Morgunblaðið - 27.05.2019, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.05.2019, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. MAÍ 2019 Sálm. 86.11 biblian.is Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég gangi í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. ✝ Björn Þ. Guð-mundsson fæddist 13. júlí 1939 á Akranesi. Hann lést á Landakots- spítala 16. maí 2019. Björn var sonur hjónanna Guð- mundar Björns- sonar frá Núpsdals- tungu í Miðfirði, f. 24. mars 1902, d. 17. nóvember 1989, og Pálínu Þorsteinsdóttur frá Stöð í Stöðv- arfirði, f. 28. janúar 1928, d. 13. október 1999. Systkin Björns eru: Ormar Þór, f. 2. febrúar 1935, kvæntur Kristínu Valtýs- dóttur, Gerður Birna, f. 2. apríl 1938, gift Daníel Guðnasyni, Ás- geir Rafn, f. 18. maí 1942, kvænt- ur Fríðu Ragnarsdóttur, Atli Freyr, f. 3. apríl 1948, maki hans er Þorgerður Jónsdóttir. Björn kvæntist 20. nóvember 1960 Þór- unni Bragadóttur, fyrrum deild- arstjóra í menntamálaráðuneyt- inu, f. 13. september 1940. Foreldrar hennar voru Bragi Sigurjónsson, skáld og alþingis- maður, f. 9. nóvember 1910, d. 29. október 1995, og Helga Jóns- dóttir húsmóðir, f. 28. janúar 1909, d. 18. ágúst 1996. Synir München 1965-66. Auk þess lagði hann stund á rannsóknir á sviði mannréttindalöggjafar í Bandaríkjunum 1971. Björn var skipaður fulltrúi hjá yfir- borgardómaranum í Reykjavík frá 1966 til 1972. Skipaður borg- ardómari í Reykjavík frá árinu 1972 til 1979. Björn var settur prófessor í lögfræði við laga- deild Háskóla Íslands 1978 og skipaður prófessor ári síðar. Þar kenndi hann eignarrétt, veðrétt, sifjarétt og persónurétt en lengst af stjórnsýslurétt allt þar til hann lét af störfum árið 2004. Björn var bæði varaforseti og forseti lagadeildar Háskóla Ís- lands um margra ára skeið. Björn var varadómari í Hæsta- rétti Íslands frá 1972 og settur hæstaréttardómari 1998. Sat hann í fjölda mála í Hæstarétti, einkum hin síðari ár. Jafnframt gegndi Björn ýmsum félags- og trúnaðarstörfum Þá var Björn einn af stofnendum Íslands- deildar Amnesty International og fyrsti formaður. Eftir Björn liggur fjöldi fræðigreina á sviði lögfræði sem birtust í íslenskum og erlendum fræðiritum. Björn var einnig höfundur að For- málabókinni þinni, útg. 1975, og Lögbókinni þinni sem gefin var út 1973 en endurútgefin endur- skoðuð 1989. Þótti Lögbókin þín marka tímamót sem einstakt fræðirit á sviði lögfræðinnar. Björn verður jarðsunginn frá Neskirkju í dag, 27. maí 2019, klukkan 13. Björns og Þórunnar eru: 1) Guðmundur, aðjunkt við Háskóla Íslands, f. 1960, kvæntur Heklu Valsdóttur, f. 1. ágúst 1968. Þeirra dætur eru: Auður, f. 14. október 1990, og Þórunn Birna, f. 29. ágúst 1999. Dóttir Guðmundar af fyrra sambandi er Fríður, f. 22. apríl 1984. 2) Bragi Björnsson lögmaður, f. 17. júní 1968, kvæntur Rögnu Björk Ragnarsdóttur, f. 20. maí 1979. Þeirra börn eru: Ragnar Björn, f. 26. janúar 2004, og Helga Sif, 10. september 2007. Björn ólst upp á Akranesi en að loknu námi bjó hann með eft- irlifandi eiginkonu sinni fyrst í Reykjavík en síðan á Seltjarn- arnesi þar sem þau hjónin reistu sér hús sem þau bjuggu í frá 1990. Björn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1959 og embættisprófi, cand. juris, frá Háskóla Íslands 1965. Þá stundaði Björn framhalds- nám í alþjóðarétti með flug- og geimrétt sem sjálfstætt rann- sóknarsvið við Ludwig- Maximilians-Universität í Við eigum eftir að sakna sagn- anna og spjallsins þar sem við töluðum um allt milli himins og jarðar. Einnig skákanna og fót- boltans sem þú dáðir og kenndir okkur að meta. Allar sögurnar sem þú sagðir okkur og við hugs- uðum með okkur að við vildum vera eins og þú. Allt sem við lærðum af þér og sama hvað gerðist, þú stóðst alltaf með okk- ur. Allar ísferðirnar, hláturinn og litlu leikirnir sem við spilum enn. Ekki varstu bara það sem allir geta óskað sér í afa heldur varstu miklu meira en það. Við vitum að þú verður alltaf okkur við hlið. Hvíldu í friði, afi. Ragnar Björn Bragason, Helga Sif Bragadóttir. Björn mágur minn lést 14. maí sl. eftir langvinn veikindi. Kvöld- ið fyrir andlátið hringdi Gerður systir hans í hann á spítalann og var Björn þá hinn hressasti. Andlátsfregnin kom því nokkuð á óvart. Mín fyrstu kynni af Birni voru þegar við Gerður fórum að horfa á knattspyrnuleik í unglinga- flokki milli Vals og ÍA hér í Reykjavík. Björn var í framlín- unni hjá ÍA og stóð sig með prýði. Björn og konan hans Þórunn luku stúdentsprófi frá MA 1959 og eiga þau hjón því 60 ára stúd- entsafmæli á þessu ári. Eftir stúdentspróf hóf Björn nám við lagadeild HÍ og lauk embættis- prófi í lögfræði 1965. Björn hóf störf hjá Borgar- dómaraembættinu skömmu eftir útskrift úr lagadeildinni. Með- fram starfinu þar hóf hann að skrifa vísindagreinar um lög- fræðileg málefni og samdi auk þess tvær bækur um sama efni, Formálabókin þín, sem hafði að geyma „sýnihorn hverskonar samninga og annarra löggern- inga“ eins og segir í formála, svo og Lögbókin þín, sem var í senn hugsuð sem lögfræðiorðabók og lögfræðihandbók bæði fyrir al- menning og löglærða. Björn hafði mikinn áhuga á veiðiskap og var það árviss við- burður hjá okkur mágum að fara í Miðfjarðará til veiða. Guð- mundur tengdafaðir minn var ávallt með í þessum ferðum og hann notaði tækifærið og heim- sótti ættingja og vini í sveitinni sinni meðan við vorum við veið- ar. Þessar ferðir í Miðfjörðinn voru mikið tilhlökkunarefni hjá okkur og ekki minnst hjá Guð- mundi. Einn góður veiðistaður í Miðfjarðará, Kattarpollur, er við túnfótinn í Núpsdalstungu, æskuheimili Guðmundar. Hann fylgdist vel með veiðimönnum og þegar hann loks sá okkur Bjössa við Kattarpoll kom hann gang- andi niður túnið í Núpsdalstungu og fylgdist með okkur. Þetta var hápunktur ferðarinnar. Björn og Þórunn ferðuðust mikið um hálendi Íslands og gaman var að hlusta á ferðalýs- ingar þeirra. Björn og langafabarn hans, Ragnar Björn, voru báðir miklir fótboltaáhugamenn og horfðu oft saman á enska boltann. Það kom ekki að sök þótt þeir héldu hvor með sínu liðinu. Björn hélt með Arsenal en Ragnar Björn var „púlari“. Að leiðarlokum vil ég þakka mági mínum fyrir ljúfar minn- ingar og óska honum velfarnaðar í nýjum heimkynnum. Við Gerð- ur sendum Þórunni, sonum þeirra og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Gerður og Daníel. Friður hefur færst yfir mig. Dásamlegur friður. Nú get ég farið, þegar þú kallar, og hvert sem þú kallar mig. Því þú hefir tekið þjáningu mína burtu. Og þjáning þeirra sem ég elska mun að engu verða í þinni hendi. Svo segir ljóðmælandinn í hugunum Sigurjóns Friðjóns- sonar, Skriftamálum einsetu- mannsins, bók sem mágur minn, Björn Þ. Guðmundsson, fv. pró- fessor, mat mikils. Björn andað- ist á Landakoti að morgni dags 16. maí tæplega áttræður að aldri. Hann fékk hægt andlát eft- ir langvarandi veikindi. Björn var fæddur og uppalinn á Akranesi þar sem faðir hans var barnakennari. Hann ólst upp í stórum systkinahópi. Var send- ur í sveit til ættingja bæði norður í Húnaþingi og austur í Breiðdal, eins og þá var títt með unga drengi. Seinna var hann kaupa- maður á Hvanneyri. Þegar hann var að alast upp voru Akurnes- ingar með eitt besta knatt- spyrnulið landsins og Björn varð snemma liðtækur knattspyrnu- maður, þjálfaði yngri flokka, og hafði alla tíð brennandi áhuga á fótbolta. Björn gekk í Menntaskólann á Akureyri og lauk stúdentsprófi úr máladeild. Var góður náms- maður og og hafði ekki síst yndi af íslenskunámi. Lagði hann sig alltaf fram um að vanda málfar sitt. Þau voru bekkjarsystkin, Björn og Þórunn, systir mín, og í MA tókust kynni með þeim. Eft- ir stúdentspróf rugluðu þau sam- an reytum sínum, Björn byrjaði að nema lögfræði og Þórunn hóf störf í menntamálaráðuneytinu, enda var þá engin námslán að fá. Eftir að Björn lauk kandídats- prófi dvöldust þau einn vetur í Þýskalandi við nám. Við heim- komuna var Björn skipaður fulltrúi yfirborgardómara í Reykjavík 1966 og síðan borgar- dómari frá 1972-1979. Björn var fyrst settur prófessor við laga- deild Háskóla Íslands 1978 en skipaður í það embætti árið 1979. Starfaði hann sem prófessor við skólann þar til hann fór á eftir- laun. Björn dvaldist oft við fram- haldsnám og rannsóknir erlendis, ekki síst á sviði mannréttinda, stjórnsýsluréttar og flug- og geimréttar. Björn var fyrsti for- maður Íslandsdeildar Amnesty International. Hann sat í Flug- slysanefnd í fjölda ára. Björn tók virkan þátt í stjórnsýslu innan Háskólans, var deildarforseti lagadeildar og formaður prófess- orafélagsins. Þá sat hann í stjórn hugvísindadeildar Vísindasjóðs. Meðal ritverka hans eru Lögbók- in þín og Formálabókin þín. Björn var fróður um landsins gagn og nauðsynjar og fylgdist vel með öllum fréttum eftir að hann vann á dagblaðinu Tíman- um á háskólaárum sínum. Hann hafði mjög gaman af að ferðast bæði innan lands og utan og þau Þórunn fóru víða. Oft komu þau Þórunn á æskuheimili okkar á Bjarkastíg 7 á Akureyri meðan foreldrar okkar lifðu. Nutu þau að ræða við Björn um menn og málefni. Ekki síður naut faðir minn þess að fara með þeim Þórunni á fjöll norðanlands og austan. Björn var heimakær. Hafði þó gaman af að umgangast annað fólk ef þannig lá á honum. Höfð- ingi heim að sækja. Ég þakka honum góðar mágsemdir í sextíu ár. Veri hann kærst kvaddur, eins og tengdamóðir hans hefði sagt. Úlfar Bragason. „Öllu er afmörkuð stund og sérhver hlutur undir himninum hefur sinn tíma.“ Þessi orð úr Prédikaranum koma upp í hug- ann á kveðjustund góðs frænda, Björns Þ. Guðmundssonar. Bernskan og æskan eiga sannar- lega sinn tíma, tíma sem er mót- andi og ógleymanlegur og dýr- mætur. Við Bjössi frændi minn vorum bræðrabörn, bræðurnir Guðmundur faðir hans og Björn pabbi minn voru líka bestu vin- irnir, hvor öðrum svo innilega góðir alla tíð. Þessi bræðrakær- leikur smitaði sannarlega fjöl- skyldurnar sem þeir svo stofnuðu annar á Akranesi og hinn í Reykjavík. Fjölskyldan á Akra- nesi var bæði fjölmenn og fjörug. Bjössi átti fjögur yndisleg systk- in. Gerður Birna eina systirin og þrír bræður, Ormar Þór, Ásgeir Rafn og Atli Freyr. Það sem mér fannst þau öll skemmtileg en fremstur í flokki í mínum minn- ingum er Björn frændi minn, hann skar sig úr með sitt fallega rauðbrúna hár og breiða fallega bros. Eiginlega fannst mér hann alltaf brosandi. Þegar von var á fjölskyldu Guðmundar og Pálínu, hans ljúfu konu, til borgarinnar var hátíð í bæ á Dyngjuveginum. Við yngstu krakkarnir fengum að sofa í hrúgu í hjónarúminu, sem þótti ekki leiðinlegt. Sama var um ferðir upp á Skaga; árvisst var haldið norður í Miðfjörðinn í sum- arfríinu þar sem rætur föður- fólksins lágu og ávallt komið við á Jaðarsbrautinni. Ekkert nema gleði fylgdi þessum heimsóknum. Tíminn leið og pabbi minn kvaddi rúmlega fimmtugur, þá breyttist margt. Pálína og Guðmundur, elskulegir foreldrar Bjössa, buðu mig velkomna til dvalar á hverju vori eftir skóla. Það var þá sem ég verulega kynntist mínum hlýja bjarta frænda, alla daga þegar hann kom heim úr sumarvinn- unni var hann með eitthvað skemmtilegt á prjónunum. Hann sagði mér sögur og brandara og endalaust virtist hann eiga af gát- um. Heilu kvöldin sátum við uppi í risi, hópur ungmenna, og skemmtun okkur – aðallega Bjössa frænda að þakka. Hann stýrði kvöldvökunum, hans létti andi réð ríkjum. Líka er gaman að minnast borðhaldsins á Jaðarsbrautinni. Á kvöldin var lagt fallega á borð í borðstofunni, Guðmundur föðurbróðir minn sat fyrir endanum, hamingjusamur með hópinn sinn, og Pálína hans í lúgunni milli eldhúss og borð- stofu, færandi okkur kræsingarn- ar. Mikið spjallað saman um hvað á daginn hafði drifið hjá hverju og einu okkar, Guðmundur frændi, barnakennarinn góði, að fræða okkur, mikið gaman, enginn að flýta sér. Í þessum gefandi jarð- vegi ólst Björn upp með yndisleg- um foreldrum og kátum systkin- um. Hann hélt svo af stað út í heiminn, menntaði sig, lögfræðin varð hans fag. Hann náði miklum árangri, skrifaði lögbók og varð prófessor við Háskóla Íslands, glæstur ferill. Ég kveð þennan kæra frænda minn, Björn Þ. Guð- mundsson, og þakka honum allar dásamlegu æskuminningarnar sem hann gaf mér með lífsgleði sinni og elsku. Veri Bjössi, minn skemmtilegi frændi, góðum Guði falinn. Guð blessi minningu góðs drengs. Helga Mattína Björnsdóttir, Dalvík. Nú hefur Björn, eiginmaður Þórunnar frænku minnar, kvatt þetta líf. Björn var greindur mað- ur og skemmtilegur. Hann var kannski ekki allra og sumum gat jafnvel fundist hann köntóttur. Það var þó ekki mín upplifun af Birni því mér var hann ætíð góð- ur. Hann var sterkur persónu- leiki sem lá ekki á skoðunum sín- um og stóð gjarnan fast á sínu. Sjaldan var þó langt í skopskynið. Við Bragi, sonur hans, erum ekki aðeins frændur heldur einnig nánir vinir og samstarfsmenn. Fyrir þær sakir hafa tengsl mín við fjölskylduna á Fornhaga og síðar Bakkavör orðið enn nánari en ella. Ég kynntist ekki aðeins fjöl- skyldumanninum Birni heldur einnig háskólakennaranum. Björn var frábær kennari við lagadeildina og var þar altalað, þegar ég var þar við nám, að fyr- irlestrar hans væru hinir skemmtilegustu og líflegustu. Hann var vel skipulagður og lagði mikið í kennsluna. Fyrirlestrarn- ir byrjuðu alltaf klukkan tíu á morgnana en aldrei klukkan átta. Hann sagðist ekki kenna á nótt- unni. Sökum fjölskyldutengsla gat ég ekki skrifað ritgerð undir leiðsögn Björns á lokaári mínu en ávallt gat ég þó leitað til hans. Alltaf var mér jafn vel tekið. Björn hafði gríðarlegan áhuga á knattspyrnu eins og margir góðir menn og lét fáa alvöru leiki fram hjá sér fara í sjónvarpi. Því áhugamáli deildi ég með honum. Síðustu árin voru Birni erfið sök- um vanheilsu. Naut hann þess þá, sem áður, að vera einstaklega vel kvæntur. Þórunn, föðursystir mín, var honum ætíð hin besta stoð og stytta sem og synir hans, Guðmundur og Bragi. Þá naut hann þess jafnframt að búa undir sama þaki og fjölskylda Braga og hafa barnabörnin í kringum sig daglega. Á kveðjustund votta ég Þór- unni og fjölskyldunni allri samúð mína. Börkur Hrafnsson. Björn var borgardómari í Reykjavík á árunum 1972-1979 en síðan settur prófessor við lagadeild Háskóla Íslands árið 1978 og skipaður prófessor árið eftir. Síðar varð hann forseti lagadeildarinnar um nokkurra ára skeið. Hann var vel þekktur og átti að baki langan feril á sviði rannsókna og framhaldsmennt- unar í lögfræði. Framhalds- menntun hans fór einkum fram í Þýskalandi en einnig í Banda- ríkjunum og Hollandi. Hann tók þátt í ýmsum alþjóðaráðstefnum og fundum hérlendis sem erlend- is auk þess sem hann hlaut styrki og naut viðurkenningar fyrir framlag sitt á sviði lögfræði. Hann tók virkan þátt í fé- lagsmálum og var meðal annars um skeið formaður Dómara- félags Reykjavíkur. Ritverk og lögfræðirannsóknir Björns liggja einkum í stjórnsýslurétti en á því sviði var hann lengi einn helsti sérfræðingur hér á landi. Hér skal því sérstaklega haldið til haga að árið 1973 gaf hann út bókina „Lögbókin þín“, sem er lögfræðileg handbók rituð fyrir almenning og raunar einnig fyrir laganema og lögfræðinga. Bók þessi hefur ávallt notið viður- kenningar sem meistaraverk. Árið 2009 var svo gefið út veg- legt afmælisrit honum til heið- urs. Allt lék í höndunum á Birni þegar hann vildi það við hafa. Við Björn kynntumst þegar við unnum saman sem fulltrúar yfirborgardómarans í Reykja- vík. Með okkur myndaðist fljót- lega afar sterkt vináttusamband sem átti eftir að endast lengi, lengi. Sameiginlegt áhugamál okkar var einkum útivist og veið- ar, auk lögfræðinnar. Við fórum títt í ferðir í mörg ár ýmist tveir saman eða með félögum okkar. Þessar ferðir voru okkur ávallt ofarlega í huga og mikill tími fór ávallt í skipulagningu og fram- kvæmd. Björn var einstakur maður, skemmtilegur og trygglyndur. Hann var afar vel lesinn, minn- ugur með afbrigðum og lá aldrei á pólitískum eða lögfræðilegum skoðunum sínum. Hann gat verið harður í horn að taka í einstökum málum en í annan tíma var hann afar ljúfur og sáttfús. Gilti þetta bæði í umræðum um þjóðfélags- mál og persónuleg mál. Skoðanir sínar setti hann oftlega fram með gamansömum hætti en einnig hárbeitt. Þetta gaf tilefni til að takast hart á en þó aðallega til að treysta vináttubönd. Björn var nánast alls staðar vel heima. Það gilti um bókmenntir, þjóð- félagsmál, lögfræði, tungumál og svo framvegis. Allt þetta hafði hann áreynslulaust í hendi sér. Ég minnist tíðra samskipta okkar í starfi og leik. Um langan tíma átti ég engan traustari vin. Vinátta okkar hélst ávallt en Björn var veikur um langan tíma. Því dró smám saman úr samskiptum okkar. Minning mín um hann er bæði hrein og falleg. Ég kveð góðan vin um langa lífsleið. Fjölskyldu hans færi ég samúðarkveðjur. Stefán Már Stefánsson. Á kveðjustund minnist ég Björns Þ. Guðmundssonar vinar míns með þakklæti. Við Björn Þ. kynntumst fyrir liðlega hálfri öld og þau kynni urðu að tryggri vin- áttu sem við ræktum vel alla tíð. Eftir nám í lagadeild Háskóla Íslands aflaði Björn sér víðtækr- ar þekkingar á ýmsum sviðum lögfræði og fleiri greina í erlend- um háskólum og á alþjóðlegum sem innlendum ráðstefnum. Þekking hans var víðtæk og vel grundvölluð og hefur án efa reynst honum vel sem dómara, prófessor í lögfræði og fræði- manni. Eitt af því sem einkenndi Björn var gríðarleg nákvæmni. Gerhygli og agi hefur eflaust komið sér vel við öll ritstörfin. Björn hafði einstaklega gott vald á íslensku máli og lagði áherslu á gott mál í ræðu og riti. Eitt af mörgum áhugamálum Björns voru mannréttindi. Hann kynnti Björn Þ. Guðmundsson HINSTA KVEÐJA Sá einn veit er víða ratar og hefir fjöld um farið hverju geði stýrir gumna hver, sá er vitandi er vits. (Úr Hávamálum) Bragi Björnsson, Guðmundur Björnsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG NJÁLSDÓTTIR sjúkraliði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 22. maí. Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 31. maí klukkan 13. Helga Gísladóttir Stefán Kristjánsson Kristín Gísladóttir Njáll Gíslason Íris Stefánsdóttir Sigurður Gíslason Guðný Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.