Morgunblaðið - 27.05.2019, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 2 7. M A Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 123. tölublað 107. árgangur
TÓKST Á VIÐ
SORGINA MEÐ
ÞVÍ AÐ YRKJA
ERLENDIR HÁSKÓLA-
NEMAR Á ÍSLANDI
UM 1.500
ÁHÆTTUMAT
ÞARF FYRIR
ÖRÆFASVEIT
SVIÐSLJÓS 14 ÞJÓÐGARÐSVÖRÐURINN 6DAGLEGT LÍF 11
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ekki liggur fyrir „fullnægjandi
sviðsmynd“ um það hvernig fari,
verði þriðji orkupakkinn samþykkt-
ur og sæstrengur lagður í framtíð-
inni. Þetta segja þingmenn Mið-
flokksins sem hafa andmælt
innleiðingu þriðja orkupakkans und-
anfarna daga og nætur á Alþingi.
Í málflutningi sínum hafa þing-
menn gert fjölda athugasemda við
innleiðingu þriðja orkupakkans eins
og hún liggur fyrir þinginu. Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Miðflokksins, vísar m.a. til
þess að stjórnlagadómstóll í Noregi
taki innleiðingu orkupakkans þar í
landi til umfjöllunar í haust og að
ekki hafi verið tekið tillit til fjórða
orkupakkans sem ráðherraráð ESB
samþykkti í síðustu viku. Miðflokk-
urinn vill að málið fari aftur fyrir
sameiginlegu EES-nefndina, eða að
beðið verði með innleiðinguna fram
á haust.
Engin ástæða til að bíða
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
formaður utanríkismálanefndar og
þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir
að dómsmálið fyrir norska stjórn-
lagadómstólnum varði túlkun á
norsku stjórnarskránni og hvort
taka hefði átt ákvörðun með auknum
meirihluta norska þingsins varðandi
innleiðingu þriðja orkupakkans í
samræmi við ákvæði norsku stjórn-
arskrárinnar.
„Íslenska stjórnarskráin inni-
heldur ekkert slíkt ákvæði og innan-
landsdeildur Norðmanna um túlkun
á þeirra eigin stjórnarskrá hafa
enga þýðingu varðandi þinglega
meðferð þriðja orkupakkans hér á
landi, enda höfum við okkar eigin
stjórnarskrá og byggjum okkar
málsmeðferð á íslenskum lögum,“
segir Áslaug Arna sem segir að öll-
um steinum hafi verið velt við skoð-
un málsins og engin ástæða sé til
þess að bíða með málið fram á haust.
Þaðan af síður að beina því aftur til
sameiginlegu EES-nefndarinnar.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti
Alþingis, áætlar að þingstörf séu
viku á eftir áætlun vegna mikilla
umræðna um orkupakkann. Vax-
andi óþol sé gagnvart málþófi í
þinginu.
Ekki horft til 4. orkupakka
Miðflokkurinn andmælir innleiðingu orkupakka Vaxandi óþol gagnvart mál-
þófi Telja margt enn óljóst um heildaráhrif Þingstörfin eru viku á eftir áætlun
MSvör vanti um … »2, 8 & 10
Innleiðing orkupakka
» Miðflokkurinn vill senda
málið til sameiginlegu EES-
nefndarinnar á ný.
» Formaður utanríkismála-
nefndar segir enga ástæðu til
að bíða með málið.
Veðmálastarfsemi í kringum fót-
bolta færist í vöxt. Æ fleiri veðja á
fótboltaleiki í íslensku deildunum og
eftirspurnin er slík að veðmálin ná
niður í lítt sótta leiki í öðrum flokki.
Þegar þangað er komið getur verið
auðvelt að nálgast upplýsingar um
leikina sem veðbönkum er ókunnugt
um, eins og til dæmis hvort vanti
helsta framherja liðsins í leik dags-
ins. Þessi staða veldur heilindafull-
trúa KSÍ áhyggjum.
Hann segist vita dæmi þess að
þjálfarar í öðrum flokki varðveiti
upplýsingar um byrjunarlið í leikj-
um eins og hálfgerðar hernaðar-
upplýsingar. „Þeir völdu að tilkynna
um byrjunarliðið inni í klefa 45 mín-
útum fyrir leik, af því að það var svo
mikið áreiti á leikmenn fyrir leikina
að gefa upp hverjir myndu spila,“
segir hann. Hann segir þetta geta
haft neikvæð áhrif á íþróttaandann.
KSÍ berast nærri vikulega ábend-
ingar um grunsamleg veðmál á ein-
staka leikjum. »10
Grunsamleg veðmál
í fótboltanum
Mismunandi samskiptareglur gilda hjá dýrum. Hestum finnst
notalegt að láta klóra sér og oft má sjá hesta kljást þótt pirr-
ingur hafi brotist út í biti og spörkum skömmu áður. Þessir
hestar notuðu blíðuna undir Akrafjalli til að snyrta hvor annan
og ekki mátti sjá hvor naut snertingarinnar betur. Þeir fóru eft-
ir fyrstu reglu samskiptanna, ef þú klórar mér þá klóra ég þér.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ef þú klórar mér þá klóra ég þér
Borgarbókasafnið fékk rúmlega
18 og hálfa milljón úthlutaða úr
Barnamenningarsjóði en fyrsta út-
hlutun sjóðsins, sem settur var á fót í
fyrra, fór fram í Alþingishúsinu í
gær. Borgarbókasafnið fékk um það
bil helmingi hærri styrk en Stofnun
Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum sem fékk næsthæstan styrk
upp á 9.350.000 krónur. Katrín Jak-
obsdóttir forsætisráðherra sam-
þykkti tillögu stjórnar sjóðsins að
styrkveitingunum en fimm manna
valnefnd sá um að velja verkefni
sem skyldi styrkja. Katrín var við-
stödd úthlutunina ásamt Lilju Al-
freðsdóttur, mennta- og menningar-
málaráðherra. »8
Styrkjum úthlutað
Þjóðernisflokkar eru sigurveg-
arar í kosningunum til Evrópu-
þingsins á Ítalíu og í Frakklandi,
ef marka má bráðabirgðaniður-
stöður kosninganna í gærkvöldi.
Þrátt fyrir það halda evrópu-
sinnaðir flokkar velli innan þings-
ins.
Ef marka má bráðabirgðaniður-
stöðurnar er meirihluti Evrópu-
þingsins fallinn. Hann samanstóð
áður af Evrópska þjóðarflokknum
og Bandalagi sósíalista og demó-
krata.
Meirihlutaflokkarnir glata sam-
tals 87 þingsætum, samkvæmt
bráðabirgðaniðurstöðunum, og
þykir það til marks um að tími
miðjuflokka inn-
an Evrópuþings-
ins sé liðinn.
Græningjar
bæta við sig 18
sætum og
Bandalag frjáls-
lyndra og demó-
krata 34 sætum
ef marka má
bráðabirgðanið-
urstöðurnar.
Í Bretlandi virðast spár ætla að
rætast en Brexit-flokkur Nigel Fa-
rage hefur hlotið flest talinna at-
kvæða þegar þetta er skrifað.
Breskir kjósendur ógiltu fjölda
kjörseðla. »13
Meirihluti Evrópuþingsins líklega fallinn
Marine
Le Pen
Fulltrúar minnihlutans í Reykja-
víkurborg lýsa sig andvíga hug-
myndum meirihlutans um tafa- og
mengunargjöld af umferð.
Eyþór Arnalds, oddviti sjálf-
stæðismanna í borginni, telur slíka
gjaldtöku fela í sér ójafnræði gagn-
vart íbúum mismunandi landshluta.
„Það kemur ekki til greina að
Reykvíkingar, eða íbúar á höfuð-
borgarsvæðinu, séu tvírukkaðir,“
segir Eyþór og bendir á núverandi
gjöld á eldsneyti og ökutæki.
Kolbrún Baldursdóttir, borgar-
fulltrúi Flokks fólksins, segir and-
úð meirihlutans í borginni á
fjölskyldubílnum „jaðra við þrá-
hyggju“. „Þau leita allra leiða til
að hindra að bílum sé ekið í mið-
borgina,“ segir Kolbrún.
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi
Miðflokksins, efast um lögmæti tafa-
gjalda á umferð. »10
Minnihlutinn leggst gegn tafagjöldum
Morgunblaðið/Hari
Aukning Umferð á höfuðborgarsvæðinu
hefur aldrei mælst meiri í sögu landsins.