Morgunblaðið - 07.05.2019, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2019
2000
ERLA SÓLVEIG ÓSKARSDÓTTIR
Stóllin Bessi er margverðlaunaður stóll sem var hannaður
árið 2000 af Erlu Sólveigu Óskarsdóttur iðnhönnuði. Í kjölfarið
var Bessi kynntur á norrænni sýningu í Bella Center í Kaup-
mannahöfn árið 2001 og vakti hann strax athygli fyrir einstaka
fágun og vandaða hönnun.
Bessa má fá í fjölbreytilegum viðartegundum og litum, ann-
að hvort albólstraðan eða með bólstraðri setu ýmist með leðri
eða tauáklæði. Einnig er hægt að fá stólinn úr plasti til nota ut-
anhúss. Árið 2009 var stóllinn valinn í fundarsal loftslags-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem var haldin í Kaupmanna-
höfn.
Bessa má finna í Skálanum, nýbyggingu Alþingishússins.
Stóllinn er framleiddur af danska fyrirtækinu Onecollection.
Þess má geta að töluvert af húsgögnum Erlu Sólveigar hafa
verið framleidd á Íslandi í yfir áratug hjá Á.Guðmundssyni.
Íslensk hönnun - Hönnunarsafn Íslands
Fór á ráðstefnu
SÞ um loftslagsmál
Ljósmynd/Hönnunarsafn Íslands/Elísabet V. Ingvarsdóttir skráði
Hlutverk Hönnunarsafns Íslands er að safna og varðveita þann þátt íslenskrar menningarsögu sem lýtur að
hönnun, einkum frá aldamótunum 1900 til samtímans. Safnið á og geymir um 900 íslenska og erlenda muni,
sem margir hafa mikla menningarsögulega þýðingu. Safnkosturinn fer sístækkandi, enda æ fleiri hönnuðir
sem hasla sér völl og koma fram með vandaða gripi sem standast alþjóðlegan samanburð og eru hvort
tveggja nytjamunir og/eða skrautmunir.
Í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands setti safnið upp sýninguna
100ár100hlutir á Instagram þar sem 100 færslur eru birtar á jafnmörgum
dögum af hönnunargripum í eigu safnsins frá árunum 1918 til 2018.
Gs import ehf | S. 892 6975 | www.gsimport.is
Mikið úrval
Borðbúnaður
fyrir veitingahús og hótel
Kvikmyndagagnrýnandinn Mark Kermode sem
skrifar fyrir enska helgarblaðið Observer er hæst-
ánægður með kvikmyndina Kona fer í stríð og gefur
henni fjórar stjörnur í einkunn af fimm mögulegum.
Kermode er einn þekktasti og virtasti kvikmynda-
gagnrýnandi Bretlands og gagnrýnir einnig kvik-
myndir í útvarpi. Kermode ber mikið lof á Halldóru
Geirharðsdóttur, aðalleikkonu myndarinnar, sem
hann segir frábæra í hlutverki sínu í þessari blek-
svörtu gamanmynd. Kermode segir að þrátt fyrir
bleksvart spaugið sé kvikmyndin hlýleg, hnyttin og
búi yfir mikilli visku sem nái út fyrir öll landamæri,
bæði landfræðileg og menningarleg. Kvikmyndin sé
bæði furðuleg og falleg í senn. Gagnrýni Kermode
má finna á vef dagblaðsins Guardian sem heyrir
undir sama útgáfufyrirtæki.
Gagnrýnandi Observer ánægður með Kona fer í stríð
Lof Halldóra Geirharðsdóttir í Kona fer í stríð.
Hinn kunni svissnesk-íslenski
myndlistarmaður Christoph Büchel,
sem vakti athygli fyrir fjórum ár-
umn er hann setti upp verkið Mosk-
an í íslenska skálanum á Feneyja-
tvíæringnum, mætir aftur til leiks á
tvíæringnum sem hefst í vikunni og
sýnir skipsflak sem um átta hundruð
flóttamenn drukknuðu í er þeir
reyndu að flýja yfir Miðjarðarhafið.
Umfangsmiklar innsetningar
Büchel byggjast iðulega á pólitísk-
um átakamálum og í gær var greint
frá því í The Art Newspaper og The
New York Times að Büchel og sam-
starfsmenn hans hefðu sett skipið
upp við hinn mikla sýningarskála
Arsenale, fyrrum skipasmíðastöð á
aðalsýningarsvæði Feneyjatvíær-
ingsins og þar yrði það til sýnis.
Táknmynd harmleiks
Eins og áður biðst Büchel undan
viðtölum en í tilkynningu segir að
verkefnið kallist Barca Nostra sem á
ítölsku þýðir „Skipið okkar“. Því er
lýst sem táknmynd mannlegs harm-
leiks en jafnframt sé það „minnis-
varði um tímabundna flóttamenn,
raunveruleg og táknræn landamæri
og (ó)möguleika flutnings fólks og
upplýsinga“. Bætt er við að sú tákn-
mynd sem skipið sé hnykki á sam-
eiginlegri ábyrgð sem skapi slík flök.
Þetta var fiskiskip sem sökk und-
an strönd Lýbíu í aprílmánuði 2015
og er talið að 800 manns hið minnsta
hafi verið lokuð inni í því og drukkn-
að þegar skipinu hvolfdi eftir að hafa
siglt á portúgalskt flutningaskip sem
var að koma því til aðstoðar. Ein-
ungis 28 lifðu af og er þetta eitt
mannskæðasta slys sem sögur fara
af á Miðjarðarhafi. Nær fimmtungur
þeirra flóttamanna sem fórust á hafi
úti það ár, en þeir voru 3.665 talsins
að sagt er, drukknaði í skipinu.
Verk Büchel eru oft umdeild enda
taka þau á átakamálum. Að kröfu yf-
irvalda í Feneyjum, sem töldu
Mosku hans ögrandi fyrir fjórum ár-
um, var sýningunni lokað eftir að-
eins nokkra daga. Gagnrýnendur
fjölluðu lofsamlega um verkið og til
að mynda skrifaði rýnir The New
York Times að þema tvíæringsins þá
hefði verið samræða en „eini lista-
maðurinn sem í raun kallaði um-
heiminn til samtals [hefði verið]
Christoph Büchel, fulltrúi Íslands.“
Sýnir dauðafley í Feneyjum
Christoph Büchel sýnir á Feneyjatvíæringnum skip sem
um 800 flóttamenn drukknuðu í Setti upp Moskuna 2015
Ljósmynd/Barca Nostra
Hörmungafley Büchel og samstarfsmenn hans hafa tekið skipið Barca
Nostra á land og sýna það við sýningarskálann Arsenale í Feneyjum.
Avengers: Endgame 1 2
Wonder Park 2 4
Shazam! 4 5
Five Feet Apart 3 3
The Curse of La Llorona 6 3
Missing Link 5 3
Captain Marvel 8 9
Dumbo (2019) 7 6
Polaroid Ný Ný
Serial (Bad) Weddings 2 9 4
Bíólistinn 3.–5. maí 2019
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Bíóaðsókn helgarinnnar
Sænska tónlistarkonan Lykke Li
heldur sína fyrstu tónleika hér á
landi fimmtudaginn 4. júlí næst-
komandi í salnum Silfurbergi í
Hörpu en tilkynnt verður á næstu
dögum hvernig miðasölu verður
háttað.
Lykke Li hefur notað sívaxandi
vinsælda frá því hún hóf feril sem
tónlistarkona og hefur farið frá því
að vera lítt þekktur grasrótar-
índílistamaður yfir í að vera þekkt
og dáð. Fyrsta stuttskífa hennar
(EP), Little Bit, kom út fyrir 11 ár-
um og hefur hún nú gefið út fjórar
breiðskífur. Þekktustu lög hennar
eru „I Follow Rivers“, „Litte Bit“
og „No Rest for the Wicked“.
Síðasta breiðskífa Lykke Li, So
Sad So Sexy, hefur hlotið prýði-
legar viðtökur gagnrýnenda og eru
tónleikar hennar í Hörpu hluti af
tónleikaferð hennar um heiminn í
tengslum við útgáfu plötunnar.
Lykke Li heldur
tónleika í Hörpu
Stjarna Lykke Li hin sænska.