Morgunblaðið - 07.05.2019, Qupperneq 32
Rithöfundurinn Mazen Maarouf var
á dögunum tilnefndur til Man Book-
er International-verðlaunanna fyrir
bók sína Brandarar handa byssu-
mönnum. Mazen Maarouf segir frá
bókinni og öðrum verkum sínum á
málfundi í Veröld – húsi Vigdísar í
dag kl. 16. Þar taka einnig til máls
rithöfundurinn og þýðandinn Sjón
og Gauti Kristmannsson, prófessor í
þýðingafræði við HÍ, sem báðir hafa
þýtt verk Mazens Maaroufs.
Mazen Maarouf ræðir
verk sín í Veröld í dag
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 127. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Selfyssingar tryggðu sér í gær sæti
í úrslitum Íslandsmóts karla í hand-
bolta. Þar mætir liðið sigurliðinu úr
einvígi Hauka og ÍBV. Selfoss sóp-
aði liði Vals út úr keppninni með því
að vinna einvígið 3:0, en leikirnir í
einvíginu voru jafnir og spennandi
og fór sá síðasti 29:26 í Hleðslu-
höllinni í gærkvöld. Selfoss lék síð-
ast í úrslitum fyrir 27 árum. »27
Selfyssingar sópuðu
Valsmönnum út
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Þrátt fyrir að vera 1:0 undir og
manni færri í hálfleik í Laugardal í
gærkvöld tókst FH-ingum að ná í
jafntefli gegn Víkingi R. í lokaleik 2.
umferðar úrvalsdeildar karla í fót-
bolta. Víkingar komust yfir þegar
Nikolaj Hansen nýtti sér skelfileg
mistök Gunnars Nielsens,
færeyska landsliðs-
markvarðarins í marki
FH, skömmu áður en
Brandur Olsen fékk
rautt spjald. Halldór
Orri Björnsson
jafnaði met-
in fyrir FH-
inga eftir
að hafa kom-
ið inn á sem
varamaður.
»26
Tíu FH-ingar náðu í
jafntefli við Víkinga
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Skriftaráhuginn vaknaði sennilega
þegar ég neitaði 11 ára að læra
lykkjuskrift í gömlum íhaldssömum
grunnskóla í Herlev í Danmörku.
Mér fannst engin ástæða til þess að
breyta skriftinni sem ég hafði lært í
grunnskóla á Íslandi en mér var
tjáð að ef ég lærði ekki lykkjuskrift
þyrfti ég ekki að mæta aftur í skól-
ann,“ segir Ingi Vífill, þrítugur
nemi í grafískri hönnun við Lista-
háskóla Íslands.
Hann rekur sprotafyrirtækið
Reykjavík Lettering og safnar nú á
Karolina Fund fyrir útgáfu á bók-
inni Skriftarbók fyrir fullorðna. Um
hádegi í gær, þegar sex dagar voru
eftir af söfnuninni, höfðu safnast
84% af markmiði söfnunarinnar.
Þeir sem leggja söfnuninni lið fá
bók eða námskeið í skrautskrift
fyrir framlag sitt.
„Ég hef skrautskrifað í rúm þrjú
ár. Fyrir hálfu ári fór ég að kenna
skrautskrift og varð þá var við að
margir skammast sín fyrir rithönd-
ina,“ segir Ingi sem bendir á að
margir af hans kynslóð glími við
rithandarkvíða og sumum jafn-
öldrum hans finnist þeir skrifa
barnalega.
Of mikil áhersla á hraða
„Það geta allir öðlast fallega rit-
hönd og það gildir í skrift eins og í
svo mörgu öðru að æfingin skapar
meistarann,“ segir Ingi og bætir
við að mikil áhersla hafi verið lögð
á hraða bæði í lestri og skrift og í
hamaganginum gleymist oft að það
sé mikil nautn að skrifa, sérstak-
lega með góðum blekpenna.
„Ég kenni fólki að hægja á sér
og slaka á við skriftir. Tengja
strokurnar við andardráttinn; við
þunnu strokurnar upp á við öndum
við inn en við þykku strokurnar
niður á við öndum við út,“ segir
Ingi og bætir við að í bókinni fylgi
rithandardæmi eftir þekkta Íslend-
inga. Ingi segir áhugavert að skoða
rithönd Guðna Th. og velta fyrir
sér hvernig Vigdís Finnbogadóttir
tengi á milli i og n.
Ingi segir að í bókinni séu sýndar
þrjár gerðir af hástöfum og með því
geti hver og einn fundið sinn per-
sónulega stíl.
Skrift fyrir fullorðna er að sögn
Inga byggð upp fyrir hvort heldur
sem er hægri eða vinstri hönd.
Ingi, sem hefur óbilandi áhuga á
leturgerðum, segir það vera hálf-
gert jaðarsport og eflaust þyki
mörgum það djarft í rafrænum
heimi að leggja áherslu á skrift.
Slökun Ingi Vífill, sem hefur mikinn áhuga á leturgerð, leiðbeinir Viktori Hollander á skrautskriftarnámskeiði.
Safnar fyrir skriftar-
bók fyrir fullorðna
Ingi Vífill vill kenna fólki að slaka á með því að skrifa