Morgunblaðið - 07.05.2019, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 07.05.2019, Qupperneq 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2019 FOSSBERG Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600 Besta sprunguleitarefnið Pepsi Max-deild karla Víkingur R. – FH...................................... 1:1 Staðan: Fylkir 2 1 1 0 5:2 4 KR 2 1 1 0 4:1 4 ÍA 2 1 1 0 5:3 4 Breiðablik 2 1 1 0 4:2 4 FH 2 1 1 0 3:1 4 KA 2 1 0 1 2:3 3 Víkingur R. 2 0 2 0 4:4 2 Stjarnan 2 0 2 0 2:2 2 Valur 2 0 1 1 3:4 1 HK 2 0 1 1 2:4 1 Grindavík 2 0 1 1 1:3 1 ÍBV 2 0 0 2 0:6 0 England Manchester City – Leicester................... 1:0 Staðan: Manch.City 37 31 2 4 91:22 95 Liverpool 37 29 7 1 87:22 94 Chelsea 37 21 8 8 63:39 71 Tottenham 37 23 1 13 65:37 70 Arsenal 37 20 7 10 70:50 67 Manch.Utd 37 19 9 9 65:52 66 Wolves 37 16 9 12 47:44 57 Everton 37 15 8 14 52:44 53 Leicester 37 15 6 16 51:48 51 Watford 37 14 8 15 51:55 50 West Ham 37 14 7 16 48:54 49 Cr. Palace 37 13 7 17 46:50 46 Bournemouth 37 13 6 18 53:65 45 Newcastle 37 11 9 17 38:48 42 Burnley 37 11 7 19 44:65 40 Southampton 37 9 11 17 44:64 38 Brighton 37 9 9 19 34:56 36 Cardiff 37 9 4 24 32:69 31 Fulham 37 7 5 25 34:77 26 Huddersfield 37 3 6 28 21:75 15 Svíþjóð Helsingborg – Djurgården..................... 1:1  Andri Rúnar Bjarnason kom inn á hjá Helsingborg á 63. mínútu. Elfsborg – Norrköping ........................... 0:0  Guðmundur Þórarinsson og Alfons Sampsted voru ekki í leikmannahópi Norr- köping. Staða efstu liða: Malmö 7 4 2 1 12:7 14 Gautaborg 7 4 1 2 16:9 13 Häcken 7 4 1 2 10:4 13 Djurgården 7 3 3 1 11:7 12 Elfsborg 7 3 3 1 13:10 12 Östersund 7 3 3 1 9:6 12 Linköping – Örebro................................. 4:1  Anna Rakel Pétursdóttir lék allan leik- inn fyrir Linköping. B-deild: Dalkurd – Syrianska ............................... 4:1  Nói Snæhólm Ólafsson var á varamanna- bekk Syrianska. Pólland Jagiellonia – Pogon Szczecin................. 4:2  Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn fyr- ir Jagiellonia. Hvíta-Rússland Gorodeja – BATE Borisov...................... 1:0  Willum Þór Willumsson kom inn á sem varamaður hjá BATE á 64. mínútu. KNATTSPYRNA 1. UMFERÐ Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Verða Breiðablik og Valur í sér- flokki í sumar og heyja einvígi um Íslandsmeistaratitil kvenna í knatt- spyrnu? Eftir aðeins eina umferð er kannski fullsnemmt að spá um slíkt en eftir góða sigra Íslandsmeistara Breiðabliks og gríðarlega vel mann- aðs Valsliðs á tveimur af þeim lið- um sem ættu að vera með þeim í efri hlutanum í sumar eru strax komnar sterkar vísbendingar í þessa átt. Þór/KA er það lið sem talið er eiga mestu möguleikana á að fylgja Breiðabliki og Val eftir. Stórsigur Vals, 5:2, í leik liðanna á Hlíðarenda á föstudagskvöldið gefur hinsvegar til kynna að munurinn á þeim sé meiri en talið var. Valur teflir fram nánast eingöngu núverandi og fyrr- verandi landsliðskonum á meðan breiddin hjá Akureyrarliðinu er minni en áður og ljóst er að Þór/KA má ekki við neinum skakkaföllum í sumar til að eiga möguleika gegn toppliðunum. Það eru viðbrigði fyr- ir Þór/KA að fá á sig fimm mörk eftir að hafa fengið á sig samtals 14 og 15 mörk í deildinni tvö und- anfarin keppnistímabili. Breiðablik þurfti að hafa fyrir 2:0 sigrinum í Eyjum en gerði betur þar en í fyrra þegar liðin skildu jöfn. Kópavogsliðið er með nokkra leikmenn sem geta gert út um leiki, gat leyft sér að vera með landsliðs- konurnar Berglindi Björgu Þor- valdsdóttur og Selmu Sól Magn- úsdóttur á bekknum fram í seinni hálfleik. Agla María Albertsdóttir, sem sannaði sig sem einn besti leik- maður deildarinnar í fyrra, skoraði bæði mörkin og fer vel af stað á tímabilinu. Hin sex liðin í deildinni virðast geta unnið hvert annað, og svo fór að Stjarnan, Fylkir og HK/Víkingur unnu eins marks sigra á Selfossi, Keflavík og KR. Það er útlit fyrir gríðarlega harða keppni í neðri hlutanum í ár. Berglind besti leikmaðurinn Berglind Rós Ágústsdóttir, miðjumaður og fyrirliði nýliða Fylk- is, er besti leikmaður 1. umferðar að mati Morgunblaðsins. Edda Garðarsdóttir skrifaði í Morg- unblaðið eftir leik Fylkis og Kefla- víkur: „Berglind stýrði miðjunni í vörn og sókn og var að öðrum ólöst- uðum langbesti maður vallarins í dag.“ Berglind fór fyrir Fylkisliðinu þegar það vann 1. deildina í fyrra og er því gríðarlega mikilvæg. Berglind er 23 ára gömul og hefur leikið 55 leiki í efstu deild með Fylki, Val og Aftureldingu, ásamt 14 leikjum fyrir yngri landslið Ís- lands. Hlín besti ungi leikmaðurinn Hlín Eiríksdóttir úr Val var besti ungi leikmaður 1. umferðar. Hún skoraði þrennu í 5:2 sigrinum á Þór/KA, þar af tvö skallamörk. Hlín verður 19 ára í næsta mánuði og hefur nú skorað 9 mörk í 47 leikjum fyrir Val í efstu deild. Hún á þegar 6 A-landsleiki að baki og 45 leiki með yngri landsliðunum.  Dóra María Lárusdóttir úr Val lék sinn 250. deildaleik á ferlinum gegn Þór/KA, þar af 220. á Íslandi. Hún er tólfta íslenska knatt- spyrnukonan sem nær 250 leikjum, heima og erlendis. Hina þrjátíu leikina lék Dóra María í Svíþjóð og Brasilíu.  Kristrún Kristjánsdóttir úr HK/Víkingi lék sinn 200. leik í efstu deild þegar liðið vann KR 1:0. Kristrún var í barneignafríi í fyrra en lék með Fjölni til 2008 og með Stjörnunni frá 2009 til 2017. Hún er fjórtánda konan sem nær að spila 200 leiki í efstu deild á Íslandi.  Arna Sif Ásgrímsdóttir jafnaði leikjamet Karenar Nóadóttur fyrir Þór/KA í efstu deild og lék sinn 151. leik fyrir liðið gegn Val.  Mist Edvardsdóttir kom inn á hjá Val og lék sinn fyrsta leik frá 2016. Hún hefur misst af tveimur síðustu tímabilum eftir að hafa slit- ið krossband í hné tvívegis.  Halla Margrét Hinriksdóttir varði mark HK/Víkings gegn KR og lék sinn fyrsta deildaleik frá árinu 2014.  Þrír leikmenn skoruðu sitt fyrsta mark í efstu deild í umferð- inni og það voru markaskorararnir þrír í nýliðaslag Fylkis og Keflavík- ur. Ída Marín Hermannsdóttir (Hreiðarssonar) og Marija Radoji- cic skoruðu fyrir Fylki en Sveindís Jane Jónsdóttir fyrir Keflavík. Verða tvö lið í sérflokki í ár?  Vísbendingar um einvígi Breiðabliks og Vals eftir fyrstu umferðina  Útlit fyrir harðan slag í neðri hlutanum Morgunblaðið/Eggert Fyrirliði Berglind Rós Ágústsdóttir tók við 1. deildarbikarnum í fyrra. Lið umferðarinnar Leikmenn: Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 2 Berglind Rós Ágústsdóttir, Fylki 2 Hlín Eiríksdóttir, Val 2 Natasha Moraa Anasi, Keflavík 2 Hlín Eiríksdóttir, Val 3 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 2 Andrea Mist Pálsdóttir, Þór/KA 1 Birna Jóhannsdóttir, Stjörnunni 1 Fanndís Friðriksdóttir, Val 1 Ída Marín Hermannsdóttir, Fylki 1 Karen María Sigurgeirsdóttir, Þór/KA 1 Marija Radojicic, Fylki 1 Sveindís Jane Jónsdóttir, Keflavík 1 Þórhildur Þórhallsdóttir, HK/Víkingi 1 1. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2019 Einkunnagjöfi n 2019 Þessar eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leilk. Markahæstar 2019 Valur 7 Breiðablik 6 HK/Víkingur 5 Stjarnan 5 Fylkir 4 ÍBV 4 Keflavík 3 Þór/KA 3 KR 2 Selfoss 2 Lið: 3-4-3 Sonný Lára Þráinsdóttir Breiðabliki Arna Eiríksdóttir HK/Víkingi Jasmín Erla Ingadóttir Stjörnunni Hlín Eiríksdóttir Val Berglind Rós Ágústsdóttir Fylki Fanndís Friðriksdóttir Val Agla María Albertsdóttir Breiðabliki Hildur Antonsdóttir Breiðabliki Fatma Kara HK/Víkingi Sóley Guðmundsdóttir Stjörnunni Natasha Moraa Anasi Keflavík Handknattleiksdeild ÍBV hefur nú sent frá sér tvær yfirlýsingar vegna þriggja leikja bannsins sem Kári Kristján Kristjánsson var úrskurð- aður í af aganefnd HSÍ. Kári tók út fyrsta leikinn í banninu þegar ÍBV tapaði gegn Haukum á sunnudag en þar með komust Haukar í 2:1 í undanúrslitaeinvígi liðanna. Liðin mætast á morgun og komi til odda- leiks missir Kári einnig af þeim leik fái bannið að standa. ÍBV krefst þess að banninu verði aflétt og seg- ir það byggt á röngum forsendum, en yfirlýsingarnar má sjá á mbl.is. Búast má við svari frá HSÍ í dag. Vilja að leikbanni Kára verði aflétt Ljósmynd/Sigfús Gunnar Bann Kári Kristján fékk bannið fyrir brot á Heimi Óla Heimissyni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.