Morgunblaðið - 27.05.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.05.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. MAÍ 2019 Hillukerfi Nethyl 3-3A, 110 Reykjavík | www.hillur.is | s 535 3600 Super 1-2-3 Léttavörukerfi fyrir fyrirtæki og heimili Superbuild Brettarekkakerfi fyrir stór og lítil fyrirtæki Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Tími hægri- og vinstrisinnaðra miðju- flokka virðist liðinn undir lok innan Evrópuþingsins samkvæmt bráða- birgðatölum sem birtar voru í gær- kvöldi eftir að kosningum til þingsins var lokið í öllum ríkjum álfunnar. Slíkir flokkar hafa verið í meirihluta þingsins síðan 1979. Evrópski þjóð- arflokkurinn og Bandalag sósíalista og demókrata voru í meirihluta á síð- asta kjörtímabili en tölur, sem birtar voru rétt áður en Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi, bentu til þess að meirihlutinn væri fallinn. Evrópusinnaðir umhverfissinnar, frjálslyndir og þjóðernissinnar and- snúnir Evrópusambandinu bæta allir við sig sætum, ef marka má bráða- birgðaniðurstöðurnar. Meirihlutinn tapar 87 sætum Evrópski þjóðarflokkurinn verður vissulega áfram stærsti flokkurinn en tapar 43 þingmönnum. Samstarfs- flokkur hans, Bandalag sósíalista og demókrata, fær 147 þingsæti miðað við bráðabirgðaniðurstöðurnar en tapar 44 þingsætum. Meirihlutinn tapar því 87 sætum ef bráðabirgða- niðurstöðurnar standast. Þingmenn geta boðið sig fram fyrir hönd stjórnmálaflokka í heimalandi sínu eða sem sjálfstæðir þingmenn. Þó svo að þeir séu kosnir í hverju að- ildarríki fyrir sig skipa þeir sér í fylk- ingar eftir stjórnmálastefnum á sjálfu þinginu en átta skilgreindar fylkingar eru innan þess. Bráðabirgðaniðurstöðurnar byggj- ast á núverandi flokkafyrirkomulagi á þinginu, sem gæti tekið breyting- um. Bandalag frjálslyndra og demó- krata hreppir 101 þingsæti, sam- kvæmt bráðabirgðaniðurstöðunum. Græningjar/Evrópska frelsis- bandalagið hlýtur 70 sæti, eða tæp 10% og bætir flokkurinn 18 sætum við sig frá síðustu kosningum. Flokkarnir Evrópskir íhaldsmenn og umbótasinnar, Evrópski þjóðar- flokkurinn, Evrópa þjóðanna og frelsisins og Evrópa frelsis og beins lýðræðis hljóta allir svipað mörg þingsæti eða um 60 hver. Evrópski vinstri flokkurinn fær einungis 42 sæti ef marka má bráðabirgðatölurn- ar. Auknu fylgi flokka sem eru efins um Evrópusambandið hefur verið spáð í aðdraganda kosninganna. Bráðabirgðatölurnar sýna fram á að flokkar sem styðja Evrópusambandið haldi þó velli innan þingsins. Efa- semdamenn, sem finnast t.a.m. í Evrópu frelsis og beins lýðræðis annars vegar og Evrópskum íhalds- mönnum og umbótasinnum hins veg- ar, og öfgahægriflokkar, eins og Evr- ópa þjóðanna og frelsisins, bæta örlítið við sig samkvæmt bráða- birgðatölunum en skipa þó einungis tæplega fjórðung þingsæta. Hvað þjóðbundna flokka varðar þá tekur hægriöfgaflokkur Marine Le Pen, Rassemblement National, 23,53% franskra þingsæta ef marka má bráðabirgðaniðurstöðurnar, en þingsæti Frakka eru 74 talsins. „Erum búin að kjósa“ Þjóðernissinnar á Ítalíu vinna stór- sigur í kosningunum samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðunum. Flokkur þjóðernissinna, Lega Salvini Pre- mier, hlýtur um 30% atkvæða sam- kvæmt tölunum. Þetta er í fyrsta skipti sem flokkurinn er sá stærsti í ítölsku kosningunum til Evrópu- þingsins. Bráðabirgðaniðurstöður frá Bret- landi voru ekki fyrir hendi þegar Morgunblaðið fór í prentun en á þeim svæðum þar sem atkvæði höfðu verið talin hafði Brexit-flokkurinn fengið stærstan hluta atkvæða. Bretar hafa samþykkt að ganga úr Evrópusam- bandinu en munu þó taka sæti á þinginu þar til útgangan er endanleg. Fjöldinn allur af atkvæðaseðlum í Bretlandi var dæmdur ógildur vegna krots í tengslum við Brexit. Krot eins og „Brexit núna“ og „Við erum búin að kjósa um þetta“ var á ófáum kjör- seðlum. Sósíaldemókratar taka flest þing- sæti Dana, sem eru 13 talsins, sam- kvæmt bráðabirgðaniðurstöðunum. Afdráttarlausar niðurstöður kosn- inganna verða kynntar í dag eða á morgun en síðustu kjörstöðunum var lokað í gærkvöldi. Tími miðjuflokka virðist liðinn  Bráðabirgðaniðurstöður í kosningum til Evrópuþings benda til þess að núverandi meirihluti falli  Græningjar og Bandalag frjálslyndra demókrata hástökkvarar  Mikið fylgi Brexit-flokksins AFP Himinlifandi Marine Le Pen, forseti franska hægriöfgaflokksins Rassemblement National, var í skýjunum með bráðabirgðaniðurstöðurnar en flokkur hennar fær 23,73% franskra þingsæta samkvæmt þeim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.