gegnum
árin gerðum við systurnar og
makar nánast allt saman bæði í
sorg og gleði og þá var gott að
geta hjálpast að.
Reynir reyndist okkur alltaf
svo vel og var einstaklega hjálp-
samur. Aldrei bar skugga á vin-
áttu okkar.
Hugurinn reikar til ársins 1971
þegar Jenný systir kynnist Reyni.
Hann var mikill húmoristi,
skemmtilegur og hreinskilinn.
Reynir kunni vel að meta góða
tónlist, hafði verið í hljómsveit í
Vestmannaeyjum og spilað á
bassa. Fyrir nokkrum árum var
sett saman hljómsveit bakara til
að spila á skemmtun, þar naut
Reynir sín vel, að taka upp gamla
takta og spila á bassann. Hann
var svo stoltur af þeim viðburði
þegar hann sagði okkur frá.
Stundum fengum við að heyra
hann spila á bassann þegar við
komum við á Helgubrautinni.
Síðari ár stundaði Reynir golf-
ið þegar færi gafst og fór í nokkr-
ar golfferðir innanlands og utan.
Einnig var hann félagi í Kiwanis.
Það var ykkar gæfa að kynnast
svona ung og hafið þið staðið sam-
an eins og klettar í gegnum árin.
Saman settuð þið á stofn bakarí
og byggðuð það upp frá grunni,
og unnuð saman að því. Þá var
gjafmildi ykkar á veitingum til
alls konar góðgerðarmála ekki lít-
ils virði fyrir þá sem það hlutu.
Dætur okkar byrjuðu sína
fyrstu vinnu í bakaríinu og lærðu
þar góða vinnusiði sem nýtast
þeim vel.
Reynir var mjög stoltur af
börnum og barnabörnum og
fylgdist vel með því sem þau voru
að gera.
Veikindi þín reyndust meiri en
okkur grunaði og því kom fráfall
þitt mjög á óvart. Jenný og börnin
stóðu þétt með þér í þessum erf-
iðu veikindum.
Þín verður minnst með söknuði
og hlýju og þökkum við fyrir sam-
fylgdina í gegnum öll árin. Það
verður erfitt fyrir Jenný, börnin
þín, tengdabörn og barnabörn að
sjá á eftir ástríkum eiginmanni,
föður, tengdaföður og afa en
minningarnar munu ylja þeim um
ókomna tíð.
Guð blessi þig elsku Reynir.
Svava og Elías.
Reynir æskuvinur okkar er all-
ur. Við félagarnir áttum saman
æskuna og unglingsárin í Eyjum.
Í nýbyggðu hverfi vestast í bæn-
um, tveir af Brimhólabrautinni og
hinir tveir af nærliggjandi götum.
Vorum þrír af sama árgangi, ól-
umst upp í hverfinu, gengum
saman í skóla, lékum okkur í
hrauninu, fórum í Betel á sunnu-
dögum og í bíó á eftir.
Heimur okkar var agnarsmár,
en bíómyndirnar opnuðu þó
glugga að framandi ævintýraver-
öld einhvers staðar í víðáttunni.
Reyndar voru það útvarpstækin
sem rifu þennan heim okkar upp á
gátt, þegar okkur bárust tor-
kennileg hljóð í gegnum brak og
bresti frá erlendum útvarpssend-
ingum. Bítlaæðið var hafið, og það
leysti af hólmi Roy og Trigger í
einni svipan!
Við félagarnir soguðumst með
húð og hári inn í heim Bítlatónlist-
ar, og ekkert annað komst að.
Fyrr en varði vorum við búnir að
stofna hljómsveit eins og fleiri
strákar á okkar aldri. Í hönd fóru
dýrðardagar. Við eignuðumst
hljóðfæri og æfðum af kappi.
Enginn kunni neitt í byrjun, en
við vorum eins og arfinn í kál-
görðunum og þurftum ekkert
nema aðgang að tónlist til þess að
vaxa. Slitróttir tónar hljóðfær-
anna urðu að hljómum, sem um-
breyttust svo okkur til furðu í
ljómandi laglínur! Fljótlega vor-
um við gjaldgengir á skólaböllin,
á stúkufundi hjá Imbu og fengum
að spila í pásum hjá Logum. Við
æfðum á ýmsum stöðum í bænum
og oft langt fram á nætur. Eftir
góða æfingu var venjan að fara á
rúntinn, kaupa ís og síðan var
haldið heim til þess að ræða um
tónlist og hlusta á plötur. Þetta
var dásemdarlíf, eflaust á meðal
okkar bestu ára. Allt of snemma
skildi leiðir, og þessir hamingju-
tímar voru að baki.
Tengsl okkar félaga rofnuðu þó
aldrei, þótt áratugirnir liðu. Við
hittumst stundum á vinnustað
Reynis, og ekki fór á milli mála að
hann hafði náð góðu valdi á ýmsu
öðru en hljóðfæraslætti unglings-
áranna. Hafði gerst einn af frum-
byggjum í landi Smáralindar í
Kópavogi og reist þar fyrirtæki í
miðri auðninni. Var orðinn þekkt-
ur borgari fyrir hugkvæmni sína,
bjartsýni, atorku og kraft. Hafði
eignast fjölskyldu, konu og mann-
vænleg börn sem tóku þátt í starf-
semi föður síns. Ekki var hægt
annað en að dást að velgengni vin-
ar okkar. Hann sem á uppvaxt-
arárum sínum varð að standa á
eigin fótum allt of snemma eftir
að einstæðrar móður naut ekki
lengur við.
Á fundum okkar var ávallt
stutt í gamanmálin, sögur og eft-
irhermur úr Eyjum voru Reyni
sérlega tamar, og við fundum, hve
æskuböndin eru sterk.
Reynir er sá þriðji úr gömlu
hljómsveitinni sem er kvaddur á
brott. Við vinirnir eftirlifandi
sjáum á bak honum með miklum
trega.
Í samskiptum okkar á seinni
árum kviknaði alltaf glóð æsku-
og unglingsáranna, sem kveikti
bál ljúfra endurminninga. Við átt-
um sameiginlega þann sjóð sem
virtist eilíf uppspretta vináttu og
væntumþykju. Reyni kveðjum við
með miklu þakklæti í hjarta fyrir
einstaklega skemmtilega samleið
á okkar mótunar- og þroskaárum.
Eiginkonu og börnum vottum
við, gömlu félagarnir hans úr Eyj-
um, okkar dýpstu samúð.
Hafsteinn og Birgir Þór
(Haddi og Biggi).
Reynir bakari stofnaði sam-
nefnt bakarí við Dalveg í Kópa-
vogi í nóvember 1996 og gerðist
aðili að Landssambandi bakara-
meistara fljótlega upp úr því.
Reynir tók virkan þátt í starfi fé-
lagsins frá upphafi og var kosinn í
stjórn þess á aðalfundi í febrúar
árið 2000. Reynir gegndi þeim
trúnaðarstörfum sem honum
voru falin innan félagsins af mik-
illi trúmennsku og var hvers
manns hugljúfi í umgengni. Hann
skoraðist ekki undan þeirri
ábyrgð sem fólst í að taka við for-
mennsku í félaginu þegar eftir því
var leitað og var kosinn formaður
á aðalfundi þess árið 2004.
Reynir var ekki gefinn fyrir
sviðsljósið en tókst á við þá at-
hygli sem fylgdi því að vera í for-
svari fyrir Landssamband bak-
arameistara af virðingu og reisn.
Reynir gegndi formennsku í
landssambandinu til ársins 2007
er hann lét af því embætti að eigin
ósk vegna vaxandi umfangs í eig-
in rekstri. Hann sagði þó ekki
skilið við stjórnina heldur var
virkur varamaður í stjórn allt
fram til ársins 2011.
Ég tók við af Reyni sem for-
maður og hann reyndist mér ein-
staklega vel. Þó svo að Reynir
hafi verið hlédrægur og rólegur
áttum við margar góðar stundir
og hlógum mikið saman og þeir
sem þekktu hann vita hversu
hress og skemmtilegur Reynir
var.
Ég á eftir að sakna þess að
hann hringi ekki framar í mig til
að fara yfir hvað er í gangi hverju
sinni í bakarastéttinni, í lok sím-
talsins sagði hann alltaf: „Jæja
Jói minn, vil ekki vera að trufla
þig lengur,“ en oftast stóðu sím-
tölin yfir í allt að þrjátíu mínútur.
Því miður get ég ekki verið við-
staddur jarðarförina en ég lofa
því að setjast niður og lyfta glasi
Reyni til heiðurs eins og við gerð-
um svo oft saman.
Félagar í Landssambandi bak-
arameistara þakka fyrir ómetan-
legt og óeigingjarnt starf í þágu
félagsins og votta Jennýju og öðr-
um ástvinum Reynis dýpstu sam-
úð.
F.h. Landssambands bakara-
meistara,
Jóhannes Felixson,
formaður.
Reynir Carl
Þorleifsson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
VALUR BALDVINSSON,
Krókeyrarnöf 24,
Akureyri,
er látinn.
Úför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 14. maí klukkan 13.30.
Okkar innilegustu þakkir til Nickolas Cariglia, stúlknanna í
Heimahlynningu og starfsfólksins á lyflækningadeild SAk fyrir
alúðleg störf og hlýhug.
Bernharð Valsson Elva María Káradóttir
Hilmir Valsson Gunnhildur Magnúsdóttir
Vala Valsdóttir Jóhann Grímsson
Breki og Starri Bernharðssynir
Hugi, Selma, Hrund, Harpa og Hrafn Hilmisbörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SELMA SIGURJÓNSDÓTTIR,
Lindargötu 33,
lést á Droplaugarstöðum laugardaginn
4. maí.
Friðþjófur Björnsson
Ágústa Hrönn Axelsdóttir
Haukur Friðþjófsson Rannveig Gylfadóttir
Sigurjón Friðþjófsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELSA JÓNA THEÓDÓRSDÓTTIR,
lést föstudaginn 3. maí á hjúkrunarheimilinu
Grund. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Hjalti Garðar Lúðvíksson
Theódór Lúðvíksson
Sigríður Einarsdóttir Laxness
Halldór E. Laxness
Margrét E. Laxness
Einar E. Laxness
og fjölskyldur
Ástkær faðir, tengdafaðir og afi,
GARÐAR BJARNAR SIGVALDASON
myndlistamaður,
Skeljagranda 3, Reykjavík,
lést á heimili sínu 25. apríl.
Útför hans fer fram frá Neskirkju
föstudaginn 10. maí klukkan 13.
Hildur Garðarsdóttir
Jón Viðar Sigurgeirsson
Kolbeinn Tómas Jónsson
Tinna Sigríður Jónsdóttir
Ástkær móðir okkar og frænka,
MARIA SALOME LIMBAGA YEE,
lést á Landspítalanum sunnudaginn
14. apríl.
Útförin fór fram fram fimmtudaginn 2. maí.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vináttu.
Raymund Constantin Limbaga Yee
Rosamund Hillarie Limbaga Yee
Honeyly A. Limbaga Þórhallur F. Þórhallsson
Kristófer L. Þórhallsson Margrét J. L. Þórhallsdóttir